Búbblur & Bjór

PODCAST · comedy

Búbblur & Bjór

Birkir og Davíð hittast til þess að ræða um allt á milli himins og jarðar, Daði og Þröstur mæta við og við til þess að leggja málefnum lið, sumt sem skiptir máli, annað sem skiptir engu máli, en oftast eitthvað sem skiptir ekki máli, en skiptir samt máli! Svo stundum gætu komið spennandi og áhugaverðir gestir í spjall.Podcastið sem er um allt og ekkert, skál!

  1. 121

    Gervivísindi

    Ripp, Rapp og Rupp eru mættir til leiks í þessum þætti til þess að ræða Pseudoscience, eða öðru nafni gervivísindi, það er nóg til af þeirri vitleysu, eins og blessuðu ímyndunarveiku miðlarnir sem lesa í spil og bolla, og auðvitað höfuðbeinaspjaldhryggjajöfnunin, hvur andskotinn er það???

  2. 120

    Tuðbræður

    Tuðbræður, tuðmenn, Birkir og Davíð eru mættir í þennan þátt þar sem Birkir fer yfir nýliðna ferð til London á Prodigy tónleika, svo fara þeir yfir það sem hefur verið að gerast í heiminum undanfarið, eins og morðtilræði enn eina ferðina á Donald Trump, hvaða tíska/samsæriskenning er það?

  3. 119

    The 27 Club

    Birkir, Daði og Þröstur eru mættir til þess að ræða einn alræmdasta klúbb heims, þessi klúbbur er með langdýrasta aðgöngumiðann, The 27 Club! Þeir ræða pælingar og samsæriskenningar varðandi þennan klúbb, hverjir eru í honum og hvernig þau dóu, einn er alveg á því að Kurt Cobain hafi verið myrtur, hinir eru ekki eins vissir, en þátturinn byrjar á því að Daði gerir Birki bálreiðan með einhverju tónlistarþvaðri, það verður aldrei þreytt að heyra Birki verða ponsu pirrí pú!

  4. 118

    The Simpsons

    Í tilefni þess að í dag er hinn alþjóðlegi Simpsons dagur (19 apríl), þá ætla Birkir og Davíð að fara saman yfir þessa þætti sem hafa verið í miklu uppáhaldi hjá þeim í gegnum áratugina. Þeir renna yfir bestu þættina að þeirra mati, hvaða karakter þeim finnst bestur, hvaða karakterar hafa dáið í þáttunum, skoða Íslandstengingar og skoða svo hvort þátturinn sem Michael Jackson kom fram í hafi verið eitthvað loðinn ásamt mörgu öðru...einnig ætla þeir í skemmtilegan Simpsons spurningaleik.

  5. 117

    Ketchup!

    Birkir, Daði og Þröstur er mættir saman til þess að tala um tómatsósur.....neeeeiiii, þessi þáttur fer út um allt þar sem þeir spjalla saman um daginn og veginn, hvað þeir gerðu yfir páskana, og eru svo auðvitað með almenn leiðindi hver við annan...  

  6. 116

    Topp 10 skemmtilegast

    Allur haugurinn er mættur í þennan þátt til þess að fara yfir Topp 10 skemmtilegustu hluti sem þeir hafa gert, þar er margt að finna, fallhlífarstökk, tónleikar, jöklaganga, birtast á bíótjaldi og margt fleira!

  7. 115

    Páskafjör

    Sálufélagarnir Birkir og Þröstur taka snemma í gikkinn og er mættir í páskagír í páskaspjall. Þeir fara líka yfir nýliðna hluti eins og dauða Chuck Norris, Þröstur stenst ekki mátið og kastar fram nokkrum klassískum Chuck Norris bröndurum, Þeir fara svo auðvitað yfir páskana og komast svo að því að það veit enginn hvenær páskarnir eru á næsta ári.

  8. 114

    Gamanmyndir

    Ripp,Rapp og Rupp eru mættir í þetta skiptið þar sem þeir fara yfir gamanmyndir, hver er uppáhaldsgamanmyndin, hvaða gamanmynd lætur þá hlægja sem mest og allt annað mögulegt um gamanmyndir!

  9. 113

    Er Óskarinn dauður?

    Stutt er lýsingin í dag en snillingarnir þrír eru mættir í tilefni þess að Óskarsverðlaunin fara fram í nótt og fara yfir hvort að Óskarinn sé liðin tíð. Það eru engar kvikmyndastjörnur lengur eins voru í gamla daga.

  10. 112

    Fréttir og spjall

    Fullt hús í dag með fjórum mismiklum snillingum. Það er farið yfir það helsta í fréttum, við ræðum aðeins stríðin sem eru í gangi, ótrúlega pólitískir. Förum yfir það hvort Jim Carrey sé orðinn klón, eftirherma eða hvort hann sé hreinlega bara til! Svo er rætt aðeins um gullnu árin þegar þáttastjórnendur voru ungir og mögulega aðeins meira sexý útgáfur af sjálfum sér!

  11. 111

    Tíminn er skrítinn

    The Three Amigos, þeir Aragorn, Legolas og Gimli eru mættir í dag til þess að ræða tímann, fáránlegt hvað tíminn er fljótur að líða. Covid tímabilið setti allt tímavit úr skorðum, það eru komin 10 ár síðan Fidget Spinners voru málið, það eru meira en 40 ár síðan þáttastjórnendur fæddust og Pacman er orðinn 46 ára.....alveg eins og Davíð! 

  12. 110

    Skrítnustu netkaupin

    The Three Amigos, Ripp, Rapp og Rupp, Harry, Ron og Hermione eru mættir til að tala um skrítnustu hlutina sem hafa verið keyptir og seldir á netinu, eins og til dæmis mannatennur og margt annað sem þú vilt ekki vita af. Þeir fara líka yfir hvað þeir hafa pantað á netinu, sem er áhugavert þar sem einn af þeim kann það ekki og hinir tveir hafa pottþétt pantað eitthvað mjög vafasamt eða dónalegt. Þeir fara vel yfir þetta allt saman!

  13. 109

    Valentínusardagur

    Ástin og væntumþykjan svífur yfir vötnum og mönnum í þessum þætti, brómansinn og rómantíkin tengd Valentínusardegi ræður ríkjum. Strákarnir mannast smá upp og fara aðeins yfir fyrirbærið sem Super Bowl er, svo þeir fara yfir margt annað nýskeð, ræða rómantíkina og enda svo þáttinn á því að játa ást sína hver á öðrum, the bromance is strong! ❤️ ❤️ ❤️

  14. 108

    Árið er 2006

    Birkir, Davíð og Þröstur kryfja árið 2006 í þessum þætti, sumir muna hvað þeir voru að gera, einhverjir sem eru að hlusta voru ekki fæddir, hvaða myndir komu út, hvað gerðist, hvernig var tónlistin, og allt hitt á þessu ári, sem var alveg geggjað, korter í hrun og svona....

  15. 107

    Hvort myndirðu frekar?

    Það er fullur bátur í dag og það eru allir í þvílíku stuði! Hópurinn fer í leikinn fræga "Hvort myndirðu frekar" og sumt af þessu er temmilega eðlilegt, annað barnalegt, sumt fyndið og annað gjörsamlega viðbjóðslegt....ekki hlusta á þennan þátt með börnin í bílnum. Svo í lokin kemur Dagbók Daða og önnur óvænt dagbók sem lítur dagsins ljós í fyrsta sinn, þú vilt EKKI missa af henni! 

  16. 106

    Dumb Ways To Die

    Jæja, Dumb Ways To Die, eða heimskulegir dauðdagar á íslenskunni. Bakkabræður eru mættir aftur, Birkir,Davíð og Þröstur koma saman á dásamlegum degi og fara yfir bóndadaginn, svo fara þeir yfir heimskulega dauðdaga sem er til ógrynni af. Til dæmis lést konungur við það að ganga á dyrakarm...einn fór niður foss í tunnu, og svo voru það öll hin heimsku fíflin, ekki missa af þessu, þetta er fáránlega fyndið!

  17. 105

    Heimskulegar ákvarðanir

    Hvað færðu ef þú blandar saman Herpes bræðrum og einum Birki. Jú, þú færð Bakkabræður! Bakkabræður eru mættir í þessum þætti, Birkir, Davíð og Þröstur og þeir ætla að renna yfir heimskulegustu ákvarðanir sem mannveran hefur tekið í gegnum tíðina, margar ansi heimskulegar. Svo fara þessir snillingar yfir heimskulegar ákvarðanir sem þeir hafa sjálfir tekið, þær eru margar heimskulegri en flest sem heimskt er.

  18. 104

    Læknamistök

    Birkir, Davíð og Þröstur eru komnir saman á fallegum og köldum vetrardegi á höfuðborgarsvæðinu með heitt kakó við hönd, allir undir sama teppi, einn eða tveir berir að neðan, en það er aukaatriði, í þættinum í dag ræða þeir um rosaleg læknamistök, við þekkjum öll læknaskrift, það getur enginn lesið hana, engin furða að eitthvað fer úrskeiðis. Davíð heldur því fram að hann sé mistök, það verður grafið djúpt ofan í það ásamt Dr. Phil. Svo er Birkir með skýrslu um síðasta djamm hjá Davíð sem gæti hafa verið eitthvað vafasamt!

  19. 103

    Kvikmynda kenningar

    Strákarnir byrja jákvæðir á nýju ári og stefna á það að halda árinu öllu þannig. Jói kemur aftur sem gestastjórnandi af því að Davíð er búinn að vera týndur síðan í fyrra! Finnum hann vonandi fljótlega. Í þessum þætti er farið yfir allsskonar kvikmynda kenningar, sumar eru stórfurðulegar, aðrar mjög áhugaverðar og hinar afskaplega fyndnar. Ef þú fílar að pæla í bíómyndum, þá gæti þessi þáttur verið fyrir þig!

  20. 102

    Áramótin 25/26

    Það eru smá mannabreytingar, einhverjir á bekknum og aðrir koma inn í staðinn, Birkir og Þröstur fá splunkunýjan gestastjórnanda í þáttinn, den danske Joe, og svo mætir Daði eftir að hafa sofið yfir sig. Davíð situr hjá þetta skiptið vegna þess að hann er dáinn, já aftur! Strákarnir fara yfir jólahátíðina og stikla svo yfir það helsta á árinu sem er að líða, sumt skemmtilegt, annað ekki. Inn um eitt og út um hitt eins og best er á kosið! Gleðilegt nýtt ár!

  21. 101

    Jólin 2025 & þáttur #100!

    Allir lúðarnir eru komnir saman í tilefni jóla og þáttar númer HUNDRAÐ! Birkir, Daði, Davíð og Þröstur fóru í Secret Santa leik og það fá allir pakka, misdýra, misgóða og mismikið notagildi. Þeir fara svo yfir sína uppáhaldsþætti úr Búbblum & Bjór seríunni ásamt því að ræða allt þetta skemmtilegasta í gegnum tíðina.

  22. 100

    Ofmetið

    Hvað er betra en 4 miðaldra karlar að kvarta yfir einhverju sem skiptir ekki máli? Nákvæmlega ekkert! Hér eru allir 4 lúðarnir mættir til þess að fara yfir hvað þeim finnst ofmetið, iPhone, pizza, hljómsveitir og margt annað, það verður meira að segja hálfgert rifrildi á einu málefni!

  23. 99

    Fjársjóðir

    Birkir og Davíð renna yfir sögur af fólki sem hefur fundið allsskonar fjársjóði fyrir algjöra tilviljun, í bakgarði, á ströndinni og annarsstaðar. Hver væri ekki til í að ramba óvart á eitthvað gull!

  24. 98

    Siðir sem við gerum

    Birkir og Davíð fara saman yfir hefðbundna og hversdagslega siði, við tökum ekkert endilega eftir því að við erum að gera suma, en af hverju skálum við, af hverju eru konur alltaf í hvítum kjólum við giftingu, þetta og margt fleira algengt og hversdagslegt er grandskoðað í þessum þætti!

  25. 97

    Neikvæður Nóvember

    Birkir og Davíð koma saman og fara yfir viðburði og helstu mál síðustu daga. Sumu er hægt að gera grín að en öðru ekki, margt er alvarlegt en þeir reyna að finna léttar hliðar á því.

  26. 96

    Spurt og svarað

    Vitringarnir fjórir (not), Birkir, Daði, Davíð og Þröstur eru allir mættir saman í dag, í þessum þætti fara þeir út í persónulega rými hvers og eins og spyrja hvorn annan spjörunum úr, allt frá djúpum pælingum yfir í algjöra þvælu eins og þeim einum er lagið, hér koma mörg spes og skrítin svör fram, rosalega gaman og mikið hlegið, leggið við hlustir!

  27. 95

    Spuni

    Birkir, Daði, Davíð og Þröstur fara allir út fyrir þægindarammann í þessum þætti og annaðhvort verður þetta besti þátturinn hingað til, eða sá versti, ef hann er einhversstaðar þar á milli, þá er hann bara vandræðalegur! Við munum setja kjánalegar klippur á instagram og TikTok úr þættinum. Það koma upp allsskonar spuna aðstæður í þessum þætti sem við þurfum að klóra okkur út úr eins og: Rosalega slappur Chewbacca fer á Húð og Kyn, Freddy Krueger leitar að bók á bókasafni, The Mandalorian mætir í kynlífsleikfangaverslun, Michael Jackson á vændishúsi og margt fleira kjánalegt! Takmarkið er að annar aðilinn hlægji í miðjum spuna og missir þá af stiginu sem er í boði. Pé ess, það er slatti af „safa“ í hópnum í þessum þætti, jafnvel miklu meiri í sumum en öðrum, og þess má geta að enginn af okkur er útskrifaður af leiklistarbraut 🫣 

  28. 94

    Birkir yfirheyrður

    The Twosome Gruesome eða dúllurnar tvær, þið ráðið hvort þið kallið þá, Birkir og Þröstur eru mættir á svæðið, þeir athuga hvar í andskotanum Daði er, þeim fannst "fríið" hans hljóma eitthvað skringilega, og svo lendir Birkir í allsherjar yfirheyrslu frá Þresti þar sem við lærum ýmislegt um hann. Sumt við hann er venjulegt en annað ekkert eðlilega skrítið!

  29. 93

    Halloween

    Syndirnar 4 eru mættar saman í þessum frábæra Halloween þætti, Birkir, Daði, Davíð og Þröstur, þeir ræða um allt og ekkert tengt þessum degi, sumt er mjög áhugavert, annað minna, en alltaf er jafn gaman hjá þessum vitleysingum!

  30. 92

    Árið er 2000

    Birkir og Davíð koma saman og tala um aldamótin 2000. Það eru 25 ár síðan svo það er engin furða að Davíð man ekkert eftir þessum tíma, en það er svo sem skiljanlegt því hann er svo gamall en Birkir minnir hann á hvað þetta var góður tími!

  31. 91

    Lélegar markaðssetningar

    Það er mikið fjör og gaman hjá Birki og Davíð í þætti vikunnar þar sem þeir fara yfir lélegustu markaðssetningar fyrri tíma, eins og til dæmis New Coke…hver man ekki eftir því? Það var stórkostlegt klúður!

  32. 90

    Pyntingar

    Það er hugljúfur þáttur í dag, enda er Ed Gein vika á Netflix! Í þessum þætti er fullur bátur af misfullum strákum. Birkir, Daði, Davíð og Þröstur eru allir mættir í hús og ræða allsskonar pyntingar sem hafa verið framkvæmdar í gegnum tíðina. Mannskepnan getur verið fjandi gróf og það klikkaðasta er að á sínum tíma þótti sumt af þessu nokkuð eðlilegt! Endilega leggjið við hlustir og fáið smá hroll!

  33. 89

    Topp 10 sjónvarpsþættirnir

    Birkir og Davíð fengu Krissu aftur í heimsókn. Þau fara yfir topp 10 bestu sjónvarpsþætti sem þau hafa séð! Til dæmis: Dexter, Supernatural, Breaking Bad og fleiri, sumir eru vissulega með betri smekk en aðrir, en þið kæru hlustendur, þið dæmið það!

  34. 88

    Eru allir að missa sig?

    Það er loksins fullur bátur í dag, Birkir, Daði, Þröstur og Davíð eru allir komnir saman í stúdíóið. Strákarnir ræða um hvað þeir eru búnir að vera að bralla undanfarið og ræða hvað er að gerast í heiminum í dag sem er ansi margt! Hér er bara vitleysan töluð en til í mörgu samt, eða hvað?

  35. 87

    Nostalgía

    Birkir og Davíð fengu gestastjórnanda með sér í þennan þátt, hana Krissu vinkonu þeirra og dyggan hlustanda þáttarins. Þau fóru yfir nostalgíu og hvað fylgir henni. Tónlist, þættir og hlutir sem láta mann fá þessa tilfinningu sem er nostalgia

  36. 86

    Hollywood bölvanir

    Birkir og Davíð velta fyrir sér hvort að Hollywood bölvanir séu í raun til, þeir fara yfir þær nokkrar sem tengjast til dæmis Poltergeist og Glee, mjög spennandi, áhugaverður og skemmtilegur þáttur þar sem mikið er pælt og mikið hlegið!

  37. 85

    Ógeðslegar staðreyndir

    Birkir og Davíð fara yfir morbid facts eða öðru nafni ógeðslegar staðreyndir í þessum þætti, margt af þessu viltu ekki vita af en ef þú ert með svartan húmor þá er þessi þáttur fyrir þig!

  38. 84

    Topp 10 verstu kvikmyndir

    Birkir, Daði og Davíð fara yfir topp 10 listann sinn yfir ömurlegustu kvikmyndir sem þeir hafa séð. Allar myndirnar eru ömurlegar og sumar miklu verri en aðrar, en strákarnir eru ekki sammála um þær allar samt. Áhugaverð yfirferð fyrir kvikmyndanörda.

  39. 83

    Gay Pride and stuff

    Birkir og Davíð bjalla í Daða til að athuga af hverju hann beilaði á því að mæta í þáttinn. Daði kemur svo hressilega á óvart og mætir í þáttinn með látum. Strákarnir tala um það sem er búið að gerast í samfélaginu undanfarið og tala um Gay Pride og woke menninguna líka.

  40. 82

    Star Wars Trilogies - Part 2

    Star Wars heimurinn er það stór að hann passar ekkert í einn þátt! Það er komið að því að ræða og rífast yfir Star Wars Prequels og Sequels, Birkir, Davíð og Þröstur eru alls ekki sammála með þessar myndir og það færist heldur betur hiti í leikinn þegar Birkir fer á rantið!

  41. 81

    Star Wars Trilogies

    Birkir, Davíð og Þröstur fara yfir Star Wars trílógíurnar og byrja á elstu myndunum. Hver var á kókaíni alla myndina og hver var í ástarsambandi? Þeir fara líka yfir hvort þær eldist vel og hver af þeim er best!

  42. 80

    Besta útilegan

    Verslunarmannahelgin er framundan og Birkir, Davíð og Þröstur tala um bestu útilegurnar, til dæmis Eyjar 2001 og ævintýri í Galtalæk, þetta og margt fleira í þessum þætti!

  43. 79

    Trends

    Birkir, Davíð og Þröstur fara yfir fullt af hlutum sem hafa verið í tísku eða “trends” sem kemur eins og alda yfir allt og fer jafn fljótt í burtu, eins og að planka til hvers var það? Línuskautar, Pokemon, jójó, Segway! Og núna eru allir að missa sig yfir labubu böngsunum! Þetta og margt margt fleira verður kyrfilega krafið í þessum þætti!

  44. 78

    Skemmtilegasta minningin

    Birkir skellir spurningunni "Hvað er það skemmtilegasta sem þið hafið gert?" í loftið og strákarnir reyna að svara henni eins vel og þeir geta og fara yfir minningarbankann sem er misgóður.

  45. 77

    Stríð

    Það er fullur árabátur í dag og ekkert víst að hann sökkvi djúpt! Birkir, Daði, Davíð og Þröstur ræða um stríð sem hafa orðið eins og fyrsta og önnur heimsstyrjöldin, og hvort að þriðja heimsstyrjöldin sé handan við hornið. Einnig tala þeir 30 ára stríðið, krossferðina og eina stríð Íslendinga, þorskastríðið sem Birkir vill meina að hafi bara verið klessó leikur á skipum!

  46. 76

    Skemmtilegt dót

    Birkir, Davíð og Þröstur skemmta sér konunglega að rifja upp leikföng sem þeir léku sér með þegar þeir voru litlir og fleiri vinsæl leikföng í gegnum tíðina, Birkir kemur svo með svakalega sögu í lokin þegar einhverjir ónefndir en verða kannski nefndir aðilar rændu Rússa…

  47. 75

    Tölvuleikir

    Birkir, Davíð og Þröstur ræða um bestu og verstu tölvuleiki sem þeir hafa spilað í gegnum tíðina, það spannar allt í allt sirka 131 ár samanlagt, djöfull eru þeir gamlir! Þeir tala til dæmis um fornaldarleikinn Duck Hunt sem kom út á síðustu öld þegar þeir voru ungir, Super Mario Bros, Call of Duty, Rocket League og dónalega Larry leikinn...

  48. 74

    Hryllingsmyndir

    Birkir og Davíð fá Þröst í heimsókn og þeir ræða um bestu og verstu hryllingsmyndirnar í gegnum tíðina. Er Jaws hryllingsmynd eða ekki? Er Scream besta 90´s hryllingsmyndin? Er Freddy Krueger besti vondi kallinn? Vonandi hafiði jafn gaman af þessum þætti og við, góða skemmtun!

  49. 73

    Rifist um tónlist

    Það er fullur bátur í dag, 4 pungar á svæðinu samankomnir til þess að rífast aðeins um íslenska tónlist, smá safi kominn í alla og menn missammála. Hvaða lag er lélegast, hvaða hljómsveitir eru ömurlegar, hverjir hata Stuðmenn og Björk og hverjir ekki? Það er smá hiti í mönnum í þessum þætti!

  50. 72

    Ripley´s Believe It Or Not

    Birkir og Davíð fengu Þröst í heimsókn og ræddu um heilsu og hvað dadbod er. Svo tala þeir um Ripley´s Believe It Or Not sem er tengt allsskonar þvælu!

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Birkir og Davíð hittast til þess að ræða um allt á milli himins og jarðar, Daði og Þröstur mæta við og við til þess að leggja málefnum lið, sumt sem skiptir máli, annað sem skiptir engu máli, en oftast eitthvað sem skiptir ekki máli, en skiptir samt máli! Svo stundum gætu komið spennandi og áhugaverðir gestir í spjall.Podcastið sem er um allt og ekkert, skál!

HOSTED BY

Búbblur & Bjór

URL copied to clipboard!