EPISODE · May 19, 2026 · 56 MIN
Brunað milli kvikmyndahátíða: Cannes, Zürich, Patreksfjörður
from Lestin
Við ætlum að flakka milli kvikmyndahátíða í Lestinni í dag. Við verðum Í Suður-Frakklandi, í Sviss og á Patreksfirði. Við hringjum til Cannes þar sem einhver þekktasta kvikmyndahátíð heims stendur nú yfir, þar er Lóa Björk stödd og við tökum stöðuna á henni. Við heyrum líka í Kristínu Andreu Þórðardóttur sem er einn skipuleggjenda heimildamyndahátíðarinnar Skjaldborg sem fer fram venju samkvæmt á Patreksfirði um Hvítasunnuhelgina. Og svo heyrum við um svissnesku hátíðina Videoex sem er tileinkuð tilraunakenndri kvikmyndagerð, en íslenskar myndir verða í sérstökum brennidepli á hátíðinni í ár. Rithöfundurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Sjón segir frá, en hann sá um valið á tilraunakenndum islenskum myndum sem sýndar eru á hátíðinni.
NOW PLAYING
Brunað milli kvikmyndahátíða: Cannes, Zürich, Patreksfjörður
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
Nov 7, 2020 ·9m
Mar 30, 2020 ·1m
Apr 9, 2018