Blautar blaðsíður

PODCAST · arts

Blautar blaðsíður

Blautar blaðsíður er stafrænn bókaklúbbur þar sem við köfum niður í mismunandi romantasy bækur í hverjum þætti. Við eru tvær vinkonur, óumbeðnar og algerlega óheflaðar og við lofum hlátri, bleytu og algjörri vitleysu. Hlaðvarpið inniheldur blótsyrði, vín, lýsingar á kynferðislegum senum, álfa, dreka og allt þar á milli.

  1. 14

    Morning Glory Milking Farm

    14.þáttur Blautra Blaðsíðna er stuttur og laggóður en þó alls ekki af verri endanum. Við tökum smá U-beygju og förum yfir bókina Morning Glory Milking Farm, sem er með… áhugaverðan söguþráð.Við mælum eiginlega með því að lesa bókina án þess að kynna sér of mikið um hana fyrirfram. Treystu okkur bara, þú munt ekki sjá eftir því.ATH. þátturinn inniheldur grafískar kynferðislegar lýsingar og er ekki við hæfi einstaklinga undir 18 ára aldri.

  2. 13

    The Knight and the Moth

    Sagði einhver ufsagrýlur og heitir riddarar? Því þessi þáttur er stútfullur af hvoru tveggja.Hlustaðu á 13. þátt Blautra blaðsíðna þar sem við köfum ofan í bókina The Knight and the Moth, kynnumst skemmtilegum aukapersónum, áhugaverðri kvennpersónu og nýjum töfraheimi.Bókin skipti okkur aðeins í fylkingar og við erum mjög spenntar að heyra hvað þér, kæri hlustandi, finnst.Ath. þátturinn inniheldur grafískar kynferðislegar lýsingar og er ekki við hæfi barna undir 18 ára.Þangað til næst.

  3. 12

    When The Moon Hatched

    Drekar, forboðin örlög og skrítinn, hálf íslenskur víkinga ættbálkur.... þurfa konur eitthvað meira? Í 12. þætti af Blautum blaðsíðum köfum við ofan í When the Moon Hatched eftir Sarah A. Parker. Við kynnumst nýjum og öðruvísi töfraheimi s, karakterum sem sitja lengi eftir og ræðum að sjálfsögðu allt og ekkert á milli himins og jarðar.Ef þú ert fyrir verndandi karlpersónur, sterkar og ákveðnar kvenpersónur, dreka (!!) og áhugaverða nálgun á nýtt töfrakerfi, þá er þetta klárlega bók fyrir þig.ATH þátturinn innihledur blótsyrði og kynferðislegt orðalag.

  4. 11

    Alchemised

    Varst þú líka hrifin af Harry Potter, en vildir óska að Hermione og Draco hefðu farið í sleik? Við líka. Þess vegna lásum við bókina Alchemised.11.þáttur Blautra Blaðsíðna kafar inn í hinn magnaða töfra heim SenLin Yu og þessara frábæru spin-off bók sem er byggð á persónum úr töfraveröld Harry Potters. Hlustaðu með þegar við köfum niður í bókina og förum yfir allt á milli himins og svarta galdurs. ATH þátturinn inniheldur grafískar lýsingar á kynferðislegum senum og hentar ekki yngri hlustendum.

  5. 10

    Brimstone ft. TBR listinn

    Í 10. þætti af Blautum blaðsíum fáum við til okkar Ölmu og Fjólu úr TBR listanum, og saman tökum við loksins fyrir bókina Brimstone. Hinn sjóðheiti Kingfisher, Saeris, Carion og Onyx, refurinn sem stal hjörtum okkar, snúa aftur í annarri bók Fae and Alchemy seríunni eftir Callie Hart, og við urðum ekki fyrir vonbrigðum. Ef þú ert fyrir vampíur, skuggapabba, gott (mjög gott) spice og umræður sem hefðu líklega átt að vera klipptar út… en voru það ekki. þá er þetta þáttur fyrir þig. Þangað til næst! ATH þátturinn inniheldur kynferðistlegt orðalag og spoilera.

  6. 9

    Feathers So Vicious

    Er skammdeigið að fara illa í þig? Vantar þig spice, spice og meira spice til að létta undir með jólastressinu? Langar þig að lesa um forboðna ást á milli einmana prinsessu og prins sem skiptir um ham? Þá erum við með svarið fyrir þig.Feathers So Vicious hefur allt þetta og meira til. En við vörum þig við. Hún er myrk. Og fer með þig á staði sem þú vissir ekki að þig langaði að fara á. En þú munt ekki sjá eftir því. Vonandi...Kannski.ATH þessi þáttur inniheldur lýsingar á kynferðislegu ofbeldi, sem gæti verið óþægilegt fyrir einhverja hlustendur.

  7. 8

    Serpent and the Wings of night

    Vampírur, vampírur og meiri vampírur. Þáttur 8 í Blautum blaðsíðum fjallar um vampíru heim Carrisu Broadbent og inniheldur ja, vampírur, lífshættulega stríðsleika, stríð og guða erjur. Við kynnumst Oraya, Raihn, Vincent og fleirum í þessu æsispennandi duology þar sem forboðin ást, galdrar og guðir mætast og ekki allir labba heilir frá þeim fundi. Vorum við búnar að nefna að bækurnar fjalla um vampírur? ATH þátturinn inniheldur grafískar lýsingar á kynferðislegum senum og mikið af spoilerum. Þangað til næst! 

  8. 7

    Eldritch

    Töfra skógur, forboðnar tilfinningar og nöfn sem við getum ekki borið fram.Í 7. þætti Blautra blaðsíðna sökkvum við dýpra inn í heim The Eating Woods með bókinnni Eldritch — þar sem Zevander og Mayvith glíma áfram við Cadavros og gömul leyndamál koma upp á yfirborðið. Eldritch er 2. bókin í seríunni og við höfum beðið eftir henni með mikilli eftirvæntingu! ATH þessi þáttur inniheldur efni sem gæti framkallað ónotatilfinningar hjá fólki, þar sem rætt er um kynferðislegt ofbeldi. Þátturinn inniheldur einnig spoilera og gróft orðalag.

  9. 6

    Anathema

    Nýr skuggapabbi in the mix?? Já takk. Hlustaðu með þegar við köfum niður í hinn myrka heim Anathemu eftir Keri Lake, þar sem skrítin skrímsli fara á stjá og nornir og drekar berjast hlið við hlið. Það skemmir ekki fyrir að ein af höfuðpersónum bókarinnar, Zevander er vægast sagt sjóðheitur.ATH þessi þáttur inniheldur efni sem gæti framkallað ónotatilfinningar hjá fólki þar sem rætt er um kynferðislegt ofbeldi.Þátturinn inniheldur einnig spoilera og gróft orðalag.

  10. 5

    Ice Planet Barbarian

    Bláir geimveru menn, heitur feldur og barátta upp á líf og dauða? Ef þetta hljómar eins og eitthvað fyrir þig, smelltu þá 5. þætti Blautra blaðsíðna í gang og komdu með okkur í þessa óvenjulegu vegferð þegar við kynnumst Vektal og Georgie á ísplánetu mörgum ljósárum frá jörðu. ATH hlaðvarpið inniheldur grafíska lýsingar og spoilera. Trigger warning: kynferðislegur ásetningur án samþykkis.

  11. 4

    Throne Of Glass ( og Assasins blade)

    4. þáttur Blautra blaðsíðna fer yfir byrjunina á hinni víðfrægu bókaseríu Throne of Glass eftir Sara J. Maas. Í þættinum hittum við Celeana, Arobyn, Dorian, Kálið og fleiri góða karaktera, RDG er á sínum stað og við kynnum til leiks næstu bók sem, að öllum líkindum, kemur vel á óvart. Komið með okkur í þetta ferðalag þar sem við flettum, skvettum og skemmtum okkur saman.

  12. 3

    Onyx Storm

    3.þáttur Blautra Blaðsíðna fjallar um bókina Onyx storm, 3.bókina í the Empyrean series, einnig þekkt sem Fourth wing. Í þættinum fara Bryndís og María yfir helstu kenningar hingað til og hvað muni gerast í næstu bókum, og fara aðeins út fyrir ramman í fasta liðnum Ríða-drepa-giftast. Komið með og flettið, skvettið og skemmtið ykkur með okkur þegar við köfum niður í drekakynlíf, skuggapabba og allt þar á milli.ATH þátturinn inniheldur spoilera, kynferðistlegt orðalag og blótsyrði.

  13. 2

    Quicksilver

    Í öðrum þætti bókaklúbbsins Blautar blaðsíður kynnumst við sögupersónum úr bókinni Quicksilver. Við ræðum um vampírur, álfa og allt þar á milli... bókstaflega. Komið með okkur í þetta ferðalag, þegar við flettum, skvettum og skemmtum okkur með Saeris, Kingfisher, Malcolm og fleiri.Ath. Hlaðvarpið inniheldur spoilera, blótsyrði og grafískar lýsingar.

  14. 1

    ACOTAR

    Í fyrsta þætti kafar bókaklúbburinn Blautar blaðsíður niður í bókaseríuna sem byrjaði þetta allt saman, A Court Of Thorn And Roses. Komið með í þetta ferðalag þar sem við flettum, skvettum og skemmtun okkur saman með Feyre, Rhys og fleiri skemmtilegum karakterum.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Blautar blaðsíður er stafrænn bókaklúbbur þar sem við köfum niður í mismunandi romantasy bækur í hverjum þætti. Við eru tvær vinkonur, óumbeðnar og algerlega óheflaðar og við lofum hlátri, bleytu og algjörri vitleysu. Hlaðvarpið inniheldur blótsyrði, vín, lýsingar á kynferðislegum senum, álfa, dreka og allt þar á milli.

HOSTED BY

Bryndís Wöhler, María Kristín Bjarnadóttir

CATEGORIES

URL copied to clipboard!