Teymisþjálfarinn podcast artwork

PODCAST · business

Teymisþjálfarinn

Hér ræðum við um teymi og teymisþjálfun út frá ýmsum sjónarhornum, ásamt skírskotunum í önnur fyrirbæri eins og leiðtogafræði, vinnustaðamenningu, mannauðsstjórnun og fleira.

  1. 7

    Torben Nielsen #2

    Þá er komið aftur að Torben Nielsen. Í fyrsta samtali okkar frá júní 2025 kynntum við hann og hugmyndafræðina að baki Conscious Consulting. Í þetta skipti förum við nánar í það hvernig þau vinna með sínum kúnnum. Við ræðum meðal annars hversu löng vegferðin er með kúnnanum — oft 4–5 ár — og hvernig hún skiptist upp í ákveðna fasa. Torben deilir líka sjónarmiðum sínum um hvað hann telur algengustu vandamálin sem hann sér í menningu fyrirtækja og hvernig Conscious Consulting nálgast þau.

  2. 6

    Colin M. Fisher

    Í þessum þætti tala ég við prófessor Colin M. Fisher um vísindin á bak við bókina hans, The Collective Edge, sem kom út árið 2025. Þetta er að mínu mati ein besta bókin sem gefin hefur verið út um samvinnu fólks á undanförnum árum. Colin er prófessor við University College London's School of Management, en hefur líka þá skemmtilegu og óhefðbundnu baksögu að hafa verið atvinnu-jazztrompetleikari.

  3. 5

    Sagan mín

    Í þessum þætti segi ég frá minni eigin vegferð inn í teymisþjálfun - hvaðan ég kem og fer yfir eitthvað af þeim hugmyndum, reynslu, fólki og umhverfi sem hefur haft mótandi áhrif á mig sem teymisþjálfara og manneskju.

  4. 4

    Torben Nielsen

    Viðmælandi minn í þessum þætti er Torben Nielsen. Hann þekkir stjórnendahlutverkið vel af eigin raun og á að baki áhugaverða og djúpa þroskaleið. Torben brennur fyrir framþróun manneskjunnar og vill leggja sitt af mörkum á því sviði, meðal annars í gegnum fyrirtækið Conscious Consulting, sem hann rekur ásamt fleirum og er með starfsstöðvar í Danmörku og á Íslandi. Í þættinum ræðum við sögu Torbens, ásamt hugmyndafræði og nálgun Conscious Consulting. Við fórum töluvert á dýptina í samtalinu, og stefnum á annan þátt síðar þar sem við munum kafa enn frekar í sértækar aðferðir í þjálfun og kúltúrmótun.

  5. 3

    Dr. Catherine Carr

    Nú er komið að sjónarhorni handleiðslumeistara og reynslubolta í þjálfun teymisþjálfara sem og í teymisþjálfun, og það er engin önnur en Dr. Catherine Carr. Ég var svo heppinn að kynnast henni í teymisþjálfunarnámi sem ég var í fyrir nokkrum árum og fékk að velja hana sem handleiðara í því námi. Það hélt áfram eftir námið en ekki nóg með það heldur var ég (og nemendurnir 😀) svo ljómandi heppinn að fá hana til liðs við mig með teymisþjálfunarnámið sem ég býð upp á hér á landi, þar sem hún sér um handleiðslu þátttakenda. Hún er stjórnenda- og teymisþjálfari, kennari (Systemic Team Coaching), rithöfundur, handleiðari og margt fleira. Það er skemmtilegt frá að segja að bókin Team of Teams, sem hún skrifar með Dr. Peter Hawkins, kemur út núna í júní 2025. Í þættinum segir hún okkur frá hennar vegferð og við skoðum allskonar varðandi teymisþjálfun, til dæmis hvernig eitt stykki teymisþjálfunarvegferð með teymi getur litið út. Samtalið er á ensku.

  6. 2

    Thor Ólafsson

    Í þessum fimmta þætti ræði ég við Thor Ólafsson um teymisþjálfun út frá sjónarhóli leiðtogaþjálfunar. Thor er sannkallaður reynslubolti, með áratuga reynslu af leiðtogaþjálfun á efstu stigum, bæði hérlendis og erlendis. Fyrirtæki hans, Strategic Leaders, starfrækir í dag skrifstofur í þremur löndum. Ég sá fyrst til Thors árið 2014 þegar hann hélt erindi um Innri Áttavitann, og í þessum þætti fáum við að heyra magnaða sögu um hvernig hann varð til – sem og margt fleira. Góða skemmtun! 🎧

  7. 1

    Guðrún Aðalsteinsdóttir

    Nú er komið að sjónarhorni leiðtogans á teymi og teymisþjálfun og það er hún Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, sem spjallar við mig um sína vegferð, leiðtogahlutverk og teymispælingar. Guðrún hefur spilað allskonar hlutverk, bæði hérlendis og erlendis og því sérlega ánægjulegt að fá hana í þáttinn.

  8. 0

    Daði Ingólfsson

    Í þessum þætti beini ég sjónum okkar að þjálfun hugbúnaðarteyma og fæ til mín sérfræðing í þeim efnum, Daða Ingólfsson, sem starfar sem teymisþjálfari hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Kolibri. Hann hefur gríðarlega reynslu í þessum efnum og á stóran þátt í útbreiðslu á þekkingu og nýtingu á Agile hugmyndafræðinni hér á landi ásamt Pétri Orra Sæmundsen og fleirum, ekki síst í gegnum ráðstefnuna Agile Ísland sem var árlegur viðburður um alllangt skeið.

  9. -1

    Gestur Pálmason

    Í þessum þætti ræði ég við Gest Pálmason sem starfar sem teymisþjálfari og stjórnendamarkþjálfi hjá fyrirtækinu Complete Coherence. Hann vinnur að stórum hluta erlendis og hefur frá ýmsu fróðlegu að segja, bæði er varðar teymisþjálfun en einnig frá reynslu sinni áður en teymisþjálfunin fór á fullt skrið.

  10. -2

    Kristrún Anna Konráðsdóttir

    Í þessum fyrsta þætti ræði ég við Kristrúnu Önnu Konráðsdóttur sem er sjálfstætt starfandi teymisþjálfari. Hún hefur heldur betur verið að viða að sér þekkingu og reynslu undanfarin misseri og er á fleygiferð í faginu. Það er því sannarlega gleðiefni að fá hana í þáttinn að deila sögu sinni, reynslu og hugmyndum um teymi og teymisþjálfun, og af hverju hún er í þessu fagi í dag.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Hér ræðum við um teymi og teymisþjálfun út frá ýmsum sjónarhornum, ásamt skírskotunum í önnur fyrirbæri eins og leiðtogafræði, vinnustaðamenningu, mannauðsstjórnun og fleira.

HOSTED BY

Örn Haraldsson

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Teymisþjálfarinn have?

Teymisþjálfarinn currently has 10 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Teymisþjálfarinn about?

Hér ræðum við um teymi og teymisþjálfun út frá ýmsum sjónarhornum, ásamt skírskotunum í önnur fyrirbæri eins og leiðtogafræði, vinnustaðamenningu, mannauðsstjórnun og fleira.

How often does Teymisþjálfarinn release new episodes?

Teymisþjálfarinn has 10 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Teymisþjálfarinn?

You can listen to Teymisþjálfarinn on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Teymisþjálfarinn?

Teymisþjálfarinn is created and hosted by Örn Haraldsson.
URL copied to clipboard!