PODCAST · society
Hringferðin
by Ritstjórn Morgunblaðsins
Í tilefni 110 ára afmælis Morgunblaðsins leggjum við land undir fót og ræðum við 110 Íslendingahringinn um landið. Ferðin stendur yfir í heilt ár og í henni verður jafnt og þétt dregin upp spennandi mynd af lífinu í landinu frá sjónarhóli heimamanna á hverjum stað, með sögum af fólki, því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja til þess að efla samfélagið til framtíðar. Ferðin stendur yfir í heilt ár og mun jafnt og þétt draga upp spennandi mynd af því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja.
-
54
X26 - Dalvík: Hitaveitan, lóðir og leikskólar stóru málin
Skipulagsmál, leikskólar, hitaveita og uppbygging samfélagsins eru meðal helstu umræðuefna í Dalvíkurbyggð í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Fjögur framboð bjóða nú fram í sveitarfélaginu, í fyrsta sinn í langan tíma.Síðast buðu þrír listar fram. K-listi Dalvíkurbyggðar fékk þá þrjá fulltrúa, D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra tvo og B-listi Framsóknar og félagshyggjufólks tvo. K-listi og D-listi hafa myndað meirihluta á kjörtímabilinu.Nú bætist A-listi Byggðalistans við, undir forystu Barkar Þórs Ottóssonar. Helgi Einarsson leiðir K-listann, Benedikt Snær Magnússon D-lista Sjálfstæðisflokks og Monika Margrét Stefánsdóttir B-lista Framsóknarflokks.
-
53
X26 - Akureyri: heitt í kolunum á borgarafundi
Atvinnumál, Norðurorka, sjókvíaeldi í Eyjafirði, málefni eldri borgara og möguleg sameining sveitarfélaga voru meðal helstu umræðuefna á fjölmennum borgarafundi Morgunblaðsins á Akureyri í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Meðal annars var hart tekist á um Norðurorku, sjókvíaeldi og framtíð Akureyrar. Fundurinn fór fram á Græna hattinum þar sem þétt var setið. Sex oddvitaframbjóðendur tóku þátt í umræðunum: Sunna Hlín Jóhannesdóttir fyrir Framsóknarflokkinn, Sindri S. Kristjánsson fyrir Samfylkinguna, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir fyrir Vinstri græn, Berglind Ósk Guðmundsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Óðinn Svan Óðinsson fyrir L-lista Bæjarlista Akureyrar og Hlynur Jóhannsson fyrir Miðflokkinn.
-
52
X26 - Húnabyggð: Vilja virkja tækifærin
Sameining sveitarfélaga, fjármál, atvinnumál, orkumál og framtíð innviða voru meðal helstu umræðuefna þegar rætt var við oddvita framboðanna þriggja í Húnabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Í framboði eru A-listi, Öll saman, undir forystu Jóns Gíslasonar, B-listi Framsóknar og annarra framfarasinna, undir forystu Gríms Rúnars Lárussonar, og D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra í Húnabyggð, undir forystu Guðmundar Hauks Jakobssonar.Húnabyggð varð til við sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps árið 2022. Síðar sameinaðist Skagabyggð sveitarfélaginu, 1. ágúst 2024. Húnabyggð er nú sjöunda stærsta sveitarfélag landsins að flatarmáli og nær yfir alla Austur-Húnavatnssýslu að Skagaströnd undanskilinni. Íbúar eru um 1.370.
-
51
X26 - Fjallabyggð: vatn, göng og stjórnsýsla í fókus
Sveitarstjórnarmál í Fjallabyggð snúast nú að stórum hluta um grunninnviði, samgöngur, skólamál og endurreisn stjórnsýslunnar eftir erfitt kjörtímabil. Þetta kemur fram í samtali við oddvita þeirra þriggja lista sem bjóða fram í sveitarfélaginu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.Viðtalið fer fram í Menntaskólanum á Tröllaskaga, en Fjallabyggð varð til árið 2006 við sameiningu Ólafsfjarðarbæjar og Siglufjarðarkaupstaðar. Sveitarfélagið er nyrst á Tröllaskaga og samgöngumál hafa alla tíð verið eitt stærsta hagsmunamál íbúanna. Strákagöng og Héðinsfjarðargöng breyttu stöðu byggðarlaganna verulega, en nú beinist athyglin að fyrirhuguðum Fljótagöngum og mögulegum nýjum göngum til Eyjafjarðar.Þrjú framboð eru í kjöri: D-listi Sjálfstæðisflokksins, undir forystu Tómasar Atla Einarssonar, H-listinn, Fyrir heildina, undir forystu Helga Jóhannssonar, og S-listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar og óháðra, undir forystu Jóhanns K. Jóhannssonar.
-
50
X26 - Vilja blása til sóknar í Húnaþingi vestra
Morgunblaðsmenn eru mættir í Húnaþing vestra á ferð sinni um Norðurland fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí. Sveitarfélagið varð til 7. júní 1998 en fékk núverandi mynd árið 2012 þegar Bæjarhreppur sameinaðist því. Helstu byggðir eru Hvammstangi, Laugarbakki, Reykir og Borðeyri, en sveitarfélagið er víðfeðmt og nær frá Arnarvatni og Holtavörðuheiði, norður Strandir að Stikuhálsi og út á Vatnsnes.Í sveitarfélaginu búa um 1.250 manns. Í síðustu kosningum fékk B-listi Framsóknar og annarra framfarasinna þrjá fulltrúa, D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra tvo og N-listi, Nýtt afl í Húnaþingi vestra, tvo. Sömu þrjú framboð bjóða nú fram á ný.Oddvitar þeirra eru Sigurður Líndal Þórisson fyrir B-lista, Örn Arnarson fyrir D-lista og Viktor Ingi Jónsson fyrir N-lista. B- og D-listi hafa myndað meirihluta á kjörtímabilinu.
-
49
X26 - Seltjarnarnes: oddvitar takast á
Leikskólamál, fjármál bæjarins, samgöngusáttmálinn og framtíðaruppbygging á Seltjarnarnesi voru meðal helstu ágreiningsefna í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí.Þátttakendur voru Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, Kristinn Ólafsson, oddviti Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra, og Skafti Harðarson, oddviti Miðflokksins og annarra.Seltjarnarnes er eitt minnsta sveitarfélag landsins að flatarmáli en þar búa um 4.600 manns. Þótt frambjóðendur væru sammála um að bærinn væri eftirsóknarverður til búsetu kom skýrt fram að tekist er á um rekstur, forgangsröðun og framtíðarsýn.
-
48
X26 - Mosfellsbær: oddvitar mætast
Það stefnir í spennandi kosningar í Mosfellsbæ en Mosfellingar þurfa nú að gera upp hug sinn milli sex framboða fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 16. maí næstkomandi. Í síðustu kosningum voru framboðin sjö, en Vinstrihreyfingin – grænt framboð býður ekki fram í bæjarfélaginu að þessu sinni.Oft er talað um Mosfellsbæ, sem er á norðaustanverðum jaðri höfuðborgarsvæðisins, sem sveit í borg vegna nálægðar bæjarfélagsins við náttúruna. Enginn skortur er því á byggingarlandi í bæjarfélaginu en óhætt er að segja að uppbygging á Blikastaðalandi hafi verið í brennidepli að undanförnu og er fyrirhuguð uppbygging þar síður en svo óumdeild.Þeir Sævar Birgisson oddviti Framsóknar, Hilmar Gunnarsson oddviti Sjálfstæðisflokks, Michele Rebora, sem skipar þriðja sæti á lista Vina Mosfellsbæjar, Ólafur Ingi Óskarsson oddviti Samfylkingarinnar, Gylfi Þór Þorsteinsson oddviti Viðreisnar og Sveinn Óskar Sigurðsson oddviti Miðflokks tókust á í myndveri Mogunblaðsins og mbl.is í Hádegismóum.
-
47
X26 - Borgarbyggð: kappræður oddvita
Uppbygging, fjármál sveitarfélagsins og grunnþjónusta voru í forgrunni í oddvitakappræðum Borgarbyggðar í Hádegismóum. Þar leiddu saman hesta sína Hermann Valsson fyrir Borgarbyggðarlistann, Davíð Sigurðsson fyrir Framsóknarflokkinn, Þórður Brynjarsson fyrir Miðflokkinn og Sigurður Guðmundsson fyrir Sjálfstæðisflokkinn.Borgarbyggð gengur nú til kosninga sem sameinað sveitarfélag með Skorradalshreppi. Um 4.200 íbúar búa í sveitarfélaginu sem er víðfeðmt og fjölbreytt. Í kappræðunum kom fram almenn samstaða um að halda þurfi áfram uppbyggingu, fjölga íbúum, styrkja atvinnulíf og tryggja góða grunnþjónustu. Ágreiningur snerist fremur um forgangsröðun og einstök mál, meðal annars Brákarey og vindorku.
-
46
X26: Múlaþing: Samstaða um göng en tekist á um atvinnumál og virkjanir
Samgöngur, atvinnuuppbygging, rekstur sveitarfélagsins og náttúruvernd voru meðal helstu mála þegar rætt var við oddvita framboðanna í Múlaþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Múlaþing varð til árið 2020 við sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar og er eitt víðfeðmasta sveitarfélag landsins.Fimm listar eru í framboði: Framsóknarflokkur undir forystu Jónínu Brynjólfsdóttur, Sjálfstæðisflokkur með Berglindi Hörpu Svavarsdóttur, Austurlistinn og Viðreisn með Hólmfríði Rut Einarsdóttur, Miðflokkurinn með Jóhann Harðarson sem fulltrúa oddvita og Vinstri græn með Ásrúnu Björg Stefánsdóttur.
-
45
X26 - Akranes: kappræður oddvita
Mikil uppbygging, skuldsetning, leikskólar, atvinnumál og framtíð hafnarsvæðisins voru meðal þess sem tekist var á um í oddvitakappræðum á Akranesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Fimm framboð taka þátt í kosningunum og ljóst að áherslurnar eru víða svipaðar þótt leiðirnar séu ólíkar. Mannkynið hefur sem sagt enn ekki fundið leið til að ræða gatnaviðhald án þess að það verði hálfgerður heimspekifundur um framtíð samfélagsins.Þátttakendur voru Líf Lárusdóttir fyrir Sjálfstæðisflokk, Ragnar Baldvin Sæmundsson fyrir Framsókn og frjálsa, Jón Guðni Guðmundsson fyrir Viðreisn, Sigurður Vopni Vatnsdal fyrir Samfylkingu og Hrafn Ágúst Björnsson fyrir Miðflokkinn.
-
44
X26 - Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar á fjölmennum borgarafundi
Mikill áhugi virðist vera á sveitarstjórnarkosningunum í Fjarðabyggð ef marka má mætinguna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is þar sem oddvitar fjögurra framboða tókust á um rekstur sveitarfélagsins, atvinnuuppbyggingu, samgöngur og þjónustu við íbúa. Fundurinn einkenndist af tiltölulega góðum tóni þrátt fyrir skýran ágreining um áherslur og framtíðarsýn.Á sviðinu voru Ragnar Sigurðsson fyrir Sjálfstæðisflokk, Stefán Þór Eysteinsson fyrir Samfylkingu og annað félagshyggjufólk, Þuríður Lilly Sigurðardóttir fyrir Framsóknarflokk og Hrafn Bjarnason fyrir Miðflokk.Viðsnúningur í rekstri
-
43
X26 - Tjörneshreppur: Ráðdeild og sjálfstæði í fámennasta hreppi landsins
Tjörneshreppur er fámennasti hreppur landsins en lætur ekki smæðina stöðva sig. Í samtali við Morgunblaðið í félagsheimilinu Sólvangi fer Aðalsteinn J. Halldórsson oddviti yfir stöðu hreppsins, sjálfkjörið, íbúaþróun, fjármál og framtíð sveitarfélagsins.Hreppurinn nær yfir norður- og vesturströnd Tjörness að Héðinsvík norðan Húsavíkur og er um 199 ferkílómetrar að stærð. Þar búa nú 56 manns og sjö börn eru á grunn- og leikskólaaldri. Það er mesti fjöldi barna í hreppnum í um 30 ár.„Það hljómar nú kannski ekki eins mikið en það er samt það mesta í um 30 ár,“ segir Aðalsteinn.
-
42
X26 - Endurreisn Grindavíkur í forgrunni kappræðna
Endurreisn Grindavíkur var í algjörum forgrunni í oddvitakappræðum sem fram fóru í myndveri Morgunblaðsins í Hádegismóum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Þar komu saman þrír oddvitar, þau Magnús M. Guðmundsson fyrir Miðflokkinn, Guðbjörg Eyjólfsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Ásrún Helga Kristinsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn. Ljóst var frá upphafi að eitt mál yfirskyggði allt annað: hvernig byggja eigi samfélagið upp á ný eftir hamfarir síðustu ára.
-
41
X26 - Innviðaskuld og atvinnumál í forgrunni í Norðurþingi
Staða atvinnulífs, viðhald innviða og fjárhagur sveitarfélagsins voru meðal helstu umræðuefna þegar frambjóðendur í Norðurþingi ræddu stöðu og framtíð sveitarfélagsins á Húsavík.Norðurþing varð til árið 2006 við sameiningu Húsavíkurbæjar, Öxarfjarðarhrepps, Raufarhafnarhrepps og Kelduneshrepps. Íbúar eru nú tæplega 3.200. Sex listar bjóða fram í sveitarfélaginu að þessu sinni: V-listi velferðar, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Óskalistinn, M-listi samfélagsins og Samfylkingin.
-
40
X26 - Skýr skil í Þingeyjarsveit
Þrír listar bjóða fram í Þingeyjarsveit þar sem tekist er á um virkjunarmál, innviði, skólastarf, atvinnuuppbyggingu og framtíð stærsta sveitarfélags landsins að flatarmáli.Þingeyjarsveit er um margt einstakt sveitarfélag. Það þekur um 12% landsins, nær inn á Vatnajökul og byggðin dreifist um Fnjóskadal, Ljósavatnsskarð, Köldukinn, Bárðardal, Laxárdal, Aðaldal, Reykjadal og Mývatnssveit. Íbúar eru um 1.500.Fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí eru þrír listar í framboði. Knútur Emil Jónasson leiðir Á-lista ábyrgðar, Eyþór Kári Ingólfsson fer fyrir N-listanum og Hallgrímur Páll Leifsson leiðir L-lista framfara.
-
39
X26 - Stór verkefni bíða Strandabyggðar
Strandabyggð stendur frammi fyrir stórum ákvörðunum á komandi kjörtímabili þar sem saman fara þröng fjárhagsstaða, húsnæðisskortur, orkumál, atvinnuuppbygging og mögulegar sameiningarviðræður.Þrjú framboð bjóða fram í Strandabyggð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þorgeir Pálsson, sveitarstjóri, leiðir T-lista Strandabandalagsins, Sigurbjörn Rafn Úlfarsson fer fyrir B-lista Framsóknarmanna og óháðra og Hrafnhildur Þorsteinsdóttir leiðir G-lista Vegvísi.Sveitarfélagið varð til árið 2006 við sameiningu Hólmavíkurhrepps og Broddaneshrepps. Þar búa um 440 manns og liggur fyrir að ný sveitarstjórn mun þurfa að takast á við umfangsmikil verkefni.
-
38
X:26 - Höfnin, húsnæðið og fjárhagurinn vega þungt í Bolungarvík
Hafnarmál, húsnæðisuppbygging og ábyrg fjármálastjórn eru meðal stærstu viðfangsefna Bolungarvíkur fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, ef marka má viðtal við oddvita framboðanna tveggja í bænum. Þeir Guðfinnur Ragnar Jónsson, oddviti K-lista Máttar meyja og manna, og Kristján Jón Guðmundsson, oddviti O-lista Betri Bolungarvíkur, eru sammála um margt sem snýr að grunninnviðum og framtíð bæjarins, þótt þeir leggi ólíka áherslu á rekstur og hlutverk sveitarfélagsins.
-
37
X26 - Skólamál, uppbygging og samgöngur í brennidepli á Ísafirði
Skólamál, húsnæðisuppbygging og samgöngur voru meðal helstu umræðuefna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is í Ísafjarðarbæ vegna sveitarstjórnarkosninganna. Fimm oddvitar framboðanna í bænum komu þar saman og kynntu áherslur sínar fyrir komandi kjörtímabil.Frambjóðendur voru almennt sammála um að sveitarfélagið stæði frammi fyrir miklum vaxtarverkefnum, ekki síst í skólamálum, þar sem bæði leik- og grunnskólar væru undir þrýstingi. Einnig var rætt um skort á lóðum, þörf fyrir frekari íbúðauppbyggingu og mikilvægi þess að bæta tengsl milli Ísafjarðar og annarra byggðakjarna sveitarfélagsins.Samgöngumál komu einnig mikið við sögu, sérstaklega staða flugs til Ísafjarðar og þörfin fyrir betri vegasamgöngur. Þá var rætt um stjórnsýslu sveitarfélagsins, fasteignagjöld, Airbnb og mögulegt meirihlutasamstarf að kosningum loknum.Framboðin sendu oddvita sína til leiks í Edinborgarhúsinu. Framsóknarflokkurinn: Kristján Þór Kristjánsson, Miðflokkurinn: Sævar Óli Hjörvarsson, Sjálfstæðisflokkurinn: Jónas Þór Birgisson, Viðreisn: Gylfi Ólafsson, Samfylkingin: Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir.Fundarstjórar voru Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson.
-
36
X26 - Listakosning í Árneshreppi í fyrsta sinn í nær sjö áratugi
Árneshreppur á Ströndum stendur frammi fyrir tímamótum þegar gengið verður til sveitarstjórnarkosninga í vor. Í fyrsta sinn síðan árið 1958 verður kosið milli framboðslista í þessu nyrsta sveitarfélagi Strandasýslu, þar sem íbúarnir eru aðeins 63 talsins. Tveir listar eru í framboði, Á-listi Framtíðar Árneshrepps og S-listi Sólstaða, og virðist ljóst að ólík sjónarmið um sameiningu sveitarfélaga hafi orðið til þess að kosningarnar taka á sig skýrari pólitíska mynd en áður.Arinbjörn Bernharðsson, oddviti S-lista Sólstaða, segir að þrátt fyrir fámennið sé sveitarfélagið bæði landmikið og söguríkt. Þar hafi á fyrri öldum átt sér stað stórir atburðir, allt frá galdrabrennum á 17. öld til Flóabardaga árið 1244. Þá hafi sildarárin á fyrri hluta 20. aldar markað djúp spor, þegar umsvifin í Djúpavík og Ingólfsfirði voru slík að í hreppnum bjuggu um 500 manns.
-
35
X26 - Hólmarar hugsa um skuldastöðu, uppbyggingu og sjávarútveg
Sveitarstjórnarkosningarnar í Stykkishólmi snúast að verulegu leyti um jafnvægið milli áframhaldandi uppbyggingar og aðhalds í rekstri. Það kom fram í viðtali við oddvita H-lista framfarasinnaðra Hólmara, Björn Ásgeir Sumarliðason, og oddvita Í-lista Íbúalistans, Sigurð Grétar Jónasson, þar sem farið var yfir stöðu bæjarins, helstu áskoranir og áherslur fyrir komandi kjörtímabil.Stykkishólmur, sem varð til í núverandi mynd við sameiningu Stykkishólms og Helgafellssveitar árið 2022, er lítið en öflugt sveitarfélag með um 1.350 íbúa. Atvinnulíf byggist einkum á opinberri þjónustu, ferðaþjónustu, landbúnaði og matvælaframleiðslu. Í síðustu kosningum fékk H-listinn fjóra fulltrúa gegn þremur fulltrúum Íbúalistans og hefur farið með stjórn sveitarfélagsins síðustu átta árin.
-
34
X26 - Vesturbyggð á krossgötum
Vesturbyggð stendur á tímamótum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Sveitarfélagið, sem varð formlega til í núverandi mynd 1. júní 2024 við sameiningu við Tálknafjarðarhrepp, hefur á síðustu árum tekið miklum breytingum. Atvinnulíf hefur styrkst, ekki síst með uppbyggingu fiskeldis, en um leið glímir sveitarfélagið við skuldastöðu, brothætta innviði, húsnæðisskort og ágreining um hvernig tryggja eigi framtíðarsókn í orkumálum.Tvö framboð takast á í kosningunum. Annars vegar N-listi Nýrrar sýnar undir forystu Þórkötlu Soffíu Ólafsdóttur og hins vegar nýr V-listi Sterkari Vesturbyggðar, leiddur af Hlyni Ársælssyni. D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra, sem fékk þrjá fulltrúa í aukakosningunum fyrir tveimur árum, býður ekki fram að þessu sinni.
-
33
X26 - Ólík sjónarmið í Hvalfjarðarsveit
Tekjustofnar, Grundartangi og samfélagið í forgrunni í HvalfjarðarsveitKosningabaráttan í Hvalfjarðarsveit mótast af stórum spurningum um sjálfstæði sveitarfélagsins, tekjustofna þess, atvinnuuppbyggingu og hvernig íbúar komi að ákvörðunum um framtíðarskipan svæðisins. Það kom skýrt fram í viðtali við oddvita A-lista Samhentrar sveitar, Harald Benediktsson, og oddvita Íbúahreyfingarinnar, Þóru Margréti Júlíusdóttur, þar sem einnig bar á ágreiningi um orðræðu og samskipti í aðdraganda kosninga.Hvalfjarðarsveit varð til árið 2006 við sameiningu fjögurra hreppa og telur nú ríflega 800 íbúa. Sveitarfélagið er víðlent, með öflugan landbúnað, vaxandi íbúabyggð og eitt mikilvægasta atvinnusvæði landsins á Grundartanga, þar sem um 1.100 manns starfa. Þar hefur byggst upp fjárhagslegur styrkur sveitarfélagsins, en um leið orðið til álitamál um framtíðina.
-
32
X26 - Tekist á um uppbyggingu og framtíðarsýn í Ölfusi
Kosningabaráttan í Ölfusi mótast mjög af örum vexti sveitarfélagsins, mikilli uppbyggingu og ágreiningi um það hvernig best sé að stýra samfélagi sem er að taka stakkaskiptum. Það kom skýrt fram í samtali við oddvita tveggja framboða sem nú bjóða fram í sveitarfélaginu, þá Grétar Inga Erlendsson fyrir D-lista Sjálfstæðisflokksins og Gunnstein R. Ómarsson fyrir lista Samfylkingarinnar og óháðra.Ölfus hefur stækkað hratt á undanförnum árum. Í sveitarfélaginu búa nú 3.062 íbúar og hefur þeim fjölgað um ríflega 500 á yfirstandandi kjörtímabili. Gangi spár eftir gæti íbúafjöldinn farið í 4.500 á næsta kjörtímabili. Fram undan eru því stór verkefni, bæði í innviðauppbyggingu, skipulagi og þjónustu.
-
31
X26 - Tvísýnt slagverk í Rangárþingi ytra
Rangárþing ytra gengur til sveitarstjórnarkosninga í vor með stór verkefni í farangrinum, traustan rekstur að mati meirihlutans og skýran áherslumun milli framboðanna um forgangsröðun næstu ára. Sveitarfélagið, sem varð til 9. júní 2002 við sameiningu Rangárvallahrepps, Holta- og Landssveitar og Djúpárhrepps, er eitt af tíu stærstu sveitarfélögum landsins að flatarmáli, en íbúar eru þó aðeins ríflega tvö þúsund.Kosningarnar lofa spennu, enda munaði aðeins ellefu atkvæðum á listunum tveimur árið 2022. Á-listinn fékk þá 493 atkvæði og fjóra fulltrúa, en D-listi Sjálfstæðisflokksins 482 atkvæði og þrjá fulltrúa. Sömu oddvitar leiða listana nú, þeir Eggert Valur Guðmundsson fyrir Á-lista og Ingvar Pétur Guðbjörnsson fyrir D-lista.
-
30
X26 - Tímamót í Rangárþingi eystra
Rangárþing eystra stendur á miklum tímamótum. Sveitarfélagið vex hratt, ferðaþjónustan sækir fram af krafti og fjárfestingar eru miklar, en um leið kalla vöxturinn og breytingarnar á nýjar áherslur í skipulagi, innviðauppbyggingu og rekstri. Þetta kemur skýrt fram í samtali við sveitarstjórnarmenn í Rangárþingi eystra, þar sem rætt er um stöðu mála og verkefnin fram undan í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna.Sveitarfélagið verður til árið 2002 við sameiningu sex hreppa og nær frá Eystri-Rangá í vestri að Jökulsá á Sólheimasandi í austri. Íbúar eru nú tæplega 2.300 og hefur þeim fjölgað um 20% á kjörtímabilinu, einkum vegna fjölgunar erlendra íbúa sem tengjast uppgangi í ferðaþjónustu. Um helmingur íbúanna býr á Hvolsvelli en hinn helmingurinn í dreifbýli, sem skapar sérstakar áskoranir í þjónustu, skólaakstri og sorphirðu.
-
29
X26 - Vestmannaeyjar: Samgöngur og vatnsöryggi stóru hitamálin
Samgöngumál, vatnsöryggi, skipulag og þjónusta við íbúa voru meðal helstu umræðuefna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is sem haldinn var í Vestmannaeyjum í gærkvöld í aðdraganda komandi sveitarstjórnarkosninga.Þar tókust á Sæunn Magnúsdóttir fyrir Miðflokkinn, Eyþór Harðarson fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Arndís María Kjartansdóttir fyrir Eyjalistann og kynntu áherslur sínar í líflegum umræðum fyrir fullum sal af fólki.
-
28
X26 - Lágar álögur, leikskólamál og vöxtur í Hrunamannahreppi
Sveitarstjórnarkosningarnar í Hrunamannahreppi 16. maí fara fram í sveitarfélagi sem hefur vaxið hratt á síðustu árum og stendur nú frammi fyrir nýjum verkefnum í takt við aukna íbúafjölgun og breyttar þarfir samfélagsins. Þetta kom skýrt fram í samtali við oddvita framboðanna tveggja í hreppnum, þá Jón Bjarnason, bónda og oddvita D-lista Sjálfstæðisflokksins, og Daða Geir Samúelsson, verkfræðing og oddvita L-listans.Hrunamannahreppur er eitt elsta sveitarfélag landsins, víðfeðmur og fornfrægur hreppur í Árnessýslu sem nær frá miðjum Hofsjökli til suðvesturs milli Hvítár og Stórulaxár. Íbúar eru þó innan við eitt þúsund og þéttbýliskjarninn á Flúðum gegnir lykilhlutverki í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
-
27
X26 - Sérstaða sveitarfélagsins í forgrunni í Bláskógabyggð
Sveitarstjórnarmál í Bláskógabyggð einkennast um þessar mundir af örum vexti, auknum kröfum til innviða og umræðu um hvernig sveitarfélagið geti haldið í sérstöðu sína á sama tíma og því vex fiskur um hrygg. Þetta kom skýrt fram í samtali við oddvita T-lista og Þ-lista, þau Helga Kjartansson og Önnu Grétu Ólafsdóttur, þar sem farið var yfir stöðu sveitarfélagsins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.Bláskógabyggð varð til árið 2002 við sameiningu Þingvallahrepps, Laugardalshrepps og Biskupstungnahrepps. Um árabil hafa tvö framboð, T-listi og Þ-listi, tekist þar á um völdin. Í kosningunum 2022 hlaut T-listinn 391 atkvæði og fimm fulltrúa, en Þ-listinn 166 atkvæði. T-listinn hefur farið með meirihluta síðustu þrjú kjörtímabil, en Þ-listinn var við stjórnvölinn frá stofnun sveitarfélagsins og fram til ársins 2010.
-
26
X26 - Uppbygging í brennidepli á Höfn
Yfirvofandi kosningar á Hornafirði bera þess skýr merki að sveitarfélagið stendur á krossgötum. Á fundi með Morgunblaðinu á Höfn tókust oddvitar fjögurra framboða á um rekstur sveitarfélagsins, álögur á íbúa, innviðauppbyggingu og framtíð stórra þróunarverkefna í ferðaþjónustu og miðbæjarins á Höfn. Framboðin sem um ræðir eru KEX-framboð með Eyrúnu Fríðu Árnadóttur í broddi fylkingar, Sjálfstæðisflokkur, sem Gauti Árnason leiðir, Framsókn undir forystu Hjaltu Þórs Vignissonar og Miðflokkurinn, en oddviti hans er Reynir Ásgeirsson. Núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokks og K-framboðs hefur stýrt sveitarfélaginu á kjörtímabilinu, Framsókn hefur skipað minnihlutann en Miðflokkurinn bætist nú við sem fjórða framboðið.
-
25
#54 - Hótel Holt - Guðni Th. Jóhannesson
Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands er síðasti, en alls ekki sísti, gestur Hringferðar Morgunblaðsins sem farið var í af tilefni af 110 ára afmæli blaðsins. Morgunblaðið fagnar 111 ára afmæli í dag. Andrés Magnússon og Marta María Winkel Jónasdóttir settust niður með Guðna á Hótel Holti við Bergstaðastræti í Reykjavík.
-
24
#53 - Ásbrandsstaðir í Vopnafirði
Ferðaþjónusta hefur tekið við af mjólkurframleiðslu á stórbýlinu Ásbrandsstöðum í Vopnafirði. Þar er minningu hinna mögnuðu landpósta einnig gert hátt undir höfði.
-
23
#52 - Kaupfélagsbærinn Fáskrúðsfjörður
Það er líf og fjör í atvinnulífinu á Fáskrúðsfirði. Þar skipta umsvif Loðnuvinnslunnar mestu en fyrirtækið er í eigu kaupfélagsins, sem aftur er sameign stórs hluta bæjarbúa. Mogginn tók hús á tveimur meðlimum kaupfélagsins. Þau standa vaktina á vettvangi þess, en koma úr ólíkum áttum.
-
22
#51 - Hollywood og Húsavík
Magnaðar tilviljanir valda því að Húsavík hefur komist á heimskortið. Þar spila Netflix og Eurovision mikla rullu. Ferðaþjónustan er á góðri siglingu í bænum og þar er í fararbroddi hvalaskoðun sem vaxið hefur mikið á síðustu árum.
-
21
#50 - Skógarböðin á Akureyri
Hringferðin kíkti í heimsókn í Skógarböðin
-
20
#49 - Undraveröld í anddyri á Akureyri
Hótel Akureyri vex nú hröðum skrefum og nýtt anddyri þess er eins og sena frá New York árið 1928. Mæðginin Daníel Smárason og Þuríður Þórðardóttir ráða ríkjum í þessum heimi sem tekur hlýlega á móti ferðamönnum sem drífur að úr öllum áttum. Þau hafa mikla trú á ferðaþjónustunni í Eyjafirði.
-
19
#48 - Krúnudjásn ferðaþjónustannar að Deplum
Lúxushótelið að Deplum í Fljótum í Skagafirði hefur verið á margra vörum síðustu árin enda starfsemin orðlögð fyrir mikinn lúxus. Þangað hafa hins vegar ekki margir komið, enda ekki á allra færi að greiða fyrir herlegheit af þessu tagi. Moggamenn litu við og ræddu við Hauk Sigmarsson sem ræður ríkjum á Deplum.
-
18
#47 - Fjölbreyttur búskapur á Brúnastöðum
Hjónin Stefanía Hjördís Leifsdóttir og Jóhannes Helgi Ríkharðsson hafa, ásamt fjórum börnum sínum, byggt upp myndarlegt bú á Brúnastöðum í Fljótunum. Þar er þó ekki bara um hefðbundinn sveitarbæ að ræða og verkefnin eru fjölbreytt.
-
17
#46 - Ari Gísli Bragason fornbókasali í Bókinni
Á horni Hverfisgötu og Klapparstígs er fornbókabúðin Bókin, 60 ára gömul menningarmiðstöð í hjarta Reykjavíkur. Þar er sagan í hverjum krók og kima, en Ari Gísli Bragason bóksali hefur ófáar sögur að segja af öllu því menníngarástandi.
-
16
#45 - Vildi veitingastað en endaði með hótel
Friðrik Pálsson hefur rekið Hótel Rangá í rúma tvo áratugi. Í viðtali við hlaðvarp hringferðar Morgunblaðsins fjallar hann meðal annars um þau atriði sem helst ber að huga að við rekstur á hóteli í umhverfi sem oft á tíðum er krefjandi.
-
15
#44 - Þjóðfáninn táknar allt það besta 🇮🇸
Fyrir einum og hálfum áratug leit Hörður Lárusson, hönnuður, við hjá Braga í Bókavörðunni. Hann vantaði bók. Eina skilyrðið var að hún væri gatslitin. Innihaldið skipti minna máli, eða það var það sem hann hélt. Bókin átti eftir að leiða hann út á nýjar brautir og spennandi.
-
14
#43 - Hvað ef íbúum fjölgar?
Fólksfjölgun hefur orðið á Vestfjörðum síðastliðin ár og við mótun nýrrar sóknaráætlunar hefur fólk leyft sér, í fyrsta sinn í langan tíma, að velta því fyrir sér hvernig skuli sækja fram ef fólksfjölgunin heldur áfram.
-
13
#42 - Villta vestrið með Steina Más
Þorsteinn Másson er fæddur og uppalinn Ísfirðingur sem er búsettur í Bolungarvík. Þegar hann var ungur flutti hann frá Vestfjörðum og ætlaði aldrei að koma aftur. Þegar hann eignaðist börn breyttist það og er hann nú framkvæmdastjóri Bláma.
-
12
#41 - Úr forstjórastólnum í sögu þorsksins
Gylfi Ólafsson lét af störfum sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða í september á síðasta ári og hefur síðan þá unnið að uppbyggingu upplifunarsýningu um hagsögu Íslands og Vestfjarða sem hverfist fyrst og fremst um þorskinn.
-
11
#40 - María Rún Þorsteinsdóttir
Eftir farsælan rekstur í ellefu ár ákváðu María Rún Þorsteinsdóttir og Heiðar Ingi Heiðarsson að láta af rekstri Crossfit Hengill í Hveragerði. Ákvörðunin var erfið en María segir þau finna fyrir sátt í hjartanu.
-
10
#39 - Milljarður fyrir hver þúsund tonn
Hallgrímur Steinsson, yfirmaður tæknimála hjá Laxey, og Daði Pálsson framkvæmdastjóri ræða umfangsmikla uppbyggingu félagsins í Vestmannaeyjum. Stefnt er að því að framleiða yfir 30 þúsund tonn af laxi þegar félagið hefur náð fullri starfsemi.
-
9
#38 - Midgard base camp
Í gamalli sementsverksmiðju í útjaðri Hvolsvallar má nú finna reisulegt hostel og veitingastað sem ber heitið Midgard Base Camp. Starfsemin er þó fjölbreyttari en svo og teygir anga sína vítt og breitt um Suðurlandið.
-
8
#37 - Þjóðhátíð er handan við hornið
Eyjamenn standa nú í stórræðum við undirbúning Þjóðhátíðar. Fyrstu helgina í ágúst breytir Heimaey um svip og þúsundir gesta sækja hana heim í þeim tilgangi að skemmta sér og öðrum. Í mörg horn er að líta og Morgunblaðsmenn tóku hús á mönnum sem eru öllum hnútum kunnugir við undirbúninginn - fyrr og nú.
-
7
#36 - Skúrinn undir Eyjafjöllum
Fjölskyldan í Varmahlíð undir Eyjafjöllum opnaði gistiheimilið Skúrinn árið 2017 og segir Anna Birna Þráinsdóttir, eigandi Skúrsins, það hafa verið mikið heillaspor. Anna Birna og dóttir hennar Ingveldur Anna Sigurðardóttir, fulltrúi sýslumanns og 2. Varaþingmaður Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi, tóku hlýlega á móti blaðamönnum í Skúrnum og ræddu um lífið undir Eyjafjöllum.
-
6
#35 - Bræðrabrugg í Eyjum
Brothers Brewery hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem eitt áhugaverðasta brugghús landsins. Það er starfrækt í glæsilegu húsnæði í Vestmannaeyjum og nú hefur fyrirtækið opnað minnsta bar á Íslandi við höfnina í Eyjum. Þessu öllu fengu blaðamenn Morgunblaðsins að kynnast á ferð sinni út í Heimaey.
-
5
#34 - Eldheimar í Vestmannaeyjum
Þegar hugmyndir um minjavörslu tengda Vestmannaeyjagosinu fóru að taka á sig mynd upp úr aldamótum óraði engan fyrir því hvers konar aðdráttarafl fælist í því að segja þessa sögu. Eldheimar hafa sannað sig sem mikilvægur áfangastaður fyrir erlenda ferðamenn jafnt sem Íslendinga þegar Heimaeyjar er vitjað.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Í tilefni 110 ára afmælis Morgunblaðsins leggjum við land undir fót og ræðum við 110 Íslendingahringinn um landið. Ferðin stendur yfir í heilt ár og í henni verður jafnt og þétt dregin upp spennandi mynd af lífinu í landinu frá sjónarhóli heimamanna á hverjum stað, með sögum af fólki, því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja til þess að efla samfélagið til framtíðar. Ferðin stendur yfir í heilt ár og mun jafnt og þétt draga upp spennandi mynd af því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja.
HOSTED BY
Ritstjórn Morgunblaðsins
Loading similar podcasts...