Fjölskyldusögur podcast artwork

PODCAST · society

Fjölskyldusögur

Fjölskyldusögur er hlaðvarp þar sem góðir gestir segja valdar sögur af sinni fjölskyldu. Umsjón með þáttunum hefur Guðrún Katrín Jóhannesdóttir félags- og fjölskyldufræðingur.Stef: Einar Snorri

  1. 6

    Einar Már Guðmundsson

    Einar Már Guðmundsson rithöfundur og skáld deilir með okkur fjölskyldusögu sinni og því hvernig fjölskyldumeðlimir hafa margir hverjir verið fyrirmyndir að persónum í bókum hans. Hann segir meðal annars frá uppvexti sínum í Reykjavík, æsku föður síns og föðursystkina sem ólust upp í mikilli fátækt og  því hvernig föðuramma hans og börnin hennar sameinuðust öll að lokum og áttu góð tengsl á seinni árum þrátt fyrir aðskilnað á æskuárum systkinanna. Hann segir okkur frá bróður sínum sem hann skrifaði um í bókinni Englum alheimsins en sú bók og kvikmyndin sem gerð var eftir bókinni snerti eftirminnilega við hjörtum fólks. https://www.instagram.com/fjolskyldusogur?igsh=N3N1Y3MxbmEzendm

  2. 5

    Alma D. Möller

    Alma D. Möller er svæfinga- og gjörgæslulæknir og núverandi heilbrigðisráðherra okkar Íslendinga. Hún fæddist á Siglufirði og deilir hér með okkur sögum af fjölskyldunni sinni. Við fáum að heyra af móður og móðurömmu hennar sem upplifðu síldarárin, farsóttir og krefjandi tíma. Þær mæðgur áttu það meðal annars sameiginlegt að lifa löngu lífi og búa yfir mikilli seiglu.https://www.instagram.com/fjolskyldusogur?igsh=N3N1Y3MxbmEzendm

  3. 4

    Helgi Gunnlaugsson

    Helgi Gunnlaugsson er prófessor í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands. Hann ólst upp á tveimur heimilum í Reykjavík, annars vegar hjá foreldrum sínum og hins vegar hjá móðurömmu sinni. Í þættinum fáum við að heyra einlæga sögu Helga af fjölskyldu hans, sem spannar fjórar kynslóðir, allt aftur til Geirs Zoëga sem var umsvifamikill kaup- og útgerðarmaður á 19. öld. Þetta er áhugaverð frásögn þar sem sögusviðið er reykvískt samfélag hér á árum áður.https://www.instagram.com/fjolskyldusogur?igsh=N3N1Y3MxbmEzendm

  4. 3

    Ólafur Þór Ævarsson

    Ólafur Þór Ævarsson er doktor í geðlækningum sem ólst upp á Akureyri. Hann segir okkur frá fjölskyldu sinni og hvernig veikindi ömmu og afa gætu hafa haft áhrif á að hann lagði fyrir sig læknisfræði. Hann kemur einnig inn á nýjar rannsóknir sem benda til þess að fleira erfist á milli kynslóða en talið var, eins og hugsanir og tilfinningar. Við komum einnig aðeins inn á streituna enda ekki annað hægt þegar einn fremsti sérfræðingur okkar á sviði streitu kemur í viðtal.https://www.instagram.com/fjolskyldusogur?igsh=N3N1Y3MxbmEzendm

  5. 2

    Kristín Berta Guðnadóttir

    Kristínu Bertu Guðnadóttur er ýmislegt til lista lagt. Hún er félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur, myndlistarkona og jógakennari, ásamt því að reka Sálarlist. Hún deilir sögu af sinni fjölskyldu sem óhætt er að segja að láti engan ósnortinn.https://www.instagram.com/fjolskyldusogur?igsh=N3N1Y3MxbmEzendm

  6. 1

    Katla Margrét Þorgeirsdóttir

    Katla Margrét Þorgeirsdóttir er ein af okkar ástsælustu leikkonum. Í þessum fyrsta þætti, af Fjölskyldusögum, deilir hún með okkur fjölskyldusögu sinni þar sem líf og saga móðurömmu hennar, sem ólst upp á Jökuldal, fær sérstakan sess. Við ræðum meðal annars þungar áskoranir í lífi ömmu hennar og hvernig hún tókst á við þær.https://www.instagram.com/fjolskyldusogur?igsh=N3N1Y3MxbmEzendm

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Fjölskyldusögur er hlaðvarp þar sem góðir gestir segja valdar sögur af sinni fjölskyldu. Umsjón með þáttunum hefur Guðrún Katrín Jóhannesdóttir félags- og fjölskyldufræðingur.Stef: Einar Snorri

HOSTED BY

Guðrún Katrín

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Fjölskyldusögur have?

Fjölskyldusögur currently has 6 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Fjölskyldusögur about?

Fjölskyldusögur er hlaðvarp þar sem góðir gestir segja valdar sögur af sinni fjölskyldu. Umsjón með þáttunum hefur Guðrún Katrín Jóhannesdóttir félags- og fjölskyldufræðingur.Stef: Einar Snorri

How often does Fjölskyldusögur release new episodes?

Fjölskyldusögur has 6 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Fjölskyldusögur?

You can listen to Fjölskyldusögur on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Fjölskyldusögur?

Fjölskyldusögur is created and hosted by Guðrún Katrín.
URL copied to clipboard!