EPISODE · Feb 28, 2026 · 30 MIN
Sirkabát #13: Hvernig notum við gögn í afbrotafræði?
from Gímaldið · host Gímaldið
Hvernig eru afbrot í samfélaginu mæld og metin? Fjölbreyttum upplýsingum er safnað um afbrot sem gefa vísbendingar um fjölda og þróun þeirra í samfélaginu. Haldið er utan um fjölda handtaka, ákærðra og fjölda sem sitja í gæsluvarðhaldi eða afplána dóm í fangelsi. Þrátt fyrir það ná gögn sem til eru ekki yfir nema brot af þeim afbrotum sem framin eru hverju sinni, flest afbrot eru hvergi tilkynnt og rata því ekki í opinber gögn. Þetta kemur fram í nýjasta þætti Sirkabát þar sem rætt er við Margréti Valdimarsdóttur, dósent í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands, um túlkun gagna um afbrot. Þannig séu ýmis atriði sem hafa þurfi í huga þegar litið er á tölur úr opinberum gögnum yfir lengri tíma.
NOW PLAYING
Sirkabát #13: Hvernig notum við gögn í afbrotafræði?
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.