Besta sætið

PODCAST · sports

Besta sætið

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

  1. 100

    12. maí - Ætla að kveikja í tréslaufu Rúnars

    Rúnar Ingi Erlingsson á ekki von á góðu í ferðalagi dagsins á Krókinn enda stendur til að kveikja í einni af hans frægu tréslaufum. Einnig er rennt yfir handbolta kvöldsins en Valur getur orðið Íslandsmeistari. Njarðvík er í toppstöðu í úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna og Tottenham er enn í kröppum dansi í enska boltanum.

  2. 99

    11. maí - Hvar er eiginlega samræmið?

    VAR-dómurinn í leik West Ham og Arsenal er á vörum allra í dag. Það verður líklega eitthvað rifist um hann næstu vikurnar. Bakgarðshlaupið ótrúlega fór fram um helgina. Það var ýmislegt áhugavert á ársþingi HSÍ og Baldur Þór Ragnarsson hætti með Stjörnuna í miðjum þætti. BOMBA! Annar leikurinn í úrslitum Bónus kvenna fer fram í kvöld og þá er einnig spilað í Bestu deild kvenna. Svo er mikið undir hjá Tottenham í enska boltanum.

  3. 98

    8. maí - Ætla að fagna þar til ég dey

    Valsmenn tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í gær og þeir voru enn að fagna er íþróttadeild Sýnar heimsótti þá í dag. Úrslitin í Bónus kvenna hefjast í kvöld og þá fara líka fram fimm leikir í Bestu deild karla. Við hitum vel upp fyrir þá alla.

  4. 97

    7. maí - Galin hegðun sjálfboðaliða

    Tveir oddaleikir í körfu karla og Tindastóll og Grindavík komust í úrslit. PSG mun spila í úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Arsenal eftir hörkuleik gegn Bayern. Mikið líf í Bestu deild kvenna þar sem sjálfboðaliði á Akureyri stal senunni með galinni hegðun. Svo er barist til þrautar um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í kvöld.

  5. 96

    6. maí - Hvar er Hlynur Bærings?

    Besti íþróttadagur ársins er runninn upp. Tveir oddaleikir í Bónus deild karla og seinni undanúrslitaleikur Bayern og PSG í Meistaradeildinni. Ótrúleg veisla. Einnig rætt um leiki kvöldsins í Bestu deild kvenna og vanvirðingu við úrslitaeinvígi Olís deildar kvenna.

  6. 95

    5. maí - Grindvíkingar valda vonbrigðum og Stjarnan líklega án Seth LeDay

    Besta íþróttavika ársins er í fullum gangi. Það verða fjórir oddaleikir í íslenskum íþróttum næstu þrjá dagana og undanúrslit í Meistaradeildinni klárast einnig á morgun. Man. City er svo að kasta frá sér Englandsmeistaratitlinum.

  7. 94

    4. maí - Hvað gera stuðningsmenn Vals?

    Stuðningsmenn Vals standa frammi fyrir erfiðri ákvörðun í kvöld. KR-ingar óstöðvandi í Bestu karla en brekka hjá Stjörnunni. Oddaleikur í Skagafirði í körfunni og svo er Man. Utd aftur komið í Meistaradeildina.

  8. 93

    30. apríl - Vítaspyrnuvæl og stórleikir um helgina

    Arsenal taldi sig vera grátt leikið gegn Atletico í gær. Stólarnir eru á lífi í Bónus deild karla og svo er Grindavík að taka á móti Val í kvöld. Valsarar eru líka á ferðinni í handboltanum þar sem leikur þrjú í úrslitunum gegn FH fer fram. Úrslitakeppni Bónus kvenna er æsispennandi og svo er spáð í spilin fyrir stórleikina í Bestu deild karla.

  9. 92

    29. apríl - Skjálfti í Síkinu

    Stjarnan er 2-0 yfir í einvígi sínu gegn Stólunum í undanúrslitum Bónus-deildar karla og getur sópað Stólunum í frí í Síkinu. Það er því titringur á Króknum. Einn besti fótboltaleikur sögunnar fór fram í Meistaradeildinni í gær en enginn sér fyrir sér sömu flugeldasýningu í kvöld. Önnur umferð Bestu deildar kvenna hefst svo í kvöld með tveimur leikjum.

  10. 91

    28. apríl - Rauð flögg hjá Stjörnunni

    Ótrúleg umferð í Bestu deild karla þar sem mörkunum bókstaflega rigndi. Snorri Steinn valdi áhugaverðan landsliðshóp þar sem margir leikmenn fá tækifæri til að láta ljós sitt skína. FH búið að jafna gegn Val í úrslitum Olís-deildar karla og svo hefjast undanúrslit Meistaradeildarinnar í kvöld með risaleik.

  11. 90

    27. apríl - Blikar spila leiðinlegasta bolta deildarinnar

    Fimm leikir í Bestu deild karla í kvöld og flestir leikir afar áhugaverðir. Allt brjálað í undanúrslitum Bónus-deildar karla og FH þarf að vinna gegn Valsmönnum í úrslitum Olís-deildar karla.

  12. 89

    24.apríl - Elías Már opnaði sokkaskúffuna

    Það var nóg að ræða í Besta sætinu í dag enda nóg um að vera í heimi íþróttanna. KR-ingar eru á flugi í Bestu deildinni og Elías Már Ómarsson, sóknarmaður Víkings raðar inn mörkum þvert á spár margra. Úrslitakeppnir í körfubolta og handbolta bera svo hæst en Besta deild kvenna hefst í kvöld og á sviðið.

  13. 88

    Robbie Fowler ræðir stöðuna á Liverpool, Alexander Isak og framtíð Slot

    Liverpool-goðsögnin Robbie Fowler ræddi við Sýn Sport um stöðuna á félaginu, erfiða titilvörn, vandræði framherja liðsins og framtíð Arne Slot.

  14. 87

    22. apríl - Var Samúel Kári keyptur fyrir árshátíðarpeninga?

    Stórkostleg byrjun á undanúrslitum Bónus-deildar karla og partíið heldur áfram í Grindavík í kvöld. Samúel Kári er óvænt kominn í Val og spurning hvernig Valsmenn fjármögnuðu það? Besta karla fer aftur á fullt í kvöld og því miður er leikið inni á Akranesi en grasið bíður í Keflavík. Svo getur Man. City komist á topp ensku úrvalsdeildarinnar.

  15. 86

    21. apríl - Pressa á Stólunum og Hlynur Bærings með óvænta innkomu

    Undanúrslitin í Bónus-deild karla hefjast í kvöld með fyrsta leik liðanna sem spiluðu til úrslita á síðustu leiktíð. Það er mikil pressa á Stólunum í einvíginu. Undanúrslitin í Bónus-deild kvenna eru komin vel af stað þar sem Haukar og Grindavík leiða. Svo ræðum við um ástand Laugardalsvallar og fréttina sem gerði Eyjamenn brjálaða.

  16. 85

    20. apríl - Flagaraklútur Sápa stal senunni

    Tískuyfirlýsing Stefáns Árna Pálssonar vakti mikla athygli í oddaleik Vals og Keflavíkur sem Valsmenn unnu með stæl. Grindavík er komið í blað í undanúrslitum kvenna og Glódís Perla sló leikjametið er Ísland spilaði við England í Laugardal. Svo var stórleikur ársins í enska boltanum í gær.

  17. 84

    17. apríl - Upp með hausinn Arsenal-menn!

    Besta sætið heilsaði á Bestu deildar föstudegi. Þá er stórleikur fram undan hjá kvennalandsliðinu og risahelgi í enska boltanum. Valur Páll Eiríksson, Ágúst Orri Arnarson og Sindri Sverrisson fóru yfir málin í Besta sætinu á dýrindis föstudegi þar sem heil umferð í Bestu deild karla fer fram. Bjór verður á 800 krónur í KR-heimilinu, Þórsarar ætla á Rauða ljónið og sérlega margir eru að mæta fyrrum félögum sínum, þar á meðal Gísli Eyjólfsson, Atli Sigurjónsson, Danijel Djuric og Adolf Daði Birgisson. Arsenal og Manchester City mætast í stórleik helgarinnar á Englandi þar sem margir segja enska meistaratitilinn undir. Það liggur við að stórleikir Chelsea við Manchester United og Everton við Liverpool blikni í samanburði. Þá er risa verkefni sem blasir við stelpunum okkar. Glódís Perla Viggósdóttir verður leikjahæst í sögunni þegar Ísland mætir Englandi á Laugardalsvelli á morgun.

  18. 83

    Ægir Þór Steinarsson: Óttaðist að ferlinum væri lokið

    Ægir Þór Steinarsson, lykilmaður í liði Stjörnunnar og landsliðsfyrirliði í körfubolta óttaðist að sínum ferli væri lokið eftir að hann meiddist í leik gegn KR í úrslitakeppninni. Úr myrkrinu hefur hann nú risið og ætlar sér að koma sterkari til baka.

  19. 82

    16. apríl - KSÍ mætti prófa að lækka miðaverðið

    Rándýrir miðar á leiki kvennalandsliðsins gætu verið ein ástæða lélegrar mætingar. Af hverju ekki að prófa að lækka verðið? Arsenal og Bayern áfram í Meistaradeildinni og spænsku liðin grenja út í eitt í fríinu. Oddaleikur í Vesturbænum í kvöld og annar á sunnudag vegna árshátíðar.

  20. 81

    15. apríl - KSÍ og Steini mega líka líta í eigin barm

    Uppgjör á leik Íslands og Úkraínu. Hörmungarmæting og hvað má gera betur? Ekki síst hvað getur KSÍ gert betur. Ótrúleg dramatík í Bónus-deildinni en ömurlegt að sjá meiðsli Ægis Þórs Steinarssonar. Liverpool og Barcelona kvöddu Barcelona og það er pressa á Arsenal í kvöld. Hafnarfjarðarliðin eru síðan að bjarga úrslitakeppni Olís-deildar karla.

  21. 80

    14. apríl - Frábært skref hjá HSÍ

    Snorri Steinn og Arnór Atla þjálfa landslið karla í handbolta til 2032. FH og Haukar að bjarga úrslitakeppni Olís-deildar karla, KR og Grindavík geta fallið úr leik í Bónus-deild karla og stelpurnar okkar spila á Laugardalsvelli. Liverpool á líka krefjandi verkefni í Meistaradeildinni.

  22. 79

    13. apríl - Í guðanna bænum fagnið mörkunum ykkar

    Helgaruppgjör. Sú Besta byrjaði með stæl, Rroy vann Masters, stelpurnar okkar í handboltanum eru komnar á stórmót enn á ný og svo spáð í spilin í Bónus kvenna og Olís karla í kvöld.

  23. 78

    10. apríl - Besta helgi ársins

    Besta helgi ársins hingað til hefst á risaleik Víkings og Breiðabliks, dúndureinvígum í Bónus-deild karla, Hafnarfjarðarslag í handboltanum og Masters. Enska úrvalsdeildin rúllar aftur af stað og stelpurnar okkar geta tryggt sig inn á EM í handbolta.

  24. 77

    9. apríl - Van Dijk er svo leiðinlegur fyrirliði

    Liverpool með hauskúpuleik, stelpurnar okkar magalentu í Færeyjum, sópurinn á lofti í Bónus kvenna og Heimir Guðjóns mætir FH í bikarnum.

  25. 76

    8. apríl - Tuðað yfir tuðverðlaunum

    Það er hitað upp fyrir Bestu karla en spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna var birt í dag. Sitt sýnist hverjum um spána. Mikið líf í úrslitakeppninni í körfu, Meistaradeildin á fullu og Masters er að fara í gang.

  26. 75

    7. apríl - Allt í blóma í Vesturbænum en vandræði á Hlíðarenda

    Allt á suðupunkti í Bónus-deild karla á meðan Valsmenn flengdu KA í handboltanum. KR-ingar líta vel út í fótboltanum og risaleikir í Meistaradeildinni í kvöld.

  27. 74

    Rúnar gerir upp 20 ára feril

    Rúnar Kárason tilkynnti í vikunni að leikmannaferli hans í handbolta sé lokið 38 ára að aldri. Hann verður þó áfram í handboltanum enda starfsmaður og þjálfari hjá Fram. Rúnar á langan og farsælan feril að baki þar sem hann lék um margra ára skeið með mörgum af bestu liðum Þýskalands, var öflugur í Danmörku og vann svo Íslandsmeistaratitla með bæði ÍBV og Fram hér heima auk þess að spila 100 landsleiki fyrir Ísland. Valur Páll Eiríksson leit við á skrifstofu hans í Úlfarsárdalnum og ræddi við hann ákvörðunina um að hætta auk þess sem ferillinn var gerður upp á hundavaði.

  28. 73

    1. apríl - Hvað er Hörður Axel og Keflavík að hugsa?

    Tene-ferð Harðar Axels Vilhjálmssonar, þjálfara kvennaliðs Keflavíkur, er til umræðu í þætti dagsins og einnig er spáð í spilin fyrir úrslitakeppni Bónus-deildar karla sem hefst í kvöld. Ætlar HSÍ að láta Dani stela Arnóri Atlasyni af okkur og vonbrigði hjá fótboltalandsliðinu.

  29. 72

    31. mars - Skandall ef við vinnum ekki Haítí

    Úrslitakeppni Bónus-deildar kvenna og Olís-deildar karla. Er Stjarnan að falla í handboltanum og kemur KV upp í körfunni? Bras á Tiger Woods og vangaveltur um landsleik Íslands og Haítí.

  30. 71

    30. mars - Síðasti dansinn hjá Valsmönnum?

    Úrslitakeppnin í Bónus-deild kvenna hefst í kvöld og strákarnir byrja á miðvikudaginn. Mikið líf í úrslitakeppni Olís-deildar karla og Ísland spilar við Haíti á morgun.

  31. 70

    Sævar Atli Magnússon: Hræðist ekki fram­haldið en er stressaður| „Mesta höggið kom núna“

    Sævar Atli Magnús­son, hefur ítrekað verið sleginn niður í jörðina eftir að hafa meiðst í leik með ís­lenska lands­liðinu í fót­bolta. Fjórum skurðað­gerðum síðar vonast hann til að nú birti til eftir að hafa upp­lifað hræðslu varðandi fram­haldið.

  32. 69

    Besta sætið - 27. mars

    Aðstoðarþjálfari sem er ekki þjálfari hjá kvennalandsliðinu, eftirlitsmaður á handboltaleik hrakti stuðningsmenn um stúkuna, lokahóf KKÍ og spáð í spilin fyrir úrslitakeppnina í Bónus-deild karla.

  33. 68

    Besta sætið - 26. mars

    Janus Daði til Barcelona, kvennalandsliðið fékk flottan fund og risakvöld í körfuboltanum og handboltanum hér heima.

  34. 67

    Besta sætið 25. mars: Enn eitt miðasölufíaskó fyrir stórmót hjá Íslandi

    Loksins loksins er komið líf íþróttalífið eftir fremur lítt fréttnæma daga í upphafi vikunnar. Besta sætið færir ykkur stórar og miður skemmtilegar fréttir fyrir stuðningsmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta sem munu flestir lenda í vandræðum með að verða sér út um miða á Heimsmeistaramót næsta árs í Þýskalandi.

  35. 66

    Besta sætið - 24. mars

    Leikmaður gagnrýnir HSÍ fyrir mismunun í umfjöllun, áhugaverður bikardráttur í Mjólkurbikarnum og of mikill snjór á Akureyri.

  36. 65

    Besta sætið 23.mars: Óvinur Heimis enn á kreiki

    Það var nóg um að ræða í Besta sætinu á mánudegi eftir viðburðaríka helgi í sportinu. Úrslit Lengjubikars karla, Heimir Hallgríms og óvinur hans, sænska eplið sem olli okkur vandræðum og svo margar sögulínur eftir úrslit helgarinnar í enska boltanum, deild og deildarbikar. Aron Guðmundsson, Ingvi Þór Sæmundsson og Ágúst Orri Arnarson með ykkur í dag. 

  37. 64

    Besta sætið 20. mars: Þarf að reka Óla?

    Besta sætið fór vel yfir þjálfaramál hjá KSÍ, landsleik gærkvöldsins, spennuna í Bónus deildinni og komandi helgi. Valur Páll Eiríksson, Ágúst Orri Arnarson og Ingvi Þór Sæmundsson fóru yfir málin í þætti dagsins. Kvennakvóti knattspyrnuþjálfara var til umræðu og því velt upp hvort KSÍ þyrfti að reka annan landsliðsþjálfaranna til að koma konu að. Þá var farið yfir landsleik Íslands við Svíþjóð, leiki gærkvöldsins í Bónus deild karla og spennuna þar. Þá er nóg um að vera um helgina. Fylkir og KR mætast í úrslitaleik Lengjubikarsins, Arsenal og Manchester City í úrslitaleik enska deildabikarsins og spennandi leikir í ensku úrvalsdeildinni.

  38. 63

    Besta sætið - 19. mars

    Landsleikur gegn Svíum í kvöld, spenna í Bónus-deild karla og fjöldi Íslendinga á ferðinni í Evrópukeppnum í fótbolta.

  39. 62

    Besta sætið - 18. mars

    Orri Steinn Óskarsson er mættur aftur í landsliðið en mun fyrirliðinn spila leikina gegn Kanada og Haítí? Gylfi Þór Sigurðsson mun allavega gef sig allan í verkefnið. Albert Guðmundsson verður hins vegar í sprautumeðferð á Ítalíu. Ísland á þrjá fulltrúa í marsfárinu mikla en kemur í ljós að Almar Atlason býr alls ekkert í Miami, borginni í Flórída. Hann býr í Miami, Ohio. Þetta reyndist þáttastjórnandanum mikið áfall. Meistaradeildin býður svo upp á tvo mjög spennandi leiki í kvöld og tvo minna spennandi. Áhugavert verður samt að sjá hvort Harry Kane klæði sig í markmannshanskana og hvort Igor Tudor sæki einhvern úr unglingaliðinu til að setja í markið hjá Tottenham. Þetta og margt fleira var til umræðu í Besta sætinu. Ágúst Orri Arnarson, Stefán Árni Pálsson og Valur Páll Eiríksson sáu um þátt dagsins.

  40. 61

    Danijel Djuric: Hjartað eða peningar, eldur í augunum og bíómyndin Besta deildin

    Danijel Dejan Djuric hefur verið á meðal umtalaðri fótboltamanna landsins undanfarin ár. Hann vakti mikla athygli í framlínu Víkinga og vann með liðinu bæði Íslands- og bikarmeistaratitil áður en hann hélt utan í atvinnumennsku til Króatíu fyrir ári síðan. Þrátt fyrir að hafa liðið vel í 25 gráðunum með sundlaug í garðinum vantaði eitthvað, þá sérlega spilatíma, og er Danijel nú snúinn heim. Orðið á götunni er að KA hafi greitt hátt í 18 milljónir króna fyrir kappann sem myndi gera hann að einum dýrasta leikmanni í sögu efstu deildar. Hann hafi þá valið KA fram yfir uppeldisfélagið Breiðablik vegna þess að Norðanmenn hafi boðið svo háan samning að ekki annað hafi verið í stöðunni. Valur Páll Eiríksson ræddi skiptin við Danijel, ástæðuna fyrir þeim og valið á KA við Danijel sem fór vel yfir sviðið.

  41. 60

    Besta sætið - 17. mars

    Eiga stelpurnar okkar séns á stórri endurkomu gegn Portúgal? Af hverju í ósköpunum er körfuboltinn að taka sér handboltann til fyrirmyndar og fara í milliriðlakeppni? Grindavík er orðinn deildarmeistari og það gæti reynst risastórt fyrir Ármann. Á sama tíma sést enginn möguleiki á því að Valur verði Íslandsmeistari en KR gæti gert atlögu að titlinum. Svo má búast við allavega einni góðri endurkomu í Meistaradeildinni í kvöld, spurningin er bara hvaðan hún kemur? Sporting á kannski mesta sénsinn, Chelsea á allavega ekki séns. Ágúst Orri Arnarson, Stefán Árni Pálsson og Valur Páll Eiríksson sáu um þátt dagsins.

  42. 59

    Besta sætið - 16.mars

    Enski boltinn, KR pakkaði Stjörnunni saman og handboltalandsliðið spilar loks á heimavelli.

  43. 58

    Hætt 25 ára eftir þriggja ára meiðsli sem trufla enn daglegt líf

    Sólveig Jóhannesdóttir Larsen tilkynnti á samfélagsmiðlum í vikunni að fótboltaferli hennar væri lokið þrátt fyrir aðeins 25 ára aldur. Ferlinum lauk þó í raun fyrir rúmum þremur árum síðan en hún hefur ekki getað spilað eftir að hafa orðið fyrir mjaðmarmeiðslum í Svíþjóð. Hún var þá nýkomin út í atvinnumennsku eftir að hafa unnið bæði Íslands- og bikarmeistaratitilinn með Val 2022. Atvinnumannadraumurinn varð því að martröð með meðfylgjandi andlegum þyngslum og ,eiðsli sem áttu þá að vara í örfáar vikur halda henni enn utan vallar og hafa raunar áhrif á daglegt líf hennar. Sólveig hefur ekki getað hlaupið síðan og glímir við verki dagsdaglega. Að ljúka ferlinum fylgir sorg en einnig léttir þar sem hún horfir nú til framtíðar án þess að hafa bolta við tærnar. Hún fær bacherlorsgráðu í stjórnmálafræði í vor, stefnir í mastersnám erlendis í kjölfarið og fann sér nýtt lið þar sem hún er á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Valur Páll Eiríksson settist niður með Sólveigu og ræddi undanfarin þrjú ár, þroskann sem þeim fylgdi og það sem fram undan er.

  44. 57

    Besta sætið - 13.mars

    Það var nóg um að ræða í Besta sætinu í dag. KA-menn opnuðu veskið til þess að fá Danijel Dejan Djuric til sín úr atvinnumennsku, Bónus deildin bauð upp á dramatík og deildarmeistarar gætu verið krýndir í kvöld. Þá er áhugaverð helgi framundan í enska boltanum.

  45. 56

    Besta sætið - 12. mars

    Brjálæði í Meistaradeildinni og hitað upp fyrir lokaumferðina í Olís-deild karla og einnig fyrir stóra umferð í Bónus-deild karla.

  46. 55

    Besta sætið - 11. mars

    Farið yfir sirkusinn hjá Tottenham og sömuleiðis í Boganum þar sem enginn virðist þora að spila með sitt besta lið. Einnig er spáð í spilin fyrir risakvöld í Meistaradeildinni.

  47. 54

    Besta sætið - 10. mars

    Farið yfir málefni handboltalandsliðsins og stöðu landsliðsþjálfarans, Snorra Steins Guðjónssonar, sem er ekki búinn að endursemja við HSÍ. Einnig er rýnt í spilin fyrir 16-liða úrslitin í Meistaradeild Evrópu sem hefjast í kvöld.

  48. 53

    Uppgjör eftir Ísland - Króatía: Búnt á skenkinn og samning á Snorra

    Einar Jónsson og Rúnar Kárason mættu og gerðu upp tapið gegn Króatíu í leiknum um bronsið á EM í dag. Liðið hafnaði í 4.sæti mótsins en framtíðin lítur vel út fyrir liðið.

  49. 52

    Uppgjör: Ísland – Danmörk | Djöfullinn danskur við náum ykkur næst

    Einar Jónsson og Rúnar Kárason gera upp undanúrslitaleik Íslands og Danmerkur á EM í handbolta með Aroni Guðmundssyni. Þriggja marka tap raunin 31-28 og draumur um gull úr sögunni en hetjuleg barátta stendur upp úr. Við tökum Danina næst, first nælum við í bronsið á sunnudaginn.

  50. 51

    Uppgjör eftir Ísland - Slóvenía: Undanúrslitin klár, enda eigum við einn besta handboltamann heims

    Jóhann Gunnar Einarsson, Einar Jónsson og Stefán Árni Pálsson gerðu upp stórsigur Íslands og Slóvenum sem gerði það að verkum að Ísland er komið í undanúrslit á EM í fyrsta sinn í 16 ár. Magnaðar árangur. 

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

HOSTED BY

bestasaetid

CATEGORIES

URL copied to clipboard!