Glæpir í gömlum húsum

PODCAST · history

Glæpir í gömlum húsum

Í þáttaröðinni Glæpir í gömlum húsum eru gömul íslensk hús endurvakin í gegnum merkilega sögu þeirra og fólksins sem í þeim bjó. Húsin eiga það sameiginlegt að í þeim hefur eitthvað saknæmt átt sér stað og ekkert þeirra stendur enn í sinni upprunalegu mynd eða staðsetningu.Umsjón: Adda Steina Ísfeld og Saga Sigurðardóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  1. 4

    Dillonshús

    Dillonshús í Reykjavík er eina húsið í þáttaröðinni sem stendur enn, þó ekki sé á sama stað og þegar það var byggt. Fyrsti íbúinn var Sire Ottesen sem átti merkilega ævi og var oftar en ekki á milli tannana á Reykvíkingum á sínum tíma. Löngu seinna flytur önnur kona, Hulda Karen Larsen í húsið ásamt fjölskyldu sinni sem þurfti að berjast mikið fyrir sér og sínum áður en allt fór á versta veg og hún dó á heimili sínu í fjölmennasta morði 20. aldarinnar á Íslandi. Tónlist: Mary Lattimore, tónlistarhópurinn Umbra, Gadus Morhua, Patricia Brennan, Gyða Valtýsdóttir, Hildegard von Bingen, Brian Eno, Bruce Brubaker. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  2. 3

    Svalbarð „Vofa Sólborgar”

    Sólborg Jónsdóttir liggur með barni sínu í Svalbarðskirkjugarði í Þistilfirði. Einar Benediktsson gegndi hlutverki sýslumanns í Sólborgarmálinu og er sagður hafa tekið andlát Sólborgar mjög nærri sér og trúði því líkt og margir að vofa Sólborgar fylgdi honum á milli bæja og sveita sem varð til þess að henni var gefið viðurnefnið draugurinn í Höfða. Viðmælandi : Aðalbjörg Jónasdóttir.Tónlist: Mary Lattimore, Gyðja Valtýsdóttir, Hildegard von Bingen, Jóhann Jóhannsson, Hildar Guðnadóttir, Robert Aiki Aubry Lowe, tónlistarhópurinn Úmbra, Lotte Pen, Nora Fischer. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  3. 2

    Svalbarð „Sólborgarmálið”

    Sólborg Jónsdóttir starfaði sem vinnukona á bænum Svalbarð í Þistilfirði um tíma eða allt þar til hún dó í sínum eigin réttarhöldum í gestastofunni á bænum. Enn í dag rúmri öld síðar er fólk enn ósammála um hvernig dauða Sólborgar bar að garði og hverju sé um að kenna að svo fór sem fór.Viðmælendur: Daníel Hansen, Aðalbjörg Jónasdóttir og Aldís Gunnarsdóttir.Tónlist: Mary Lattimore, Gyða Valtýsdóttir, Hildegard Von Bingen, Jeremiah, Chiu, Marta Sofia Honer, tónlistarhópurinn Umbra, Theresa Wong, Pauline Oliveros, Lotte Pen, Nora Fisher. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  4. 1

    Þórarinsstaðir „Blóðskömm og dulsmál”

    Halldóra Jónsdóttir bjó við mikla einangrun á Þórarinsstöðum í Seyðisfirði ásamt föður sínum og systkinum. Lífið sem hún þekkti breyttist þó snögglega í kjölfar þess að fjórir menn frá sýslumannsembættinu gerðu sér ferð að bænum vegna gruns um glæpsamlegt athæfi. Halldóra fékk á endanum dauðadóm og henni drekkt líkt og fjölmörgum konum hér á öldum áður.Viðmælandi : Kristín Amalía AtladóttirTónlist: Mary Lattimore, tónlistarhópurinn Umbra, Theresa Wong, Brian Eno, Bruce Brubaker, Jóhann Jóhannsson, Hildur Guðnadóttir, Robert Aiki Aubrey Lowe. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Í þáttaröðinni Glæpir í gömlum húsum eru gömul íslensk hús endurvakin í gegnum merkilega sögu þeirra og fólksins sem í þeim bjó. Húsin eiga það sameiginlegt að í þeim hefur eitthvað saknæmt átt sér stað og ekkert þeirra stendur enn í sinni upprunalegu mynd eða staðsetningu.Umsjón: Adda Steina Ísfeld og Saga Sigurðardóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

HOSTED BY

RÚV Hlaðvörp

CATEGORIES

URL copied to clipboard!