PODCAST · business
hún hlaðvarp
by Erna Hrund Hermannsdóttir
Hún er hlaðvarpssería um konur sem hafa farið sínar eigin leiðir í íslensku atvinnulífi. Þær koma úr ólíkum áttum en eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp sterkan feril og tekist á við krefjandi ákvarðanir á leiðinni. Í þáttunum segja þær frá ferðalaginu, áskorunum og ákvörðunum sem hafa mótað þær. Markmiðið er að veita innsýn og innblástur og skapa rými fyrir umræðu um konur sem vilja ná langt, taka pláss og skapa sér sterkan sess í atvinnulífinu, læra hver af annarri og miðla reynslu og þekkingu.
-
9
hún hlaðvarp #8 Sesselía Birgisdóttir
Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum, hefur byggt feril sinn á breytingum, uppbyggingu og umbreytingu. Hún hefur farið inn í ólíkar atvinnugreinar, tekið að sér hlutverk sem voru oft ný eða í mótun, og aftur og aftur unnið með það sem er annaðhvort að verða til, eða þarf að breytast. Í þættinum fáum við að kynnast konunni á bak við verkefnin. Heyrum hvernig maður fer inn í nýja heima, byggir frá grunni, leiðir fólk í gegnum breytingar, og lærir að treysta því og hlusta þegar næsti kafli kallar.hún hlaðvarp er í boði: Bloom, Elko, Vichy og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
8
hún hlaðvarp #7 Arna Harðardóttir
Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix Health, fyrirtækis sem vinnur að því að tengja saman tækni, hugvit og innsæi til að bæta þjónustu fyrir bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Arna hefur þurft að taka stórar ákvarðanir á stuttum tíma, byggja upp traust hratt og leiða fólk í gegnum breytingar. Hún gerir það á sinn hátt, af yfirvegun, sannfæringu og með skýra sýn á það að sjúklingurinn sjálfur sé ein mikilvægasta, en jafnframt vannýttasta, auðlind heilbrigðiskerfisins.Í þessu samtali förum við yfir leiðtogahlutverkið, ábyrgðina, gildin og lærdóminn sem fylgir því að stíga inn í stór verkefni án þess að missa tengingu við sjálfa sig.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Ylva Þórsdóttir PlanmanUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
7
hún hlaðvarp #6 Edda Konráðsdóttir
Edda Konráðsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Edda hefur helgað ferilinn sinn nýsköpun og sprotum, hún er annar stofnenda Iceland Innovation Week og rekur viðburða og hugmyndastúdíóið Milk & Kleina. Mér fannst tilvalið að fá hana Eddu til mín í spjall nú þegar IIW er einmitt að hefjast. Edda stýrði Gullegginu sem er elsta frumkvöðlakeppni Íslands þar sem mörg fyrirtæki hafa tekið sín fyrstu skref. Það var virkilega áhugavert að heyra hennar sýn á hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að fyrstu skrefum í heimi nýsköpunar, hvernig hún nálgast erfiðar aðstæður og það stendur uppúr að heyra hvernig hún talar um aðra og mikilvægi fyrirmynda bæði fyrir sig og aðra. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Ylva Þórsdóttir PlanmanUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
6
hún hlaðvarp #5 Salóme Guðmundsdóttir
Salóme Guðmundsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Ísorku, situr í þónokkrum stjórnum og er stofnandi og formaður konur í stjórnum.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
5
hún hlaðvarp #4 Guðrún Aðalsteinsdóttir
Guðrún Aðalsteinsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Krónunnar með eftirtektarverðum hætti. Guðrún er svo sannarlega leiðtogi með skýra sýn og fyrir mér hefur alltaf verið greinilegt að hún hefur sterka sannfæringu og trú á að það sem hún er að gera skiptir máli - sem er svo sannarlega rétt. Guðrún er sýnilegur leiðtogi bæði fyrir starfsfólkið sitt en einnig fyrir fólkið í landinu. Hún hefur haldið gildum sínum á lofti í gegnum sín störf þar sem allir eiga að upplifa að þeir og þeirra störf skipti máli, það eigi að koma eins fram við alla og allir ættu að hafa val og aðgengi að vörum sem stuðla að heilsusamlegri lífstíl. Mikið var gaman að heyra alla söguna og skilja enn betur hvað það var sem mótaði hana að þeirri konu og leiðtoga sem hún er í dag.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
4
hún hlaðvarp #4 upprifjun & spurningar frá ykkur
Í þessum þætti langaði mig að segja ykkur hvað stóð uppúr hjá mér úr fyrstu þremur viðtölunum. Einnig er ég meira á persónulegu nótunum og svara spurningum hlustenda eins og hvernig leið mér þegar ég sagði upp? hvað getum við gert til að lyfta upp konum? afhverju forðast konur við að breyta? Svo að lokum deili ég 5 bestu ráðunum sem ég hef fengið á ferlinum mínum.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Mango og Vichy.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
3
hún hlaðvarp #3 Dr. Ásta Dís Óladóttir
Leiðtogi sem vill breyta hlutunum og vinnur hörðum höndum að því að efla tengsl milli háskóla og atvinnulífs. Dr. Ásta Dís Óladóttir, nýkjörin forseti Viðskiptafræði Háskóla Íslands, háskólakona ársins 2025 og stofnandi rannsóknarseturs um jafnrétti í efnahags- & atvinnulífi. Ásta Dís er leiðtogi sem hefur haft mikil áhrif á umræðuna um stöðu kvenna í íslensku atvinnulífi og hefur helgað ferlinum sínum rannsóknum á þessu máli. Við ræddum um ferilinn hennar, fórum yfir nýjust rannsóknir og hvernig við þurfum að beita okkur fyrir áhrifum í umræðunni. Samkvæmt nýjustu tölum munum við ekki ná 40% markmiðinu okkar um hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja með 50 eða fleiri starfsmenn fyrr en árið 2070. Tölurnar og samtalið okkar sýnir hve mikilvægt það er að við stöndum saman og höldum þessari umræðu á lofti.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Mango og Vichy.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
2
hún hlaðvarp #2 Edda Hermannsdóttir
Hvernig verður maður leiðtogi sem nær að halda ró í sviðsljósinu og lyfta öðrum með sér. Edda Hermannsdóttir, forstjóri Lyf og Heilsu, er gestur þáttarins. Hún hefur sýnt að það að sameina skýra stefnu og annlega forystu skilar árangri. Við Edda ræddum nýja stefnu Apótekarans og áherslur sem hún setti sér strax á fyrsta degi í nýju starfi. Edda hefur átt áhugaverðan feril sem gæti virkað fyrir mörgum óvenjulegur en þarna er alltaf einhver dýpri hugsun á bakvið. Auk þess má nefna að samtöl okkar Eddu eru ein af ástæðunum fyrir þessu hlaðvarpi og ég er viss um að hún muni veita fleirum en bara mér innblástur. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko og Vichy.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
1
hún hlaðvarp #1 Rakel Guðmundsdóttir
Kraftmikill frumkvöðull sem er ekki hrædd við að taka stökkið þegar hún sér tækifæri. Rakel Guðmundsdóttir , eignarhaldsstjóri hjá Alfa Framtak og annar stofnenda Venja, er gestur þáttarins. Við Rakel fórum yfir víðan völl í samtalinu okkar. Við ræddum um hvernig hlutverk stjórnar styður við bakið á stjórnendum fyrirtækja, frumkvöðlalífið og hvernig góð yfirsýn fjármagns skiptir öllu, stefnumótun og 100 daga áætlun. Að sjálfsögðu ræddum við líka móðurhlutverkið og hvernig forgangsröðun skiptir lykilmáli þegar kemur að því að halda jafnvægi. Í lokin ræddum við svo hvernig fyrirtæki og stjórnendur geta stutt við foreldra í fæðingarorlofi og sérstaklega eftir það, málefni sem stendur okkur báðum nær. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko og Vichy.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
0
hún hlaðvarp með Ernu Hrund - KYNNING
Hvað er svo næst? spurning sem ég hef fengið ótrúlega oft undanfarnar vikur. Eftir að hafa hrisst all verulega upp í lífinu í leit að þroska og nýrri þekkingu með það í huga að langa að gera heiminn að betri stað varð til hún hlaðvarp. Í þessum kynningarþætti langar mig að gefa ykkur innsýn í það hvert ég ætla með þetta ferðalag og afhverju, ég reyni að gera þetta fyrst og fremst af einlægni og hreinskilni og með það í huga að við séum alltaf sterkari saman og sérstaklega þegar við leitum ráða hver hjá annarri. Í hverjum þætti fær ein kona sviðsljósið, við heyrum um þeirra ferðalag og lærdóm og verðum vonandi fróðari eftir hlustun. Inn á milli koma svo styttri þættir þar sem ég ætla að deila með ykkur mínum lærdómi.Markmiðið er að gefa konum innblástur og innsýn í ferðalag annarra kvenna, fá tækifæri til að spegla sig og þannig fá aukið sjálfstraust í að sækjast eftir tækifærum. Fá að heyra sögur af erfiðum ákvörðunum eða áskorunum sem þær hafa mætt og þroskað þær á sínu ferðalagi. Mig langar að opna umræðu um konuna sem vill ná langt, sem vill skapa sér sterkan stað í íslensku atvinnulífi og hafa áhrif. Eflaust hafa margar konur upplifað að þær þurfi að velja á milli fjölskyldu og starfsferilsins en er hægt að gera bæði eða má gera bæði? Í þáttunum kynnumst við ólíkum stjórnendastílum, hugsungargangi og hvernig viðmælendur hafa þróað sinn stíl yfir ferilinn.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Hún er hlaðvarpssería um konur sem hafa farið sínar eigin leiðir í íslensku atvinnulífi. Þær koma úr ólíkum áttum en eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp sterkan feril og tekist á við krefjandi ákvarðanir á leiðinni. Í þáttunum segja þær frá ferðalaginu, áskorunum og ákvörðunum sem hafa mótað þær. Markmiðið er að veita innsýn og innblástur og skapa rými fyrir umræðu um konur sem vilja ná langt, taka pláss og skapa sér sterkan sess í atvinnulífinu, læra hver af annarri og miðla reynslu og þekkingu.
HOSTED BY
Erna Hrund Hermannsdóttir
Loading similar podcasts...