Bjórspjallið

PODCAST · leisure

Bjórspjallið

Bruggararnir Ragnar og Hjalti spjalla um allt tengt bjórgerð, smakka og fá til sín gesti.

  1. 14

    Mási

    Magnús, eða Mási eins og hann er oftast kallaður, hefur komið mjög víða við í bransanum. Stofnað bari, unnið á brugghúsum, og stofnaði einu sinni sjálfur brugghús! Nú er hann hjá Malbygg, gegnir þar sölustörfum og markaðssetningu. Flest sjáum við hann á barnum þar sem honum líður afskaplega vel.

  2. 13

    We're back, baby!

    Hvað hefur gerst? Mörg collöb, alls konar bjór, nýr bjór bjórspjallsins bruggaður! Þetta er bara byrjunin. Áfram gakk!

  3. 12

    Dósadropp

    Við brugguðum Hærra og það var dósadropp! Við fengum til okkar flotta gesti. GESTIR - Höskuldur Sæmundsson - Dagur Helgason (Fágun) - Andrew Whyte (Siren Brewing, RVK, skör) - Jón Klausen (RVK, skör) - Sigurður Snorrason (RVK, skör)

  4. 11

    HÆRRA

    Hærra er bjór sem við brugguðum í samstarfi við RVK Brewing og skör artisan. Létt kynning og plögg á eventinum. CAN RELEASE 12. MARS 16:00 - SJÁUMST

  5. 10

    Hreimur

    Hreimur Örn Heimisson er ekki bara landsþekktur tónlistarmaður heldur líka landsþekkt bjórnörd. Hann er einn af Byttunum þremur, hefur bruggað með Malbygg, gert smakk video um flest brugghús landsins og er góðvinur bransans. Bjórar smakkaðir: Þegar Davíð keypti ölið - RVK Brewing Jóhannes Witbier - Borg Brugghús Garðskagi - Litla Brugghúsið Ölvisholt Klassík - Ölvisholt Brugghús Depill - Malbygg Otur - Malbygg Kubbur - Malbygg

  6. 9

    Jóhann Guðmundsson - Brothers Brewery

    Jói er einn af stofnendum Brothers Brewery í Vestmannaeyjum. Þeir byrjuðu ansi snemma í bransanum, fyrir 8 árum, unnu besta bjórinn á Hólum og þá ennþá bara heimabruggarar ef svo má segja. Margt vatn hefur runnið til sjávar síðan, margir bjórar og nokkur tæki. Alltaf fjör og gaman í kringum Jóa! Másahornið á sínum stað. Bjórar og Seltzerar smakkaðir: Kókos Seltzer Hindberja Seltzer Gölli IPA Við erum 8 ára DIPA Páska Hazy IPA Brandur Súr Kommisar Saison Togarinn tunnuþroskaður

  7. 8

    East Coast vs West Coast

    Fengum Jón Klausen gæðastjóra RVK Brewing að smakka með okkur alltof mikið af west coast og east coast bjórum. Bárum saman þessa tvo stíla. Sjálfur er Jón ekki aðdáandi vesturstrandar stílsins en okkar mission er að snúa honum. Tekst það? Svo er Másahornið á sínum stað, auðvitað. WEST COAST Crikey IPA - Reubens Brewing Please & Thank You - Stoup Brewing Otur - Malbygg Brugghús Out West - SIG Brewing Snow Cone Frozen Fresh Hops - Single Hill Brewing High Camp Winter IPA - Bale Breaker Brewing Gnótt - RVK Brewing Ultramega Good IPA - Stoup Brewing Life on Mars - Reubens Brewing Tower Fall - Obelisk Brewing EAST COAST Úlfey - Borg Brugghús Hlemmur - RVK Brewing Citra Chrome - Other Half Brewing Panda - Malbygg Stýrivaxtahækkun - RVK Brewing Cutting Tiles Citra - Trillium Gouda - Other Half Vicinity - Trillium

  8. 7

    Steini - Húsavík Öl

    Þorsteinn Snævar Benediktsson er eigandi og bruggari Húsavík Öl. Byrjaði ungur að elta drauminn til útlanda, ófeiminn við að brugga allt sem honum dettur í hug og er duglegur að prófa sig áfram í nýjungum! Einnig var kíkt í "Másahornið". Smökkuðum Ítalskann Pils og Jóla Röðul frá Húsavík Öl, Þór lager og Hlemm frá RVK og Otur frá Malbygg.

  9. 6

    Allt og ekkert Vol.1

    Fyrsti þáttur í nýju seríunni. Spjall, bjórsmakk og fréttir.

  10. 5

    Bjórsmakkarinn

    Jæja! Gleðilegt nýtt ár! Þá er Bjórspjallið komið úr jólafríi og gestur þáttarins er Sigurður Atli Sigurðurson, betur þekktur sem Bjórsmakkarinn. Hann hefur verið duglegur að koma á framfæri því nýjasta í bjórsenunni og ekki óvanur að liggja á skoðunum sínum um nýjasta nýtt. Hér fer hann yfir söguna hvernig hann byrjaði og margt margt fleira!

  11. 4

    Andri - Malbygg

    Andri Þór er einn eiganda og stofnanda Malbygg. Mikill humlastrákur og hlaupari. Hann segir okkur m.a frá stofnun Malbyggs, uppáhalds humlum, minnst uppáhalds humlum, uppáhalds bjórum og uppáhalds geri. Flottur strákur, uppáhalds.

  12. 3

    Hrafnkell - Brew.is

    Hrafnkell Freyr, betur þekktur sem Keli í Brew.is, kom og ræddi við okkur um búðina, heimabruggun, tæki og tól, jólabjóra og margt fleira. Við heyrðum einnig í Magnúsi hjá Malbygg og fréttum af nýjustu viðbót brugghússins - algjör bylting! Email: [email protected]

  13. 2

    Hlynur - Böl

    Hlynur Árnason kom og ræddi við okkur um ævintýrin í Hollandi, árin hjá Ölgerðinni, Borg og stofnun Böls. Einnig var farið í djúpar ger pælingar og kerfið hjá Vínbúðinni. email: [email protected]

  14. 1

    Kynning

    Ragnar og Hjalti kynna sig og smakka bjóra sem þeir hafa gert og tala um bruggun.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Bruggararnir Ragnar og Hjalti spjalla um allt tengt bjórgerð, smakka og fá til sín gesti.

HOSTED BY

Bjórspjallið

CATEGORIES

URL copied to clipboard!