PODCAST · news
Fréttir dagsins
by Fréttir dagsins
Fréttir dagsins er hlaðvarp sem gefur út helstu fréttir dagsins alla morgna.
-
108
16.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Hundruð manns hafa leitað í fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins á Norðurlandi vestra í kvöld. Veðurviðvararnir eru fallnar úr gildi en Holtavörðuheiðin stendur enn lokuð. Ekki er ljóst hvenær hún opnar að nýju. Laufey hélt sína aðra og síðustu tónleika helgarinnar í kvöld í Kórnum í Kópavogi og lýkur hún þar með tónleikaferðalagi sínu þar sem hún hefur meðal annars komið við í New-York og Lundúnum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir marga þakka fyrir þá forystu sem hún segir að Kanada hafi sýnt á alþjóðasviðinu, á tímum þar sem mikið rót hefur verið á þeim vettvangi. Isavia lokaði í fyrrinótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli þrátt fyrir að félagið hafi að eigin sögn fengið greiðsluskjól vegna vangreiddrar leigu samkvæmt dómsúrskurði. Framkvæmdastjóri verslunarinnar kveðst hrædd og sakar rekstraraðila flugvallarins um lögbrot. Sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson gerði sér lítið fyrir og setti nýtt Íslandsmet í greininni á Evrópubikarkastmótinu á Kýpur núna í morgun. Kastið nægði Hilmari einnig til þess að tryggja sér sæti á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum sem fer fram í Birmingham í sumar. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum og á Ísafirði er hættustig. Þar hafa nokkur atvinnuhús undir Seljalandshlíð verið rýmd, á reit níu – þar er meðal annars Netagerðin sem hýsir ýmsa atvinnu og listastarfsemi. Slökkviliðsmenn slökktu í kvöld eld sem kom upp í fjölbýli í Úlfarsárdal. Engan sakaði. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
107
15.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Líbönsk stjórnvöld hafa samþykkt tillögu frá Frökkum sem leggur grunn að friðarviðræðum við Ísrael. Tillögurnar eru sagðar kveða á um að Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki en Ísraelsmenn búa sig nú undir aukinn landhernað í Líbanon í von um að leysa upp Hezbolla. Bandaríkin gerðu árás á aðalútflutningshöfn Írana í nótt og írönsk stjórnvöld hóta nú að ráðast á hafnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem gæti valdið talsverðri stigmögnun á stríðinu í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti heldur því fram að Bretar, Kínverjar og Frakkar ætli meðal annars að aðstoða við að tryggja örugga olíuflutninga um Hormússund en téð ríki eiga enn eftir að staðfesta það. Enn hefur ekkert sést til æðstaklerks Írans. Mjög stórt snjóflóð féll fyrir utan Siglufjörð í nótt en Siglufjarðarvegi hefur verið lokað frá Ketilási til Strákaganga vegna þessa. Hættustig vegna snjóflóða er nú í gildi á norðanverðum Tröllaskaga. Isavia lokaði í nótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þrátt fyrir að félagið hafi fengið greiðsluskjól samkvæmt dómaraúrskurði. Gerðist þetta í kjölfar þess að framkvæmdastjóri verslunarinnar gagnrýndi framferði flugvallarins og sagðist ætla að fara fram á lögbann á hendur ríkisfyrirtækinu. Stórtónleikar Laufeyjar í Kórnum í Kópavogi í kvöld voru töfrum líkastir, að sögn tónleikagesta sem mbl.is náði tali af að tónleikunum loknum. Brynju Dan Gunnarsdóttur hefur verið gert að víkja sem oddviti Framsóknar í Garðabæ. Hún segist hvorki munu taka sæti á lista flokksins í komandi kosningum né styðja flokkinn á nokkurn hátt. Skautafélag Reykjavík er Íslandsmeistari karla í íshokkí eftir að sópað Skautafélagi Akureyrar í úrslitaeinvíginu. SR vann einvígið 3-0 og leik kvöldsins 3-2. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
106
14.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, borgarstjóri, seðlabankastjóri og ritstjóri Morgunblaðsins, var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag. Kjartan Kjartansson, blaðamaður Vísis, hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2025 fyrir umfjöllun sína um loftslagsmál. Karlmaður hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga sex ára stúlku tvívegis og eiginkonu sinni ítrekað. Hann var einnig dæmdur fyrir að hafa ljósmyndað athæfi sitt og birt ljósmyndir af því á netinu og að hafa í fórum sínum barnaníðsefni, sem sýnir meðal annars kornabörn. Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld og fyrrverandi rektor Listaháskólans, er látinn, 74 ára að aldri. Hjálmar lést á líknardeild Landspítalans í nótt. Hjálmar starfaði sem tónskáld, söngstjóri, kennari og var rektor LHÍ til fimmtán ára auk þess sem hann tók virkan þátt í félagsmálum listamanna. Bandaríski herinn gerði miklar árásir á Kharg-eyju norðarlega í Persaflóa í gær. Nær allur flutningur á hráolíu fer um eyjuna. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá árásunum í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social, og sagði árásirnar vera einar mestu árásir sögunnar í Mið-Austurlöndum og að hernaðarleg skotmörk hefðu verið þurrkuð út í krúnudjásni Írans, á Kharg-eyju. Allir sex í áhöfn bandarískrar eldsneytisflutningaflugvélar sem brotlenti í Írak í gær eru látnir. Ástæður slyssins eru enn til rannsóknar en svo virðist sem tvær flugvélar af gerðinni KC-135 havi skollið saman við dælingu eldsneytis í háloftunum yfir Írak í gær. Önnur hafi þá hrapað til jarðar en flugmönnum hinnar tókst að lenda í Ísrael. Grindavík tryggði sér deildarmeistaratitilinn með mögnuðum 94-88 sigri á Stjörnunni í kvöld í 20. umferð Bónus deild karla. Stjarnan var lengst af yfir í leiknum en Grindvíkingar sýndu mikinn karakter og snéru leiknum sér í vil undir lok leiksins. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
105
13.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Síminn og Sýn hafa náð samkomulagi um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna. Viðskiptin eru sögð háð niðurstöðum áreiðanaleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda. Íslensk stjórnvöld taka nú þátt í máli gegn Ísrael fyrir Aþjóðadómstólnum vegna stríðsreksturs þess á Gasaströndinni. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland tekur þátt í málarekstri af þessu tagi. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað mikið síðan Ísrael og Bandaríkin hófu árásir á Íran 28. febrúar. Hormússund er lokað fyrir alla olíuflutninga og því er ekki hægt að anna eftirspurn á heimsmörkuðum. Verð á Brent hráolíutunnu er nú yfir 100 dollurum sem hefur ekki gerst síðan í ágúst 2022. Þó nokkur snjóflóð hafa fallið á norðanverðum Vestfjörðum í dag en ekki er talin hætta í byggð sem stendur. Flateyrarvegi verður lokað klukkan 20 í kvöld vegna snjóflóðahættu. Einnig er varað við aðstæðum á Norðvesturlandi og við Hellisheiði. Valur vann 28-34 á útivelli gegn ÍBV og tryggði sér deildarmeistaratitilinn í lokaumferð Olís deildar karla. ÍR er fallið úr Olís-deild karla eftir tap gegn FH og er ljóst að liðið leikur í næstefstu deild á næsta tímabili. Meðalbiðtími eftir næsta lausa tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu er að jafnaði 27 dagar samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Aðeins tvær heilsugæslur standast viðmiði landlæknis. Íslenska ríkið var sýknað af bótakröfu aðstandenda ungrar konu sem lést þegar tveir lögreglumenn höfðu afskipti af henni þar sem hún var í geðrofi árið 2019. Héraðsdómur taldi lögreglumennina ekki hafa getað séð fyrir afleiðingar afskipta sinna af henni. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
104
12.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Hæstiréttur hefur ómerkt sýknudóm þeirra Sindra Snæs Birgissonar og Ísidórs Nathanssonar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Málinu var vísað aftur til Landsréttar til meðferðar. Verðbólguhorfur hafa versnað og því er viðbúið að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína á miðvikudag eftir viku, að mati Greiningardeildar Íslandsbanka. Stýrivextir voru lækkaðir úr 7,50 í 7,25 prósent í nóvember í fyrra en greiningardeildin spáir því að sú lækkun gangi til baka á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabankans. Stefán Vagn Stefánsson er nýr þingflokksformaður Framsóknar, en tillaga þess efnis var samþykkt á þingflokksfundi flokksins á Alþingi í dag. Hann tekur við af Ingibjörgu Isaksen. Á þingflokksfundinum var einnig samþykkt að Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Norðausturkjördæmis yrði varaþingflokksformaður. Kjartan Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem gekk til liðs við Miðflokkinn verður formaður nýs borgarstjórnarflokks óháðra sem tekur formlega til starfa á föstudaginn. Auk Kjartans eru í flokknum Marta Guðjónsdóttir, sem einnig var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Helgi Áss Grétarsson 1. varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem gekk til liðs við Miðflokkinn í janúar. Í nýrri skýrslu um Hafrannsóknastofnun er bent á slæma vinnustaðamenningu, óljósa forgangsröðun verkefna og reynsluleysi forstjóra af stjórnun. Lagt er til að lögbundið hlutverk stofnunarinnar verði einfaldað og skýrt með áherslu á vísindadrifna ráðgjöf og grunnrannsóknir. Ráðherra menningarmála vill hækka hámarksrefsingu fyrir höfundalagabrot úr tveggja ára fangelsi í sex. Lágur refsirammi endurspegli ekki alvarleika brotanna og það grafi undan kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu hér á landi. Hljómsveitin Pearl Jam segist standa með íslensku þjóðinni í baráttunni fyrir því að binda enda á laxeldi í opnum sjókvíum. Í færslu á Instagram hvetur hljómsveitin aðdáendur til að skrifa undir undirskriftalista þess efnis. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
103
11.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Bandaríkjaher segist hafa grandað sextán skipum sem leggja tundurdufl í eigu Írana. Herinn birti myndskeið af árásunum. Evrópumálin eru komin kyrfilega á dagskrá eftir að ríkisstjórnin kynnti á föstudag þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst. Spurt verður: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Stúlkan sem lögreglan á Vesturlandi og björgunarsveitir leituðu að í gærkvöldi er fundin. Lögreglan á Akureyri hefur til rannsóknar kynferðisbrot sem átti sér stað í bænum aðfaranótt sunnudags. Fleiri en einn sakborningur eru grunaðir vegna málsins. Kona, sem er grunuð um að hafa banað dóttur sinni og eiginmanni, verður áfram í farbanni til 30. mars. Þetta kemur fram í nýlega birtum úrskurði Landsréttar. Sex eru látnir og fimm eru slasaðir, þar af þrír alvarlega, eftir að eldur kom upp í rútu í Sviss í gærkvöld. Rútan var í smábænum Kerzers sem er staðsettur um 20 kílómetra vestur af höfuðborginni Bern. Samlagsfélag Torfa Fjalars Jónassonar hjartalæknis og Ölmu Möller, þingmanns Samfylkingarinnar og núverandi heilbrigðisráðherra, fékk greiddar tæplega 30 milljónir króna í verktakagreiðslur fyrir svokölluð ferliverk á Sjúkrahúsinu á Akureyri á árunum 2023 til 2025. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
102
10.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka ætti upp aðildarviðræður við Evrópusambandið (ESB) á ný. Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að átökin við Íran verði yfirstaðin „innan tíðar“ en að Bandaríkin eigi enn eftir að hrósa fullnaðarsigri. Hann segir Bandaríkjaher hafa tekist að eyðileggja allt að níutíu prósent af hernaðarinnviðum í landinu undanfarna tíu daga. Vinna hófst við niðurrif altjónaðra húsa í Grindavík í morgun. Verktakinn segir tilfinningarnar blendnar. Hann ætli að fara áfram á hnefanum líkt og hann hafi gert frá rýmingu bæjarins. Þá opnar matvöruverslun í bænum á næstu dögum en engin slík hefur verið í Grindavík í rúm tvö ár. Verð á hráolíu lækkaði um næstum sex af hundraði á Bandaríkjamarkaði eftir óvænta yfirlýsingu Donalds Trump forseta um að stríðinu gegn Íran lyki senn. Á ellefta tímanum í kvöld var tunnan af West Texas Intermediate komin niður í rúma 89 bandaríkjadali á tunnuna eftir að hafa farið yfir 119 dali fyrr í dag. Þrír menn eru í haldi lögreglu grunaðir um kynferðisbrot gegn konu á þrítugsaldri á hóteli á Akureyri aðfaranótt sunnudags. Þátttaka kvenna í skimunum fyrir brjóstakrabbameini og leghálskrabbameini hefur aukist verulega síðustu ár og nálgast sett markmið um þátttöku. Skimanirnar fara fram á heilsugæslustöðvum um land allt. Nýliðinn febrúar var sá fimmti heitasti á heimsvísu frá því mælingar hófust og einkenndist af öfgum með úrhellisrigningum og flóðum í vesturhluta Evrópu. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
101
09.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Mojtaba Khamenei er nýr æðstiklerkur Íran. Hann tekur við af föður sínum, Ayatollah Ali Khamenei, sem lést í loftárásum Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna þann 28. febrúar. Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörin formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi flokksins í dag. Hún fékk 95 atkvæði af 101. Hlynur Már Ragnheiðarson sóttist einnig eftir formannskjöri. Talið er að sprengingin við bandaríska sendiráðið í Ósló í nótt hafi verið skipulögð aðgerð og eitt af því sem er til rannsóknar er hvort það tengist hryðjuverkum. Aðrir möguleikar eru einnig í stöðunni. Enginn er í haldi. Innviðaráðherra hefur áhyggjur af lækkun hlutabréfaverðs Icelandair. Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um tuttugu prósent frá áramótum. Hrottafengnu ofbeldi er lýst gegn maltneskum karlmanni sem var frelsissviptur árið 2024. Sex hafa verið ákærðir fyrir verknaðinn en eftir að hafa neytt hann til að millifæra átján milljónir króna þvinguðu þau hann til að fara úr landi. Allt of mörg tilvik eru um rangar rukkanir vegna kílómetragjaldsins sem tekið var upp um sl. áramót og segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, að Skatturinn hafi viðurkennt að tæknilegir gallar séu í kerfunum sem unnið er eftir við álagningu gjaldsins. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur í öryggisskyni skipað því starfsfólki sem ekki sinnir brýnustu starfsskyldum og fjölskyldum þess að yfirgefa sendiráð landsins í Sádi Arabíu. Íranir hafa ítrekað gert árásir á Sádi Arabíu í hefndarskyni fyrir atlögur herja Bandaríkjanna og Ísraels. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
100
08.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu er komin á dagskrá þingfundar Alþingis á mánudag. Tillagan var kynnt á blaðamannafundi í gær, þar sem stefnt er að þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Írani bera ábyrgð á loftárás á stúlknaskóla í borginni Minab um síðustu helgi þar sem minnst 150 nemendur fórust. „Já ég held þetta sé þeim að kenna. Eins og þið vitið eru Íranir afskaplega ónákvæmir með hergögnin sín,“ sagði Donald Trump við fréttafólk um borð í forsetaþotunni. „Þá hreinlega skortir alla nákvæmni,“ sagði Trump. Öflug sprenging varð við innganginn að bandaríska sendiráðinu í norsku höfuðborginni Ósló laust fyrir klukkan eitt að staðartíma í nótt. Michael Dellemyr, viðbragðsstjóri hjá Oslóarlögreglunni, segir í samtali við NRK að minni háttar skemmdir hafi orðið en vill ekki tíunda það frekar að svo stöddu. Kristinn Jón Ólafsson varaborgarfulltrúi Pírata leiðir lista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hann tekur við oddvitasætinu af Alexöndru Briem sem vildi halda áfram. Hún hefur ekki gefið kost á viðtali. Alls voru 230 atkvæði greidd í kosningunni, sem var rafræn. „Miðjan færist til hægri. Hægrið færist enn lengra í sömu átt,“ sagði Svandís Svavarsdóttir í síðustu ræðu sinni sem formaður Vinstri grænna. Hún gagnrýndi Samfylkinguna sem væri að vinna á „þríþrautarmóti í vondri pólitík“. England vann 2-0 sigur gegn Íslandi í undankeppni HM kvenna í fótbolta þökk sé marki og stoðsendingu frá Lucy Bronze. Á Íslandi er bannað samkvæmt lögum að byggja hús sem ekki standast íslenskt veðurfar. Í Mannvirkjalögum og Byggingarreglugerð er skýrt kveðið á um að mannvirki skuli hönnuð og byggð þannig að þau þoli íslenskar veður- og raka aðstæður og valdi ekki heilsutjóni fyrir íbúa eða notendur. Viðurlög við brotum getur verið allt að 2ja ára fangelsi. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
99
07.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Það tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Forsætisráðherra sagði tilefni til viðræðna núna. Samningsstaða Íslendinga væri góð, betri en áður, auk þess sem mikið rót væri í alþjóðamálum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að ekkert samkomulag verði gert við klerkastjórnina í Íran. Alger og skilyrðislaus uppgjöf sé það eina sem komi til greina. Eftir að búið sé að velja nýja(n) ásættanlega(n) leiðtoga landsins, sem hann segist vilja fá að velja, geti uppbygging Íran hafist. Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúar hafa ákveðið að segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn og ganga til liðs við Miðflokkinn. Þau segjast telja Miðflokkinn mun líklegri til að vinna að meginmarkmiðum þeirra í borgarmálum. Illviðrið sem gengur yfir hefur áhrif á flugsamgöngur á Keflavíkurflugvelli. Brottför Icelandair til Prag hefur verið frestað til klukkan ellefu og ferða til Amsterdam, Parísar og Helsinki á áttunda tímanum aflýst. Nokkrar brottfarir á þeim tíma eru enn á áætlun samkvæmt vef Isavia en flestum brottförum og áætluðum lendingum hefur verið frestað um nokkra klukkutíma. Stjórnendur íslenska gagnaverafyrirtækisins atNorth áttu hlutabréf í fyrirtækinu fyrir rúmlega 24 milljarða króna við sölu þess. Fyrirtækið hefur verið selt fyrir 485 milljarða króna líkt og sagt var frá í vikunni. Kaupendur eru bandaríska gagnaversfyrirtækið Equinix og kanadíski lífeyrissjóðurinn Canada Pension Plan Investment Board. Kristinn Jón Ólafsson verður oddviti Pírata í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningum í vor. Hann hafði betur gegn Alexöndru Briem núverandi oddvita í prófkjöri. Innlögnum á Landspítala vegna áfengisneyslu hefur fjölgað töluvert síðustu áratugi og flestir leggjast inn með geð- og atferlisraskanir eða áfengistengda lifrar- eða brissjúkdóma. Innlagnir árið 2005 voru 101 en árið 2022 voru þær 250. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Læknablaðinu. Innlögnum fjölgaði um 88% á þessu tímabili. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
98
06.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kynnir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu (ESB) á fundi ríkisstjórnar á morgun. Beint eftir fundinn verður haldinn blaðamannafundur þar sem efnisatriði tillögunnar verða kynnt og dagsetning atkvæðagreiðslunnar. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fór mikinn á iðnþingi Samtaka iðnaðarins í dag þar sem hann boðaði róttækar breytingar á raforkulögum. Breytingar miða að því að ágreiningur við landeigendur tefji ekki þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir um mörg ár. 181 er á lista borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins yfir þá sem látið hafa vita af sér í Mið-Austurlöndum. Þar af 68 fjölskyldur. 35 úr þeim hópi séu þegar farnir heim, ýmist á eigin vegum eða með björgunarflugi. Þá sé einnig stór hópur sem ekki hafi í hyggju að yfirgefa Mið-Austurlönd. Þetta kyrrðarsamfélag hefur samt verið í hálfgerðu áfalli eftir að sextugum palestínskum karlmanni með maltneskt ríkisfang var haldið föngnum á heimili sínu í þrjá sólarhringa, hann beittur miklu harðræði og ævisparnaði hans rænt. Ályktun stjórnar Læknafélag Íslands um tengingu örorku- og almannatryggingabóta við vísitölur vekur djúpar áhyggjur meðal þeirra sem lifa við langvinn og hamlandi veikindi. Útför Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, sem gerð verður frá Hallgrímskirkju 13. mars verður send út á RÚV. Stöðvarskylda leigubílstjóra var endurvakin með lagabreytingu sem samþykkt var á Alþingi í dag. Þurfa bílstjórar að vera skráðir hjá leigubifreiðastöð með gilt starfsleyfi og verður stöðvunum skylt að skrá allar ferðir, þar á meðal upphafs- og endastöð, staðsetningu bifreiðar, akstursleið og greiðslur farþega. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
97
05.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í dag er sagt sýna það þegar bandarískur kafbátur grandar írönsku herskipi. Minnst 140 úr áhöfn er saknað en það tókst að bjarga nokkrum tugum manna. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að taka ummæli kanslara kaþólsku kirkjunnar til skoðunar og meta hvort tilefni sé til að hefja frumkvæðisathugun. Dómsmálaráðherra hefur beðið skrifstofu jafnréttismála að gera úttekt á umfangi bælingarmeðferðar sem allsherjar-og menntamálanefnd mæltist til að yrði gerð fyrir þremur árum. Átján Íslendingar hafa óskað eftir því að fá sæti í skipulögðum björgunarferðum frá Jórdaníu og Sádí-Arabíu á morgun og á föstudag. Ekki liggur fyrir hversu mörg sæti verða í boði fyrir Íslendinga í ferðunum. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, hafa verið ákærð fyrir sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán í Reykholti fyrir tveimur árum. Frumvarp Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur um afturköllun kvótasetningar á grásleppu var samþykkt á Alþingi í dag. Á næsta fiskveiðiári verða veiðar á grásleppu því aftur byggðar á sóknardögum, ekki kvóta. Meirihluti velferðarnefndar hefur afgreitt umdeilt frumvarp um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu og fer það til þriðju og síðustu umræðu. Bráðamóttaka Landspítalans er yfirfull og hefur ástandið aldrei verið verra að mati starfsfólks. Til stendur að opna nýtt hjúkrunarheimili, eða svokallað biðrými, í Urðarhvarfi í Kópavogi á næstu vikum. Rýmið á að geta tekið inn allt að 100 sjúklinga í senn. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
96
04.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Davíð Oddsson ritstjóri, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sem lést að heimili sínu á sunnudaginn, 78 ára að aldri, mun hljóta opinbera útför. Banamein Davíðs var hjartaáfall. Fyrrverandi formaður stjórnar Viðreisnar í Reykjavík er sakaður um fjárdrátt og að hafa millifært fjórar til fimm milljónir króna úr sjóðum félagsins. Málið hefur verið kært til lögreglu og steig formaðurinn til hliðar um helgina. Um 140 íslenskir ríkisborgarar eru staddir á áhrifasvæðum átakanna í Miðausturlöndum þar sem ófriður breiðist út með hraði. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að hún sé í virku samtali við hópinn. Forstjóri atNorth á ekki von á að sala fyrirtækisins leiði til breytinga á starfsemi þess hér á landi. Bandaríska gagnaversfyrirtækið Equinix og kanadíski lífeyrissjóðurinn Canada Pension Plan Investment Board gengu frá kaupum á atNorth í síðari hluta febrúar. Landsvirkjun hyggst verja 190 milljörðum króna í framkvæmdir á næstu fimm árum. Þrátt fyrir stórhuga áform er áfram stefnt á að borga 15 til 20 milljarða króna í arð á hverju ári. Atvinnuvegaráðherra varði lögmæti frumvarps um afturköllun kvótasetningar á grásleppu á fundi atvinnuveganefndar. Hún hyggst leyfa með reglugerð að net séu tekin upp í vondum veðrum. Engan sakaði þegar allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan fjögur í nótt vegna eldsvoða á neðstu hæð fjölbýlishúss í Grafarholti. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir í íbúðina hafa verið alelda en að vel hafi gengið að slökkva eldinn. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
95
03.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og einn áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldistímans, er látinn. Hann lést á heimili sínu í Skerjafirði í gær. Davíð var 78 ára að aldri. Íslensk kona sem býr í Barein segir ástandið þar undanfarna sólarhringa skelfilegt. Íranir hafi ráðist á flotastöð sem er í hálftíma fjarlægð frá henni og búið sé að loka flugvellinum. Sírenuvæl sé á tveggja tíma fresti og haldi fyrir þeim vöku. Svartabylur geisaði á Austfjörðum í dag og var fólki ráðlagt að halda sig innandyra. Gular viðvaranir vegna hríðarveðurs tóku gildi í morgun á austanverðu landinu og í hádeginu tóku appelsínugular viðvaranir gildi á Austurlandi og Austfjörðum. Ferðamenn sátu fastir og björgunarsveitir stóðu í ströngu við að hjálpa ökumönnum í vanda og flytja heilbrigðisstarfsfólk til vinnu. Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseti, greindi frá því í vitnisburði sínum fyrir eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings nýverið, að sambandi hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein hefði lokið 2003. Hann sagði að samskiptum þeirra hefði lokið þegar Clinton hitti styrktaraðila sem hentuðu betur en Epstein fyrir góðgerðasamtök Clintons, Clinton Global Initiative. Hann sagði að sér hefði þótt Epstein áhugaverður maður en hann hefði ekki haft mikinn áhuga á góðgerðarstarfi Clintons. Samskiptum þeirra hefði lokið löngu áður en upp komst um glæpi Epstein. Tollgæslan tók þátt í alþjóðlegum aðgerðum 30 ríkja á vegum Europol þar sem var skorin upp herör gegn smygli á og viðskiptum með ólögleg lyf. Aðgerðirnar leiddu til þess að lagt var hald á lyf fyrir 33 milljónir evra, 3.354 einstaklingar ákærðir og 43 skipulagðir glæpahópar rannsakaðir. Lyfjastofnun liðsinnti Tollgæslunni við aðgerðirnar. Í fyrsta skipti í fimm ár voru samræmd próf lögð fyrir grunnskólanemendur landsins. Þrátt fyrir minni háttar tæknivandræði fyrri hluta dags segir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu að próftakan hafi almennt gengið vel. Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á öðrum tímanum í dag vegna elds sem kom upp í iðnaðarhúsnæði að Brekkutröð í Hafnarfirði. Eldurinn var slökktur rétt eftir klukkan fimm. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
94
02.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra lést á heimili sínu í gær, 78 ára að aldri. Með honum er genginn einn af áhrifamestu stjórnmálamönnum landsins um áratugaskeið. Íranir heita hefndum eftir að fjöldi háttsettra manna, þar á meðal æðsti leiðtogi landsins, var felldur í árásum Ísraels og Bandaríkjanna í gær. Ísraelsmenn segjast hafa drepið æðstaklerkinn í fyrstu sprengjuhríðinni í gær, sem lagði aðsetur hans í eyði. Appelsínugul viðvörun tekur gildi á Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum klukkan 13 í dag en þar er spáð norðvestan 20-28 m/s með snjókomu og skafrenningi. Á þessum stöðum verður ekkert ferðaveður og er staðbundið foktjón mögulegt. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur snarhækkað um helgina eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran að morgni laugardags. Verð á tunnu af Brent-hráolíu hafði hækkað um 13% þegar markaðir opnuðu í Asíu að morgni mánudags að staðartíma, frá því á föstudaginn þegar markaðir lokuðu. Tveir eru látnir og að minnsta kosti 14 eru særðir, þar af þrír alvarlega, eftir skotárás á bar í Austin, Texas í Bandaríkjunum í gær. Maðurinn kom keyrandi á bíl og hóf skothríð úr bíl sínum á fólk sem stóð fyrir utan barinn. Dómsmálaráðherra segir ótímabært að segja hvort Helga Jenssyni, lögreglustjóra á Vestfjörðum, verði vikið frá störfum eftir að kvartað var undan hegðun hans á þorrablóti Flateyringa – Stútungi – fyrr í mánuðinum. Kvartanirnar sneru annars vegar að kynferðislegri áreitni og hins vegar að því að hann hefði ráðist líkamlega að manni á þorrablótinu. Landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen hefur gert tvær breytingar á leikmannahóp körfuboltalandsliðsins. Liðið mætir Litáen á mánudagskvöld en Ísland vann sögufrægan sigur gegn sama liði á föstudaginn. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
93
01.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, er sagður látinn eftir umfangsmiklar loftárásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna á Íran í dag. Þetta segir Bandaríkjaforseti en aðsetur Khamenei í Teheran var lagt í rúst í árásunum í dag. Haukar urðu í kvöld bikarmeistarar í handbolta karla eftir sannfærandi 28-21 sigur liðsins gegn ÍR í úrslitaleik keppninnar í Kuehne+Nagel höllin að Ásvöllum. Þetta er í áttunda skiptið sem Haukar verða bikarmeistarar í karlaflokki í handbolta. Valur er bikarmeistari kvenna í handbolta árið 2026 eftir 23-19 sigur á Haukum í úrslitaleik að Ásvöllum. Andri Þór Guðmundsson hefur ákveðið að láta af störfum eftir að hafa starfað sem forstjóri Ölgerðarinnar, sem mun nú heita Bera, í rúmlega tvo áratugi. Hann hyggst þó ekki fara langt enda býður hann sig fram til stjórnarformennsku í móðurfélaginu Beru. Hildur Björnsdóttir, Bjarni Eggerts Guðjónsson, Brynjar Þór Níelsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason verða í efstu fimm sætunum á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Listinn var kynntur í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll nú fyrir stundu. MR-ingurinn Illugi Gunnarsson var í dag kjörinn nýr formaður Ungra vinstri grænna. Hann er sonur Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi flokksformanns og forsætisráðherra. Elvar Már Friðriksson kórónaði stórkostlega frammistöðu sína gegn Litáen í undankeppni HM 2027 með því að skora sigurkörfu Íslands gegn þessari öflugu körfuboltaþjóð í þann mund sem leiktíminn rann út. Gærkvöldið var eitt það eftirminnilegasta í sögu íslenska körfuboltalandsliðsins og sigurinn einn sá fræknasti. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
92
28.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann í kvöld sinn fyrsta sigur á Litháen síðan í janúar 1992. Íslenska liðið lenti mest 21 stigi undir í leiknum en tryggði sér 86-85 sigur með því að vinna lokaleikhlutann 32-17. Heildarkröfur í þrotabú flugfélagsins Play sem varð gjaldþrota í september nema um 21 milljarði króna. Ólíklegt er að nokkuð fáist upp í almennar kröfur í búið en meðal þeirra er sekt frá Umhverfisstofnun upp á 2,2 milljarða króna. Reykjavíkurborg sleit samningi við verktaka sem vann að framkvæmdum í Ölduselsskóla fyrirvaralaust á miðvikudag. Skólinn var lokaður í dag þar sem starfsfólk treysti sér ekki til að vinna við þær aðstæður sem sköpuðust og fimm hundruð börn sátu heima. Ríkisstjórnin ræddi aðgerðir gegn verðbólgunni á reglulegum ríkisstjórnarfundi sínum í morgun og ætlar að blása til aðgerðar. Fundað verður með aðilum vinnumarkaðarins eftir helgi. Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segist ekki hafa haft neina hugmynd um glæpi kynferðisbrotamannsins og barnaníðingsins Jeffreys Epsteins. Hann ber vitni fyrir eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings um samband sitt við hann en vitnaleiðslan er fyrir luktum dyrum. Samfylkingin fengi mest fylgi ef kosið yrði til borgarstjórnar nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Fylgi hennar og Sjálfstæðisflokksins minnkar milli kannana meðan fylgi Miðflokksins er enn á uppleið. Stjórnvöld ræða við Spán og Pólland um að taka við föngum þaðan, sem afplána hér á landi. Við ætlum að koma þessum mönnum úr landi, segir dómsmálaráðherra. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
91
27.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Um sex hundruð farþegar um borð í fjórum Icelandair-vélum eru enn fastir á Akureyri eftir að fimmtán vélum flugfélagsins var í dag vísað á varaflugvelli vegna óveðurs í Keflavík. Nú eru áhafnir vélanna runnar út á tíma og nýjar áhafnir á leið með flugi frá Reykjavík. Verðbólga mældist 5,2 prósent í febrúar, eftir að hafa einnig mælst 5,2 prósent í janúar. Landsréttur hefur staðfest sakfellingu Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðingur fyrir manndráp af gáleysi fyrir hlut hennar í andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans árið 2021. Henni er ekki gerð refsing. Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi fékk ekki sæti á lista Samfylkingarinnar í borginni fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Dóra skipti yfir í Samfylkinguna úr Pírötum í lok síðasta árs. 75 óskilorðsbundnar fangelsisrefsingar fyrndust í fyrra og 98 árið þar á undan. Vel á áttunda hundrað bíða nú refsivistar. Fangelsin eru yfirfull, segir forstjóri Fangelsismálastofnunar. 84% þeirra sem hófu gæsluvarðhald í fyrra voru erlendir ríkisborgarar. Strætisvagn fór út af veginum á Holtavörðuheiði á sjöunda tímanum í dag. Björgunarsveitirnar Húnar á Hvammstanga, Blanda á Blönduósi og Heiðar í Borgarfirði voru kallaðar út til aðstoða um fimmtán manns sem voru í vagninum. Skólahald í öllum tíu árgöngum Ölduselsskóla í Breiðholti í Reykjavík hefur verið fellt niður á morgun með skömmum fyrirvara með hagsmuni og öryggi barna og starfsfólks að leiðarljósi. Foreldrar barna í skólanum skilja hvorki upp né niður og velta fyrir sér hvað hafi eiginlega komið upp á. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
90
26.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Forsætisráðherra Póllands talaði ítrekað fyrir því að Ísland myndi ganga í Evrópusambandið á sameiginlegum blaðamannafundi hans með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands. Hún ítrekaði að ákvörðun um áframhaldandi viðræður við ESB ættu eftir að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún tók fram að atkvæðagreiðslan verði á næstu mánuðum. Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun á höfuðborgarsvæðinu vegna talsverðrar eða mikillar snjókomu. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, segir til skoðunar að færa hluta af starfsemi göngudeildar spítalans í annað húsnæði. Stöðugt verði að vinna að nýjum úrræðum. Langan tíma taki að hrinda þeim í framkvæmd og þegar þau eru tilbúin til notkunar hafi mikið bæst í hóp þeirra sem spítalinn verður að þjónusta. Demókratar saka ríkisstjórn Donalds Trumps um mestu yfirhylmingu í sögunni vegna nýrra upplýsinga um óbirt gögn í Epstein-málinu. Marius Borg Høiby, stjúpsonur Hákonar krónprins Noregs, segir að þó að hann eigi í vandræðum með skap sitt hafi hann aldrei beitt nokkurn mann ofbeldi. Hann segir framburð fyrrverandi kærustu sinnar um samband þeirra ekki réttan. Tólf starfsmönnum var sagt upp störfum hjá Sjúkratryggingum Íslands í dag. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að uppsagnirnar séu til að auka skilvirkni og efla lykilþætti í starfseminni. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur úrskurðað grískan karlmann sem grunaður er um að hafa ráðið portúgölskum manni bana í Kópavogi, í áframhaldandi gæsluvarðhald. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
89
25.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, er nú stödd í Kænugarði þar sem hún mun í dag verða viðstödd minningarathafnir vegna þess að fjögur ár eru liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Íslenska frumkvöðlafyrirtækið Kerecis mun í haust greiða 40 milljarða króna eingreiðslu í ríkissjóð Íslands. Um er að ræða skatt vegna kaupa Coloplast, móðurfélags Kerecis, á hugverkaréttindum dótturfyrirækisins. Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á sjúkrahús þar sem hann er nú staddur á Tenerife. Ástæðan er sýking og vökvaskortur en að öðru leyti er ástand konungsins gott. Samgöngustofa hefur ógilt skoðanir á gúmmíbjörgunarbátum sem einn þjónustuaðili framkvæmdi árið 2025 í framhaldi af auknu eftirliti. Ákvörðunin byggir á frávikum sem komu í ljós við nýlega útttekt. Gló stuðningsfélag hefur ekki fengið áframhaldandi styrki til aukaverkefna á vegum Reykjadals fyrir næstkomandi sumar. Ekkert verður því af svokölluðum Ævintýrabúðum og Vinahópum í sumar. Miðflokknum fatast flugið og Sjálfstæðisflokkurinn nær vopnum sínum í nýrri könnun Maskínu. Niðurstöðurnar voru birtar í kvöldfréttum Sýnar í kvöld en meðal annarra tíðinda eru þau að Píratar mælast í þetta skiptið með meira fylgi en Flokkur fólksins. Lögreglan á Suðurnesjum auk lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu biðlar til vegfarenda um að taka ekki óþarfa áhættu og fara ekki af stað á vanbúnum bílum þar sem spáð sé snjókomu víða á suðvestanverðu landinu á morgun með vetrarfærð. Þá er fólk hvatt til að fylgjast vel með færð og veðurspá. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
88
24.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Hópur þjóðarleiðtoga, þar á meðal Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, eru komin til Kyiv, höfuðborgar Úkraínu, þar sem þess verður minnst í dag að fjögur ár eru liðin frá því að Rússar gerðu allsherjarinnrás í landið. Þetta er í annað skiptið sem Kristrún kemur til Kyiv, en hún var fyrir réttu ári síðan. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins áætlar að rúmlega 32 hektarar hafi brunnið í gróðureldum við Elliðavatn í gær. Á svo stórum fleti kæmust fyrir 45 fótboltavellir af viðurkenndri stærð. Sviðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins varar við áframhaldandi eldhættu. Sálfræðileg aðstoð, rannsókn á meðferðar- og vistheimilum, möguleikar á sanngirnisbótum og aukið eftirlit með fósturráðstöfunum eru verkefni sem Stjórnarráðið hefur þegar komið í farveg eftir umfjöllun Kveiks um brotalamir á vistheimilinu Bakkakoti. 1.700 manns eiga flugmiða í ferðir Icelandair sem var aflýst vegna óveðurs í New York í Bandaríkjunum í gær og í dag. Tveimur ferðum til New York var aflýst í gær og í dag aflýsti Icelandair tveimur ferðum til New York og einni til Boston. Mikil öryggisgæsla er í kringum íslenska karlalandsliðið í fótbolta sem statt er í Queretaro í Mexíkó og mætir heimamönnum í æfingaleik á miðvikudag. Fulltrúar KSÍ taka enga sénsa varðandi öryggi leikmanna og starfsfólks eftir ófremdarástand sem skapaðist í landinu í gær í kjölfar þess að mexíkóski herinn skaut einn helsta glæpaforingja landsins til bana. Utanríkisráðherra segir ekki liggja fyrir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um að taka aftur upp aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram þrátt fyrir fréttir um að hún kunni að verða haldin strax í sumar. Hagsmunir þjóðarinnar ráði hvenær atkvæðagreiðslan fer fram. Lundúnalögreglan hefur sleppt Peter Mandelson, fyrrverandi sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum, gegn tryggingu. Hann var handtekinn á heimili sínu í gær vegna rannsóknar á meintu misferli hans í opinberu starfi. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
87
23.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Maðurinn sem var skotinn til bana við Mar-a-Lago, glæsihýsi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, í dag var 21 árs gamall og hafði nýlega stofnað fyrirtæki sem sérhæfði sig í handteiknuðum listrænum myndum af golfvöllum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins náði um kvöldmatarleytið að slökkva sinueld sem kviknaði við Elliðavatn síðdegis. Í fyrstu var talið að ekki væri mikill eldur og var þá einn slökkviliðsbíll sendur á staðinn til að kanna aðstæður. Fljótt kom í ljós að þetta var mikill eldur. Fljótt var búið að senda alla slökkviliðsmenn á vakt að berjast við eldinn og kalla út aukamannskap. Glæpaforinginn Rubén Nemesio Oseguera, sem var betur þekktur sem El Mencho, lést fyrr í dag eftir að hafa verið skotinn í bardaga við Mexíkóska herinn. Farþegar í á sjötta hundrað farartækja lentu í vandræðum undir Eyjafjöllum í gærkvöldi vegna skafrennings. Það var samvinnuverk að koma bílunum aftur af stað sem björgunarsveitir, Vegagerðin og bændur á svæðinu tóku þátt í. Meðlimir Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands, sem eru í meirihluta í ráðinu, hafa lagt fram tillögu um að lýst verði yfir vantrausti á hendur Silju Báru Ómarsdóttur rektor Háskólans. Ástæða þess er meint ábyrgðarleysi í hækkun skrásetningargjalda. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir í viðtali við Jeremy Bowen á BBC að Rússlandsforseti hafi hleypt þriðju heimsstyrjöldinni af stað með innrásinni fyrir rétt tæpum fjórum árum. Líf Magneudóttir, núverandi oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, sigraði í forvali flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún mun vera í öðru sæti á sameiginlegum lista VG og Vors til Vinstri. Sanna Magdalena Mörtudóttir mun hins vegar leiða listann. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
86
22.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Haraldur Sigurðsson, betur þekktur sem Halli, er látinn, á 84. ári. Hann lést 18. febrúar eftir nokkur veikindi. Greint er frá andláti Haraldar í Morgunblaðinu í dag. Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. hefur verið slitið. Þetta kemur fram í Kauphallartilkynningu frá Skaga sem send var út síðdegis. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hækkað tolla á öll lönd í heiminum úr tíu prósentum í fimmtán. Hann greinir frá á Truth Social. Norðmaðurinn Johannes Høsflot Klæbo vann sögulegan sigur í fimmtíu kílómetra skíðagöngu karla á Vetrarólympíuleikunum í dag. Þetta voru sjöttu gullverðlaun Klæbo í jafnmörgum greinum á leikunum og slær hann þar með met yfir flest gullverðlaun á einum og sömu Vetrarólympíuleikunum. Um 3.400 manns lögðu leið sína í Hlíðarfjall í Akureyri í dag og nánast jafnmargir í gær. Stjórnendur telja aðsóknina þá mestu frá upphafi talninga og reikna með að helgin verði sú stærsta í sögu skíðasvæðisins. Frank Booker eldri er látinn 61 árs gamall að aldri. Sonur hans, Frank Aron Booker, greinir frá andláti föður síns núna í morgun. Stúdentar við háskóla víðs vegar um Íran hafa staðið fyrir mótmælum gegn klerkastjórninni í dag. Mótmælin eru þau fyrstu síðan mótmælahrinunni, sem hófst í lok desember og áætlað er að hafi kostað þrjátíu þúsund manns lífið, lauk. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
85
21.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Breska ríkisstjórnin íhugar að leggja fram frumvarp sem felur í sér að Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, verði sviptur erfðarétti sínum að bresku krúnunni þegar yfirstandandi lögreglurannsókn á máli hans er lokið. Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að Donald Trump forseti Bandaríkjanna hafi ekki haft vald til að setja einhliða tolla á fjölda viðskiptaríkja í fyrra. Trump lagði tollana á með vísun í neyðarlög um efnahagsmál sem voru sett árið 1977 en eins og nafnið gefur til kynna átti aðeins að nota þau í neyðartilvikum. Tveir starfsmenn einnar heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) greindust með berklasmit við skimun á starfsfólki stöðvarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu. Evrópusambandið samþykkti formlega í gær að skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Það þýðir að samtökin eru nú á hryðjuverkalista ESB og munu sæta þvingunaraðgerðum og refsiákvæðum ESB á grundvelli baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi sem Ísland tekur einnig þátt í. EFTA-dómstóllinn hefur úrskurðað að lögsaga samningsins um Evrópska efnahagssvæðið nái til landgrunns EES-ríkjanna Noregs og Íslands, en ekki aðeins landsvæðis, landhelgi og efnahagslögsögu, eins og norsk stjórnvöld hafa haldið fram. Dæmi eru um að börn félagsráðgjafa geti ekki gengið ein heim, verið ein heima og séu með svokallaðar krækjur á sínum síma sem sýni lögreglu að þegar þau hringi þurfi að bregðast strax við. Rúmur helmingur félagsráðgjafa greinir frá því í nýrri könnun að hafa verið beittir ofbeldi í starfi og um þriðjungur að þau óttist um fjölskyldur sínar og sérstaklega börn. Eigandi Norðuráls á Grundartanga gerir ráð fyrir því að álverið munu ná fullum afköstum í lok júlí næstkomandi. Afköst álversins hafa aðeins verið þriðjungur af því sem þau eru vanalega eftir að bilun varð í annarri af tveimur kerlínum þess í október síðastliðnum. Talið var að viðgerð gæti tekið allt að ár. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
84
20.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Andrew Mountbatten Windsor, bróðir Karls Bretakonungs, var handtekinn í morgun á heimili sínu í Sandringham í Norfolk. Hann er grunaður um misferli í opinberu starfi. Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, hefur verið sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot. Honum var gefið að sök að hafa veist að ungri konu á hóteli á Suðurlandi vorið 2023. Hann segir þakklátur því að réttlætið hafi náð fram að ganga í málinu. Gedirninas Saulys, litháískur maður, hefur verið sakfelldur fyrir að meiri háttar líkamsárás sem leiddi til dauða samlanda hans á Kiðjabergi í Grímsnesi í apríl 2024. Hann var dæmdur í tíu ára fangelsi í Landsrétti í dag. Landsréttur hefur dæmt Sigurjón Ólafsson, karlmann á sextugsaldri, í níu ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað andlegra fatlaðri konu ítrekað og látið aðra menn sem hann var í samskiptum við nauðga henni. Hann var yfirmaður hennar og neyddi son hennar til að fylgjast með kynferðislegum athöfnum þeirra. Hann hlaut ára dóm í héraði, áfrýjaði sjálfur og Landsréttur þyngdi dóminn um eitt ár. Skipulagsstofnun verður lögð niður og verkefni hennar flutt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) eftir að Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis í dag. Alþingi hefur samþykkt bráðabirgðaákvæði í lögum um sveitarstjórnarkosningar vegna kosninga í Grindavík. Lögin gera það að verkum að þeir Grindvíkingar, sem fluttu lögheimili sín í kjölfar rýmingar þann 10. nóvember 2023, geta nú valið hvort þeir kjósi í nýju sveitarfélagi í kosningum í vor eða í Grindavík. Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) segir það þyngra en tárum taki að börn sem eru í viðkvæmri stöðu þurfi að þola ofbeldi, eins og menn sem dvöldu í Bakkakoti á barnsaldri hafa lýst. Hún tekur undir orð Braga Guðbrandssonar, fyrrverandi forstjóra Barnaverndarstofu, að aukið fjármagn myndi hjálpa við að leysa ýmis vandamál, en fleira þurfi til. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
83
19.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Staða bráðamóttöku Landspítala er óbreytt, viku eftir krísufund starfsfólks þar sem ástandið var sagt ógna lífi og öryggi fólks. Dæmi eru um að sjúklingar hafi legið í gluggalausu geymslurými þar í tíu daga, heilbrigðisráðherra boðar aðgerðapakka og vonast til að þannig leysist vandinn. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu Birtu lífeyrissjóðs að víkja Unni Lilju Hermannsdóttur lögmanni úr stöðu skiptastjóra þrotabús flugfélagsins Play. Birta fór fram á það í desember að Unnur viki vegna meints vanhæfis. Birta var meðal stærstu hluthafa Play. Mikil loftmengun hefur mælst á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga og það sama gæti verið uppi á teningnum næstu daga. Rykbindiefni er ekki til á landinu, ekki er hægt að hreinsa göturnar í frosti og útlit er fyrir áframhaldandi þurrk. Deilur um stöðu og kjör sendla Wolt hafa vaknað eftir að fulltrúar ASÍ gagnrýndu harðlega starfsemi Wolt á Íslandi. ASÍ heldur því fram að viðskiptamódel fyrirtækisins grafi undan kjarasamningbundnum réttindum. Wolt hafnar ásökununum og segir útreikninga ASÍ ranga. Bragi Guðbrandsson, sem var forstjóri Barnaverndarstofu í tæpan aldarfjórðung, heyrði fyrst af ofbeldi í garð fósturbarna í Bakkakoti í umfjöllun Kveiks á dögunum. Hann segir að málefni Bakkakots hafi ekki ratað á sitt borð þann tíma sem hann var forstjóri. Hann harmar atburðina og hvetur stjórnvöld til að veita fé í að bæta brotalamir í kerfinu. Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur nú beðist afsökunar á glannalegum ummælum sem hann lét falla í heitum umræðum á þingi í gær um Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra. Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í dag og venju samkvæmt fóru börnin á stjá í alls kyns flottum búningum og söfnuðu sælgæti í poka. Þá var dagskrá í skólum landsins víða með öðru sniði og spenningurinn áþreifanlegur. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
82
18.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna verður fram haldið í svissnesku borginni Genf í dag með milligöngu Bandaríkjamanna. Hægt virðist miða í samkomulagsátt. Viðræðurnar hófust að nýju í gær og engin merki virtust um að þokaðist í samkomulagsátt til að ljúka þessum mannskæðustu átökum í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Þriggja daga opinber heimsókn Friðriks Danakonungs tíunda til Grænlands hefst í höfuðstaðnum Nuuk í dag. Hann boðaði til heimsóknarinnar í janúarlok og lýsti þá yfir stuðningi við málstað Grænlendinga. Á morgun heldur Friðrik í 150 kílómetra ferðalag til norðurs og heimsækir bæinn Maniitsoq, sem stendur á eyju skammt frá fjöllum á meginlandinu með demanta-, rúbína- og asúrsteinsnámum. Á föstudaginn sækir Friðrik konungur danska heimskautahermenn heim sem dvelja í æfingabúðum í bænum Kangerlussuaq, enn norðar á Grænlandi. Í tilkynningu frá hirðinni segir að tilgangur konungsheimsóknarinnar sé að sýna Grænlendingum stuðning vegna ásælni Donalds Trump Bandaríkjaforseta í landið. Kvikusöfnun undir Svartsengi nálgast nú eitt mesta rúmmál sem mælst hefur frá því eldgos hófust á Sundhnúksgígaröðinni. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um 22 milljónir rúmmetra af kviku safnast þar fyrir frá síðasta eldgosi í júlí. Samkvæmt vef Veðurstofunnar er kvikusöfnun hæg en stöðug. Á meðan kvikusöfnun heldur áfram og þrýstingur í kerfinu hækkar er líklegast að næstu vikurnar hlaupi kvika frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti endað með eldgosi. Leikskóla-leiðin í Reykjavík hefur verið samþykkt í borgarstjórn. Breytingarnar fela í sér umtalsverðar breytingar á gjaldskrá fyrir leikskóla. Boðið verður upp á 36 tíma gjaldfrjálsa vistun, hóflegt gjald fyrir 38 tíma vistun og afslátt fyrir einstæða foreldra og efnaminni fjölskyldur. Aftur og aftur reyndu börn og fullorðnir að tilkynna að ekki væri allt með felldu á sveitabænum Bakkakoti á Suðurlandi þar sem þau voru í vist. Árið 2002 viðurkenndi þáverandi húsfreyja á bænum, Þóra Bernódusdóttir, að hafa barið einn drengjanna – Svavar Þór Georgsson. Samt sendi Reykjavíkurborg börn í sumardvöl á bænum allt fram til ársins 2005 og samt var barn á vegum Kópavogsbæjar ekki tekið af bænum fyrr en tveimur mánuðum eftir ofbeldið. Breytingar á útlendingalögum voru samþykktar á Alþingi í gær og nú hafa stjórnvöld heimild til að afturkalla alþjóðlega vernd ef útlendingur fremur alvarleg eða ítrekuð brot eða telst ógn við öryggi ríkisins. Samkvæmt alþjóðalögum má ekki senda fólk til landa þar sem öryggi þess er ógnað. Deilur um stöðu og kjör sendla Wolt hafa vaknað eftir að fulltrúar ASÍ gagnrýndu harðlega starfsemi Wolt á Íslandi. ASÍ heldur því fram að viðskiptamódel fyrirtækisins grafi undan kjarasamningbundnum réttindum. Wolt hafnar ásökununum og segir útreikninga ASÍ ranga. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
81
17.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Ríkisstjórnin hyggist tengja almannatryggingar við launavísitölu. Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins eru meðal þeirra sem hafa gagnrýnt lagabreytinguna. Áhyggjurnar snúast meðal annars um það hvort verið sé að búa til tvöfaldan lás þar sem bætur, eða lífeyrir, geti vaxið og vaxið óháð því hvernig árar og jafnvel farið fram úr launum í einhverjum tilfellum – sem dragi úr hvata fólks til að fara aftur á vinnumarkað. Íslenski alpagreinaskíðamaðurinn Jón Erik Sigurðsson stóð sig frábærlega í svigkeppni Vetrarólympíuleikanna þegar hann náði 25. sætinu. Þetta er besti árangur Íslendings á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina til þessa og sá besti í tvo áratugi í svigi. Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um útlendinga var samþykkt einróma á Alþingi í dag. Með lagabreytingunum verður stjórnvöldum heimilt að afturkalla alþjóðlega vernd þegar útlendingur hefur framið alvarleg eða ítrekuð brot, sem og þeirra sem ógna öryggi ríkisins. Hildigunnur Svavarsdóttir hefur óskað eftir því að láta af störfum sem forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri frá og með deginum í dag vegna ákvörðunar heilbrigðisráðherra að auglýsa stöðu forstjóra að loknum fimm ára skipunartímabili hennar. Styrkur svifryks á höfuðborgarsvæðinu mælist hár. Á hádegi var gildið fyrir gróft svifryk 178,9 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöðinni við Grensásveg, til samanburðar eru sólarhringsheilsuverndarmörkin 50 míkrógrömm á rúmmetra. Klukkan 14 mældist gróft svifryk 216,0 míkrógrömm á rúmmetra. Anahita Babaei og Elissa May Philipps hafa verið sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip í mótmælaskyni árið 2023 og dæmdar til 200 þúsund króna sektargreiðslu. Aldraðir og aðstandendur þeirra segja sorglegt að fólk sé geymt mánuðum saman á Landspítalanum vegna skorts á hjúkrunarrýmum. Þau furða sig á að ekki sé búið að bregðast við ástandinu fyrir löngu síðan. Stjórnandi á stofnun fyrir aldraða segir fólk þar óttast að leggjast inn á spítala vegna hættu á að festast þar inni. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
80
16.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Lilja Dögg Alfreðsdóttir var í dag kosin formaður Framsóknarflokksins eftir að hafa verið varaformaður flokksins í tæpan áratug. Hún er fyrsta konan sem er kosin til embættisins. Valgerður Sverrisdóttir var fram að þessu eina konan sem gegnt hafði formennsku í Framsókn en hún tók við embættinu sem varaformaður þegar Guðni Ágústsson sagði af sér. Norski skíðagöngukappinn Johannes Høsflot Klæbo varð í dag sigursælastur í sögu Vetrarólympíuleikanna. Hann vann sín níundu gullverðlaun er Noregur vann í boðgöngu karla. Yfirburðir hins 29 ára Klæbo hafa verið miklir frá hans fimmtu leikum árið 2018. Sóley Eiríksdóttir ítrekar ósk sína og fleiri Flateyringa um að stjórnvöld láti rannsaka snjóflóðið á Flateyri 1995 með svipuðum hætti og gert var í rannsókn á snjóflóðinu í Súðavík. Sóley segir að með ákvörðun sinni um að láta rannsaka Súðavíkursnjóflóðið hafi verið viðurkennt að slíkir atburðir réttlæti opinbera rýni, ekki síst með tilliti til lærdóms og trausts til stjórnkerfisins. Hæð yfir Grænlandi og lægðir vestur af Noregi halda áfram að draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga. Gera má ráð fyrir frosti þremur til átján stig í dag þar sem kaldast verður inn til landsins. Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði kom hópi fólks til bjargar á Fjarðarheiði í nótt þar sem það hafði lent í vanda sökum ófærðar. Fimm voru í bílnum og voru allir fluttir á Seyðisfjörð þar sem fólkinu var komið í gistingu. Bíllinn var skilinn eftir. Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, segir að til að bæta ástandið á Bráðamóttökunni þurfi að huga að rót vandans. Það sé allt of hæg uppbygging hjúkrunarrýma. Í fimm ára áætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma 2019-2024 var lagt upp með að hjúkrunarrýmum á landsvísu myndi fjölga um rúmlega 540 en raunin varð sú að þeim fjölgaði einungis um 69 á þessu tímabili. Júlía Kristín Jóhannesdóttir sló í gær 30 ára gamalt met Guðrúnar Arnarsdóttur í 60 metra grindahlaupi. Júlía hljóp á 8,25 sekúndum en Guðrún hljóp á 8,31 sekúndu árið 1996. Hún segist hafa haft eitt í huga fyrir hlaupið; að bæta metið. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
79
15.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Netþrjótar komust í upplýsingar um tugi þúsunda fyrrverandi og núverandi skjólstæðinga, starfsmanna og aðstandenda á Grundarheimilum þegar þeir réðust á netþjóna hjúkrunarheimilanna í desember. Interpol og Europol koma að rannsókn málsins ásamt lögreglu. Sigurður Ingi Jóhannsson gerði uppgang popúlista og öfga að umfjöllunarefni sínu í sinni hinstu ræðu sem formaður Framsóknarflokksins á 38. flokksþinginu sem fer fram í dag og á morgun. Eitrað var fyrir Alexei Navalní helsta andstæðingi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta með froskaeitri. Þetta segja yfirvöld í Bretlandi en eitur þetta mun bera nafnið epibatidine og mun það hafa fundist í sýnum sem tekin voru af líki Navalní, eftir að hann lést í fanganýlendu í Rússlandi fyrir um tveimur árum. Fjórir eru grunaðir um að hafa í síðasta mánuði svipt mann frelsi sínu, misþyrmt honum í bíl og skilið hann eftir utandyra. Maðurinn var þungt haldinn þegar hann fannst. Esa, Eftirlitsstofnun EFTA, krefur íslensk stjórnvöld upplýsinga um leyfi veitt til sjókvíaeldis hér á landi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota liggi fyrir. Lucas Pinheiro Braathen vann fyrsta Ólympíugull Brasilíu í sögu Vetrarleika í dag. Hann fagnaði sigri í stórsvigi þar sem okkar maður Jón Erik Stefánsson var á meðal keppenda. Kjartan Guðmundsson er kominn heim til Íslands rúmum átta vikum eftir að hann lenti í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku. Móðir hans og dóttir létust í slysinu. Hann flaug í sjúkraflugvél ásamt bróður sínum og ferðalagið tók hátt í sólarhring. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
78
14.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Heilbrigðisráðuneytið, Landspítali og einkarekna læknamiðstöðin Klíníkin eiga í viðræðum um hvort sú síðastnefnda geti tekið við sjúklingum frá Landspítala vegna neyðarástands sem þar ríkir. Framkvæmdastjóri Klíníkurinnar segir að nú þegar séu yfir tuttugu rúm laus. Heilbrigðisráðherra segir að aldrei hafi verið brugðist eins hratt við stöðunni. 23 einstaklingar frá Bakkakoti og 15 frá öðrum vistheimilum hafa formlega veitt lögmannsstofunni Solidum umboð til að sækja sanngirnisbætur frá ríkinu. Lögmaður stofunnar segir lýsingar þeirra sem þangað hafa leitað sláandi. Yfir 50 manns eru með stöðu sakbornings í máli þar sem fimm menn er grunaður um að hafa nýtt sér kerfisvillu hjá reikningsstofu bankanna til að komast yfir hundruð milljóna króna frá Landsbankanum. Von er á að enn fleiri bætist í hóp sakborninga á næstunni. Drögum að frumvarpi um fullnustu refsinga, sem varðar brottvísun og afplánun erlendra fanga hefur verið dreift í samráðsgátt stjórnvalda. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir tímabundinni heimild til að veita erlendum föngum, sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn þegar aðeins einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Samkvæmt gildandi lögum þarf helmingi afplánunar að vera lokið til að veita megi reynslulausn, en frumvarpsdrögin gera ráð fyrir að viðkomandi verði vísað úr landi þegar í stað við reynslulausn. Forsætisráðherra vísar gagnrýni ASÍ og SA á bug um að óráðlegt sé að tengja launavísitölu við elli- og örorkubætur líkt og kemur fram í frumvarpi um breytingar á almannatryggingum. Um sé að ræða réttlætismál sem ríkisstjórnin sé einhuga um. Breytingin kunni að valda verðbólguþrýstingi ef hún leiði til hækkunar bóta. Það eigi líka við um aðrar launahækkanir. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segir að fundur hennar og Jens-Frederik Nielsen, formanni landsstjórnar Grænlands, með Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi verið uppbyggilegur. Þau eru stödd á öryggisráðstefnunni í München, sem hófst í dag. Stjórnvöld ríkjanna hafa nýverið átt í viðræðum í kjölfar tíðra fullyrðinga Bandaríkjaforseta um að Bandaríkin verði að eignast Grænland. Ekkert rykbindiefni er til á landinu og er því ekki hægt að bregðast við mikilli svifryksmengun í borginni. Þau sem eru mjög viðkvæm ættu að íhuga að halda sig inni, segir heilbrigðisfulltrúi. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
77
13.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Forstjóri Landspítalans segir virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni þegar það skoðar hvernig eigi að taka á stöðu bráðamóttökunnar. Alma Möller, þá landlæknir, sagði í minnisblaði til heilbrigðisráðherra árið 2022 að staðan á bráðamóttökunni væri svo slæm að ef það væri ekki eina bráðamóttakan á landinu myndi hún mæla með því að henni yrði lokað tímabundið. Samanlagður hagnaður bankanna þriggja í fyrra, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans, nemur nærri 94 milljörðum króna. Íslandsbanki birti uppgjör síðasta árs í dag. Þar kemur fram að arðsemi eigin fjár hafi verið 10,5 prósent í fyrra og að vaxtatekjur hafi aukist töluvert. Sendiherraefni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í stöðu sendiherra á Íslandi, William Long, baðst afsökunar á ummælum sínum um að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna þegar hann kom fyrir utanríkismálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins í gær. Long vafðist tunga um tönn í fyrstu í svari sínu en sagði svo: „Þetta var þriggja manna tal. Einhver sagði eitthvað og annar sagði annað, og já, ég bætti þessu við með 52. ríkið sem var algerlega óviðeigandi en það var not eitthvað sem ég sagði sem alvarleg yfirlýsing. Hann bætti svo við að hann vonaðist eftir því að Íslendingar myndu gefa honum annað tækifæri. Íslensk stjórnvöld ætla að verja átta milljónum bandaríkjadala, um milljarði króna, í vopnakaup fyrir Úkraínu. Þetta verður gert í gegnum sérstakt verkefni á vegum Atlantshafsbandalagsins, þar sem vopn eru keypt frá Bandaríkjunum og send til Úkraínu. Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í stærsta kristal-metamfetamínsmáli Íslandssögunnar. Sigurður Ragnar Kristinsson hlaut þyngstan dóm sex sakborninga, átta ára fangelsi. Háskólaráð Háskóla Íslands samþykkti í dag að hækka skrásetningargjald háskóla landsins um 25 þúsund krónur frá og með næsta skólaári. Fulltrúar stúdenta mótmæltu fyrirhugaðri hækkun í aðdraganda fundarins en höfðu ekki erindi sem erfiði. Flugsveit sænska flughersins mun næstu vikurnar sinna loftrýmisgæslu í íslenskri lofthelgi en verkefnið er á vegum NATO og unnið í samvinnu við varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar. Yfirliðsforingi í sænska flughernum segir rússneskar sprengjuflugvélar helstu ógnina og að móttökurnar hér á landi hafi verið afar góðar. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
76
12.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Starfsfólk bráðamóttöku Landspítalans kom saman í dag og fundaði um starfsaðstæður þeirra. Það krefst þess að framkvæmdar verði úttektir á aðbúnaði og áhrifum á sjúklinga. Tíu eru látnir og að minnsta kosti 25 særðir eftir skotárás sem beindist gegn skóla í norðurhluta Bresku-Kólumbíu í Kanada í gær. Árásarmaðurinn er meðal látnu. Atlantshafsbandalagið hefur formlega hleypt af stokkunum verkefninu Vörður norðurslóða (e. Arctic sentry) sem er ætlað að auka eftirlit og umsvif hersveita og efla viðbragðsgetu bandalagsins í norðri. Utanríkisráðherra er mætt til Brussel og segir að Íslendingar muni finna fyrir hinu aukna umfangi. Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV í kvöld. Hryðjuverkamálið svokallaða verður tekið fyrir í Hæstarétti í dag. Tæpt ár er síðan Landsréttur staðfesti sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir sakborningunum Sindra Snæ Birgissyni og Ísidór Nathansson af ákæru er varðar hryðjuverk, en þeir voru fundnir sekir um vopnalagabrot. Stjórn Arion banka leggur til arðgreiðslu sem nemur 11,5 krónum á hlut sem jafngildir 15,3 milljörðum króna. Hagnaður sem tilheyrir hluthöfum bankans var 30,6 milljarðir króna á árinu 2025, samanborið við 26,1 milljarð króna 2024. Arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum bankans var 14,9 prósent, samanborið við 13,2 prósent 2024. Um 59% þátttakenda í könnun á viðhorfum Grindvíkinga segja andlega heilsu sína verri en fyrir rýmingu í Grindavík og 51% segir líkamlega heilsu verri. Helmingur þátttakenda hefur nýtt sér sálrænan stuðning og segja hann hafa nýst vel. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
75
11.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Alþjóðleg glæpasamtök sem stóðu að flutningi kókaíns frá Suður-Ameríku til Íslands hafa verið leyst upp. Samtökin notuðu burðardýr til að flytja efnin. Lögregla í Litháen, Spáni og Íslandi unnu með Evrópulögreglunni við rannsókn málsins óslitið í eitt ár og réðst í handtökur og húsleitir þann 4. febrúar síðastliðinn í samræmdum aðgerðum. Alls voru 24 handteknir, þar af 11 á Íslandi og eru íslenskir ríkisborgarar þar á meðal. Talið er að brotahópurinn hafi hagnast um fjórar milljónir evra með stórfelldu smygli eða um sex hundruð milljónir króna. Sjö manns voru drepnir og 27 særðust í skotárás í gagnfræðaskóla í Tumler Ridge í Bresku-Kólumbíu í Kanada í gær. Lögreglunni barst tilkynning um vopnaðan árásarmann í Tubler Ridge síðdegis að staðartíma. Þegar lögreglan kom á vettvang voru sex einstaklingar látnir og sjöunda fórnarlambið lést á leið á spítala. Tveir hinna særðu eru með alvarlega áverka en 25 eru með minni háttar áverka. Árásarmaðurinn svifti sig lífi en nafn og aldur árásarmannsins hefur ekki verið upplýst. Staðan á bráðamóttökunni var slæm fyrir en nú er hún afleit, segir forstjóri spítalans. Þar bíður fólk í rúmlega tvo sólarhringa eftir legurými. Í ofanálag er krafa um hagræðingu, en tækifærin til þess að hagræða eru takmörkuð að mati forstjórans. Runólfur segir að færa þurfi allt að 50 manns af spítalanum á hjúkrunarheimili til að þau endurheimti legurými. Heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um opnun sérhæfðrar ofbeldismóttöku innan Landspítala sem mun bera heitið Bryndísarhlíð en minningarsjóður Bryndísar Klöru er fjárhagslegur bakhjarl verkefnisins. Móttakan er kennd við Bryndísi Klöru sem lést á spítalanum eftir fólskulega árás á menningarnótt. Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar, fyllist stolti yfir arfleifð hennar en söknuðurinn er alltaf jafn sár. Mínútuþögn var í upphafi sérstaks íshokkíleiks í kvöld sem er spilaður til minningar um Patrek Frey Sveinsson, sautján ára dreng sem lést í bílslysi á Miklubraut í síðustu viku. Leikurinn hófst klukkan 19.45 í Skautahöllinni í Laugardal og var húsfyllir í höllinni. Patrekur Freyr spilaði í undir 18 ára-liði SR en spilaði áður með Fjölni. Allur ágóði af leiknum í kvöld rennur til fjölskyldu Patreks. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir skjálftahrinu við Eldey til marks um að plötuskilin séu „komin í gang“ og ekki óvænt ef það fari að gjósa. Gjósi þar geti það valdið truflunum á flugi. Skjálftahrinan við Eldey er til marks um að plötuskilin séu „komin í gang“ og ekki óvænt ef það fari að gjósa. Almennur samhljómur virtist vera á meðal áhorfenda um að setja ætti á samfélagsmiðlabann fyrir ungmenni yngri en 15 ára á Íslandi. Í umræðuþættinum Torginu í kvöld var rætt um símabann í skólum og samfélagsmiðlabann. Meirihluti viðmælenda var hlynntur símabanni í grunnskólum landsins en deilt var um hvern árangur og markmið slíks banns myndu hafa í för með sér. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
74
10.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Margrét Njarðvík Jónsdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, ætlar að víkja úr starfi. Mikið hefur gengið á innan veggja skólans eftir að þrír starfsmenn voru kærðir til siðanefndar. Karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að ráðist var á hann á þorrablóti HK sem fram fór í Kórnum í Kópavogi þann 30. janúar. Annar maður sat í gæsluvarðhaldi í um tvo sólarhringa grunaður um verknaðinn en var síðan sleppt úr haldi lögreglu. Allt virðist dottið í dúnalogn eftir jarðskjálftahrinu síðustu sólarhringa þar sem hundruð jarðskjálfta mældust við Eldey á Reykjaneshrygg. Flestir skjálftarnir voru smáir en þó nokkrir mældust yfir þremur að stærð. Sá stærsti, af stærðinni 3,4, skók hafsbotninn á sunnudaginn. Eitt mesta landrof í manna minnum hefur orðið í Reynisfjöru í Mýrdal. Landeigandi segir óvíst hvort ásýndin sé breytt til framtíðar. Gjörbreytt landslag blasir nú þar við ferðamönnum en í stað svörtu fjörunnar sem hefur dregið marga víða að blasa nú við steinar úti um allt. Þá hefur sjórinn náð að grafa sig inn í fjöruna og myndað nokkurra metra háan vegg. Lagt er til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól húsnæðislána verði gerð varanleg í drögum að frumvarpi sem eru í samráðsgátt stjórnvalda. Ari Edwald verður oddviti Miðflokksins í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík í vor. Hann staðfestir þetta í færslu á samfélagsmiðli. Eftir langa fjarveru frá íslenska landsliðinu er Gylfi Þór Sigurðsson í landsliðshópnum sem mætir Mexíkó í vináttulandsleik ytra í lok mánaðarins. Hópurinn er nær eingöngu skipaður leikmönnum úr Bestu deildinni. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
73
09.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Þrír eru í haldi vegna stunguárásar fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Gabríel Douane einn grunaðra. Hann losnaði úr fangelsi í síðustu viku. Elín Agnes Kristínardóttir Eide, yfirlögregluþjónn í miðlægri deild lögreglunnar, segir rannsókn í gangi. Á fjórða hundrað jarðskálftar umhverfis Eldey frá hádegi í gær. Jarðskjálftahrinan við Eldey á Reykjaneshrygg færðist í aukana á ný á þriðja tímanum í nótt eftir að nokkuð dró úr virkninni undir miðnætti. Nokkrir skjálftar af stærðinni tveir til þrír mældust þegar leið á nóttina og í kjölfarið fylgdu smærri eftirskjálftar. Afstaða-félag fanga segir að fjórþættar aðgerðir sem stjórnvöld hafi tilkynnt vegna Bakkakotsmálsins nái ekki til allra einstaklinga sem málið varði. Einn sem hafi orðið fyrir ofbeldi á vistheimilinu í æsku sitji nú í fangelsi á Spáni þar sem hann hafi hvorki fengið endurhæfingu né áfallastuðningi. Félagið segir engan mega vera skilinn eftir. Sveitarstjórnarfólk víða um land óttast frekari samþjöppun valds á suðvesturhorninu, verði af breytingum á kosningalögum sem jafni vægi atkvæða á landsvísu. Á Íslandi er misvægi atkvæða milli landshluta með því allra mesta í Evrópu. Seattle Seahawks er NFL-meistari eftir stórsigur á New England Patriots í Super Bowl í Santa Clara í Kaliforníu í nótt. Þetta er í annað skiptið sem Lombardi-bikarinn fer til Seattle og í fyrsta sinn í tólf ár. Nýleg dæmi eru um að stjórnendur við Háskólann á Bifröst hafi hringt í nemendur og beitt þá þrýstingi segir Sigrún Lilja Einarsdóttir, prófessor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst og stjórnarmeðlimur í Félagi akademískra starfsmanna á Bifröst. Mona Juul hefur sagt af sér sem sendiherra Noregs í Jórdaníu og Írak vegna tengsla við fjárfestinn og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Utanríkisráðherrann Espen Barth Eide tilkynnti þetta í gær. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
72
08.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Lögmaður manna sem dvöldu í Bakkakoti á Rangárvöllum sem börn segist ekki hafa átt von á svo skjótum viðbrögðum stjórnvalda. Tugir manna og kvenna hafa leitað til hans eftir að Kveikur greindi frá aðstæðum drengja í Bakkakoti sem segjast hafa verið beittir ofbeldi þar. Hugmyndir um að tvímenna í herbergjum íbúa hjúkrunarheimila til að bregðast við skorti á legurýmum á Landspítala eru með ólíkindum, að mati Steinunnar Þórðardóttur, formanns Læknafélagsins. Það er lagt til í minnisblaði Landspítala til heilbrigðisráðuneytisins frá því í upphafi árs. Stjórnarmaður í Félagi akademískra starfsmanna við Bifröst segir vantrauststillögu gegn rektor skólans enn standa, þrátt fyrir að rektorinn segi niðurstöðu siðanefndar grundvöll sáttar í málinu. Hann er gagnrýninn á að siðanefnd hafi tekið málið fyrir en ekki vísað því frá. Tilkynnt var um fjögur efstu sæti á framboðslista Framsóknar í kvöld. Kosið var um fjögur efstu sætin á fundi Framsóknar í dag. „Ef við fáum ekki peninga til að fara að ráða núna, við getum ekki auglýst bara í maí af því að við þurfum að þjálfa fólk á nýja kerfið, þá mun þetta landamæraeftirlit fara í bál og brand,“ segir Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá landamæradeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Morgunblaðið. Sautján ára gamli pilturinn sem lést í bílslysi á Miklubraut hét Patrekur Freyr Sveinsson. Hann var liðsmaður í U18 liði Skautafélags Reykjavíkur en félagið birtir í dag samúðarkveðjur til fjölskyldu Patreks. Töluvert landrof hefur orðið í Reynisfjöru síðustu daga. Stór bakki hrundi úr hlíðum Reynisfjalls alveg að viðvörunarskiltunum við fjöruna. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
71
07.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Málefni Bakkakots, sem fjallað var um í fréttaskýringaþættinum Kveik í vikunni, var rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Í þættinum sögðu fimm menn að húsfreyjan á Bakkakoti á Rangárvöllum hefði beitt þá margvíslegu ofbeldi. Börn voru í fóstri á bænum á árunum 1975-2002. Tíu menn segjast hafa verið beittir ofbeldi á bænum. Sautján ára piltur lést í umferðarslysi á Miklubraut í gærkvöldi. Tveir voru í bílnum. Ökumaðurinn, piltur á sama aldri, slasaðist töluvert og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Matsfyrirtækið Fitch Ratings hækkaði í dag lánshæfiseinkunn Íslands úr A í A+ með stöðugum horfum. Ástandið á leikskólum borgarinnar hefur aldrei verið verra að mati formanns Eflingar. Leikskólakerfið eins og það sé nú gangi ekki upp og ástandið bitni á andlegri og líkamlegri heilsu starfsfólksins. Hún hvetur stjórnvöld til að lengja fæðingarorlofið til að létta á kerfinu. Forstjóri Landspítalans segir í erindi til heilbrigðisráðherra að vandi spítalans ógni heilsu aldraðra og komi niður á bráðaþjónustu spítalans. Biður spítalinn meðal annars um tafarlausar neyðaraðgerðir. Spítalanum er nú nærri ómögulegt að takast á við skyndilega atburði eins og fjöldaslys, segir forstjórinn. „Þegar við kíktum út um gluggann sáum við bara skilti og grasbala við vélina. Ætli skiltin hafi ekki verið um 30 metra frá okkur og því mátti bókstaflega engu muna,“ segir Magnús Kristjánsson, forstjóri Orkusölunnar. Hann var einn níu Íslendinga um borð í vél Scandinavian Airlines sem lenti í hættulegu atviki á flugvellinum í Brussel í Belgíu. Stjórnvöld í Tyrklandi hafa óskað eftir því að opna sendiráð á Íslandi. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
70
06.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Þrír menn sem vistaðir voru á sveitabænum Bakkakoti í barnæsku og beittir grófu ofbeldi yfir langt skeið hittu forsætisráðherra í stjórnarráðinu í dag. Þeir vilja að fósturkerfið verði tekið til alvarlegrar skoðunar og hvetja fleiri til að stíga fram. Yfirfull bráðamóttaka, aldrað fólk sem bíður eftir hjúkrunarrými og skurðaðgerðir sem þarf að fresta eru þau verkefni sem stjórnendur Landspítalans þurfa að glíma við. Þeir lýsa alvarlegri stöðu spítalans í þremur minnisblöðum til heilbrigðisráðherra Um tveggja ára barn var skilið eftir eitt í lok dags á leikskóla í Breiðholti á mánudag. Þegar foreldri barnsins kom að sækja barnið var leikskólinn lokaður og barnið eitt úti í garði. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur harmar atvikið og segir að reynt verði að tryggja að slíkt gerist ekki aftur. Ríkissaksóknari hefur gert lögreglu að taka aftur upp rannsókn á tveimur málum vegna meintra kynferðisbrota fyrrverandi starfsmanns leikskólans Múlaborgar. Foreldrar fjögurra barna kærðu niðurfellingu mála til ríkissaksóknara, sem á eftir að taka afstöðu til tveggja þeirra. Forystumenn stjórnarandstöðunnar þjörmuðu að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vegna stöðu efnahagsmála í landinu í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Formenn Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins sögðu stjórnvöld kenna öllu öðru en aðgerðum ríkisstjórnarinnar um aukna verðbólgu. Kristrún segir ríkisstjórnina ætla að „halda sig við planið“ og að ríkisstjórnin ætli ekki að „hlaupa upp til handa og fóta“ vegna einstakra mælinga. Icelandair tapaði 1,2 milljörðum króna árið 2025 eftir skatta. Um er að ræða samdrátt frá fyrra ári þegar tap nam 2,8 milljörðum króna. Stjórnendur segja tekjur félagsins aldrei hafa verið hærri og þær aukist um 11 prósent milli ára í 223,6 milljarða. Landsréttur hefur þyngt dóm yfir Jóni Þór Dagbjartssyni og gert honum að sæta fangelsi í sjö ár, frekar en sex, fyrir grófa líkamsárás og tilraun til manndráps. Landsréttur taldi það hafið yfir skynsamlegan vafa að Jón hefði ætlað sér að svipta fyrrverandi sambýliskonu sína lífi. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
69
05.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Forsætisráðherra segir kerfið hafa brugðist börnunum í Bakkakoti. Leikskólastjórnendur í Reykjavík krefjast aðgerða: „Við getum ekki haldið svona áfram“. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtunum óbreyttum og verða þeir því áfram 7,25 prósent. Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis kærði í dag til siðanefndar flokksins að hópurinn Konur í Framsókn skuli auglýsa fund með Lilju Alfreðsdóttur nokkrum dögum áður en flokksþing Framsóknar hefst. Alþingi samþykkti í gær fyrstu formlegu varnar- og öryggisstefnu Íslands með stuðningi þingmanna allra flokka á Alþingi sem viðstaddir voru atkvæðagreiðsluna. Samtals 84 var sagt upp í tveimur hópuppsögnum sem voru tilkynntar til Vinnumálastofnunar í síðasta mánuði. Öllum verður boðin vinna aftur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni. Íslenskur karlmaður sem greindist með berkla í ágúst í fyrra eftir að hafa leitað á bráðamóttöku Landspítalans lést á spítalanum í janúarmánuði á þessu ári eftir að meðferð hafði ekki borið árangur. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
68
04.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Héraðsdómur Suðurlands hafnaði nú síðdegis kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestamannaeyjum, sem hafa verið í haldi lögreglu frá því í gær í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu hóf lögreglan rannsókn á andlátinu eftir tilkynningu frá öðrum starfsmanni hjúkrunarheimilisins í kjölfar lyfjagjafar. Níu menn hafa krafið forsætisráðherra um rannsókn og bætur vegna mikils ofbeldis sem þeir segjast hafa upplifað á sveitabæ sem börn allt til ársins 2002. Barnaverndarnefndir sendu fjölda barna á bæinn og eftirlit virðist hafa verið í molum. Framleiðslueldhúsi fyrir aldraða á Vitatorgi var lokað í gær vegna listeríu. Framkvæmdir við nýtt eldhús gætu tekið meira en ár. Ríflega 900 máltíðir eru framleiddar í eldhúsinu á hverjum degi. Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin að mati hagfræðings sem segir verðtrygginguna ekki aðalvandamálið og kallar eftir auknu samráði á vinnumarkaði. Að minnsta kosti átta starfsmenn á bráðamóttökunni í Fossvogi í Reykjavík hafa verið útsettir fyrir berklum, en þeir eru hvorki veikir né smitandi. KR hafði betur og mætir Stjörnunni í úrslitaleik á laugardaginn. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn myndu báðir fá átta fulltrúa inn í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri könnun Gallúp. Enn er borgarstjórnarmeirihlutinn fallinn og hafa bæði Framsókn og Flokkur fólksins þurkast út. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
67
03.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Laufey Lín Jónsdóttir hlaut sín önnur Grammy-verðlaun í kvöld. Breiðskífa hennar A Matter of Time var verðlaunuð í flokki hefðbundinna poppplatna. Hún hlaut verðlaun í sama flokki árið 2024. Tveir eru í haldi lögreglu í tengslum við andlát á sjúkrastofnun í Vestmannaeyjum. Reykjavíkurborg hefur lokað framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi eftir að bakterían Listeria monocytogenes, betur þekkt sem listería, fannst þar við reglubundna sýnatöku. Yfir níu hundruð máltíðir eru framleiddar í eldhúsinu á dag. Meirihluti þingmanna samþykkti síðdegis frumvarp dómsmálaráðherra um sameiningu sýslumannsembætta. Það felur meðal annars í sér að landið verður eitt sýslumannsumdæmi og að sýslumönnum fækkar úr níu í einn. Dómsmálaráðherra kynnti í morgun stefnu og aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi hér á landi sem felur meðal annars í sér nýtt samræmt verklag við meðferð brottvísunarmála brotahópa frá EES-ríkjum. Ráðherrann segir að með stefnunni sé brotahópum send skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands. Rússnesk flóttamannafjölskylda sem íslensk stjórnvöld vísuðu úr landi tveimur vikum eftir keisaraskurð verður að óbreyttu send til Rússlands. Króatísk stjórnvöld hafa synjað móðurinni og börnunum um alþjóðlega vernd. Örlög föðurins, sem hefur sætt pólitískum ofsóknum í Rússlandi, eru óljós þar sem fjölskyldunni var sundruð í Króatíu. Forsætisráðherra segir að tekin verði fyrstu skref í áttina að því að afnema verðtryggingu hér á landi um næstu áramót. Nauðsynlegt sé að rjúfa þann vítahring sem hún hafi skapað þar sem hún viðhaldi hærri stýrivöxtum en nauðsynlegt sé. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
66
02.02.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Lafuey Lín Jónsdóttir hlaut sín önnur Grammy-verðlaun í kvöld. Breiðskífa hennar A Matter of Time var verðlaunuð í flokki hefðbundinna poppplatna. Hún hlaut verðlaun í sama flokki árið 2024. Gagnagrunnur heimilisfanga og annarra persónuupplýsinga fjölda ICE-liða er hýstur á íslenskum netþjóni. Upplýsingunum hefur verið safnað og er haldið úti á síðunni sem lýst er af aðstandenda sem „átaki í ábyrgð“. Íslenska karlalandsliðið í handbolta þarf að sætta sig við 4. sæti Evrópumótsins í handbolta eftir súrt eins marks tap gegn Króötum í bronsleiknum í dag, 34-33. Náttúruhamfaratrygging gerir ráð fyrir að heildarbótagreiðsla á atburðinum í Grindavík, eins og hann hefur orðið, sé kannski um eða yfir 12 milljarðar. Verðbólgan mældist 5,2% í nýliðnum janúarmánuði og jókst um 0,7 prósentustig á milli mánaða, svo ekki er von um frekari vaxtalækkanir í bili og ekki ómögulegt að Seðlabankinn hækki vexti á miðvikudag. Um 350 börn eru í meðferð við offitu í Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins og þeim fjölgar ár frá ári. Börn niður í níu ára fá þyngdarstjórnunarlyf. Leikstjórnandi íslenska karlalandsliðsins í handbolta, Gísli Þorgeir Kristjánsson, var valinn í úrvalslið Evrópumótsins 2026. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
65
29.01.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Ísland er komið áfram í undanúrslitin á EM í handbolta eftir öruggan 39-31 sigur gegn Slóveníu í síðasta leik milliriðilsins. Fjörutíu og fimm manns var sagt upp hjá Íslenskri erfðagreiningu í dag. Atvinnuvegaráðherra segir bandarískt stórfyrirtæki reyna að hafa áhrif á íslenska lagasetningu í eldismálum. Þrír Íslendingar þjálfa lið í undanúrslitum Evrópumóts karla í handbolta í ár. Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur sett Elísabetu Benedikz tímabundið í embætti landlæknis á meðan María Heimisdóttir landlæknir er í veikindaleyfi. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir fólk sem ekki virðir íslensk gildi ekkert hafa hingað að gera. Ísland mun mæta Danmörku í undanúrslitum Evrópumóts karla í handbolta klukkan 19:30 á föstudagskvöld. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
64
23.01.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknar, hefur ákveðið að gefa kost á sér til að verða næsti formaður Framsóknarflokksins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undirstrikar að Ísland standi áfram með Dönum og Grænlendingum í deilu þeirra við Bandaríkin. Mörgum létti þegar Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagðist í gær ekki ætla að beita hervaldi gegn Grænlandi og afboðaði tolla á Evrópuríki vegna stuðnings þeirra við Grænlendinga. Hann og Mark Rutte framkvæmdastjóri NATO komust að samkomulagi um Grænland í gær sem fól ekki í sér eignarhald eða yfirráð yfir landinu. Aldrei hafa jafn margir leitað á bráðamóttöku Landspítalans vegna hálkuslysa á einum degi líkt og á þriðjudag þegar níutíu slösuðust. Leggja þurfti fimm inn á sjúkrahúsið. Foreldrar sex ára gamallar stúlku höfðu enga vitneskju um að brotið hefði verið kynferðislega gegn henni fyrr en lögregla hafði samband. Karlmaður sem er ákærður fyrir brotið dreifði ljósmyndum á netinu sem komu lögreglu á snoðir um málið. Alþjóðlegt samstarf skipti sköpum. Óbirt skýrsla um fjárhagsstöðu Félagsbústaða lýsir veikri fjárhagsstöðu félagsins sem hafi verið rekið með ósjálfbærum hætti undanfarin ár. Öllum starfsmönnum Vélfags hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari sem segir að öllum hafi verið sleppt í gærkvöldi að lokinni skýrslutöku. Framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun vonast til að endanlegt framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun fáist í næsta mánuði og að smíði hennar fari þá á fulla ferð. Fyrirtækið hyggst jafnframt hefja stækkun þriggja eldri virkjana í ár. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
63
22.01.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fallið frá áformum sínum um að setja tolla á Danmörku og sjö önnur Evrópuríki vegna Grænlands. Trump fundaði með Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, eftir ræðu sína á alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos í dag og hafa þeir lagt grunninn að framtíðarsamkomulagi á norðurslóðum. Fimm hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn héraðssaksóknara á starfsemi fyrirtækisins Vélfags. Einn þeirra er stjórnarformaður fyrirtækisins, Alfreð Tulinius. Hinir fjórir tengjast starfsemi fyrirtækisins á einn eða annan hátt. Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, segir eðlilegt að Íslendingar séu áhyggjufullir á tímum þar sem leiðtogi Bandaríkjanna sýni að hann sé tilbúinn að brjóta alþjóðalög. Trump hefur undanfarið gengið á eftir því að hefja viðræður um að fá yfirráð yfir Grænlandi, þrátt fyrir skýr skilaboð frá Dönum og Grænlendingum um að það komi ekki til greina. Varnarmaðurinn Elvar Örn Jónsson handarbrotnaði í glæstum sigri Íslands á Ungverjalandi í gærkvöld. Hann þarf að undirgangast aðgerð sem hann fer í hér heima strax á morgun. En Snorri Steinn hefur kallað inn mann í stað Elvars Arnar. Það er Elvar Ásgeirsson, leikmaður Ribe-Esbjerg og hann flýgur út til Svíþjóðar strax í kvöld. Dagur Sigurðsson og Króatía mættu Svíþjóð í kvöld í úrslitaleik um efsta sæti E-riðils á EM karlalandsliða í handbolta. Þar beið króatíska liðið lægri hlut og liðið fer því án stiga inn í milliriðil. Miðflokkurinn mælist með 22,2 prósent í nýrri könnun Maskínu og eykst fylgið um þrjú prósent milli mánaða. Samfylkingin mælist með 27 prósent og því munar einungis tæpum fimm prósentustigum á flokkunum. Viðreisn mælist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Borgarstjórn samþykkti í gær tillögu meirihlutans sem meðal annars felur í sér um 2,4 milljarða króna eiginfjárframlag til Félagsbústaða á næstu fimm árum. Tillagan var afgreidd í borgarstjórn, þrátt fyrir að skýrsla um stöðu Félagsbústaða hafi ekki verið gerð opinber, en í skýrslunni eru meðal annars settar fram tillögur um fjárhagslega endurskipulagningu stofnunarinnar. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
62
21.01.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Hálfgert hættuástand skapaðist sunnan- og vestanlands fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur vegna flughálku í morgun. Rekja má fjölda umferðaróhappa og slysa til hennar. Á hádegi höfðu þrjátíu manns leitað á bráðamóttöku vegna hálkumeiðsla en í kvöld hafði sú tala hækkað í áttatíu. Ísland vann frækinn eins marks sigur gegn Ungverjum í hreinum úrslitaleik um efsta sæti F-riðils á EM í handbolta í kvöld. Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins hefur boðið sig fram til formanns flokksins. Þetta tilkynnti hún í morgun en hún segir flokkinn standa á tímamótum og mikilvægt að formaður flokksins eigi sæti á Alþingi. Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti franskra feðgina á Edition-hótelinu í júní er lokið. Konan sem grunuð er um að hafa orðið eiginmanni sínum og dóttur að bana játaði á vettvangi að hafa drepið þau, og sagðist hafa ætlað að svipta sig lífi í leiðinni, en neitar sök í dag. Tæplega tuttugu milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast saman undir Svartsengi frá því í síðasta gosi á Sundhnúksgígaröðinni og er enn talið líklegt að aftur gjósi á næstu vikum. Hættumat er óbreytt fram í næsta mánuð. Fjöldi ofbeldisbrota gagnvart lögreglumönnum hefur nær tvöfaldast síðasta áratuginn. Dæmi eru um að glæpamenn hafi átt við bíla lögreglumanna og formaður Landssambands lögreglumanna kallar eftir harðari dómum vegna alvarlegra brota. Samtölum vegna sjálfsvígshugsana í hjálparsíma Rauða krossins fjölgaði um nærri 70% milli ára. Verkefnastjóri kallar eftir aukinni þjónustu fyrir fólk sem líður illa. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
61
20.01.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Framgöngu Trumps gagnvart Grænlandi verður að linna „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Fimmta hver koma á bráðamóttöku tengd áfengi Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill að Vegagerðin ráðist í viðeigandi úrbætur til að bæta umferðaröryggi á hringveginum við Steinafjall undir Eyjafjöllum. Vegarkaflinn er þekktur grjóthrunsstaður og varð hrun úr fjallinu konu að bana í mars. Loðnuvertíðin er hafin en fyrsta loðnan veiddist í dag út af Austfjörðum og er stefnt að því að henni verði landað á Norðfirði á morgun. Þá héldu fimm skip á miðin í dag til loðnumælinga á vegum Hafrannsóknastofnunar en niðurstöðurnar ráða miklu um það hversu stór loðnukvótinn verður. Heiðar Guðjónsson hefur verið kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka. Tilnefninganefnd bankans tilnefndi hann sem stjórnarformann en hann leiddi hóp fjárfesta í bankanum sem fóru fram á að hluthafafundur yrði haldinn. Enginn annar gaf kost á sér og því var Heiðar sjálfkjörinn. Sex voru handteknir og hald lagt á umtalsvert magn af fíkniefnum, vopnum og fjármunum í lögregluaðgerðum á Akureyri um helgina. Ráðist var í aðgerðirnar í leit að vopni sem grunur er um að notað hafi verið til að beita hótunum, en ráðist var í húsleit og handtökur á fjórum stöðum og eru tveir enn í varðhaldi. Rannsókn málsins beinist þó einkum að fjórum einstaklingum, þar af tveir undir átján ára aldri, eru til rannsóknar. Þá voru fjórir handteknir í sama lögregluumdæmi í tengslum við innbrot og þjófnað. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
60
19.01.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins hefur ákveðið að kalla saman ráðið vegna hótana Donalds Trumps Bandaríkjaforseta er varða innlimun Grænlands. Trump boðaði í gær tolla á átta NATO-ríki sem höfðu sent hermenn til landsins. Átta löndin sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað nýjum tollum sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu fyrr í dag. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafa báðar tekið undir yfirlýsinguna. Líf Magneudóttir, oddviti VG í Reykjavík, segir það ekki sinn skilning að sameiginlegt framboð VG í Reykjavík og Vors til vinstri hafi verið samþykkt á félagsfundi. Sanna treystir því að hægt verði að leysa úr málinu. Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann öruggan átta marka sigur er liðið mætti Pólverjum í 2. umferð riðlakeppninnar á EM í handbolta í dag. Sigurinn kemur íslensku strákunum í kjörstöðu til að vinna riðilinn. Verðbólga gæti sprengt hina svokölluðu „stöðugleikasamninga“ strax í haust. Í lok árs mældist verðbólga 4,5 prósent og Landsbankinn spáir verðbólgu upp á 5,1 prósent í janúar og Arion spaír 4,9 prósent. Forsenduákvæði kjarasamninganna sem skrifað var undir 2024 miða við 4,7 prósent. Að minnsta kosti 21 er látinn og tugir slasaðir eftir árekstur á milli tveggja lesta í suðurhluta Spánar á sunnudagskvöld. Lestarslysið varð nærri bænum Adamuz þegar háhraðalest á leið frá Malaga til Madrídar fór út af sporinu og inn á aðra lestarteina. Önnur lest sem var á leiðinni í hina áttina, frá Madríd til Huelva, fór einnig út af sporinu. Alls fylgdi lögreglan 115 einstaklingum úr landi vegna ólögmætrar dvalar árið 2025. Þetta er 37% fjölgun frá því árið á undan þegar 84 var vísað úr landi. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
-
59
18.01.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helst Donald Trump hyggst leggja tíu prósenta toll á allar vörur frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Frakklandi, Bretlandi, Hollandi og Finnlandi frá og 1. febrúar vegna þess að fyrrnefnd lönd styðja ekki innlimun Bandaríkjanna á Grænlandi. Verslunarsamningur Bandaríkjanna og Evrópusambandsins frá því í fyrra er í uppnámi þar sem meirihluti á Evrópuþingi vill ekki lengur staðfesta samkomulagið í kjölfar þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði átta Evrópulöndum með tollum í tengslum við Grænland. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsir yfir stuðningi við Grænland og Danmörku í kjölfar þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað tolla á lönd sem styðja Grænland. Verðbólga gæti sprengt kjarasamninga í haust, að mati formanns VR sem biður ríki og sveitarfélög um að halda aftur af sér í gjaldahækkunum. Álagning olíufélaganna hefur aldrei verið hærri en núna. Eldsneytisverð lækkaði um tæplega 97 krónur við ármótin þegar kílómetragjaldið tók gildi sem er í samræmi við væntingar Alþýðusambandsins. Geðheilbrigðisþjónusta við fanga verður stórbætt með tilfærslu hennar til Landspítala. Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska landsliðinu í handbolta þurftu að sætta sig við svekkjandi tap gegn Serbum á EM í handbolta í kvöld. Á ögurstundu gerði Alfreð mistök sem reyndust Þjóðverjum dýrkeypt. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...