PODCAST · society
Uppsveitakastið
by Jónas
Spjall og hugleiðingar um menn og málefni í uppsveitum Árnessýslu
-
78
L-listinn Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við L-listann í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
-
77
E-listinn Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við E-listann í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
-
76
Ö-listinn Grímsnes- og Grafningshrepp
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við Ö-listann í Grímsnes- og Grafningshreppi.Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
-
75
A-listinn Grímsnes- og Grafningshrepp
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við A-listann í Grímsnes- og Grafningshreppi.Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
-
74
D-listi sjálfstæðismanna og óháðra í Hrunamannahreppi.
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við D-lista sjálfstæðismanna og óháðra í Hrunamannahreppi.Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
-
73
L- listinn Hrunamannahreppi
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við L-listann í Hrunamannahreppi.Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
-
72
Kristófer A. Tómasson
Nú var farið um víðan völl. Kristófer kom til mín og spjallaði um það sem á daga hans hefur drifið. Barnæskan í Biskupstungum, heimilið í Hveragerði, sæluna á Selfossi, árin í Árnesi og svo framvegis. Námið, vinnuna og verkefnin sem hafa verið ærið mörg, Ekki má gleyma Lions starfinu, sem er bara skemmtun og eiginlega ekkert starf. Þetta var góð og skemmtileg heimsókn.
-
71
Tveir á tali + Þorvaldur og Malin
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fóru í keppni í fjórgangi hjá Uppsveitadeildinni í byrjun mars mánaðar. Í framhaldinu fengum við Þorvald Loga Einarsson og Malin Andersen í spjall um þau sjálf, hestamennsku og keppni og lífið og tilveruna. Þetta unga fólk á framtíðina fyrir sér í sinni vinnu og áhugamáli og verður spennandi að fylgjast með þeim. En í augnablikinu er hægt að hlusta á þau hér.
-
70
Aldís Hafsteinsdóttir
Hrunamaðurinn og Hvergerðingurinn Aldís Hafsteinsdóttir kom og spjallaði á léttu nótunum, eins og hennar er von og vísa, um heima og geima. Lífið og tilveruna, æskuna, vinnurnar, skólana, fjölskylduna og fleira. Þó ung sé þá hefur hún náð að afreka margt og ferilskráin myndi vera nokkrar blaðsíður. Hressilegt viðtal við hressa konu.
-
69
Magnús Kjartan og Tveir á tali
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu góðan gest en Magnús Kjartan Eyjólfsson úr Stuðlabandinu kom í heimsókn. Á skemmtilegan hátt fór hann yfir æskuna, uppvöxtinn og ferilinn. Hvernig það er að flétta saman vinnunni og fjölskyldunni. Hvernig það er að stjórna Brekkusöngnum fyrir mis margmennri brekku og margt fleira. Hlustun gerir mann sögum ríkari.
-
68
Magnús Orri - Rauðukambar
Magnús Orri Marínarson Schram kom til mín og kynnti fyrir okkur Rauðukamba í Þjórsárdal. Þar er verið að byggja hótel og baðstað sem er merkilegt sökum þess að hótelið og baðstaðurinn er inni í fjalli með frábæru útsýni suður yfir landið. Þegar hótelið opnar verður það með stærri vinnustöðum í sveitunum og líklega verður uppbygging í kring um hótelið talsverð. Það verður spennandi að fylgjast með þessu verkefni áfram og sjá þetta verða að veruleika.
-
67
Laugarás lagoon - Bryndís og Gísli
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, skruppu í Laugarás lagoon til að baða sig og fá sér eitthvað í gogginn. Þar hittum við Bryndísi Björnsdóttur, framkvæmdastjóra, og Gísla Matthías Auðunsson, matreiðslumeistara, og þau kynntu fyrir okkur Laugarás lagoon og veitingastaðinn Ylju. Það er skemmst frá að segja að bæði veitingastaðurinn og lónið eru frábærlega vel heppnuð og flottur nýr áfangastaður í uppsveitum Árnessýslu.
-
66
Bara tveir á tali
Við sátum tveir Jónas Yngvi og Árni Þór og fórum yfir það sem er efst á baugi í Uppsveitunum. Danir eru áberandi á Flúðum, þorrablót í fullum gangi, sum búin önnur ekki, íþróttastarf, skák, félagsstarf. Matarhornið var á sínum stað.
-
65
Atli og Alda
Þau setja sterkan svip á mannlífið og eru ófeimin við að prófa eitthvað nýtt. Atli Lilliendahl og Alda Björk Lilliendahl Ólafsdóttir komu í spjall og sögðu frá stórmerkilegu lífshlaupi sínu, Grænland, Svíþjóð, England, svo nefnd séu einhver lönd sem þau bjuggu í áður en þau hittust fyrir tilviljun hér á landi. Þau eru með ótal járn í eldinum og maður veltir helst fyrir sér hvernig sólarhringurinn nægir fyrir þau til að ná að vinna að öllu sem þau gera.
-
64
Rakel Theódórsdóttir - Byggðaþróunarfulltrúi
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu til sín góðan gest. Rakel Theódórsdóttir, nýr byggðarþróunarfulltrúi uppsveitanna, kom í heimsókn og sagði okkur frá sér og sínum högum. Hún hefur komið víða við, afgreitt kaffi í London, unnið í Friðheimum, aðstoðað ferðamenn í vanda og bara alls konar. Núna er hún sem sagt orðin byggðaþróunarfulltrúi og leiðir okkur í allan sannleik um hvað það starf felur í sér.
-
63
Stefán Þorleifsson
Í þessum þætti er tekið hús á Stefáni Þorleifssyni, tónlistarmanni og kennara (og margt fleira). Hann tók á móti okkur í Tónsmiðju Suðurlands og við ræddum lífshlaupið, tónlistina, kennsluna og margt fleira. Stefán er lífsglaður og hláturmildur með skoðanir á hlutunum og við hefðum getað talað mikið lengur um tónlist og kennslu. Því miður voru einhverjir tæknilegir örðugleikar á upptöku spyrils þannig að í síðari hluta þáttarins voru spurningar stjórnanda teknar upp aftur og skeytt í á sína staði. Ég vona að þetta komi ekki að sök en það er búið að ganga í málið og vonandi verða ný tæki komin fyrir næsta þátt.
-
62
Árný Fjóla og Daði Freyr
Á nýársdag gáfu Árný Fjóla og Daði Freyr sér tíma til að kíkja við og spjalla við okkur í Tveir á tali. Við ræddum um tónlistina og myndlistina og bara flest milli himins og jarðar. Eurovision bar á góma ásamt leiklist í FSU og þar sem Árni Þór var einn af stjórnendum var auðvitað rætt um körfubolta. Það var virkilega gaman að fá þessa ungu listamenn í heimsókn og heyra aðeins af þeirra lífi.
-
61
Tveir á tali - Við hvorn annan
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, spjalla um desember, jólin, hefðir og allt sem tengist jólunum...og þeim sjálfum. Pínulítið sjálfhverfur þáttur þar sem farið er um víðan völl. - Valið á uppsveitamanni ársins er í gangi og nokkrar tilnefningar hafa borist en við hvetjum alla sem hafa tillögur að hafa samband.
-
60
Guðmundur skólastjóri
Guðmundur Finnbogason, skólastjóri Þjórsárskóla, mætti í létt spjall. Við spjölluðum um daginn og veginn, skátastarf, náttúruna, æskuna, menntamál, eldamennsku og margt fleira. Guðmundur hefur komið víða við og segir frá sér og sínum verkum í þessu hressilega spjalli.
-
59
Tveir á tali á Sæsabar
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, brugðu sér af bæ og kíktu inn á Sæsabar. Auðvitað var talað við Sæsa sjálfan, eða Sævald Þór Eyþórsson, um barinn og lífið og tilveruna. Eins fengum við annan góðan gest en Sigurður Emil Pálsson, eða bara Siggi, sem vann Blítt og létt keppnina í ML kíkti við og tók lagið fyrir okkur. Ekki má gleyma að í lokin var sungum við jólalag þar sem þátturinn var tekinn upp í upphafi aðventu.
-
58
Sylvía Karen Heimisdóttir - Sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Hver er Sylvía Karen Heimisdóttir, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps? Hún kom í spjall í Uppsveitakastið. Við ræddum um æskuna á Selfossi, nám, störf, fjölskylduna og áhugamál. Það var gaman að kynnast konunni bak við titilinn í skemmtilegu og þægilegu spjalli.
-
57
Tveir á tali - Björgunarsveitin Eyvindur, Einar og Tobias
Tveir á tali, þeir Jónas og Árni, fengu góða gesti í þáttinn. Einar Hjörleifsson og Tobias Ölvisson frá Björgunarfélaginu Eyvindi kíktu til okkar og sögðu okkur frá starfinu og Eyvindi. Tveir hressir strákar sem brenna fyrir því að láta gott af sér leiða. Eins fórum við yfir það sem okkur hafði borist til eyrna í atburðum og uppákomum sem eru á næstunni í uppsveitunum.
-
56
Heilsugæsla uppsveitanna
Tveir á tali, þeir Jónas og Árni, fengu góða heimsókn enda tilefnið ærið. Nú er heilsugæslustöðin í Laugarási að flytja sig um set, þó ekki í fyrsta skipti en uppsveitirnar sem læknishérað urðu til 1899 og var fyrsti læknirinn staðsettur í Grímsnesi. Í Laugarási hefur hins vegar verið læknir frá 1922 eða í 103 ár. Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU, kom til okkar í spjall um fyrirhugaðan flutning á Flúðir. Talað var um þjónustuna, ástæður flutningsins og helling í viðbót. Heilsugæsla uppsveitanna opnar í dag, 05.11.2025 á nýjum stað og í tilefni þess sendum við þetta fróðlega samtal út.
-
55
Vörðukórinn - Ferðasaga frá Skotlandi
Dagana 21.-26. október fór Vörðukórinn til Skotlands til að syngja í St. Mary's Parish Church í Haddington nálægt Edinborg. Ég gat komist með sem maki og tók upp nokkur tóndæmi í ferðinni. Tónleikarnir voru sungnir með skoskum kór, The Garleton Singers, og lauk með að báðir kórar sungu saman þjóðsönginn okkar. Algert gæsahúðamóment. Þessi þáttur er ferðasaga með tóndæmum og ég þakka bara fyrir mig.
-
54
Sölvi Arnarson - Efstidalur
Í þáttinn Tveir á tali kom góður gestur. Við, Jónas og Árni, tókum á móti Sölva Arnarsyni veitingamanni í Efstadal og í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Sölvi kynnti fyrir okkur ísinn og salatostinn sem þau gera í Efstadal og sagði okkur um leið frá ferðaþjónustunni sem hann ásamt systrum sínum og fjölskyldum reka. Eins sagði hann okkur af rekstri Héraðsskólans á Laugarvatni en þar reka þau gistiheimili og veitingastað í þessu sögufræga húsi. Nú er bara að setja sig í stellingar og hlusta og heyra hvað hann hefur að segja en sögurnar voru margar.
-
53
Sigurjón Sæland - Leikdeild UMF Bisk.
Sigurjón Sæland kom í heimsókn og kynnti nýjustu afurð leikdeildar UMF Bisk. en það er leikritið 39 & hálf vika eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ólafar Sverrisdóttur. Leikritið er gamanleikrit í farsastíl þar sem meðganga er viðfangsefnið og eins og einkennir góð gamanleikrit þá er eitthvað um misskilning og rangtúlkanir og svo vonandi leysist allt að lokum. Þar sem sjón er sögu ríkari þá er bara um að gera að drífa sig á sýninguna og njóta kvöldsins. Veitingastaðirnir Mika og Vínstofa Friðheima eru með leikhústilboð á mat fyrir sýningu.
-
52
Tveir á tali - Hvað er að frétta?
Jónas Yngvi og Árni Þór voru einir í þetta skipti með þáttinn tveir á tali. Nóg að tala um enda mikið um að vera í uppsveitunum. Við fórum yfir allt sem netleit okkar hafði leitt í ljós og segjum frá uppákomum, fundum, skemmtunum, sveitarstjórnarmálum o.fl. Hrekkjavakan á stóran sess og eins tölum við aðeins um Ylju, nýja veitingastaðinn í Laugarási. Friðheimar eru alltaf að gera góða hluti og þannig mætti lengi telja...já eiginlega gerðum við það í þættinum og nú er bara að setja sig í stellingar og hlusta.
-
51
Björgvin Skafti Bjarnason
Skafti kíkti í heimsókn og við spjölluðum um hvað á daga hans hefur drifið. Hann talaði um æskuna í Skeiðháholti, árin í Gósen, sveitarstjórnarmál og við ræddum aðeins um Parkinson sjúkdóminn. Skafti er líka hagyrðingur og það gæti vel verið að einhver vísa skjóti upp kollinum.
-
50
Karl Hallgrímsson
Karl Hallgrímsson er deildarstjóri í Reykholtsskóla í Bláskógabyggð. Hann er líka tónlistamaður. Hann tók sig til og fór í Háskóla Íslands til að læra um stjórnun menntastofnana og skrifaði ritgerðina "Röfl um mengi og magann á beljum".Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, vildu fræðast meira um ritgerðina og líka manninn og hann kom til okkar og sagði okkur frá sjálfum sér, tónlistinni, vinnunni og náminu. Þetta varð hið skemmtilegasta spjall og fræðandi.
-
49
Helga Jóhanna
Helga Jóhanna er athafnakona sem lætur ekkert stoppa sig. Nýlega var hún kjörin formaður suðurlandsdeildar FKA en það er ekki eina járnið sem hún hefur í eldinum. Hún rekur gistiheimili ásamt eiginmanni sínum, hefur sungið á plötur, gefið út bækur og margt fleira. Eins hefur hún tekið að sér að gefa saman hjón á hinum ýmsu stöðum.Helga er hvergi hætt og lítil hætta á að hún rykfalli í rólegheitum.
-
48
Tveir á tali með fjallkóngum
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, tóku á móti 3 fjallkóngum en það eru Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir, fjallkóngur Biskupstungna, Guðmundur Árnason, fjallkóngur Gnúpverja og Ingvar Hjálmarsson, fjallkóngur austurleitar Flóa- og Skeiða. Þeir ræddu göngur og þær áskoranir sem þeim fylgja. Rætt var um réttirnar, sauðfé og í raun allt sem sneri að fjallferðum og sauðfjárbúskap. Eins var talað um réttarböllin og komandi Réttarball uppsveitanna.
-
47
Lína Björg Tryggvadóttir
Lína Björg Tryggvadóttir, byggðaþróunarfulltrúi, kom í þáttinn og talaði um uppsveitirnar og starf sitt hjá þeim. Hún fór yfir verkefni sín og fræddi mig meðal annars um möguleika til styrkja vegna nýsköpunar. Fróðlegt og skemmtilegt viðtal.
-
46
Matthías Bjarnason - Sveitarfélagið Árnessýsla
Matthías Bjarnason mætti til okkar til að tala um lokaverkefnið sitt í opinberri stjórnsýslu við Háskólann á Bifröst. Verkefnið heitir Sveitarfélagið Árnessýsla og í því er fjallað um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna í Árnessýslu, áskoranir og tækifæri sem slíkri sameiningu fylgir. Forvitnilegt verkefni þar sem ekki er leitast við að komast að einhverri niðurstöðu heldur að fjalla um verkefnið á sem víðustum grunni.Eins fjöllum við um það sem er efst á baugi í uppsveitunum og við höfum fengið veður af.
-
45
Siggi í Skarði
Sigurður Björgvinsson, eða Siggi í Skarði, kom í spjall. Hann ræddi uppvöxtinn í Reykjavík og sjómennsku. Svo ræddi hann fyrstu ár Búrfellsvirkjunar, vinnustaðinn, samfélagið og sveitina. Flutninginn af mölinni og Skarð. Sönginn og kórastarfið. Það var gaman að spjalla við Sigga Bjögg eins og alltaf
-
44
Grímsævintýri - Laufey Guðmundsdóttir
Grímsævintýri er skemmtun sem haldin er í Grímsnes- og Grafningshrepp á hverju ári. Laufey Guðmundsdóttir kom í heimsókn og kynnti fyrir okkur hátíðina og eins Kvenfélag Grímsneshrepps sem stendur að Grímsævintýri. Tombólan er fastur liður en í ár verður hún 99 ára gömul. Það er mikið um að vera og kvenfélagið síungt og fjörugt. Við hvetjum alla til að kíka og skemmta sér og öðrum.
-
43
Hestakráin með nýja eigendur
Í vor keyptu þau Helgi Haukur Hauksson og Helga Margrét Friðriksdóttir Hestakránna. Í tilefni af því skrapp Uppsveitakastið í heimsókn og hitti Helgu. Það er mikið að gera hjá þeim en auk þess að reka Hestakránna reka þau einnig Þjóðveldisbæinn í Þjórsárdal auk þess að vera með útleigu á gistingu og að standa í flugningum. Það er bjart framundan hjá þessu unga fólki og spennandi tímar.
-
42
Sólheimar í Grímsnesi
Tveir á tali brugðu undir sig díselfætinum og fóru í heimsókn að Sólheimum í Grímsnesi. Þar tóku á móti okkur Kristín Björg Albertsdóttir, framkvæmdastjóri, og Kristófer Agnarsson listamaður. Þau fræddu okkur um fjölbreytta starfssemi Sólheima en þar má finna listasmiðjur, verslanir, kaffihús og margt fleira. Það var gaman að rölta um Sólheima og skoða þorpið. Á myndinni er Kristófer Agnarsson, listamaður.
-
41
Pálmi Gunnarsson
Í dag fagnar Uppsveitakastið árs afmæli en þann 22.07.2024 kom fyrsti þátturinn út. Viðmælandi dagsins er hinn góðkunni Pálmi Gunnarsson bassaleikari og söngvari. Við ræddum saman um náttúruna, silunga, sjónvarpsþætti, bækur og margt fleira. Eins var spjallað um tónlistina og helstu áhrifavalda. Pálmi hefur frá mörgu skemmtilegu að segja. Við ræddum um verndun silunga og uppbyggingu veiðistaða. Pálmi hefur skrifað nokkrar bækur og við ræddum um þær og margt fleira.Þetta var skemmtilegt spjall og gaman að fá að kynnast persónunni Pálma.
-
40
Tveir á tali - Sumarspjall
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fara yfir það helsta sem er um að vera í uppsveitunum þennan mánuðinn. Skoðum dagskrána á útihátíðinni Flúðir um versló og þar verður nóg um að vera, Umferðarhornið er á sínum stað. Leikhópurinn Lotta fær glimrandi umsögn.
-
39
Einar Gíslason, Kjarnholtum
Ég skrapp í heimsókn til Einars í Kjarnholtum og spjallaði við hann um lífið og tilveruna. Hvernig var að alast upp í Biskupstungum, skólagönguna, mannlífið og fleira. Um leið og við nutum útsýnis yfir sveitina spjölluðum við um daginn og veginn, gamla tíma og nýja. Góð heimsókn og fræðandi.
-
38
Heiðrún Kristmundsdóttir
Heiðrún Kristmundsdóttir frá Haga er ein af forsprökkum körfuboltabúða á Flúðum í júlí. Karfan á hug hennar allan og hún hefur komið víða við. Spilað og þjálfað.... annars er bara best að hlusta á hana tala um körfuna, sveitina, hestana og allt sem gaman og skemmtilegt er að gera. Það er ekki að vita nema eitthvað nýtt skjóti upp kollinum sem enginn vissi fyrir. Spurningin er: Á Heiðrún sér uppáhaldssamloku?Tveir á tali, Þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu hér heldur betur hressan viðmælanda með mjög forvitnilegt efni.
-
37
Hallbera Gunnarsdóttir
Hallbera Gunnarsdóttir er kennari, söngvari, útivistafrömuður og helling fleira. Hvað kom til að ákveðið var að sofa í tjaldi allan ársins hring? Af hverju eru haldnir tónleikar úti á Laugarvatninu sjálfu? Hallbera kíkti í spjall til okkar í Tveir á tali og fór yfir lífshlaupið og hvernig hægt er að hafa gaman að einföldu hlutunum. Minnum líka á tónleikana á Laugarvatni þann 27.06.2025
-
36
Magnús Bjarki - Björgunarsveitin Ingunn
Á Laugarvatni er árlega haldið hlaup sem kallast Gullspretturinn. Í ár er það haldið þann 14.06. Magnús Bjarki Snæbjörnsson, formaður björgunarsveitarinnar Ingunnar á Laugarvatni, kom og kynnti þennan viðburð fyrir mér. Eins sagði Magnús frá fjölbreyttu starfi sveitarinnar og var þar greinilega nóg um að vera. Ég hvet alla sem hlusta til að kíkja á Gullsprettinn og sjá keppendur hlaupa þennan hring um Laugarvatn, nú eða jafnvel að taka þátt.
-
35
Tveir á tali - Upp í sveit
Eins og okkar er vísa þá eru tveir á tali að spjalla um allt sem gerist í uppsveitunum og við vitum af. Ástráður Unnar Sigurðsson kom og sagði okkur frá sumarhátíðinni í Skeiða- og Gnúpverjahrepp en hún kallast Upp í sveit. Ljóst er að dagskráin verður fjölbreytt og eins og fyrri ár gaman að taka þátt. Hvað þar gerist kemur í ljós við hlustun á þáttinn nú eða með því að mæta og upplifa.Tveir á tali eru Jónas Yngvi Ásgrímsson og Árni Þór Hilmarsson.
-
34
Björg Eva Erlendsdóttir
Björg Eva er mörgum vel kunnug. Fædd í Gnúpverjahreppnum og sérstakur áhugamaður um náttúruvernd. Hún er framkvæmdastjóri Landverndar og nýtir sumarfríið til landvörslu. Við ræddum um uppvaxtarárin á Hamarsheiði, Þjórsána, Þjórsárdalinn, virkjanir og vindmyllur svo eitthvað sé nefnt. Skemmtilegt og fróðlegt spjall um náttúru í nútíð og framtíð.
-
33
Tveir á tali - Enduro
Heimir Sigurðsson frá Hreppaköppum kynnti Enduro keppni. Eins var farið yfir fundargerðir og fleira. Fréttir og skemmtanir. GÓSS í Friðheimum og fullt í viðbót.
-
32
Tveir á tali - Pálmi Hilmarsson
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór fengu Pálma Hilmarsson í heimsókn. Pálmi er nemendum Menntaskólans að Laugarvatni að góðu kunnur því hann hefur verið staðahaldari þar í þónokkur ár. Pálmi sagði okkur frá sögu ML og skólahalds að Laugarvatni og skaut inn nokkrum skemmtisögum í leiðinni. Skemmtilegt og fróðlegt spjall og við vitum að hlustendur kvarta ekki þó aðeins hafi lengst í annan endan.
-
31
Tveir á tali (26)
Jónas Yngvi og Árni Þór settust niður að loknum páskum og fóru yfir það sem stóð uppúr um páskana og eins hvað er framundan. Páskaeggin og málshættirnir fengu sinn skammt ásamt nýjum lið sem er matarhorn, enda báðir miklir matgæðingar. Við stefnum að því að kíkja á veitingastaði í uppsveitum og smakka það sem er í boði og ræða okkar upplifun. Í þessum þætti var mætt á nýjan austurlenskan veitingastað á Flúðum, Star.
-
30
Haraldur Þór Jónsson - oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Haraldur Þór Jónsson - oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps fer yfir stöðu sveitarfélagsins þegar tæp 3 ár eru liðin af kjörtímabilinu. Litið er yfir farinn veg og rætt um hvað hefur áunnist og hvað er eftir.Staða sveitarfélagsins, virkjanamál, veiðifélagið, Samfylkingin og margt fleira. Hvað er framundan? Mun Samfylkingin bjóða fram í sveitarfélaginu, eða verður Haraldur áfram með Samvinnulistann?Hresst spjall þar sem ekkert er dregið undan.
-
29
Tveir á tali -- um allt og ekki neitt
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, spjalla um hvað er efst á baugi í uppsveitunum þessa dagana.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...