Bragðheimar

PODCAST · arts

Bragðheimar

Nautnaseggirnir Eva & Solla fjalla um mat og matargerð í sem víðustum skilningi. Þetta hlaðvarp er fyrir sælkerann, meðaljónin og sjoppuna.

  1. 31

    Fokkasía í ketosis

    Bragðheimabínur brugðu á leik og buðu dönnuðustu frú landsins, Rúnu Friðriksdóttur (aka Rúnkenstein) og maddömunni sjálfri með ofvirkasta skjaldkirtilinn, Nadine Guðrúnu Yaghi út að borða. Smakkland var í boði Lólu Reykjavík og voru konur alls ekki sviknar. Svikinn héri var þó ekki á boðstólnum heldur besta fokkasía landsins og gómsætur framandi ítalskur matur. Hlustendur fá frekari lýsingu á upplifuninni og það með ítölskum túlki. Þetta, ketosis ástand, spennandi uppskriftir með aðstoð IKEA og mögulega einhverjir sleggjudómar að finna í nýjasta þætti Bragðheima. 

  2. 30

    Gígja Himalayasaltsdóttir

    Bragðheimabínur fengu skemmtilega heimsókn frá enn einu fjöllistafreakinu. Gígja Hilmarsdóttir stundum þekkt sem Gígja klígja skólar lýðinn. Gígja leggur metnað í matreiðslu og framleiðslu, hún er röggsöm í lífi og leik og er talskona þess að skila eigi lötum mökum. Hækkum standardinn, borðum gott og eldum eftir Ottolenghi og fleiri sniðuga kokka með áhöldum frá IKEA.

  3. 29

    Gullbrár og fórnarlömbin 7

    Mættastar, smakkandi og traðkandi yfir lýðinn. Er of falleg hönnun veitingastöðum til falls, þarf Eva að hætta að troða söltuðum sítrónum upp í ******** á sér? Eru múmínálfarnir í útrýmingarhættu? Hvenær fáum við heilsubót í skyndibitaiðnaðinn? Afhverju er ísbíllinn ekki að hringja inn sumarið? Matarfréttir og svo margt fleira í ferskum Bragðheima þætti!

  4. 28

    Vínberið 🍇 Arnór Hreiðarsson

    Smakkland fræðslusetur ögrar bragðlaukum og kynnist frábærum vínum með Arnóri Hreiðarssyni.

  5. 27

    Endurfæðing og tryggt fæðuöryggi Bragðheima-bína

    Líkt og saklausir skógarbirnir eru Bragðheima-bínur nýskriðnar úr dvala, með tryggt fæðuöryggi og spennta bragðlauka. Spennandi uppskriftir, ráðleggingar landlæknis, maturinn hans Adda-intro í Berlin, rop-keppni og margt fleira í fyrsta þætti seasons-ins.

  6. 26

    Helga Sverrisdóttir - haxmundína heimilishaldsins

    Helga Sverrisdóttir er kona hokin af reynslu. Hún ólst upp á miklu menningarheimili þar sem norrænu áhrifin voru ríkjandi. Hún hefur lagt mikinn metnað í að fæða og klæða sitt fólk og gerir það af stakri prýði. Mikið svakalega var gaman að spjalla við þessa flottu konu og lífskúnstner.

  7. 25

    Eva Laufey Kjaran - Orkuver matarheimsins

    Orkuverið og fjöllistadísin Eva Laufey Kjaran gerði sér ferð í höfuðstöðvar Bragðheima þar sem hún jós úr brunni sínum líkt og rósakáls súpunni sem hringir inn jólin á Akranesi. Ferðalagið hennar Evu, klassíkin hennar Evu og jólabakstur með Evu. 

  8. 24

    Af fingrum fram með múltí og kúltíveruðustu Sigríði Kjaran, ævintýraprinsessunni í Þingholtunum. 

    Sigríður Kjaran Magnúsdóttir er ekkert eðlilega sjóuð og skemmtileg manneskja, með mikla reynslu og brennandi áhuga á matargerð. Hún hefur búið út um allan heim og sömuleiðis starfað í eldhúsum víða um heim. Sigríður er mjög nýtin, sniðug og iðin í eldhúsinu og haxmundarnir vella svoleiðis uppúr henni!

  9. 23

    Siffi Haralds - maðurinn sem heimsótti 200 veitingastaði á einu ári!!

    Við fáum að kynnast Siffa Haralds sem hefur heimsótt hátt í 600 veitingastaði hér á landi á síðustu 5 árum. Hröð en ítarleg yfirferð um helstu hverfis-laumurnar í Reykjavík og nágrenni, nýir eigendur á Yndisauka, njálgur á Kaffi Laugalæk og fleira sniðugt!

  10. 22

    Pattra Sriyanonge - bragðheimur drauma ykkar!

    Bragðheimar eru uppi með sér eftir áhrifamikið spjall við ástríðukokkinn Pöttru Sriyanonge, sem deilir með hlustendum sinni listrænu nálgun á matreiðslu. Pattra elst upp við tælenska matargerð og sækir áhrifin mikið þaðan. Áhrifin sækir hún einnig frá þeim löndum sem hún hefur búið í, en þau eru ansi mörg. Pattra deilir með okkur rosalegum uppskriftum, Haxmundi Axeli og ýmsu fleira sem þú vilt ekki missa af. Þátturinn er í boði Brauð & co, Blómstra, Ölgerðarinnar og Krónunnar.

  11. 21

    Unnur Birna Backman - kássur, smjör og tilþrif!

    Landsmót kássa og hægeldunar, Reykjavík Fusion og öll smjör ástin með flottustu Unni Birnu Backman. Stútfullur þáttur af kennsluefni og elegans!

  12. 20

    Árni Randvers - meistari í matarmenningu

    Hvað borðar meistari í matarmenningu í þynnkunni? Stefnir ísbíllinn í gjaldþrot og afhverju er enginn að fá sér kókflot í dag? Fyrir hvað standa samtökin "slow food" og hvernig má það vera að þau standa ekki fyrir hægeldun?

  13. 19

    Fanney Dóra - rektorinn í framandi íslenskri matargerð

    Fanney Dóra er kokkur á heimsmælikvarða. Hún segir okkur frá ævintýrum sínum hjá Jamie Oliver og skólar okkur til í ostum, brauðtertum og íslenskum kryddjurtum. Hún segir meðal annars frá þeirri vannýttu auðlind sem grásleppan er, og hvernig hægt er að nýta hana til góðs. Ofboðslega fróðlegt og skemmtilegt spjall við þennan landsliðskokk sem hefur marga fjöruna sopið.

  14. 18

    Guðný Ljósbrá - matarleiðsögukona Íslands!

    Snerpa, gæði og matarleiðsögn í boði áhrifavaldsins og framkvæmdastjórans Guðnýjar Ljósbrár.

  15. 17

    Sólrún Diego - drottning heimilishaldsins!

    Við fengum loksins að kynnast drottningu heimilishaldsins, Sólrúnu Diego. Hvernig viðhelduru vikumatseðli, signature eftirréttur Sólrúnar, heimilismatur æskunnar, endalaust af Haxmundum og svo margt fleira. Skemmtilegt og einlægt spjall með þessari góðu geit.

  16. 16

    Anna Fríða Gísladóttir - sax, sull & stemning!

    Sax, sull og stemning með Haxmundi Tæknitæfudóttur. Anna Fríða Gísladóttir, kom sá og saxaði. Endurmörkun sólþurrkaða tómatsins, framandi mömmumatur og endalaus stemning.

  17. 15

    Woltemon völtun í Vesturbæ

    Loksins er siðferðislega samþykkt að versla við Melabúðina á ný. Smakkland á Laugavegi 55, endurmörkun svínsins og ný gildi Bragðheima á haustönnn 2024.

  18. 14

    Season all - leiðin norður

    Bragðheimabínurnar Eva & Solla líta yfir farinn veg og þræða leiðina norður yfir alvöru mauli. Hvar er best að stoppa á leiðinni norður, er gott að dæna á Akureyri og afhverju er enginn veitingastaður búinn að bjóða okkur út að borða? Standard, takk!

  19. 13

    Með þráhyggju fyrir Þránni á Sumac & Óx - hvernig viðheldur maður Michelin stjörnu?

    Þráinn Freyr Vigfússon, stjörnukokkur og Michelin stjörnugrís mætti til Bragðheima brussanna og upplýsti um eitt og annað í heimi veitingageirans.

  20. 12

    Maul & baul með Bessastaðabeljunum - Oddur Þórðarson & Ólöf Skaftadóttir

    Maul & baul með samfélagsrýnunum Oddi & Lollu sem sitja ekki á skoðunum sínum þegar kemur að matargerð og trendum í veitingageiranum í Reykjavík. Hvað borða forsetaframbjóðendur ársins 2024 og hvern eigum við eiginlega að kjósa?

  21. 11

    Gott í gogginn með Hjörvari Hafliða aka Dr. Football

    Slatti af lauk, mikið af cabaret og dass af skinku fyrir doktorinn. Hvert fer hann út að borða, hvað finnst honum best og hvað verður hann að eiga heima hjá sér? Fáránlega skemmtilegt spjall við hlaðvarpskónginn Hjörvar Hafliða.

  22. 10

    Vinkonugrill: sætabrauðsdrengurinn Rakel Sif og fjöllistafreakið Lóa Björk

    Afhverju er svona vondur matur í Finnlandi og Noregi og hvar er langbest að dæna í París? Hvers vegna er bekkurinn alltaf betri en sætið á veitingastöðum og hvernig er að vera grænmetisæta á tímum kjötætunnar?

  23. 9

    Réttur er settur - stóri djúpsteikingarpotturinn á Ingólfstorgi!

    Særingarmenn dusta rykið af skikkjunum og kíkja í áhrifavaldaboð, kryfja brunch leikinn, hylla tiktok eldamennsku og fara á bólakaf í stóra djúpsteikingarpottinn við Ingólfstorg.

  24. 8

    Asíureisa - Addi Intr0beatz

    Matgæðingurinn og átvaglið Ársæll (Addi Intr0Beatz) mætti með kennslugleraugun í stúdíó Bragðheima. Tælensk matargerð, leynimatseðill á Fönix, Haxmundur Axel: þrýstipotturinn og svo margt fleira.

  25. 7

    Tæknitæfan sem eyðilagði matarbloggið!

    Er úti um framtíð matarbloggsins? Uppskrift af besta lasagna sem þú munt smakka, hvert er leyndarmál svörtu ólífunnar, Víkingur Heiðar bjórsali og svo margt fleira á vínargalsa Bragðheima!

  26. 6

    Þegar góða veislu gjöra skal - Ólöf Örvars

    Hvernig er best að undirbúa, framkvæma og njóta góðrar veislu? Veisluvélin og arkitektinn Ólöf Örvarsdóttir svarar spurningum okkar og gefur okkur í leiðinni innsýn í sinn töfrandi matarheim.

  27. 5

    Stútfullur ristill nei við meinum þáttur með Karen Björgu!

    Meltingarfræðsla, nammitips, æskan á Grenivík og svo margt SKEMMTILEGT með handritshöfundinum og séntildrollunni Karen Björgu.

  28. 4

    Væn, dæn og góð ráð - Óli Hall

    Food and Fun,  þorskhnakkar til þerris, eðlu-varnargarðar og margt fleira rætt við nepo-barn kokkasamfélagsins, Óla Hall!

  29. 3

    Ost í oss

    Matarmannfræði, Tommi Tómatur, camembert í útrýmingarhættu og margt fleira á kósíkvöldi Bragðheima.

  30. 2

    Heimilismatur sælkerans með Nadine Guðrúnu Yaghi

    Gestastælar, sparnaðarráð & sælkeraspjall á tímum mikillar verðbólgu og hárra stýrivaxta. Nautnaseggurinn og hlaðvarpsdrottningin Nadine Guðrún Yaghi deilir góðum sögum og ráðum með okkur.

  31. 1

    Fyrsti þáttur - Brauði sé lof

    Fyrsti þáttur af Bragðheimum er tileinkaður heilögum hleifnum, brauðinu sjálfu - það lá beinast við að faðir kolvetnisins yrði tekinn og étinn. Farið verður um víðan völl, hlustendur fá að skyggnast inn í heim tveggja svangra mjólkandi kvenna. Hvar er besta hleifinn að finna? hvaða rækjusamloka er best og þar fram eftir götunum.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Nautnaseggirnir Eva & Solla fjalla um mat og matargerð í sem víðustum skilningi. Þetta hlaðvarp er fyrir sælkerann, meðaljónin og sjoppuna.

HOSTED BY

Bragðheimar

CATEGORIES

URL copied to clipboard!