Gervigreind

PODCAST · technology

Gervigreind

Hlaðvarp um allt sem snýr að gervigreind

  1. 18

    #19 - Fréttaþáttur: Mythos, Hermes og reikniaflsstríðið

    Mythos finnur zero-day veikleika, Hermes tekur við af OpenClaw og reikniaflsstríðið er komið í alvöru gír.Apríl var mánuðurinn þar sem áherslan færðist endanlega frá líkönunum yfir á það sem er í kringum þau, og þar sem reikniaflsstríðið milli stóru fyrirtækjanna varð raunverulegt.Í þættinum er farið yfir:Erindrekarnir á fararbroddi: Hermes, OpenClaw, „skills" og hvernig þú gefur erindreka raunverulegt minni.Claude Code-lekinn: hvað gerist þegar fyrirtæki missir kóðann sinn, og af hverju brand-ið skiptir kannski meira máli en uppskriftin.AI-þreyta og tókakvíði: hvað gerist í höfðinu á þér þegar þú heldur fjórum (eða fimmtíu) erindrekum gangandi samtímis.Líkön og reikniaflsstríðið: Mythos finnur zero-day veikleika, Anthropic ræður ekki við eftirspurn og Google fjárfestir tíu milljarða dollara í Anthropic.Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þú vilt aðstoð frá Javelin við verkefni sem tengjast gervigreind, hafðu endilega samband:https://javelin.is/is/[email protected] og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

  2. 17

    #18 - Fréttaþáttur: Claude vs OpenClaw, TurboQuant, Autoresearch og fleira

    Tímamót hjá Javelin, TurboQuant og baráttan um besta líkaniðÍ þessum þætti ræðum við breytingar hjá Javelin og nýjustu vendingar í gervigreindarheiminum. Við veltum fyrir okkur hvort nýjustu líkönin séu í raun stóra fréttin eða hvort umgjörðin og tólin í kringum þau skipti orðið sköpum.Í þættinum er farið yfir:Framtíð Javelin: Pétur tilkynnir Fenra.is, sem mun nýta gervigreind fyrir byggingargeirann. Einnig kemur fram að Javelin muni brátt hætta með almenn námskeið til að einbeita sér að sérhæfðari verkefnum nær fararbroddi tækninnar.Baráttan um toppinn: Google, Anthropic og OpenAI hafa öll skipst á að eiga besta líkanið að undanförnu. Rætt er um fórnarkostnaðinn (trade-off) í tíma og peningum þegar nýju „thinking“ líkönin, líkt og GPT-5.4 Pro, eru notuð samanborið við hefðbundnari líkön.TurboQuant frá Google DeepMind: Kynning á nýju þjöppunaralgrími frá Google sem getur minnkað samhengisgluggann (context window) fimm- til sexfalt nánast án gæðataps. Þetta gæti gjörbylt bæði hraða og kostnaði við keyrslu stórra líkana.Auto Research: Stutt innlit í áhugavert tól beint úr smiðju Andrej Karpathy sem gæti skipt sköpum bak við tjöldin í vinnu við rannsóknir á gervigreind.Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þú vilt aðstoð frá Javelin við verkefni sem tengjast gervigreind, hafðu endilega samband:https://javelin.is/is/[email protected]

  3. 16

    #17 - Fréttaþáttur: Gervigreindir vinna saman og Elon Musk í sókn

    Fréttir síðustu vikna!Sverrir Heiðar og Pétur Már fara yfir það helsta sem hefur gerst í gervigreindarheiminum það sem af er ári.Í þættinum er farið yfir:Fjármögnun & sókn hjá ElonxAI sækir gríðarlegt fjármagn og staðsetur sig sem alvöru keppinaut. Umræða um samruna við SpaceX og uppbyggingu á risavöxnum innviðum.OpenAI í nýjum fasaSamstarf um hraðari inference, nýjar vörur og auglýsingar í ChatGPT.Ný líkön & multimodal byltingStærri samhengis-gluggar, betri mælikvarðar og sífellt meira sannfærandi video- og myndsköpun.Agents & multi-agent workflowsVerkfæri og líkön sem vinna saman í „hjörð“. Margar gervigreindir að vinna saman eins og stórt teymi á skrifstofunni — mögulega næsta stóra stökk í notkun gervigreindar.Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar: https://javelin.is/is/coursesKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

  4. 15

    #16 - Hugbúnaðarlausnir eru of dýrar. Hvernig á að laga það?

    Hugbúnaðargerð getur verið dýr, flókin og tímafrek. En hvað gerist þegar lítil teymi geta skyndilega afkastað jafn miklu og heilu deildirnar hjá stóru tæknifyrirtækjunum?Í þessum þætti ræðir Pétur Már Sigurðsson við þá Viktor Margeirsson og Gunnar Kolbeinsson, stofnendur Test 13. Þeir settu LinkedIn á hliðina nýverið þegar þeir buðu öllum sem höfðu fengið tilboð frá stóru hugbúnaðarhúsunum (eins og Advania eða Origo) að vinna sama verkefni með 60% afslætti.Í þættinum er farið yfir:Hvernig þeir nýta Replit og gervigreind til að umbylta hugbúnaðarþróun.„Að brjóta LinkedIn“: Viðbrögðin við tilboðinu um 60% afslátt.Jevons Paradox: Af hverju ódýrari kóði þýðir í raun meiri atvinna og fleiri tækifæri.Nautgripabónda í Kenía sem smíðar hugbúnað á kvöldin.Hvernig „Vibe Coding“ er að lækka þröskuldinn svo hver sem er getur orðið forritari.Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar:👉⁠ javelin.is/courses⁠Ef þú vilt vita hvar þitt fyrirtæki er statt í gervigreindarvegferðinni taktu prófið:👉⁠ ⁠javelin.is/ai-readinessKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

  5. 14

    #15 - Vibe coding og vibe working

    Vibe coding og vibe working: Nýja verklagið með gervigreindÍ þessum þætti kafa Sverrir og Pétur ofan í hugtak sem hefur verið að fara sigurför um tækniheiminn: „Vibe coding“ eða fílíngsforritun eins og þeir völdu að kalla það á íslensku. Við veltum því fyrir okkur hvernig vinnan okkar breytist þegar við hættum að skrifa hvern staf og byrjum þess í stað að stýra gervigreindinni eftir „vibe-inu“. Sverrir fagnar því jafnframt að tvær af spám hans fyrir árið 2026 eru þegar farnar að rætast, þótt árið sé varla byrjað.Í þættinum er farið yfir:Vibe coding og fílíngsforritun: Hvað þýðir það þegar forritun snýst meira um samskipti og sýn heldur en smáatriðin?Cursor, Replit og Lovable: Við ræðum tækin sem eru að gera fólki kleift að búa til flottan hugbúnað á met-tíma án þess að kunna hefðbundna forritun.Vibe working: Hvernig gervigreind gerir okkur kleift að taka að okkur verkefni langt utan okkar sérfræðisviðs – hvort sem það er markaðssetning, sala eða hönnun.Hættan á „glærusloppi“: Pétur segir frá reynslu sinni af Gamma.app sem býr til glærur út frá texta og við ræðum hvað gæti farið úrskeiðis.Nýtt hlutverk starfsmannsins: Mun sérþekking skipta minna máli en hæfnin til að ritstýra því sem gervigreindin skilar?Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: https://javelin.is/is/courses

  6. 13

    #14 - Gervigreind sem rak fyrirtæki í þrot

    Í þessum þætti kafa Sverrir og Pétur ofan í eina áhugaverðustu tilraun sem gerð hefur verið með sjálfstæða gervigreind í raunheimum. Við ræðum Project Vend, samstarfsverkefni Anthropic og Andon Labs, þar sem gervigreindinni Claude (undir nafninu Claudius) var fengið það verkefni að reka sjálfsala á skrifstofu gervigreindarsérfræðinga.Hvað gerist þegar tölva þarf að ákveða vöruúrval, verðleggja snakk og eiga í samskiptum við viðskiptavini í gegnum Slack? Við skoðum hvernig tilraunin byrjaði sem „win-win“ staða en fór fljótt út af sporinu þegar mannlegt eðli og takmarkanir tækninnar mættust.Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: javelin.is/coursesTæknimaður: Vagn Margeir SmeltKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

  7. 12

    # 13 - Málfríður Anna: Nám á tímum gervigreindar

    Nám á tímum gervigreindar: Svindl eða ný færni? (Gestur: Málfríður Anna)Í þessum þætti fær Sverrir til sín Málfríði Önnu Eiríksdóttur, tölvunarfræðing og verðandi verkfræðing, sem er við það að ljúka meistaranámi í gervigreind við DTU í Danmörku. Málfríður hefur upplifað það af eigin raun hvernig er að vera í háskólanámi á tímum þar sem leikreglurnar eru að breytast á ógnarhraða.Við ræðum „bleika fílinn“ í kennslustofunni, hvernig skólakerfið glímir við nýja tækni og hvort notkun gervigreindar í námi sé í raun svindl eða bara nauðsynleg þróun.Í þættinum er farið yfir:Nám á tímum gervigreindar: Málfríður segir frá reynslu sinni af námi í DTU þegar ChatGPT og önnur tól mættu skyndilega til leiks og breyttu öllu.„Secret Cyborgs“: Hvernig nemendur nota tæknina í felum þegar skólar hafa ekki skýrar reglur eða banna notkun alfarið.Djúpur skilningur vs. „Get Sh*t Done“: Fórnarkostnaðurinn við að nota gervigreind - missum við af djúpum skilningi á grunninum eða verðum við bara skilvirkari starfskraftar?Covid-gráður vs. AI-gráður: Samlíkingin við að útskrifast í heimsfaraldri; er litið hornauga á þá sem útskrifast með hjálp tækninnar?Er forritarinn að útrýma sjálfum sér? Pælingar um framtíðina, óttann við tæknina og hvort við séum að smíða tól sem leysa okkur sjálf af hólmi.Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: javelin.is/coursesKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

  8. 11

    #12 - 2026: Okkar spár fyrir komandi ár

    Gervigreindarspár 2026: "Bingóspjald" framtíðarinnar Í þessum þætti kíkja Sverrir og Pétur í glerkúluna og búa til „bingóspjald“ fyrir árið 2026. Við greinum nýjustu gögnin frá Epoch AI um sjálfbæran vöxt vs. eyðslutrend í tækniheiminum og veltum fyrir okkur hvenær þróun gervigreindar gæti staðnað. Erum við að fara að sjá líkön sem kosta meira en milljarð dollara í þjálfun eða munu tæknilegir flöskuhálsar hægja á öllu?Í þættinum er farið yfir:- Sverrir spáir um hraða framfara á næstu tveimur árum.- Google vs. OpenAI- Milljarð dollara líkanið - RAM-skorturinn- ChatGPT App Store- Meta, Apple og Anthropic- - -Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega. Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: javelin.is/coursesKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

  9. 10

    #11 - Árið 2025 í gervigreind

    2025 var stærsta ár í gervigreind til þessaVið förum yfir það besta, versta og það sem kom mest á óvartÍ þættinum er farið yfir:• Flopp ársins: Hver átti versta árið? Pétur tilnefnir Microsoft og Copilot fyrir að lofa öllu en standa ekki undir væntingum, á meðan Sverrir ræðir „gervigreind“ sem reyndist vera mannauður í dulargervi.• GPT-5 og væntingarnar: Var þetta árið sem OpenAI hætti að heilla okkur? Rætt um nýju módelin (o1 og GPT-5) og hvort þau hafi staðið undir „hype-inu“.• Satya grípur í taumana: Þegar forstjóri Microsoft lýsir yfir vonbrigðum með sína eigin vöru og tekur málin í sínar hendur.• Nýtt „Meta“ í glærugerð: Nano Banana og Notebook LM• Árið 2025 í hnotskurn: Erum við orðin samdauna hraðanum? Hvernig hlutir sem þóttu „sci-fi“ fyrir ári síðan eru orðnir hversdagslegir í dag.Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: javelin.is/coursesTæknimaður: Vagn Margeir SmeltKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

  10. 9

    #10 - Tilvistarkreppa á tímum gervigreindar

    Hver er ég ef ekki starfið mitt?Sverrir fær til sín Vagn, heimspeking og Bolvíking, til að ræða hliðar gervigreindar sem sjaldnar er talað um: Þá mannlegu, sálfræðilegu og heimspekilegu.Við ræðum „verufræðilegt áfall“ (e. ontological shock) og hvernig við bregðumst við þegar heimsmyndin okkar brotnar. Hvað stendur eftir þegar gervigreindin leysir verkefnin okkar af hólmi?Í þættinum er farið yfir:3 svefnlausar nætur: Ethan Mollick og áfallið sem fylgir því að átta sig raunverulega á stöðunni.Hver er ég? Mörg okkar skilgreina tilgang sinn út frá vinnu. Hvað gerist þegar því er ógnað?Kópíum og afneitun: Við ræðum frasann „Gervigreind tekur ekki starfið þitt, manneskja með gervigreind gerir það“ – er þetta bara leið til að halda okkur rólegum?Góður smekkur vs. „Slop“: Þegar hver sem er getur búið til hvað sem er, verður góður smekkur þá verðmætasta auðlindin?FOMO og kvíði: Hvernig stanslaus straumur frétta getur skapað óöryggi og hvernig við þurfum að velja og hafna.Lausnin: Hvað getum við lært af Viktor Frankl og stóuspeki? Hvernig breytum við kvíða í spenning og náum stjórn á viðhorfi okkar?Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: javelin.is/coursesTæknimaður: Pétur Már SigurðssonKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

  11. 8

    #9 - Gagnaver í geimnum

    Er „skýið“ að fara út í geim?Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í eina villtustu hugmynd tæknigeirans í dag: Að flytja gagnaverin út fyrir gufuhvolfið. Við ræðum verkefni á borð við Project Suncatcher og Project Natick og veltum fyrir okkur hvort þetta sé raunhæft eða bara sci-fi draumar ríkustu manna heims.Í þættinum er farið yfir:Gagnaver í geimnum: Hvers vegna vilja Google og fleiri senda tölvur út í geim? Við skoðum kosti sólarorku á sporbaug og lækkandi kostnað við geimskot þökk sé SpaceX.Hvernig kælir maður tölvu í lofttæmi? Það hljómar eins og geimurinn sé kaldur, en það er flókið að losna við hita þar. Við ræðum geislun, vatnskælingu og risastórar snúrur.Geimsópar og árekstrar: Hvað gerist ef gagnaverið klessir á gervihnött? Við útskýrum Kessler syndrome og hættuna á keðjuverkun árekstra í geimnum.Project Natick: Þegar Microsoft sökkti gagnaveri ofan í sjó. Hverjir voru kostirnir við að geyma gögnin á sjávarbotni og er ekkert ryk í sjónum?Ísland og orkumálin: Gætum við nýtt varmann frá gagnaverum betur, t.d. í hitaveituna, eða erum við að verða uppiskroppa með rafmagn?Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar:👉 ⁠javelin.is/courses⁠Tæknimaður: Vagn Margeir SmeltKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

  12. 7

    #8 - Gervigreind sem boðar heimsendi eða útópíu

    Er gervigreind að fara að taka yfir heiminn?Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í stærstu spurninguna af öllum: Hvert er gervigreindin að stefna? Erum við á leiðinni í útópíu eða dystópíu – eða verður þetta kannski bara „fínt“?Við ræðum muninn á AGI (Artificial General Intelligence) og ASI (Artificial Super Intelligence) og skoðum þrjár ólíkar sviðsmyndir sem sérfræðingar heimsins eru ósammála um. Allt frá útópískri framtíð þar sem öll vandamál eru leyst, yfir í dökkar spár um endalok mannkyns.Í þættinum er farið yfir:AGI og ASI: Hvenær verður tölvan klárari en manneskjan og hvenær verður hún klárari en allt mannkynið til samans?Bjartsýnisspáin: Getur gervigreind læknað alla sjúkdóma, leyst loftslagsvandann og skapað allsnægtir?„Doomer“ sviðsmyndin: Hvað gerist ef við missum stjórn eða ef tæknin lendir í röngum höndum?Eru störfin okkar örugg? Við ræðum hugtakið „copium“ og hvort við séum að blekkja okkur sjálf með því að halda að gervigreindin taki ekki vinnuna okkar.Kapphlaupið: Af hverju tæknirisarnir keppast við að vera fyrstir og pæla ekkert í kostnaðinum.Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar:👉 javelin.is/coursesTæknimaður: Vagn Margeir SmeltKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

  13. 6

    #7 - Eru listamenn búnir að vera? Myndsköpun með gervigreind

    Bylting í myndsköpun og Nano BananaMyndir segja meira en þúsund orð, en hvað gerist þegar tölvur búa þær til?Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í heim myndsköpunar með gervigreind. Þeir ræða ótrúlega þróun síðustu ára, allt frá fyrstu tilraunum DALL-E til nýjustu tækni Google sem ber hið stórfurðulega nafn „Nano Banana“.Það er áhugavert að sjá hvernig bilið á milli ímyndunarafls og veruleika er að minnka.Í þættinum er farið yfir:Hvaðan nafnið Nano Banana kemur og hvers vegna líkanið er svona öflugt.Hvernig þekkum við gervigreindarmyndir og myndbönd í dag (og hvers vegna það er að verða ómögulegt).SynthID tæknina frá Google sem felur ósýnileg vatnsmerki í pixlum.Djúpfalsanir (Deepfakes), siðferðislegar spurningar og áhrif á lýðræðið.Áhrif gervigreindar á listamenn: Er verðmæti listarinnar að minnka eða tækifærin að aukast?.Hvernig nýjustu módelin skilja samhengi, texta og breytingar betur en nokkru sinni fyrr.Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar:👉⁠ javelin.is/courses⁠Tæknimaður: Vagn Margeir SmeltKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

  14. 5

    #6 - Google eru bestir í Gervigreind

    Google er leiðandi í AI-kapphlaupinu.Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í það sem gerðist í fyrradag þegar Google gaf út Gemini 3 og kom sér vel fyrir á toppinum þegar kemur að bestu gervigreindarlíkönunum. Það er fátt jafn skemmtilegt og þegar tæknirisi tjaldar öllu til - og það var einmitt að gerast.Í þættinum er farið yfir:Gemini 3 og hvers vegna þetta er risastórt stökkHvernig DeepMind eiga heiðurinn að mörgum stærstu uppgötvunum síðustu áratugaHvers vegna Google er allt í einu aftur á toppnum í gervigreindForskot Google á öllum sviðum gervigreindarinnarHvað breyttist fyrir forritara, fyrirtæki og samkeppnisumhverfið í gervigreindAð venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar:👉 javelin.is/coursesTæknimaður: Vagn Margeir SmeltKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

  15. 4

    #5 - Nýjustu fréttir: AI bólan, SlopTok, AgentKit & Orðrómar

    Er gervigreind bara bóla?Í fimmta þætti hlaðvarpsins Gervigreind ræða Sverrir og Pétur um nýjustu vendingarnar í heimi gervigreindar.Í þættinum fara þeir m.a. yfir:- Erum við stödd í gervigreindarbólu?- ChatGPT Apps: Ný leið til að leyfa ChatGPT að tengjast ytri þjónustum- Sora 2 : Nýr AI samfélagsmiðill sem hefur fengið viðurnefnið “SlopTok”- AgentKit: verkfæri til að smíða sín eigin verkflæði- OpenAI opnar fyrir gerð erótísks efnis í ChatGPT- Samstarf OpenAI og Broadcom um nýja örgjörvaOg margt margt fleira…Við erum líka á öllum helstu samfélagsmiðlum, endilega fylgið okkar á LinkedIn, Facebook og Instagram til þess að fylgjast með öllu því helsta sem er að gerast í heimi gervigreindar!Editor: Sindri Þór Grétarsson

  16. 3

    #4 - Mýtur og misskilningur

    Gervigreind er á allra vörum en skiljum við hana í raun og veru?Velkomin í fjórða þáttinn af hlaðvarpinu okkar, Gervigreind!Í þessum þætti ræða Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson um algengar mýtur og misskilning varðandi gervigreind. Í þættinum ræða þeir meðal annars um:- Er ChatGPT að læra af samtölunum þínum og hefur það áhrif á svörin sem þú færð?- Af hverju skýr og góð samskipti við gervigreind eru oft mun mikilvægari en flókin kvaðning (e. prompt)- Getur ChatGPT komið með frumlegar hugmyndir eða er hún bara að endurtaka það sem hún hefur séð áður?- Áhrif gervigreindar á störf okkar, samfélagið í heild sinni og hvernig framtíðin gæti litið útTæknimaður: Kristján GíslasonEditor: Sindri Þór Grétarsson

  17. 2

    #3 - Erindrekar

    Hefur þú velt því fyrir þér hvernig framtíðin með gervigreind mun líta út þegar hún fer sjálf að vinna verkefni fyrir okkur? Velkomin í þriðja þáttinn af hlaðvarpinu okkar, Gervigreind!Í þessum þætti ræða Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson um erindrekar (e. Agents). Í þættinum ræða þeir meðal annars um:- Hvað erindrekar eru og af hverju þeir eru orðnir svona heitt umræðuefni - Hvernig þeir virka og helstu hugmyndir á bakvið þá - Nýjustu lausnirnar sem eru í boði í dag - Tækifæri, áskoranir og framtíðarsýn erindrekaTæknimaður: Kristján GíslasonEditor: Sindri Þór Grétarsson

  18. 1

    #2 - Gervigreind fyrir foreldra

    Hvað á ég að ráðleggja börnum mínum að gera eða læra í skóla með tilkomu gervigreindar?Hvernig geta foreldrar nýtt sér gervigreind í uppeldi barna?Velkomin í annan þátt af hlaðvarpinu okkar, Gervigreind! Í þessum þætti ræða Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson um gervigreind fyrir foreldra. Í þættinum ræða þeir meðal annars um:Leiðir til að nýta gervigreind hvort sem þú ert með ungabarn eða unglingaAlgengar spurningar frá námskeiðum um gervigreind frá foreldrumHvernig gervigreind getur bæði hjálpað og skemmt fyrir lærdómiViðbrögð almennings við GPT-5 viku seinnaTæknimaður: Kristján GíslasonEditor: Sindri Þór Grétarsson

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Hlaðvarp um allt sem snýr að gervigreind

HOSTED BY

Javelin AI

CATEGORIES

URL copied to clipboard!