PODCAST · tv
Video rekkinn
by Ragnar Aðalsteinn og Hildur Evlalía
Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars.Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó.Fylgist endilega með á Facebook-síðu Video Rekkans:https://www.facebook.com/videorekkinn
-
100
#105 Vorið, bíll.is og Lee Cronins The Mummy (2026)
Jæja góðir hálsar! Vorið er mætt, sumarið er handan við hornið og hryllingsmyndirnar farnar að láta á sér kræla. Við fórum á eina slíka, Lee Cronin´s The Mummy . Það er óhætt að segja að ýmislegt sé um þessa mynd að segja – og það er ekki allt fallegt 👀
-
99
#104 Umpottun, jarðtenging og I Swear (2025)
Í þætti vikunnar ræðum við umpottun, jarðtengingar á Austurlandi og fólk sem er salt jarðar. En þorra þáttarins verjum við í að ræða hina frábæru I Swear, mynd sem ætti ekki að skilja neinn eftir ósnortin.
-
98
#103 Páskar, Páskar, margt fleira og Super Mario Bros Galaxy Movie(2026)
Páskaþátturinn 2026 - við ræðum páska, páska og um tvo pípara sem lenda í allskins ævintýrum.
-
97
#102 Kristinfræði, bústaðarferðir og They Will Kill You (2026)
Í þætti vikunnar förum við yfir ýmislegt. Í tilefni páskahátíðarinnar erum við með fróðleiksmola um pálmasunnudag og köfum ofan í það hvernig þeirri hátíð er lýst í Biblíunni. Við skoðum bústaðarferðir, þá sérstaklega muninn á stráka- og stelpubústöðum. En þorra þáttarins fjöllum við um gaman-, hryllings- og spennumyndina They Will Kill You, sem ætti ekki að valda þeim vonbrigðum sem hafa gaman af skemmtilegum splatter-myndum.“
-
96
#101 Keppni, landsbyggð vs höfuðborg og Project Hail Mary (2026)
Í þætti vikunnar fáum við til okkar góðan gest til að ræða samtakamátt landsbyggðarinnar. En stærsti partur þáttarins fer í umfjöllun okkar um stórmyndina Project Hail Mary, en okkur þótti myndin svo góð að okkur fannst við knúin til að fá líka gest til okkar, svo það væri sagt eitthvað af viti í þættinum. Það er enginn annar en Tómas Valgeirsson, annar þáttastjórnenda Bíófíkla.
-
95
#100 Brennum ruslið, poppstjörnur og Reminders of Him (2026)
Hundraðasti þátturinn er mættur! 🎉 Við stoppum stutt við til að fagna (því við erum hreinlega glötuð að fagna áföngum) og vindum okkur beint í málið. Ruslabrennur, poppstjörnur og allt þar á milli koma við sögu, en stóra málið í dag er hjartnæma bíómyndin Reminders of Him.
-
94
#99 Snjórinn, símaöt, stunur og THE BRIDE! (2026)
Í þætti dagsins ræðum við símaöt, snjóhatur landsmanna og hina sívinsælu Óskastund á Rás 1. Við verjum þó bróðurparti tímans í að rýna í stórmyndina The Bride!, en óhætt er að segja að hún hafi klofið kvikmyndaáhugafólk í tvær gjörólíkar fylkingar.
-
93
#98 Partístand, partískuplag, Ed Harris og How to make a killing(2026)
Í þessum þætti fjöllum við um partístand og partískipulag, ræðum dásemdir Ed Harris og förum síðan aðeins á dýptina í nýjustu mynd Glen Powell, How to Make a Killing.
-
92
#97 Konudagur, hvítasta keppni í heimi og Cold Storage(2026)
Í þætti dagsins leiðir Hildur okkur í sannleikann um löngu föstu, við fögnum dásemdum konudagsins, ræðum hvítustu keppni alheimsins og margt fleira. Að lokum förum við yfir Cold Storage, kvikmynd sem við höfðum ýmislegt við að athuga.
-
91
#96 Skynsemi eða hræðsla? og "Wuthering Heights"(2026)
Í þætti dagsins fer mikil orka í að reyna að kryfja af hverju Ragga finnst ekki gaman á skautum, við fáum uppfærslu úr þorrablótsfréttum og fræðumst um villt partí guðfræðinema. En mestu púðri verjum við í umfjöllun okkar um "Wuthering Heights" sem kom út fyrir skömmu með Margot Robbie og Jacob Elordi í aðalhlutverkum. En hér er á ferðinni ein erótísk mynd🔥 ... meira um það í þættinum.
-
90
#95 Forsetapizzur, uppfærsla af þorrablóti og Shelter (2026)
Í þætti dagsins fáum við fréttir af þorrablótum og ræðum ágæti Skímó og Hafdísar Huldar. Að lokum verjum við nokkrum mínútum í að ræða hina ekki svo skemmtilegu Shelter, nýjustu mynd Jason Statham.
-
89
#94 Óþolandi Danir, bensínstöðvar og Send help (2026).mp3
Í þætti dagsins ræðum við handboltafárið í janúar, hverfandi bensínstöðvar og komumst loks til botns í því hvernig valið er í Þorrablótsnefndir. En fyrst og síðast ræðum við hina stórskemmtilegu Send Help, nýjustu mynd Sam Raimi með þeim Rachel McAdams og Dylan O’Brien.
-
88
#93 Meira gott, meira nice, margt um Óskarinn og Marty Supreme (2025)
Í þætti vikunnar ræðum við um þorrablót, bílaauglýsingar og auðvitað Óskarinn. Að lokum fjöllum við um kvikmyndina Marty Supreme með hjartaknúsaranum Timothée Chalamet.
-
87
#92 TikTok Golden globes og 28 Years Later: The Bone Temple (2026)
Í þætti dagsins ræðum við pólitíkusa sem eru farnir að láta á sér kræla á TikTok aftur, eftir að hafa legið í dvala frá síðustu Alþingiskosningum. Við ræðum söngva og gamanmyndina One Battle After Another og vegferð hennar á Golden Globe. Ásamt því að þáttastjórnendur fara á dýptina í samanburði á Laugarásbíó og Smárabíó. En fyrst og fremst ræðum við myndina 28 Years Later: The Bone Temple. Við bregðum aðeins út af vananum og hringjum í Kjartan Bíófíkill og ræðum við hann um þessa frábæru mynd.
-
86
#91 Fimm reglur í ræktina og Greenland 2: Migration (2026)
Í þætti dagsins þótti þáttastjórnendum mikilvægt að koma nokkrum óskrifuðum reglum um ræktarferðir á framfæri. Aðaláhersla þáttarins er þó á stórslysamyndina Greenland 2: Migration. Hér er nóg af hasar, sterkum tengingum við Ísland og almennt mikið af dramatík og spennu.
-
85
#90 áramótaheit, skúrkar ársins og The Housemaid (2025)
Í þætti dagsins ræðum við aðeins nýafstaðin áramót, áramótaheit og margt annað skemmtilegt. En að lokum fjöllum við um erótíska spennumyndina The Housemaid.
-
84
#89 Topplistar, Völva, en fyrst og fremst Áramótabomba (2025)
Í þessum þætti tökum við aðeins árið fyrir, ræðum við völvu um framtíð og nútíð og spjöllum bara almennt á léttu nótunum, hvað var það besta og versta sem við sáum á árinu 2025.
-
83
#88 Þorláksmessan, aðfangadagur, Pepsi Max fjölskyldur og Avatar: Fire and Ash (2025)
Hvað getur maður sagt, jólinn nálgast, andinn kominn yfir þáttastjórnendur. En í þætti vikunnar ræðum við um Þorláksmessuhefðir, heimsóknir í kirkjugarða, ljósabúðina og hvork við séum Coke Zero fjölskylda. Að lokum fjöllum við um meistaraverkið sem var frumsýnt í síðustu viku Avatar: Fire and Ash
-
82
#87 Ókristin aðventuljós, jólalega bílaauglýsingar og Silent Night, Deadly Night(2025)
Í þætti dagsins fjöllum við meira um aðventuhátíðina, jólatónleika, gáfur stjórnenda þessa þáttar í barsvari og margt fleira. En alveg í endan tölum við um slettarann (e. Slasher) Silent Night Deadly night, sem er sennilega ein jólalegasta hrollvekja sem þáttastjórnendur hafa séð lengi!
-
81
#86 Bíóreglur, mannát og Five Nights at Freddy's 2 (2025)
Í þætti dagsins ræðum við um aðventukransa, mannát og reglur sem væri gott að gestir kvikmyndahúsa fylgdu. Að lokum tökum við fyrir myndina Five Nights at Freddy’s 2. Hér er á ferðinni kvikmynd sem hefur skipt áhorfendum í tvær fylkingar: Annars vegar þá sem þekkja heiminn og virðast mjög hrifnir, og hins vegar okkur hin…
-
80
#85 Family Stone , göngustígar, aðventan og Sisu Road to Revenge(2025)
Í þætti dagsins ræðum við aðventuna, jólamyndir, skipulag göngustíga og margt fleira. En mestan tíma verjum við í að fjalla um hina stórkostlegu finnsku hasarmynd Sisu: Road to Revenge. Allt þetta og meira til í þessum þætti Video Rekkans.
-
79
#84 Klementínur, Landinn og Wicked For good(2025)
Í þætti dagsins ræðum við um Landann, svæðisútvarp og klementínur. En fyrst og fremst ræðum við um Wicked for Good – og þar fáum við til okkar góðan gest sem álitsgjafa. Meira um það í þættinum!
-
78
#83 Aðventan nálgast, Ljóminn og Now You See Me- Now You Don't (2025)
Í þætti vikunnar hitum við upp fyrir aðventuna – hvenær er of snemmt að fara að föndra? Einnig rifjum upp gamla slagara með Ríó Tríó En mestum tíma verjum við að fara yfir hina stjörnuprýddu mynd Now You See Me: Now you dont.
-
77
#82 Skoda Auglýsingar, endurskingsmerki og Predator: Badlands (2025)
Í þætti dagsins ræðum við hvers vegna og hvort endurskinnsmerki séu töff, við förum á dýptina um okkar eigin Skoda sögu, aðalega útfrá auglýsingunni en fyrst og fremst ræðum við nýjustu Predator myndina, Predator: Badlands, en sitt sýnist hverjum um þá ágætu mynd.
-
76
#81 Asahláka, snjómokstur og dekkjaverksstæðiskallar - Bugonia (2025)
Í þætti dagsins fjöllum við meðal annars um hvunndagshetjur þessarar viku: starfsmenn dekkjaverkstæða og snjómoksturverktaka. Við ræðum hvaða hátíðum er óhætt að fresta vegna veðurs - má til dæmis fresta jólunum eins og hrekkjavöku? En að lokum fjöllum við um hina stórskrítnu, stjörnu, prýddu mynd Bugonia.
-
75
#80 Afsökunarbeiðnir, Spotify, flottar skrifstofur og Springsteen- Deliver Me from Nowhere (2025)
Í þætti dagsins ræðum við Spotify, Hrekkjavöku og voldugar skrifstofur. En mestum tíma eyðum við í Steina kallinn (e. Bruce Springsteen). Eins og heimurinn allan veit kom myndin Deliver Me from Nowhere út í síðustu viku og við segjum hlustendum okkar allt frá myndinni - ekki síst hvað okkur fannst um hana 😀
-
74
#79 Tilfinningar karla og kvenna, ljótir textar í lögum og Black Phone 2 (2025)
Í þættinum í dag förum við á milli himins og jarðar – bókstaflega! Við ræðum sunnudagsmessur, tilfinningalíf karla og kvenna, kryfjum frægt lag með ljótum texta, og að lokum förum við yfir hina stórkostlegu Black Phone 2.
-
73
#78 Allt um leiklistarstíla og Tron- Ares (2025)
Við fáum greinilega aldrei nóg af gestum 🎙️ — að þessu sinni slóst í för með okkur Unnar Geir Unnarsson, leikari, leikstjóri, menningarstjóri og margt fleira. Við ræddum við hann um ólíkar aðferðir leikara til að komast inn í hlutverk 🎭 og hvernig mismunandi nálganir geta haft áhrif á leik og túlkun. Að lokum beinum við sjónum að nýjustu Disney-myndinni Tron: Ares ⚡️ með Jared Leto í aðalhlutverki. Myndin hefur fengið heldur dræma dóma frá gagnrýnendum 🍅 — við vorum ekki jafn ne ikvæð, en ákváðum engu að síður að verja minnstum hluta þáttarins þessari umdeildu mynd. 🎬
-
72
#77 Kvef, hrekkjavökubúningar og Smashing machine
Í þætti dagsins ræðum við þrálátt kvef þáttastjórnenda 🤧, söknuðinn eftir að hafa engan gest í þetta sinn 😢, hrekkjavökubúninga 🎃 og margt fleira 💬. Að lokum beinum við sjónum að nýjustu mynd Benny Safdie, The Smashing Machine 🎥, sem vakti vægast sagt blendnar tilfinningar meðal þáttastjórnenda 😬🍿.
-
71
#76 Listdans á súlu og One battle after another (2025)
Það kom að því að við fengum gest til okkar 🎙️, og það er engin önnur en Rebecca Scott Lord – uppistandari 😂, rithöfundur 📚, listamaður 🎨 og lífskúnstner 🌟. Í þætti dagsins fórum við yfir listdans á súlu 💃 í samhengi við Magic Mike 🍿. Við ræddum einnig hvaða pissuskál 🚽 maður ætti að velja þegar margar eru í boði á karlaklósetti 🤔. Mestum tíma verjum við þó í að tala um hina stórkostlegu One Battle After Another 🎬🔥. Óhætt að segja að hér verða lýsingarorðin ekki spöruð. 😎
-
70
#75 Stuttur Tenerife special!!
Að þessu sinni brugðu þáttastjórnendur sér út fyrir landsteinana til að virða fyrir sér Breta utan náttúrulegra heimkynna. Stutt og laggott allir ferskir!
-
69
#74 Dómsdagur, tölvunarfræðingar og Eldarnir (2025)
Í þætti dagsins ræðum við almennt um dómsdagsundirbúning 🔦🥫 og hvernig ímynd tölvunarfræðingsins hefur þróast – frá tveggja lítra kóki 🥤 yfir í utanvegahlaup 🏃♂️⛰️. Aðalfókusinn er þó á Eldarnir 🔥🎬, glænýja íslenska hamfaramynd eftir Uglu Hauksdóttur 🎥🇮🇸, sem við mælum eindregið með og enginn ætti að láta fram hjá sér fara 🌟👏.
-
68
#73 Lagtertur og þynnka - The Conjuring- Last Rites (2025)
Í dag ræðum við 💃 dansmenningu, 🍰 lagtertuna, 🎄 hvenær sé viðeigandi að hefja jólaundirbúning og 🤕 þynnkustúss annars þáttastjórnandans. Stærstan hluta þáttarins verjum við þó í The Conjuring: Last Rites (2025) 👻 – framhald sem enginn okkar hafði séð fyrri myndirnar úr, en það virtist ekki koma að sök… að minnsta kosti að okkar mati 😅.
-
67
#72 Sunnudagsmessur, sunnudagssteikur, gular baunir og Caught Stealing (2025)
Í þessum þætti tökum við púlsinn á vinnustaðamenningunni á Íslandi 💼🇮🇸 þegar haustið skellur á 🍂 og allt verður á fleygiferð, mætti kalla það hausttrylling ⚡️. Við ræðum heilagan anda í messum ⛪️✨ og spyrjum álitlegra spurninga 🤔 t.d. er þjóðkirkjan cult? 🕵️♂️ Að lokum förum við yfir nýjustu kvikmynd Darren Aronofsky 🎬, Caught Stealing, með Austin Butler 💘 og Zoë Kravitz 🌟 í aðalhlutverkum.
-
66
#71 Menningarnótt, þögul rifrildi og Together (2025)
Í nýjasta þætti Video Rekkans 🎬 förum við yfir Menningarnótt 🎆, fögnum endurkomu rútínunnar 📅 og kveðjum sumarið ☀️. Við hjónin 💑 leyfum ykkur líka að kíkja aðeins bakvið tjöldin 🎭 í hjónalífinu – þá einna helst hvernig þöglar rökræður 🤐🗣️ fara fram. Að þessu sinni tókst okkur meira að segja að verða ósammála 🤔⚡ um kvikmyndina Together (2025) 🎥 – sem er ekki á hverjum degi. Allt þetta og meira til í nýjum þætti! 🎧✨
-
65
#70 2pac eða Rza og Nobody 2 (2025)
Í þætti vikunnar 🙏 tölum við um einhvers konar kristilegan markþjálfa, ræðum hvernig RZA 🥃 eldist eins og gott koníak — og minnumst á hversu ótrúlega fallegur Austin Butler 😍 er. Að lokum förum við yfir hina bráðskemmtilegu Nobody 2 🎬.
-
64
#69 Hinsegin dagar, stjörnulífið og Weapons (2025)
Í þætti dagsins 🌈 kíkjum við aðeins á Hinsegin daga og ræðum erótískt stjörnulíf ✨💫. Aðalumfjöllun dagsins 🎬 er þó hin stórkostlega Weapons 🔪 – mynd sem er í senn taugatrekkjandi 😱, skemmtileg 😄, dularfull 🕵️♂️ og svo ótrúlega margt fleira 🎭.
-
63
#68 Þjóðhátíð, aðrar hátíðir, stunur í salnum og Naked Gun (2025)
Í þætti dagsins 🎙️ ræðum við Þjóðhátíð 🎉 og kíkjum létt yfir aðrar sumarhátíðir ☀️🍻. Við fjöllum líka um skemmtilegar stunur í ræktinni 🏋️♂️😅 og snjalla pikkup-aðferð á sama stað 💪😉. Mestu púðri verjum við þó í hina frábæru Naked Gun 🔫😂 þar sem nýjasta ofurpar Hollywood, Liam Neeson og Pamela Anderson, leiða saman hesta sína 🎬🌟.
-
62
#67 Jesús er frá Nasaret en Clark Kent er frá Smallville - Superman (2025)
🎙️ Í þætti dagsins förum við á flug 🛫 — tölum um hámarkspumpumagn rakspíra 💪, týpurnar í ræktinni 🏋️♂️, verðbólguna í hádegismatnum 💸 og gefum hlustendum smá lifehack til að panta mat fyrir tvo 🍔🍟 á 5000kall heim! 👉 En mestu tímanum eyðum við í nýjustu Superman-myndina 🦸♂️ þar sem við veltum því fyrir okkur hvort hér sé í raun verið að endursegja söguna af honum Jesú frá Nasaret ✝️. Eins og dyggir hlustendur vita er Video Rekkinn auðvitað kristilegt hlaðvarp… og á því er engin breyting þennan daginn 🙈.
-
61
#66 Löng umræða um engi, fólk sem vill ekki hafa gaman og Jurassic World Rebirth (2025)
Í þætti dagsins 📻 förum við yfir hvað sé eiginlega í gangi með grasbala Reykjavíkur 🌾 – og svo ræðum við leiðinlegt fólk 😒… eða réttara sagt, hversu ótrúlega mikið það virðist leggja sig fram við að vera leiðinlegt. Þá snúum við okkur að Hjarta Hafnarfjarðar ❤️ og að lokum köfum við ofan í nýjustu myndina í júragarðsseríunni 🦖🎬 – og já, það er ýmislegt sem má segja um hana…
-
60
#65 Góð húð, réttlátt ofbeldi, doomsdaypreppun og F1- The Movie (2025)
Í þætti dagsins ræðum við ótrúlega húð Brad Pitt ( er hún góð eða ekki?) ✨, mögulega bresti Brad Pitt og alls kyns annað Brad Pitt-tengt 🎥. Við fjöllum frjálslega um dyraöt og hversu langt má ganga í að hræða börn sem stunda þá iðju 🤨. Við tökum líka púlsinn á leiðinlegu fólki í lystigörðum 🎢🙃, seinagang verktaka og margt fleira. En stærsti hluti þáttarins fer í bíómyndina F1 🏎️💥, sem lætur okkur ekki gleyma að hún er einmitt… bíómynd 🎬 ( The Movie). Allt þetta og meira til í pakkaðri útgáfu af Video Rekkanum! 📦🎙️
-
59
#64 Fegurð fótboltafólks, kolefnisspor og 28 years later (2025)
Í þætti vikunnar ræðum við kolefnissporið við að vera til 🌍, einkaflugvélar ✈️, fegurð fótboltafólks ⚽😍, kött með Hitlerskegg og hvort það sé í lagi að hlutgera fólk í opinberum störfum 🏛️🤔. Stærstur hluti þáttarins fer þó í að ræða hina umdeildu 😮, áhrifaríku 🎥 og ótrúlega fallegu ✨ 28 Years Later.
-
58
#63 Misgóðar hugmyndir af bókum, nýjar græjur og lífið bara gott - How to Train Your Dragon (2025)
Í þætti vikunnar 📻 ræðum við bókmenntahugmyndirnar sem Raggi er að þróa 📚 og kíkjum á nýja upptökubúnaðinn okkar 🎙️. Við förum líka vel yfir teiknimyndastikklur 🎞️ og höfum ýmislegt um þær að segja 💭. Að lokum segjum við frá bíóferðinni okkar í Laugarásbíó 🍿 á How to Train Your Dragon 🐉 og spjöllum um hvað okkur fannst um myndina og upplifunina í heild 🎬.
-
57
#62 Hvítasunnan, hjónaerjur, GTI bílar og fillerí í bíó - Ballerina (2025)
Í stútfullum þætti vikunnar tökum við púlsinn á kristilegum gildum ✝️, veltum fyrir okkur merkingu Hvítasunnu 🕊️ og rifjum upp hvað nákvæmlega gerðist þá, eða að minnsta kosti gerum heiðarlega tilraun til þess. Við skoðum líka munin á stemningunni í laugardagsbíó vs fimmtudagsbíó 🎬 og minnumst bílamenningar unglingsáranna og alls konar karakterum úr æsku tengdum bílamenningu 🚗😅. En stærstur hluti þáttarins fer í að fjalla um Ballerina, nýjustu spennumyndina í John Wick heiminum 🔫🩰 – fimmta myndin í röðinni. Popp, kók og podcast 🍿🥤🎧 – það er okkar mantra. Allt þetta og meira til í nýjasta þætti Video Rekkans! 📼🔥
-
56
#61 Sjómannadagur, VÆB, börn á háhest og The Phoenician Scheme (2025)
Í þætti vikunnar 🎧 ræðum við nýliðinn sjómannadag ⚓, yfirspennta VÆB-bræður 🎤, börn á háhesti 🐎, harða heiminn sem fylgir því að eiga börn í maímánuði 👶🌷 og margt fleira 🤯. Öllu þessu blöndum við saman við umfjöllun okkar um nýjustu mynd Wes Anderson, The Phoenician Scheme 🎬.
-
55
#60 Vísindakirkjan, Grímutilnefningar og sólin – Mission: Impossible: Final Reckoning (2025)
Í dag tökum við sólina ☀️ fyrir enn og aftur — sérstaklega hvernig hún hefur áhrif á fólk og íþróttalíf ⚽️. Við ræðum drykkjuvenjur Íslendinga 🍻, hvort sem það er á menningarviðburðum 🎭 eða íþróttaleikjum 🏟️. Þá köfum við djúpt í Vísindakirkjuna 🛸 (það er eiginlega óhjákvæmilegt), og endum á nýjustu Mission: Impossible myndinni 🎬 Final Reckoning 💥.
-
54
#59 Eurovision, sólin og Final Destination: Bloodlines (2025)
Í þætti dagsins kemst lítið annað að ☀️ en góða veðrið, Eurovision-pólitík 🇪🇺, klassískt menntaðir söngvarar 🎤 og dauðsföll 💀 — þar á meðal þau í Final Destination: Bloodlines 🔪.
-
53
#58 - Veðrið sveik, en bjargaði Kerry deginum? - Shadow Force (2025)
Í þætti vikunnar fórum við yfir vorið 🌼, hvað það gefur, ofbeldissambandið sem við eigum við íslenskt veðurfar 🌧️ og margt fleira. Þessu öllu blöndum við saman við umfjöllun okkar um hasarmyndina Shadow Force 💥 með drottningunni Kerry Washington 👑 og franska hjartaknúsaranum Omar Sy 💘.
-
52
#57 Kvíði, hnjúkurinn, Endurskoðandinn og Thunderbolts* (2025)
Í þætti dagsins förum við yfir veikindi 🤒, Bæjaraland 🏘️, prófkvíða 📚😬, kvíða almennt 😵💫 og fjallgöngur sem mögulega valda enn meiri kvíða 🏔️😰. Við minnumst örlítið á The Accountant 2 💼🔫, en eyðum mestu púðri í Thunderbolts ⚡— nýjustu Marvel-myndina sem við vitum lítið um 🤷♂️, en höfum sterkar skoðanir á engu að síður 🎬🔥.
-
51
#56 -Sjálfsafgreiðsla og sænsk sambönd - Sinners (2025)
Í þætti vikunnar ræðum við sænsku leiðina í samböndum 🇸🇪💑, sumargjafir 🎁 og sólarkaffipönnukökur 🥞, sjálfsafgreiðslukassa 🤖 og eitt pirrandi vandamál sem flestir þekkja – að velja bíómynd með fjölskyldunni 🎬👨👩👧👦. Að lokum vefjum við þessu öllu saman í umfjöllun okkar um hina hasarmiklu 💥, blóðugu 🩸 og erótísku 💃 Sinners (2025).
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars.Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó.Fylgist endilega með á Facebook-síðu Video Rekkans:https://www.facebook.com/videorekkinn
HOSTED BY
Ragnar Aðalsteinn og Hildur Evlalía
CATEGORIES
Loading similar podcasts...