PODCAST · society
Heima er bezt
by Sigurjón M. Egilsson
Góðir gestir og innihaldsríkt spjall að hætti Sigurjóns M Egilssonar.
-
23
Heima er bezt - Jóhann Jakobsson
Miðvikudagur 12. júní Heima er bezt - Jóhann Jakobsson Jóhann Jakobsson æfði fótbolta bæði með George Best og Sir Bobby Charlton. Eins undir stjórn Hemma Gunn. Sögur af fótbolta og sögur frá Akureyri.
-
22
-
21
Heima er bezt - Helgi Máni Sigurðsson
Miðvikudagur, 22. maí Heima er bezt - Helgi Máni Sigurðsson Helgi Máni Sigurðsson er gestur Heima er bezt að þessu sinni. Mest er talað um trébáta síðustu aldar og eins nokkuð um fornbáta. Helgi Máni hefur frá mörgu að segja.
-
20
Bjarki Bjarnason
Miðvikudagurinn 15. maí Heima er bezt - Bjarki Bjarnason Mosfellingurinn Bjarki Bjarnason, rithöfundur og sagnamaður, er gestur Sigurjóns í þættinum Heima er bezt. Þeir ræða stríðsminjar, sögur af Halldóri Laxness og margt fleira. Tveir sagnamenn að segja sögur.
-
19
Helgi Pétursson
Miðvikudagur 8. maí Heima er bezt - Helgi Pétursson Helgi Pétursson tónlistarmaður og formaður Landssambands eldri borgara er gestur í Heima er bezt að þessu sinni. Barátta fyrir hagsmunum eldra fólks á hug hans allan. Auk þess að ræða um þá baráttu verður einnig talað um árin hans í Ríó tríóinu og sorgleg endalok þeirrar sveitar.
-
18
Jakob Frímann Magnússon
Heima er bezt, 24. apríl Jakob Frímann Magnússon Jakob Frímann Magnússon er gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Heima er bezt, sem er á dagskrá klukkan tíu í kvöld. Þeir ræða stjórnmálin og tónlistin kemur einnig við sögu. Stórtónleikar eru fram undan og ýmislegt fleira er í farvatninu. Jakob Frímann hefur frá mörgu að segja og margt fólk ber á góma.
-
17
Níels Árni Lund
Heima er bezt, 10. apríl Níels Árni Lund Hann ólst upp á Melrakkasléttu og heldur mikilli tryggð við æskustöðvarnar. Hefur skrifað bækur um Melrakkasléttuna og gert upp æskuheimilið. Níels Árni Lund er viðmælandi í Heima er bezt að þessu sinni.
-
16
Trausti Valsson
Heima er bezt, 3. apríl Trausti Valsson Trausti Valsson arkitekt og skipulagsfræðingur sýnir fram á að um 80 prósent þjóðarinnar býr við margskonar náttúruógnir.
-
15
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor og þjóðfræðingur, er gestur í Heima er bezt að þessu sinni. Ólína hefur frá mörgu að segja. Meðal annars kveður hún rímu í þættinum. Margt ber á góma. Svo sem þátttaka hennar í stjórnmálum sem og í björgunarsveitum.
-
14
Gunnar Hjördísarson
Heima er best, 13. mars Gunnar Hjördísarson Gestur Heima er bezt að þessu sinni er Gunnar Hjördísarson gítarsmiður. Sigurjón M. Egilsson er stjórnandi þáttarins. Þeir ræða um æskuna, sjómennsku og gítara. Gunnar hefur smíðað þá ófáa. Hann segir meðal annars frá vandræðum við að komast á sýningu í Bandaríkjunum. Bæði Gunnar og Sigurjón er aðdáendur Bítlanna.
-
13
Harpa Þórsdóttir
Heima er bezt - NÝR ÞÁTTUR 6. mars - Harpa Þórsdóttir Fyrsti þáttur Heima er bezt á Samstöðinni: Gestur þáttarins er Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður. Harpa bjó í Þjóðminjasafninu fyrstu sjö ár ævi sinnar. Hún hefur sterkar taugar til safnsins. Harpa og Sigurjón M. Egilsson tala um gildi safna og umfang Þjóðminjasafnsins.
-
12
Stefán Pálsson - Baráttan um Bessastaði
Baráttan um Bessastaði Sigurjón Egilsson og Stefán Pálsson rifja upp átök, sigra og ósigra í forsetakosningum hér á landi. Framundan er ný barátta um Bessastaði.
-
11
Svanur Gísli
Svanur Gísli Þorkelsson er gestur Sigurjóns í þættinum Miðjan á miðvikudegi. Svanur er mikill áhugamaður um sögu lands og þjóðar. Hefur skrifað margar frásagnir.
-
10
Þröstur Ólafsson
Þröstur Ólafsson hagfræðingur hefur sent frá sér bókina, Horfinn heimur. Þar fjallar Þröstur um margt sem hefur farið hátt og eða haft mikil áhrif á okkur sem þjóð. Þröstur er gagnrýnin á menn og málefni. Bókin er skemmtileg og vel upp sett. Þröstur er gestur þáttarins; Miðjan á miðvikudegi.
-
9
Jón Steinar Gunnlaugsson
Miðjan 22. nóv ´23 - Jón Steinar Gunnlaugsson
-
8
Gunnþór Sigurðsson
Miðjan á miðvikudegi, 15. nóvember. Gestur þáttarins að þessu sinni er Gunnþór Sigurðsson. Gunnþór starfar í Pönksafninu í Bankastræti. Eflaust er hann réttur maður á réttum stað. Gunnþór eru sögumaður góður. Hann er sonur Sigurðar Ólafssonar, söngvara og hestamanns, og þá um leið er Gunnþór bróðir Þuríðar Sigurðardóttur.
-
7
Stefán Pálsson
Miðjan á miðvikudegi Gestur okkar að þessu sinni er Stefán Pálsson sagnfræðingur. Rætt er um blaðamennsku Gísla J. Ástþórssonar. Gísli var frumkvöðull í mörgu. Segja má að íslenskir fjölmiðlar hafi verið of smáir fyrir Gísla. Hann var afbragðsteiknari og skóp persónuna Siggu Viggu. Sigga Vigga og tilveran var frábær í höndum Gísla. Gísli setti sinn svip á íslenska fjölmiðla. Miðjan á miðvikudegi er í umsjón Sigurjóns M. Egilssonar ritstjóra Miðjunnar, miðjan.is.
-
6
-
5
Sandra B. Franks
Miðjan á miðvikudegi, 25. október. Gestur þáttarins er Sandra B. Franks formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Hún segir okkur meðal annars að það vanti marga sjúkraliða til starfa. Á sama tíma eru þúsundir sem hafa menntað sig til starfsins starfandi í allt öðrum störfum. Hvers vegna? Launin eru svo lág.
-
4
Sigmundur Ernir
Sigmundur Ernir Rúnarsson er að senda frá sér sína tuttugustu og fimmtu bók. Að þessu sinni skrifar um hann um fjölmiðla frá 1980 og til dagsins í dag. Sigmundur Ernir kann að segja frá. Í samtali hans og Sigurjóns M Egilssonar ber margt á góma. Flest skemmtilegt.
-
3
Miðjan á miðvikudegi - Karl Garðarsson
Miðjan á miðvikudegi Karl Garðarsson, fyrrverandi þingmaður og fréttastjóri, er gestur þáttarins. Karl er giftur konu frá Úkraínu og hefur oft farið til Úkraínu eftir að innrás Rússa hófst fyrir meira en tveimur árum. Rússar nema úkraínsk börn á brott. Talið er flest þeirra hafi verið flutt til Síberíu. Mannfall, úthald og framundan er grimmur vetur hjá fólkinu í Úkraínu. Engar horfur á að hernaðinum í landi ljúki.
-
2
Miðjan á miðvikudegi - Þorsteinn Pálsson
Þátturinn Miðjan á miðvikudegi er samstarfsverkefni miðjan.is og Samstöðvarinnar. Sigurjón M. Egilsson er umsjónarmaður þáttanna. Í þessum fyrsta þætti er Þorsteinn Pálsson gestur Sigurjóns. Þeir tala um íslensku krónuna, evruna og aðra gjaldmiðla. Í þættinum kemur fram að Bjarni Benediktsson vissi betur þegar hann talaði um Ísland sem lágvaxtaland fyrir síðustu kosningar. Beitti hann blekkingum?
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...