EPISODE · Dec 9, 2025 · 58 MIN
10. Abhyanga. Sjálfsnudd með olíu.
from Lífskastið - Ayurveda á kvennamáli · host Heiða Björk Sturludóttir og Guðrún Kristjánsdóttir
Abhyanga, eða sjálfsnudd með olíu hefur verið iðkað í Austurlöndum í þúsundir ára og það er góð ástæða fyrir því. Þessi iðkun, abhyanga, er ein mikilvægasta athöfnin í ayurveda lífsvísindunum til að vinna gegn öldrun, næra vefi líkamans og halda dósjunum þremur í jafnvægi, - einkum vata dósjunni. Víða á Indlandi tíðkast að nýbakaðar mæður geri abhyanga og beri einnig olíu á litlu nýfæddu krílin. Þetta er gert til að róa vata dósjuna sem fer á flug og eykst mjög í nýbökuðum mæðrum og í börnunum eftir fæðingu. Allt sem er svona mikil líkamleg áreynsla setur vata dósjuna af stað. Hún eykst í líkama og huga og hana þarf að róa sem fyrst eftir fæðingu barns. Fæðing barns er mikið álag á líkama móðurinn og líka mikið álag á líkama barnsins. Það er ekki sama hvenær olían er borin á líkamann, hversu lengi hún fær að liggja á líkamanum, hvaða tegund af olíu er notuð o.s.frv. Um þetta er fjallað í þessum þætti Lífskastsins. Það er mismunandi hvaða olía hentar hverjum. Hefðin býður að nota sesamolíu enda er sú olía einstaklega næringarrík og sefandi fyrir vata dósjuna. Síðan eru jurtastyrktar olíur það allra besta sem hægt er að nota því þá er búið að hita jurtaseyði úr jurtablöndu og seyðið síðan hitað með olíunni á lágum hita þar til allur vökvinn er gufaður upp og kraftur jurtanna genginn inn í olíuna. Olían hefur þar með öðlast eiginleika jurtanna sem voru valdar. Hér er tengill í video sem sýnir hvernig abhyanga er framkvæmt. https://www.youtube.com/watch?v=pQXVretuxQo&t=3sMikilvægt er að þvo olíuna af í heitri sturtu eða baði eftir að hún hefur fengið að liggja í a.m.k. 15 mín á húðinni. Það er til að koma í veg fyrir að olían myndi kapha stíflur. En olían hefur kapha eðli og getur skapað slím í rásum líkamans ef hún er ekki. þvegin í burtu með heitu vatni. Allt er þetta útskýrt betur í þættinum. Abhyanga er bara hreinlega nauðsynleg athöfn fyrir þá sem vilja vinna gegn hrörnun líkamans, smyrja frumurnar og vefina, örva blóðrásina, mýkja vöðva og liði, bæta svefn og andlega líðan. Margar vestrænar rannsóknir hafa nú verið gerðar á áhrifum abhyanga og eru niðurstöðurnar á sömu lund og ayurvedafræðin hafa haldið fram. Hér er tengill yfir í stutta umfjöllun um abhyanga á vef Ástar og Friðar https://astogfridur.is/pages/abhyanga-sjalfsnudd-med-oliu-og-astHér er grein um abhyanga á vef Systrasamlagsins https://systrasamlagid.is/sjalfsnudd-heilun/Hér eru upplýsingar um nokkrar olíur sem oft eru notaðar í abhyangaSesamolía hitandi, nærandi, mjög góð fyrir vata (innihaldsríkaf magnesium, kalk, kopar o.fl. og E vítamíni)Mjög andoxandi, hefur hitandi ogumvefjandi áhrif á vata og kapha. Getur verið of hitandi fyrir pitta. Nær djúpt ofaní vefina og getur þar losað um stíflur. Flytur heilandi kraft annarra jurta mjög vel í sér.Gefur frá sér eigin eiginleika til að gefa eiginleikum annarra jurta pláss. Mjög jarðtengjandi og hefur hreinsandi áhrif á vefi líkamans.Verndar gegn sólbruna. Kókosolíasérlega góð fyrir pitta týpuna og á sumrin þegar heitt erRóar vata og pitta. Hefur kælandi áhrif. Róar Agni. Minnkar brunatilfinningu. Góð fyrir hugann, taugar, minni. Góð fyrir augu, hár, hjarta og lifur. MöndluolíaGóð fyrir vata. Hitandi og endurnærandi. Styrkir og mýkir húð. Er mild olía sem hentar oft viðkvæmri húð.Hentar vel ófrískum konum og börnum. SinnepsolíaGóð fyrir kapha. Er örvandi og hitandi og hentar því vel þeim týpum sem eru með hæg efnaskipti og hafa tilhneygingu til að fitna og safna bjúgi. SólblómaolíaLétt, rakagefandi og kælandi. Góð fyrir pitta. Ekki ertandi fyrir viðkvæma húðina á pitta.AvokadoAvokado olía er ögn kælandi en mjög nærandi og góð fyrir bæði vata og pitta.Systrasamlagið selur margvíslegar vörur tengdar ayurveda eins og olíur fyrir abhyanga. Sjá nánar https://systrasamlagid.is/voruflokkur/ayurveda-vorur/
What this episode covers

NOW PLAYING
10. Abhyanga. Sjálfsnudd með olíu.
No transcript for this episode yet