#15 - Vibe coding og vibe working

EPISODE · Jan 21, 2026 · 47 MIN

#15 - Vibe coding og vibe working

from Gervigreind · host Javelin AI

Vibe coding og vibe working: Nýja verklagið með gervigreindÍ þessum þætti kafa Sverrir og Pétur ofan í hugtak sem hefur verið að fara sigurför um tækniheiminn: „Vibe coding“ eða fílíngsforritun eins og þeir völdu að kalla það á íslensku. Við veltum því fyrir okkur hvernig vinnan okkar breytist þegar við hættum að skrifa hvern staf og byrjum þess í stað að stýra gervigreindinni eftir „vibe-inu“. Sverrir fagnar því jafnframt að tvær af spám hans fyrir árið 2026 eru þegar farnar að rætast, þótt árið sé varla byrjað.Í þættinum er farið yfir:Vibe coding og fílíngsforritun: Hvað þýðir það þegar forritun snýst meira um samskipti og sýn heldur en smáatriðin?Cursor, Replit og Lovable: Við ræðum tækin sem eru að gera fólki kleift að búa til flottan hugbúnað á met-tíma án þess að kunna hefðbundna forritun.Vibe working: Hvernig gervigreind gerir okkur kleift að taka að okkur verkefni langt utan okkar sérfræðisviðs – hvort sem það er markaðssetning, sala eða hönnun.Hættan á „glærusloppi“: Pétur segir frá reynslu sinni af Gamma.app sem býr til glærur út frá texta og við ræðum hvað gæti farið úrskeiðis.Nýtt hlutverk starfsmannsins: Mun sérþekking skipta minna máli en hæfnin til að ritstýra því sem gervigreindin skilar?Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: https://javelin.is/is/courses

NOW PLAYING

#15 - Vibe coding og vibe working

0:00 47:12

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Heimsendir Stefán Þór Þorgeirsson Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira. Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.Artwork: Sherine Otomo Temjum tæknina Háskólinn á Akureyri Temjum tæknina er hlaðvarp um gervigreind og fólk. Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri við Háskólann á Akureyri, tekur á móti gestum og ræðir tækni, spunagreind, sjálfvirkni og áhrif tæknibyltinga á daglegt líf.Gestir þáttarins koma úr ólíkum áttum – allt frá sérfræðingum til þeirra sem eru að taka sín fyrstu skref í tækninni. Áherslan er á mannlegar sögur og tengsl tækni við samfélagið í víðum skilningi og áhrif á ólíkar greinar. Gervigreindarvarpið Gervigreindarsetur Háskóla Íslands Hlaðvarp Gervigreindarseturs Háskóla Íslands fjallar um ýmis álitamál er snerta gervigreind og gagnavísindi. Framvindan - Tæknihlaðvarp Gunnur og Gunnlaugur Framvindan er hlaðvarp um nýja tækni og gervigreind, þar sem flókin hugtök eru gerð aðgengileg og nýjar tæknilausnir eru skoðaðar og ræddar. Umsjón með þáttunum hafa hjónin Gunnur von Matern og Gunnlaugur Egilsson, sem bæði hafa unnið lengi í tæknigeiranum í Stokkhólmi.Í þáttunum deila þau innsýn sinni með hlustendum sem vilja skilja afleiðingar tækninnar í dag og hvað sé framundan.
URL copied to clipboard!