PODCAST · arts
Hlaðvarp Lestrarklefans
by Lestrarklefinn
Í hlaðvarpi Lestrarklefans ræða þáttastjórnendur við fjölbreytta lesendur um öll málefni tengd bókmenntum, lestri og menningu. Fáðu þér endilega sæti í Lestrarklefann.
-
19
21. Úr bók í bíó: Wuthering Heights
Úr bók í bíó snýr aftur með æsispennandi umfjöllun um hina umdeildu aðlögun "Wuthering Heights," sem Sjöfn gerist svo djörf að kalla það versta sem nokkru sinni hefur verið fest á filmu og kallað bíómynd.Umsjón: Sjöfn Asare og Rebekka Sif
-
18
20. Hinsegin aðstæður með Evu Rún og Höllu Þórlaugu
Jæja. Eftir mikla tæknilega örðugleika við framleiðslu og útgáfu þáttarins um bókmenntahátíðina Queer Situations snýr hann aftur á streymið. Sjöfn og Unnur Steina ræða við þær Evu Rún og Höllu um æsispennandi bókmenntahátíðina sem þær standa fyrir þar sem alls konar hinsegin bókmenntir eru í fyrirrúmi.Umsjón: Sjöfn Asare
-
17
19. Úr bók í bíó: Hamnet
Við kynnum nýjan dagskrárlið: Úr bók í bíó! Rebekka Sif segir að þessu sinni Sjöfn Asare af upplifun sinni á sögulegu skáldsögunni Hamnet og kvikmyndaaðlögun hennar. Kafað er ofan í frásagnaraðferðir Maggie O´Farrell og hvernig henni tekst að glæða gamla sögu nýju og hrífandi lífi. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare
-
16
18. Leikhúsannáll Lestrarklefans
Leikhúsgagnrýnendurnir okkar Díana Sjöfn og Sjöfn Asare fara yfir liðið leikár og líta til þess sem er spennandi í leikhúsunum 2026. Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.
-
15
17. Bókmenntaskandalar ársins 2025
Í þessum hressilega hátíðarþætti Hlaðvarps Lestrarklefans fara Rebekka, Díana og Sjöfn yfir bókmenntaskandala ársins 2026. Er Laxness úti? Arnaldur líka? Hver á að skrifa ungmennabækur? Hver er Akörn? Mun Bókaklúbbur Íslands fordæma þennan þátt? Gleðilegt nýtt lestrarár kæru lesendur!Umsjónarmenn: Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn Asare
-
14
16. Krakkakraftur með Emblu Bachmann
Í þætti dagsins fáum við Emblu Bachmann til okkar að ræða barna- og ungmennabækur og lífið sem ungstirni með milljón bolta á lofti. Leiðrétting: Í þættinum er rætt um ungmennabækur og að þær séu allar fantasíur þetta árið, en það er ekki rétt, þær eru nánast allar fantasíur, það leynist ein hversdagssaga þarna! Umsjónarmenn: Rebekka Sif, Sjöfn Asare og Díana Sjöfn
-
13
15. Ævintýralegar bækur með Ævari Þór
Einn afkastamesti rithöfundur Íslands settist með okkur í Lestrarklefann og spjallaði við okkur um skrif og bókmenntir. Ævar Þór Benediktsson er með fjórar nýjar bækur í jólabókaflóðinu, Skólastjórann, Góðan daginn, Piparkökuborgina og Gleðileg jól. Verkefnin eru óteljandi og því nóg um að ræða. Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.
-
12
14. Á barmi heimsenda með Þórdísi Helgadóttur
Í hlaðvarpi dagsins fáum við rithöfundinn Þórdísi Helgadóttur í heimsókn sem gaf nýverið út skáldsöguna Lausaletur. Við ræðum við Þórdísi um bókina, rithöfundalífið og heimsenda. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.
-
11
13. Hrollvekjur með Gunnari Theodóri
Hrekkjavaka og hræðilegar verur hafa tekið yfir bókmenntirnar þessa dagana. Við fengum Gunnar Theodór til okkar sem hefur einmitt skrifað nokkrar hrollvekjur, þar á meðal Vatnið brennur og Álfareiðina, sem er nýútkomin og er ætluð ungmennum. Kannið með okkur hryllilegar slóðir í hlaðvarpi dagsins. Það er vel við hæfi að þátturinn sé einmitt númer þrettán!Umsjónarmenn: Rebekka Sif og Sjöfn Asare
-
10
12. Landslag ljóðsins með Maó
Í þætti dagsins fáum við góðan gest, ljóðskáldið og rithöfundinn Maó Alheimsdóttur, sem gaf nýverið út ljóðabókina Hvalbak. Við ræðum um ljóðið, náttúruna og innblásturinn. Stjórendur hlaðvarpsins eru Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn Asare.
-
9
11. Fyrir flóðið
Haustlestur er okkur efst í huga í þætti dagsins. Fyrsta bylgja flóðsins er hafin og við könnum þær gersemar sem hafa nú þegar skolað á land. Við skoðum einnig leikárið og ræðum um þau leikverk sem við erum spenntastar fyrir. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare
-
8
10. Ungmennabækur með Kristínu Björgu
Í fyrsta hlaðvarpsþætti vetrarins fengum við góða heimsókn frá rithöfundinum Kristínu Björgu Sigurvinsdóttur sem skrifar einnig umfjallanir fyrir Lestrarklefann. Við ræðum okkar uppáhalds ungmennabækur og ræðum um bókmenntaformið, fortíð þess og framtíð. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare
-
7
9. Aðdráttarafl smásögunnar
Í níunda þætti Hlaðvarps Lestrarklefans ræða Rebekka, Díana og Sjöfn um smásögur, aðdráttarafl þeirra og hvort markaðsöflin komi í veg fyrir blómlegri útgáfu smásagna. Þær eru einnig höfundar smásagnasafnsins Innlyksa sem kom út í byrjun apríl og ræða því einnig um aðferðir við að skrifa stuttar sögur og texta. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.
-
6
8. Bókaútrás með Pedro Gunnlaugi Garcia
Í hlaðvarpi Lestrarklefans ræða Díana og Sjöfn við rithöfundinn Pedro Gunnlaug Garcia sem er þekktastur fyrir skáldsöguna Lungu sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2022. Pedro segir frá ferðum sínum erlendis á bókmenntahátiðir þar sem Lungu hefur nú verið þýdd á fjölda tungumála. Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.
-
5
7. Þýðingar með Hörpu Rún
Í sjöunda þætti hlaðvarps Lestrarklefans fengum við góðan gest, rithöfundinn og bóndann Hörpu Rún Kristjánsdóttur. Hún starfar einnig sem þýðandi og hefur meðal annars þýtt bækur Emily Henry og leikritið Rómeó og Júlíu eftir sjálfan Shakespeare. Þáttarstjórnendur: Rebekka Sif Stefánsdóttir, ritstjóri Lestrarklefans, og Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, aðstoðarritstjóri Lestrarklefans.
-
4
6. Hinsegin bókmenntir með Bergrúnu
Í hlaðvarpi Lestrarklefans í dag ræðum við um flóru hinsegin bókmennta. Til okkar kom góður gestur, Bergrún Andradóttir skrifstofustýra og aðstoðarframkvæmdarstjóri Samtakanna ´78. Bækur sem voru meðal annars ræddar, Eldri konur, You Exist Too Much, Drottningarnar í garðinum, DJ Bambi, Ungfrú Ísland, Herbergi Giovanni ásamt fleirum. Þáttastjórnendur: Rebekka Sif Stefánsdóttir, ritstjóri Lestrarklefans, og Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, aðstoðarritstjóri Lestrarklefans.
-
3
5. Lestrarmarkmið á nýju ári
Rebekka, Díana og Sjöfn ræða lestrarmarkmið, lestrarsnallforrit og furðulegar lestrarvenjur.
-
2
4. Jólabókaflóðið með Villa Neto
Í jólabókaflóðsþætti Lestrarklefans fengum við góðan gest, leikarann og grínistann Vilhelm Neto. Rætt var um nýútkomnar bækur, hvað við erum að lesa og mikilvægi þess að bera út boðskap bóklesturs á TikTok!Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare.
-
1
3. Jólabækur og notalegheit
Í þriðja þætti fjalla Rebekka Sif og Díana Sjöfn um jólalegar bækur eða svokallaðar jólabækur. Bæði fyrir fullorðna og börn. Inn í það blandast jólahefðir, notalegheitin við lestur yfir hátíðarnar og að lokum örstutt umræða um jólabókaflóðið.
-
0
2. Sjálfsútgáfa með Halldóri Armand
Í öðrum þætti ræðum við sjálfsútgefið rusl, Mikilvægt rusl og hvernig rithöfundurinn Halldór Armand yrði flokkaður ef hann væri rusl. Fáðu þér endilega sæti í Lestrarklefann. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.
-
-1
1. Bókmenntagagnrýni, með eða á móti?
Í fyrsta þætti hlaðvarps Lestrarklefans ræða Rebekka, Díana og Sjöfn um tilgang menningargagnrýni. Einnig er farið yfir sögu Lestrarklefans og þáttastjórnendur kynntir til leiks.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...