PODCAST · society
Ungliðaspjallið
by Karl Héðinn Kristjánsson, Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir, Jósúa Gabríel Davíðsson, Þorvarður Bergmann Kjartansson
Ungliðaspjallið er þáttur í umsjón ungliða frá ýmsum félagasamtökum. Rætt um málefni líðandi stundar frá forsendum unga fólksins og fengið gesti af eldri kynslóðinni með reynslu
-
11
Ungliðaspjallið - #11 Útlendingar og Ísland
Í Ungliðaspjalli kvöldsins ræðum við um innflytjendur, hælisleitendur og um umræðuna í samfélaginu. Réttindi fólks á flótta og um innviði Íslands Ungliðar þáttarins verða Askur Hrafn Hannesson, aðerðarsinni, Aníta Sóley Scheving Þórðardóttir, jafnréttisfulltrúi LÍS og ötul baráttukona fyrir réttindum barna og mannréttinda, Gabríel Ingimarsson, formaður Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar og Karl Héðinn Kristjánsson, forseti Roða, ungliðahreyfingar ungra Sósíalista.
-
10
Ungliðaspjallið # 10 - Halldóra Mogensen
Halldóra Mogensen er þingkona Pírata. Halldóra hefur skrifað þingsályktunartillögu um skilyrðislausa grunnframfærslu eða borgaralaun. Halldóra hefur líka talað fyrir afglæpavæðingu fíkniefna. Í Ungliðaspjallinu munum við fara yfir málefni vikunnar og ræða síðan við Halldóru um afglæpavæðingu, borgaralaun og rísandi popúlisma
-
9
Ungliðaspjallið #9 - Finnbjörn A. Hermannsson
Finnbjörn A. Hermannsson er forseti ASÍ og verður gestur okkar í Ungliðaspjallinu í kvöld. Við munum ræða um kjaramálin, verkalýðsbaráttuna, neyðina í húsnæðismálum, heilbrigðiskerfinu og skort ráðafólks á raunverulegum lausnum og áhrifaríkum kerfisbreytingum. Þátturinn er í umsjón Karls Héðins Kristjánssonar.
-
8
Ungliðaspjallið #8 - Steinþór Logi Arnarsson
Steinþór Logi Arnarsson er formaður Samtaka Ungra Bænda og í Ungliðaspjallinu í kvöld ætlum við að ræða við hann um stöðu íslenskra bænda, nýliðun í greininni og nýlega yfirstaðinn baráttufund Samtaka Ungra Bænda. Yfirskrift fundarins var „Laun fyrir lífi“. Þar var talað um alvarlega stöðu ungra íslenskra bænda og veruleikann sem blasir við ef ekkert breytist. Við munum ræða við Steinþór um stöðuna, hvað veldur erfiðleikum í greininni, slæma stöðu nýliðunnar og hvað er til ráðs. Þátturinn er í umsjón Árna Péturs Árnasonar, Elísabetar Guðrúnar og Jónsdóttur.
-
7
Ungliðaspjallið #7 - Hjálmtýr Heiðdal
Hjálmtýr Heiðdal er formaður vináttufélagsins Ísland – Palestína og verður viðmælandi okkar í kvöld. Árásir Ísraelshers á Gaza halda ótrauðar áfram með fullum stuðningi svo til allra Vesturlanda, á morgun kl. 17 verður mótmælt fyrir utan bandaríska sendiráðið en Bandaríkin senda yfir 3 milljarða dollara í hernaðarstyrk til Ísraels á ári hverju, þrátt fyrir ítrekaða og viðvarandi stríðsglæpi og mannréttindabrot Ísraelsríkis Umsjónarmenn þáttarins í kvöld eru Árni Pétur Árnason og Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir, meðlimir Ungra Pírata. Una María sem er meðlimur Ungs Jafnaðarfólks og Karl Héðinn Kristjánsson, formaður Ungra Sósíalista
-
6
Ungliðaspjallið #6 - Jóna Benediktsdóttir
Í Ungliðaspjallinu í kvöld ræðum við um nýju stjórnarskrána með Jónu Benediktsdóttur, formanni Stjórnarskrársfélagsins. Síðastliðinn föstudag voru 11 ár frá því að þjóðin samþykkti tillögur stjórnlagaráðs sem grundvöll nýrrar stjórnarskrár. Þingið hefur brugðist hlutverki sínu sem málsvari þjóðarinnar en baráttan fyrir nýrri stjórnarskrá hefur aldrei hætt. Í byrjun þáttarins ræðum við um kvennaverkfallið og fáum svo Jónu Benediktsdóttir inn til að ræða við okkur um nýju stjórnarskrána og þá valdníðslu sem hefur einkennt eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þátturinn er í umsjón Alínu Vilhjálmsdóttur, Elísabetar Guðrúnar- og Jónsdóttur, Karls Héðins Kristjánssonar og Þorvarðar Bergmanns Kjartanssonar
-
5
Ungliðaspjallið #5 - Kristrún Frostadóttir
Í Ungliðaspjallinu í kvöld ræðum við málefni vikunnar með formanni Samfylkingarinnar. Kristrúnu Frostadóttur Við munum fjalla um Ísrael og Palestínu, afsögn Bjarna Benediktssonar sem fjármálaráðherra, ábyrgð í stjórnmálum, þjóðarmarkmið Samfylkingarinnar í heilbrigðis- og öldrunarmálum, félagshyggju og leiðina áfram fyrir Ísland.
-
4
Ungliðaspjallið #4 - Orri Páll Jóhannsson
Ungliðaspjallið #4 - Orri Páll Jóhannsson Í Ungliðaspjalli vikunnar ræðum við við Orra Pál Jóhannsson, þingflokksformann Vinstri Grænna, um málefni vikunnar. Þátturinn er í umsjón Elísabetar Guðrúnar og Jónsdóttur, Jósúa Gabríels Davíðssonar, Karls Héðins Kristjánssonar og Þorvarðar Bergmanns Kjartanssonar
-
3
Ungliðaspjallið # 3 - Björn Leví Gunnarsson
Björn Leví Gunnarsson er þingmaður Pírata sem hefur beitt sér gegn spillingu á Íslandi um árabil og er dyggur stuðningsmaður nýju stjórnarskrárinnar. Við spjöllum við Björn um stjórnmálin almennt, afleiðingar nýju útlendingalaganna og um gang þingsins. Þátturinn er í umsjón Karls Héðins Kristjánssonar sem er Ungur Sósíalisti, Anítu Sóleyjar Scheving Þórðardóttur frá aðgerðarhópnum Andófi og Ármanni Leifssyni sem kemur frá Ungu Jafnaðarfólki.
-
2
Ungliðaspjallið #2 - Atli Þór Fanndal
Í Ungliðaspjalli kvöldsins fáum við til okkar Atla Þór Fanndal, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Transparency International. Við ætlum að ræða við hann um spillingu í víðum skilningi og fjalla um hvernig spilling birtist okkur hér heima og annars staðar og hvernig á að draga úr henni. Áður en Atli kemur í spjallið munu þáttastjórnendur ræða um málefni líðandi stundar. Þáttarstjórnendur í kvöld eru Karl Héðinn Kristjánsson, Aníta Sóley Scheving Þórðardóttir, Daníel Þröstur Pálsson og Þorvarður Bergmann Kjartansson. Þau eru frá ungliðahreyfingum Sósíalista, Pírata, ASÍ og félaginu Andóf, sem setur mannréttindi yfir pólitík.
-
1
Ungliðaspjallið - Birgitta Jónsdóttir
Nýr þáttur á Samstöðinni í umsjón ungliða frá mismunandi félögum, flokkum og hreyfingum. Rætt er um málefni líðandi stundar út frá forsendum og sjónarhorni unga fólksins. Stjórnendur þáttarins eru Karl Héðinn Kristjánsson frá Ungum Sósíalistum, Jósúa Gabríel Davíðsson frá Ungum Vinstri Grænum, Þorvarður Bergmann Kjartansson frá ASÍ-Ung og Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir frá ungum Pírötum. Við tökum fram að við stjórnum þættinum ekki formlega fyrir þessar hreyfingar heldur tölum út frá okkar sjónarmiðum. Í fyrsta þættinum fengum við til okkar Birgittu Jónsdóttir fyrrverandi þingkonu, ljóðskáld og aktívista en áður en hún kemur inn í spjallið ræddum við okkar á milli um hvalveiðar, útlendingaandúð og samfélagsmiðlana. Um umhverfismálin og mikilvægi þess að virkja fólk til stjórnmála- og félagaþátttöku og hvernig er hægt að stuðla að slíku. Fullpakkaður þáttur sem þið viljið ekki missa af!
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Ungliðaspjallið er þáttur í umsjón ungliða frá ýmsum félagasamtökum. Rætt um málefni líðandi stundar frá forsendum unga fólksins og fengið gesti af eldri kynslóðinni með reynslu
HOSTED BY
Karl Héðinn Kristjánsson, Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir, Jósúa Gabríel Davíðsson, Þorvarður Bergmann Kjartansson
CATEGORIES
Loading similar podcasts...