PODCAST · business
Stéttir Landsins
by Stéttarfélagið
Hvað gera leikarar á virkum dögum? Hvernig er stemningin í vinnunni hjá útfararstjóra? Fyrir hverja er ljósmæðranám? Get ég orðið atvinnudansari eftir þrítugt? Er hagfræði hin döpru vísindi?Við skyggnumst inn í hin ýmsu störf Íslendinga og fáum að vita hvernig blákaldur veruleikinn lítur út.Þökkum fyrir samveruna í vetur og hlökkum til að mæta á ný í seríu 3!Samstarfsaðili þáttarins:🔍 Alfreð & Giggó---📅 Miðvikudagar📷 @stettirlandsins📩 [email protected]🎙️ Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
35
Sería 2 - Litið yfir farinn veg
Í vetur höfum við fengið 16 starfsstéttir í heimsókn til okkar, allt frá sóknarprests til stjörnuspekings. Við félagarnir fengum okkur uppáhelling og fórum yfir seríuna, hringdum meðal annars í bókasafnsfræðing til að heyra hvað væri að frétta úr bókasöfnum landsins. Slóum einnig stuttlega á þráðinn til hlustenda til að fá hugmyndir fyrir næstu seríu.Við þökkum styrktar- og samstarfsaðilum kærlega fyrir stuðninginn í vetur. Við mætum sprækir til baka að nýju eftir sumarfrí. Það er alltaf hægt að gauka að okkur fyrirspurnum á Instagram (@stettirlandsins) eða á netfangið [email protected] fyrir okkur - Hinrik og Óli.
-
34
#33 - Réttarmeinafræðingur - Pétur Guðmann Guðmannsson
Réttarmeinafræðingurinn Pétur Guðmannsson hefur um árabil verið eini réttarlæknir landsins í fullu starfi. Í þætti vikunnar köfum við dýpra í eitt sérstæðasta starf landsins og spyrjum stóru spurningarinnar: hvernig er að vinna við það að kryfja lík?Spjallið leiðir okkur víða. Við ræðum meðal annars hvernig dánartími er metinn, hvað gerist í líkamanum þegar við tökum okkar hinsta andardrátt, nálykt, samstarf við lögreglu, rannsóknarskýrslur og þau óútskýrðu dauðsföll sem koma upp á Íslandi.Samstarfsaðilar þáttarins: 🔍Alfreð -⚕️Sjúkraliðafélag Íslands - 🎓Endurmenntun HÍ--- 🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
33
#32 - Afbrotafræðingur - Margrét Valdimarsdóttir
Afbrotafræðingurinn Margrét Valdimarsdóttir sýndi okkur miskunn þegar við viðurkenndum nýlegar stöðumælasektir og við fórum yfir sviðið með henni í klukkustund eða svo.Við fórum um víðan völl: afglæpavæðingu fíkniefna, innflytjendamál og þróun glæpa á Íslandi og á Norðurlöndum, vopnaburð ungmenna, áhrif CSI á hennar feril, hvað einkennir svæði með háa glæpatíðni og að sjálfsögðu sjálft fagið og námið.Góðar stundir!Samstarfsaðilar þáttarins: 🔍Alfreð -⚕️Sjúkraliðafélag Íslands - 🎓Endurmenntun HÍ--- 🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
32
#31 - Dýrahjúkrunarfræðingur - Eva Rún Freygerðard. Árnadóttir
Dýrahjúkrunarfræðingurinn Eva Rún er sannarlega öflugur talsmaður gæludýra landsmanna og talaði þeirra máli í þætti vikunnar.Við fórum víða um sviðið og ræddum meðal annars lífstílssjúkdóma dýra, umræðuhópa á samfélagsmiðlum, gullfiskaæðið í upphafi 21. aldar, samband dýrahjúkrunarfræðinga og dýra, hetjuleg augnablik á skurðstofunni, smitsjúkdóma tengda leðurblökum og hundaæði.Að sjálfsögðu fórum við einnig yfir það góða starf sem unnið er á dýraspítölum um allt land, hvernig dæmigerður dagur lítur út og hver helstu verkefnin eru frá morgni til kvölds.Samstarfsaðilar þáttarins: 🔍Alfreð &⚕️Sjúkraliðafélag Íslands--- 🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
31
#30 - Þingmaður - Sigmar Guðmundsson
Alþingismaðurinn alþýðlegi, Sigmar Guðmundsson, tók sér hlé frá þingstörfum og kíkti í uppáhelling til okkar.Fyrst og fremst brann á okkur sú spurning hvort þetta væri raun og veru skemmtilegt starf. Hversu gíraður þarftu að vera í kosningaframboði, hjá hverjum maður situr í mötuneyti Alþingis, sitja undir málþófi korter í sumarfrí og hvort það sé hægt að hafa skoðanir á öllu.Síðan var snert á alþjóðamálum, ESB og NATO. Þjóðlegar og hressandi umræður.Samstarfsaðilar þáttarins: 🔍Alfreð &⚕️Sjúkraliðafélag Íslands--- 📷 @sigmarg🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
30
#29 - Sjúkraliði - Elísa Finnsdóttir & Saga Ólafsdóttir
Sjúkraliðarnir síkátu, Elísa Finnsdóttir og Saga Ólafsdóttir, gáfu okkur innsýn í starf og umhverfi sjúkraliða á Íslandi.Sjúkraliðar ganga með marga hatta innan heilbrigðiskerfisins og var komið víða við. Félagslíf og virkni eldri borgara var í brennidepli, opnar skurðaðgerðir, heldri menn með mótþróa, samskipti við skjólstæðinga, boccia, hvernig á að taka á því þegar einstaklingar eru á síðustu metrunum, og meðferðargeitur í Eyjafjarðarsveit.Sannarlega augu og eyru heilbrigðiskerfisins! Kynntu þér málið hjá Sjúkraliðafélagi Íslands á slfi.is Samstarfsaðilar þáttarins: 🔍Alfreð &⚕️Sjúkraliðafélag Íslands--- 🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
29
#28 - Fornleifafræðingur - Hildur Gestsdóttir
Fornleifafræðingurinn Hildur Gestsdóttir lagði múrskeiðina til hliðar og spjallaði við okkur. Það var farið aftur til fortíðar og meðal annars rætt um mannabeinarannsóknir en Hildur sérhæfir sig í þeirri áhugaverðu undirgrein fornleifafræðarinnar.Það var rætt m.a. um merka uppgrefti, tæki og tól fornleifafræðinga, umhverfi fornleifafræðinga á Íslandi, gömul sverð, myntasöfnun, fallega bæjarhóla, og fornleifauppgröft framtíðarinnar (rafsígarettur og annað eins). Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó ---📷@beinakerling🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
28
#27 - Íþróttafréttamaður - Jóhann Páll Ástvaldsson
Íþróttafréttamaðurinn Jóhann Páll Ástvaldsson er iðulega staðsettur í Efstaleiti hjá Ríkisútvarpi allra landsmanna. Hann leit við hjá okkur í spjall og fór yfir landslagið í sportinu. Handboltinn tröllríður umræðunni í dag og við fórum aðeins yfir stöðu handboltans á alþjóðavísu og fyrirkomulag stórmóta. Auðvitað var ekki hægt að tala um íþróttir án þess að ræða uppgang krullunnar, en einnig var komið inn á friðarverðlaun FIFA og HM 2026, klisjur í viðtölum, íþróttaskandala, aukið fjármagn í íslenska fótboltanum og Evrópuævintýri.Alltaf í boltanum (og krullunni)! 🥌Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó & ✈️ Isavia ANS---📷@joiastvalds🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
27
#26 - Flugumferðarstjóri - Diljá Mjöll Kolár Hreiðarsdóttir
Flugumferðarstjórinn Diljá Mjöll steig úr flugturninum og leit við til okkar í stúdíóið. Við ræddum námið hjá Isavia og hið daglega starf flugumferðarstjóra, allt frá samskiptum, ákvarðanatöku og öllu sem starfinu fylgir. Einnig bar á góma flugvélalingóið, óvænt atvik í háloftunum, áhrif veðurfars, flugvöllinn á Gjögur, mikilvægi rýmisgreindar í starfi flugumferðarstjóra, listflug í steggjunum og ferlið sem fer í gang ef til flugslyss kemur.Í janúar er opið fyrir umsóknir í nám í flugumferðarstjórn ➡️ isavia.isSamstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó & ✈️ Isavia --- 🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
26
#25 - Fangavörður - Heiðar Smith
Fangavörðurinn Heiðar Smith fór yfir stöðuna í fangelsismálum á Íslandi, starf fangavarða og hið daglega líf innan veggja fangelsanna. Heiðar starfar í fangelsinu á Hólmsheiði og er jafnframt formaður Félags fangavarða.Í spjallinu var farið yfir þær fjölmörgu áskoranir sem fangelsisyfirvöld standa frammi fyrir í nútímasamfélagi. Að vanda var farið um víðan völl og einnig komið inn á stigskiptingu afplánunar, félagsstarf fanga, samneyti fanga og fangavarða, Fangavarðaskólann, Stóra-Hraun og margt fleira sem mótar fangelsiskerfið á Íslandi í dag.Stéttir Landsins fagnar eins árs afmæli og er einstaklega viðeigandi að halda upp á það með því að gægjast inn fyrir dyr fangelsanna á Íslandi.Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷 @heidarsmith🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
25
#24 - Stjörnuspekingur - Guðrún Bergmann
Stjörnuspekingurinn Guðrún Bergmann er með marga hatta og einn þeirra er stjörnuspekin. Nýtt ár er í vændum og því tímabært að rýna í stjörnukortin og kanna hvað þau segja um það sem fram undan er. Við ræddum hvort stjörnuspeki geti nýst við að velja réttu lottótölurnar, taka skynsamlegar ákvarðanir á fasteignamarkaði og í lífi og leik.Guðrún dró upp persónuleg stjörnukort fyrir okkur félagana og þar kom margt áhugavert í ljós. Rísandi Venus, loftmerki, mikil sól og ýmis persónuleg einkenni.Ef horft er til himins þá er ljóst að það eru stórar dagsetningar á næsta ári. Út frá því skoðuðum við hvort ríkisstjórnin haldi velli og hvaða vendingar megi búast við í alþjóðlegum stjórnmálum. Samkvæmt Guðrúnu mun allt þetta skýrast með hjálp stjarnanna.Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷 @gudrun_bergmann🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
24
#23 - Jólasveinn - Bjúgnakrækir
Jólasveinninn gjafmildi, Bjúgnakrækir, hélt að hann væri á leið á jólaball þegar hann sparkaði upp hurðinni á stúdíóinu. Við fengum hann þó til að setjast niður með okkur á þessum háannartíma.Það var rætt um þennan fjölskyldubransa og mikla eftirspurn í desember, kjarasamninga jólasveina, hvort Kertasníkir væri uppfullur af sjálfum sér, og þá gagnrýni sem Gluggagægir hefur sætt undanfarin ár. Bjúgnakrækir kom einnig inn á það að Grýla væri ekki jafn ógnvænleg og áður, enda komin á safakúr og hætt að borða börn. Hann sagði einnig Leppalúði væri orðinn latur og eyddi megninu af tímanum í að horfa á boltann í hellinum.Gleðilega hátíð! Næsti þáttur kemur 31. desember. Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷 @bjugsi🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
23
#22 - Lýtalæknir - Þórdís Kjartansdóttir
Lýtalæknirinn Þórdís Kjartansdóttir er alla jafna með skurðhnífinn á lofti hjá DeaMedica, en að þessu sinni settist hún niður með okkur og fór yfir þennan áhugaverða bransa. Í þætti vikunnar er komið víða við, allt frá bótoxi og til Simon Cowell, andlitslyftinga, BBL, hárígræðslna, calf implants, nýjustu tískubólur og margt fleira. Þórdís, sem hefur starfað sem lýtalæknir um árabil, fékk misgáfulegar spurningar frá okkur drengjunum og erum við aðeins fróðari fyrir vikið.Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷 @thordiskjartansdottir🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
22
#21 - Tölvuleikjaframleiðandi - Halldór Snær Kristjánsson
Tölvuleikjaframleiðandinn, Halldór Snær Kristjánsson, stofnaði Myrkur Games ásamt tveimur félögum sínum úr HR. Þó nokkrum árum síðan og talsverðri mikilli vinnu er leikurinn þeirra, Echoes of the End, loks kominn út.Við félagarnir vorum að vanda forvitnir um hvernig svona ferli gengur fyrir sig og Halldór fræddi okkur um það hvernig hægt er að taka bjartsýna hugmynd úr háskóla og fylgja henni eftir alla leið.Við ræddum ekki eingöngu leikinn sjálfan, heldur einnig leikjabransann á Íslandi, framtíðarhorfur hans, Crash Bandicoot, fjármögnun, hvernig val á leikurum fer fram í svona verkefnum og margt fleira. Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷 @halldor.kristjansson🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
21
#20 - Brúðkaupsplanari - Alína Vilhjálmsdóttir
Brúðkaupsplanarinn skipulagði, Alína Vilhjálmsdóttir, gaf okkur nokkur góð ráð fyrir stóra daginn. Við fórum yfir allt litrófið í brúðkaupsplaneríi og getum sagt að við séum skrefi nær því að verða tilbúnir að ganga í það heilaga. Hvernig á að tækla langar og leiðinlegar ræður, litapallettur og smekksatriði, kostnað, hversu mörgum gestum á að bjóða, furðulegar hefðir og auðvitað starfið sjálft var til umræðu í þættinum.Tilvalið fyrir þau sem eru brúðkaupshugleiðingum eða bara almenna rómantíkusa! Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷 @ogsmaatridin🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
20
#19 - Veðurfræðingur - Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingurinn vinalegi, Einar Sveinbjörnsson, kom í heimsókn og leit með okkur til veðurs eins og honum einum er lagið. Veðrið er okkur hugleikið á hverjum degi og því lá ekki á spurningunum. Við fórum yfir helstu spálíkön, ræddum hvort það væri á einhvern hátt skynsamlegt að flytja höfuðborgina miðað við veðurfar, hvernig það reynir á sálartetrið að spá fyrir heilli þjóð og rýndum í helstu vindáttir og strauma.Við veltum einnig fyrir okkur hvar á höfuðborgarsvæðinu veðrið væri best og komu fram ýmsar skoðanir eftir því hver átti í hlut. Veðrátta og viska í þætti vikunnar!Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
19
#18 - Prestur - Guðmundur Karl Brynjarsson
Sóknarpresturinn síungi, Guðmundur Karl Brynjarsson, hefur gengið Guðs veg síðan á tíunda áratug síðustu aldar. Guðfræðin kallaði þó ekki sterkt til hans á æskuárum og kom mörgum á óvart þegar hann gerðist prestur. Gummi Kalli þjónar hjá Lindakirkju í Kópavogi og hefur getið sér góðs orðs sem sóknarprestur. Hann ræddi við okkur um ýmislegt sem tengist trúnni, meðal annars hvort það væri rými til að bæta við boðorðum, lagaval í kirkjukórum, hlutverk djákna, messuvínið og hvort kristileg gildi séu enn í hávegum höfð hjá yngri kynslóðinni.Fyrsti þáttur í annarri seríu. Sannarlega kræsilegur og kristilegur þáttur! Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
18
Sería 1 - Litið yfir farinn veg
Við drengirnir settumst niður í stutta stund og litum yfir farinn veg í svokölluðum „wrap up“ þætti. Líkt og flestar stéttir landsins ætlum við að skella okkur í sumarfrí.Í þessari stuttu samantekt rifjuðum við upp skemmtileg atvik og eftirminnileg augnablik. Við þökkum öllum kærlega fyrir hlustunina og hlökkum við til að byrja ferskir í ágúst.Gleðilegt sumar ☀️Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
17
#17 - Bráðatæknir - Höskuldur Friðriksson
Bráðatæknirinn reynslumikli, Höskuldur Sverrir Friðriksson, hefur starfað sem sjúkraflutningamaður og bráðatæknir í tæp 40 ár. Hann hefur sannarlega upplifað ýmislegt og séð tímana tvenna.Höskuldur fór um víðan völl og sagði okkur meðal annars frá starfi sínu í Bandaríkjunum, Nígeríu og Líbanon. Þar upplifði hann skotárásir og sinnti störfum á jarðsprengjusvæðum.Starfsferill hefur ekki alltaf verið dans á rósum og var þetta sannarlega áhugaverð sögustund. Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
16
#16 - Kokkur - Snædís Xyza
Kokkurinn kraftmikli, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, er margverðlaunaður matreiðslumeistari og hefur verið hluti af kokkalandsliðinu um árabil.Við spjölluðum meðal annars um trendin í matarmenningu Reykjavíkur, fáum góð ráð um hvernig á að elda fisk, kíkjum á bakvið tjöldin hjá íslenska kokkalandsliðinu og ræðum fyrir hverja kokkanámið er.Matur, menning og metnaður í þætti vikunnar. Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷 @snaedisxyza🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
15
#15 - Ljósmyndari - Þráinn Kolbeinsson
Ljósmyndarinn ævintýragjarni, Þráinn Kolbeinsson, hefur lent í ýmsum ævintýrum á ferli sínum sem ljósmyndari. Hann flakkar um landið og á fjarlægar slóðir til að grípa besta mögulega augnablikið.Allt frá því að mynda reiðhjólakappa á Vestfjörðum til ísbjarna á Baffin-eyjum í Kanada. Hann fór meðal annars yfir það hvernig hann skipti úr stöðugri vinnu á sálfræðistofu yfir í óútreiknanlegt líf sem ævintýraljósmyndari. Ljósmyndun og léttleiki í fyrirrúmi í þætti vikunnar. Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷 @thrainnko🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
14
#14 - Þáttastjórnandi - Arnar Þór Ólafsson
Þáttastjórnandinn geðþekki, Arnar Þór Ólafsson, er með marga bolta á lofti í sjónvarpi og hlaðvarpsheimum.Eftir að hafa verið í atvinnuleit eftir heimsfaraldur stökk hann um borð á hlaðvarpsvagninn og hefur það leitt af sér eitt og annað. Við ræddum við hann um hans helstu verkefni, flest fjármálatengt afþreyingarefni, líkt og Pyngjuna og Viltu Finna Milljón? á Stöð 2. Við vildum vita hvernig fyrirtæki brugðust við því þegar Pyngjumenn fóru að grúska í ársreikningum þeirra, helstu ráðin í heimilisbókhaldinu og ásamt því að ræða stóra stökkið í sjónvarpið ásamt fleiru til.Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷 @arnarthor24🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
13
#13 - Miðill - Sigríður Elín Olsen
Miðillinn og heilarinn, Sigríður Elín Olsen, ræddi við okkur um andleg málefni og deildi því með okkur, hvað býr í fólkinu að handan.Við fengum ýmis svör, heyrðum um okkar verndarverur og hvernig orku við búum yfir. Við ræddum starf miðilsins, hvernig skilaboðin berast frá þeim liðnu, hvort það sé erfitt að vera sjáandi í margmenni, og hvað taki við eftir jarðneska tilveru.Við fórum einnig yfir Tarot-spilin, huldufólk og heilun dýra, þar sem við fengum að vita að ýmsar verur vaka einnig yfir dýrunum okkar.Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷 @siggaolsen🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
12
#12 - Förðunarfræðingur - Rakel María Hjaltadóttir
Förðunarfræðingurinn fótfimi, Rakel María Hjaltadóttir, fór yfir heims- og tískumálin með okkur. Það var tekinn 360 gráðu greining á heitustu trendunum í förðunarbransanum í dag, hvað væri heitt og hvað væri kalt.Rakel er hlaupari mikill og við ræddum um hið stórmerkilega hlaup sem er kennt við Bakgarðinn. Við vildum forvitnast hvað færi í gegnum hausinn á hlaupurum eftir næstum sólarhring á hlaupum og hvers vegna einhver myndi vilja leggja þetta á sig.Einnig tókum við snúning á ferðalögum Rakelar en hún skellti sér í langt ferðalag til S-Ameríku á dögunum og lenti alls kyns ævintýrum.Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷 @rakelmariah🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
11
#11 - Óperusöngvari - Kristján Jóhannesson
Óperusöngvarinn tónelski, Kristján Jóhannesson, er gullbarki með meiru. Þrátt fyrir að vera ekki nema rétt rúmlega þrítugur hefur hann lært og starfað sem óperusöngvari víða um Evrópu um árabil.Kristján sagði okkur frá hinum litla en harða heimi óperunnar í Evrópu og hinu rólega lífi í svissneskum smábæ. Við vorum meðal annars forvitnir að vita hvort hann væri stöðvaður út á götu til þess að gefa áritanir og hvort við ættum erindi í óperuna, enda á besta aldri.Sannarlega þrjár einstakar útvarpsraddir í einum þætti!Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
10
#10 - Töframaður - Lárus „Lalli töframaður“ Blöndal
Töframaðurinn dulræni, Lárus „Lalli töframaður“ Blöndal, er vægast fjölhæfur skemmtikraftur. Lalli hefur töfrað og skemmt fyrir unga jafnt sem aldna. Þrátt fyrir að Lalli megi ekki gefa upp hvernig helstu töfrabrögð eru framkvæmd þá leysti hann úr skjóðunni um margt annað sem tengist töframannasenunni hér á landi. Upphaf töfraferilsins, töframannafélagið, hvort hann hefði töfrað á fyrsta stefnumóti, skemmtanir í barnaafmælum og blöðrutrix voru meðal annars til umræðu í þætti vikunnar.Sannarlega töfrandi spjall á léttu nótunum.Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷@lallitoframadur 🌐lallitoframadur.is🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
9
#9 - Fréttamaður - Kristín Ólafsdóttir
Fréttakonan orðheppna, Kristín Ólafsdóttir, stendur á tímamótum um þessar mundir en hún lagði blaðamannapennann á hilluna á dögunum, í bili allavega.Hún ræddi við okkur um starf fréttamanns og var af nægu að taka. Hún lýsti því hvernig hún endaði fyrir algjöra tilviljun sem fréttamaður á Vísi, hvers vegna hún á það til að flytja fréttir úr sundlaugum landsins, sviðsljósið og vinabeiðnir á Facebook og síðast en ekki síst, Eurovision.Við ræddum einnig hennar næsta skref en Kristín hefur hafið störf sem aðstoðamaður forsætisráðherra.Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷@krolafs🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
8
#8 - Garðyrkjubóndi - Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir
Garðyrkjubóndinn glaðbeitti, Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, brá sér frá bændastörfum á Flúðum og fór yfir það helsta með okkur. Það kennir ýmissa grasa í garðyrkjunni hjá Höllu en hún rekur meðal annars Sólskins vörumerkið og ræktar tómata, gúrkur, sellerí og fleira til.Í þættinum var meðal annars farið yfir hvernig maður eignast allt í einu stærðarinnar garðyrkjustöð á Flúðum, hækkandi raforkuverð, smáauglýsingar í Bændablaðinu og hvernig tómatar þroskast og dafna. Það fá allir græna fingur eftir þessa hlustun!Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷@halsifswag🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
7
#7 - Listamaður - Almar „í kassanum“ Atlason
Listamaðurinn fjölhæfi, Almar Steinn Atlason, er flestum landsmönnum kunnugur eftir stórbrotinn gjörning á göngum Listaháskólans árið 2015.Almar dvaldi nakinn í glerkassa í viku og hreif alþjóð með hug og djörfung í listsköpun sinni. Hann hefur gert margt fleira en setið í kassa og ræddi við okkur um hin ýmis verk og ævintýri ásamt athyglinni sem fylgdi kassanum.Almar tjaldaði í nokkrar vikur á folfvelli á Hornafirði og málaði myndir, lét gesti og gangandi húðflúra á sér bakið á listsýningu og sagaði KitchenAid vél í sundur skömmu eftir skilnað.Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷@almarsteinn🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
6
#6 - Útfararstjóri - Frímann Andrésson
Útfararstjórinn yfirvegaði, Frímann Andrésson, ræddi við okkur um lífið, veginn og dauðann.Starf útfararstjóra getur tekið á sálartetrið eins kom fram í spjalli okkar. Við ræddum um hvaða viður væri vinsælastur fyrir líkkistu, hvort að almenningur mætti keyra um á líkbíl og bestu smáréttina í erfidrykkju.Frímann er einnig plötusnúður en spilar ekki hvaða tónlist sem er. Hann á það til að þeyta skífum á Kaffibarnum fram á rauða nótt og vakti það mikinn áhuga spyrla.Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷@frimann303🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
5
#5 - Ljósmóðir - Hulda Viktorsdóttir
Ljósmóðirin ljúfa, Hulda Viktorsdóttir, ræðir við okkur um heima og geima og allt sem við kemur starfi ljósmæðra. Það var kafað ofan í uppruna orðsins, rætt um vinsældir heimafæðinga á undanförnum árum, hvort það væri samkeppni milli vakta að taka á móti fyrsta barni ársins og hvort að ljósmæðranám væri fyrir alla, konur og kalla. Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷@huldaviktors🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
4
#4 - Grínisti - Bolli Már Bjarnason
Grínistinn glæsilegi, Bolli Már Bjarnason, er mörgum kostum gæddur. Það er ávallt stutt í grínið hjá kauða og einnig er hann með silkimjúka útvarpsrödd. Það liggur beinast við hjá Bolla að starfa við uppistand og vera í morgunútvarpi allra landsmanna.Það var farið yfir víðan völl í þættinum, stóra stökkið þegar Bolli ákvað að snúa sér alfarið að uppistandinu, hvernig það er að vera í 20 klukkustundir á viku í útvarpi og drauma í dagskrárgerð í sjónvarpi.📷@bollimar🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
3
#3 - Hagfræðingur - Jónas Atli & Þórunn Helgadóttir
Hagfræðingarnir hagsýnu, Jónas Atli Gunnarsson og Þórunn Helgadóttir, hafa sérhæft sig í hinum döpru vísindum, hagfræðinni.Þau eiga margt sameiginlegt, þau eru bæði hagfræðingar og einnig í hjúskap. Hins vegar starfa þau á ólíkum sviðum innan hagfræðinnar. Jónas Atli starfar hjá hinu opinbera hjá HMS á meðan Þórunn snýr hjólum atvinnulífsins hjá fjárfestingarbankanum Fossum.Þau hafa búið víða um Evrópu og við ræddum við þau um hinar ýmsu hliðar hagfræðinnar, vinnumarkaðinn í Suður-Evrópu og hvort hagfræði sé listform eða vísindi.📷@jonasatli📷@thorunnhelga🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
2
#2 - Dansari - Elín Signý
Dansarinn geðugi, Elín Signý Ragnarsdóttir, starfar hjá Íslenska dansflokknum og við spurðum hana spjörunum úr. Við ræddum um hvernig það er að vera dansari að atvinnu og fórum yfir ferilinn á léttu nótunum.Einnig var farið yfir hinar alræmdu skandinavísku mjaðmir og hvort það væri of seint fyrir miðaldra karlmenn að hefja sinn dansferil.Elín er ævintýrakona mikil og undir lok þáttar fórum við yfir brimbrettarmenninguna á Íslandi og hvar bestu öldurnar séu að finna.📷@elinsigny🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
-
1
#1 - Leikari - Aron Már Ólafsson
Leikarinn litríki, Aron Már Ólafsson, ræðir við okkur um leikarastarfið. Aron lauk leiklistarnámi á sex árum og má segja að hann sé sprenglærður leikari fyrir vikið. Við ræðum við hann um skrautlegan námsferil, framandi listgjörninga og hápunkt ferilsins þegar hann fékk sinn eigin bílstjóra og trailer á setti.📷@aronmola🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Hvað gera leikarar á virkum dögum? Hvernig er stemningin í vinnunni hjá útfararstjóra? Fyrir hverja er ljósmæðranám? Get ég orðið atvinnudansari eftir þrítugt? Er hagfræði hin döpru vísindi?Við skyggnumst inn í hin ýmsu störf Íslendinga og fáum að vita hvernig blákaldur veruleikinn lítur út.Þökkum fyrir samveruna í vetur og hlökkum til að mæta á ný í seríu 3!Samstarfsaðili þáttarins:🔍 Alfreð & Giggó---📅 Miðvikudagar📷 @stettirlandsins📩 [email protected]🎙️ Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
HOSTED BY
Stéttarfélagið
Loading similar podcasts...