PODCAST · news
Veröld sem er
by Hallgrimur Oddsson
Í Veröld sem er, hlaðvarpi Evrópustrauma hugveitu, er fjallað um alþjóðamál, Evrópumál og stöðu og hagsmuni Íslands á alþjóðavettvangi. Með gestum af öllu tagi, sérfræðingum, stjórnmálafólki og álitsgjöfum er rýnt í stóru málin, fréttir líðandi stundar og þau atriði sem varða mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu.
-
5
Hvað myndi aðild að ESB þýða fyrir íslenskan sjávarútveg - Samtal við Hjálmar Vilhjálmsson
Hjálmar Vilhjálmsson er yfirmaður uppsjávarsviðs og aðstoðarmaður forstjóra hjá Brim, einu stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Áður starfaði Hjálmar í um tuttugu ár sem forstjóri eistnesku útgerðarinnar Reyktal, auk þess sem hann var talsmaður og nefndarmaður í eistneskum sjávarútvegssamtökum. Í þættinum ræðir Hjálmar hvað aðild Íslands að ESB gæti þýtt fyrir íslenskan sjávarútveg. Til umræðu er sameiginlega sjávarútvegsstefna ESB, fiskveiðistjórnun, ákvörðunarvald við kvótaúthlutun, veiðar úr deilistofnum, Haag-ákvæðið, kvótahopp, íslenskar sérreglur um erlent eignarhald, samkeppnismál, möguleg tækifæri og ógnir aðildar fyrir sjávarútveginn, rekstrarskilyrði og hvað Ísland þyrfti að semja um í aðildarviðræðum um inngöngu í Evrópusambandið.
-
4
Smáríki og stóra borðið - Samtal við danskan Evrópuþingmann
Stine Bosse er danskur Evrópuþingmaður frjálslynda flokkahópsins Renew Europe. Í viðtali ræðir hún viðhorf Dana til Evrópusambandsins og áhrif Grænlandsmálsins, áhrif sín í Brussel, hvort minni ríki hafi einhver völd og þau ráð sem hún gefur íslenskum kjósendum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. 00:00 Inngangur og umfjöllun um viðtalið við Stine Bosse.06:40 Viðtalið í heild
-
3
„Að hafa áhrif er að tilheyra“ - Samtal við finnskan Evrópuþingmann og yfirferð á Evrópþinginu
Finnski alþjóðastjórnmálaprófessorinn Mika Aaltola situr á Evrópuþinginu fyrir flokkinn European People's Party (EPP). Í viðtalinu ræðir hann um sín áhrif í Brussel sem fulltrúi Finnlands, stöðu Evrópuþingsins í dag, fullveldismál, áhuga Finna á pólitíkinni í Brussel, og þau ráð sem hann getur veitt Íslendingum nú þegar þeir standa frammi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna. Í þættinum er einnig fjallað um þá flokka sem eiga sæti á Evrópuþinginu og hvar íslenskir stjórnmálaflokkar myndu eiga þar heimili. 00:00 Umfjöllun um Evrópuflokkana og hvar íslenskir stjórnmálaflokkar ættu heimili á Evrópuþinginu.11:14 Um Mika Aaltola og viðtal við hann í heild.
-
2
ESB-atkvæðagreiðsla í ágúst, tollar, Íran og Epstein
Hallgrímur, Hjalti Geir Erlendsson og Hjörtur Ingvi Jóhannsson ræða um það sem efst er á baugi. Frétt Politico um að ESB-þjóðaratkvæðagreiðsla gæti farið fram síðsumars, tollar Trumps í ljósi dóms Hæstaréttar Bandaríkjanna um ólögmæti frelsis-tollana, stigmögnun í Íran, Epstein-skjölin, handtaka Peter Mandelson og fingraför hans á setningu hryðjuverkalaganna gegn Íslandi 2008 eru til umfjöllunar. 00:00 Frétt Politico um þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst10:35 Tollar Trumps22:07 Íran32:20 Epstein, Mandelson og Íslandstengingar
-
1
„Ég breyttist“ - Samtal við Þórdísi Kolbrúnu um Úkraínu, NATO, ESB-aðild og óvissutímana
Þingmaðurinn og fyrrum utanríkisráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ræðir stöðu mála í Úkraínu, hvernig innrás Rússa fyrir fjórum árum hefur haft áhrif á hana sem manneskju, um þýðingu þess fyrir Ísland að vera bandamaður, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna, og Evrópusambandsumræðuna á Íslandi. www.evropustraumar.is00:00 Inngangur01:26 Þórdís Kolbrún breyttist og mun aldrei breytast til baka05:12 Stuðningur almennings við Úkraínu09:57 Vopnuð átök hefðu áhrif á Ísland14:45 Ræður JD Vance og Rubio í Munchen20:00 Pallborðsumræður með H. Clinton, Navalnia og Haddad21:44 Friðarviðræður við Rússa og framtíð Úkraínu27:02 Staða Nato og viðbrögð Evrópu við breyttri stefnu BNA29:28 Hvernig geta Evrópuleiðtogar talað um og við Bandaríkjastjórn38:00 Þátttaka Íslands á alþjóðavettvangi - hvað gerist bakvið tjöldin?45:23 ESB-umræðan á Íslandi: Ekki bara já eða nei
-
0
NATO, ESB og alþjóðamálin með Degi B. Eggertssyni
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingar, er fyrsti gestur í Veröld sem er, hlaðvarpsþáttum um alþjóðamálin og stöðu Íslands. Dagur ræðir við Hallgrím um NATO og stöðu þess í dag, stefnu Bandaríkjanna undir Trump og áhrifin í Evrópu, Evrópusambandsmál og valkosti Íslands á víðsjárverðum tímum. Evrópustraumar er sjálfstæð hugveita um Evrópumál. Greinar, útgefið efni og skráning á póstlista má nálgast á evropustraumar.is. 00:00 Kynning01:42 NATO, NATO-þingið og heimsmálin35:50 Evrópusambandsumræðan
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Í Veröld sem er, hlaðvarpi Evrópustrauma hugveitu, er fjallað um alþjóðamál, Evrópumál og stöðu og hagsmuni Íslands á alþjóðavettvangi. Með gestum af öllu tagi, sérfræðingum, stjórnmálafólki og álitsgjöfum er rýnt í stóru málin, fréttir líðandi stundar og þau atriði sem varða mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu.
HOSTED BY
Hallgrimur Oddsson
Loading similar podcasts...