PODCAST · science
Gull og grænir skógar
by RÚV Hlaðvörp
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hverskyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði - og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
12
Stofuplöntur: umhirða, tengsl og sögulegt samhengi
Í þessum níunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um stofuplöntur sem stofustáss, ástríðu, minjagripi, nytjaplöntur og fleira. Rætt er um umhirðu stofuplanta s.s. áburðargjöf og umpottun. Fjallað er um stofuplöntur sem plumma sig á vinnustöðum. Staldrað er sérstaklega við vinsældir kentíapálmans á Viktoríutímabilinu og uppgötvun Wardian-kassas sem gaf kost á að flytja lifandi gróður heimshorna á milli. Að lokum er minnst á plötuna Mother Earth's Plantasia sem út kom 1976, sem tónlist fyrir stofuplöntur og þá sem elska þær.Viðmælendur eru Sverrir Gauti Svavarsson, Guðríður Helgadóttir og Steinar Björgvinsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
11
Garðyrkjuskólinn, Bananahúsið og gróður sem gjafir
Í þessum áttunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um Garðyrkjuskólann Reykjum, mikilvægi námsins og þær fágætu tegundir sem þar má finna – sérstaklega í Bananahúsinu. Rætt er við núverandi og fyrrverandi nemendur ásamt brautarstjóra garðyrkjubrauta. Vöngum er velt yfir gróðri í formi gjafa með þátttöku Vilmundar Hansens garðyrkju- og þjóðfræðings. Viðmælendur eru Guðríður Helgadóttir, Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Vilmundur Hansen. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
10
Gróður frá suðurhveli jarðar, stofugreni og vendingar á Nýja–Sjálandi.
Í þættinum er ferðast um suðurhöf í gegnum íslenskan garðagróður sem á heimkynni sín á suðurhveli jarðar – í Argentínu, Síle, Ástralíu og Nýja–Sjálandi. Sérstaklega er fjallað um apahrelli og sneplur. Þá er einnig rætt um stofuplöntuna stofugreni frá Norfolk-eyju sem er að segja má í tísku. Einnig er kafað ofan í nýlegar ákvarðanir Nýsjálendinga um að veita vissum náttúrufyrirbærum þar í landi réttindi til jafns við einstaklinga. Fjallað er um þau náttúrutengsl sem þær ákvarðanir endurspegla og hvaðan þau koma. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
9
Páskahretið 9. apríl 1963 og önnur nýlegri áföll
Í þættinum er leitast við að kafa ofan í afleiðingar páskahretsins mikla 9. apríl 1963 sem markar viss kaflaskil í gróðursögu landsins. Í kjölfarið er rætt um nýlegri áföll, eins og til dæmis saltrokið í maí 2023 og afleiðingar þess. Að lokum er kastljósinu beint að hérlendum skógarbrunum og afleiðingum þeirra. Viðmælendur eru Halldór Sverrisson, Steinar Björgvinsson og Guðríður Helgadóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
8
Fjölæringar
Í þættinum er rætt um fjölæringa sem gefið hafa góða raun. Dalaliljan (liljur vallarins) og þistill eru skoðuð sérstaklega út frá táknrænu og kristnu samhengi. Rætt er um fjölæringa út frá ýmsum eiginleikum þeirra, svo sem þekjandi fjölæringa, harðgerða, freka og eitraða – en einnig fjölæringa sem hafa gefið upp öndina í harðindum og er sárt saknað. Viðmælendur eru Guðríður Helgadóttir, Eva Dögg Kristjánsdóttir og Steinar Björgvinsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
7
Vorblómgun: Páskaliljur, býflugur, töfratré og kúrileyjakirsi
Í þessum þætti er fjallað um nokkrar vorblómstrandi tegundir – til að mynda páskaliljur, töfratré og kúrileyjakirsi (rósakirsi – cherry blossom). Nokkrur vorblóm eru skoðaðar út frá hlutverki sínu gagnvart býflugum en einnig eru þær settar í samhengi við ummyndanir Óvíds. Kastljósinu er beint sérstaklega að tegundum sem henta býflugum en eru eitraðar mönnum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
6
Skógurinn sem samspil og rými - Alþjóðadagur skóga
Í þessum þriðja þætti er fjallað um samvinnu mismunandi tegunda í skógum – hvoru tveggja út frá vísindum og ævintýrum. Rætt er um jákvæð skynáhrif og leyndardóma skógarins. Þátturinn stendur í samhengi við Alþjóðadag skóga. Viðmælendur sinna skógarumhirðu, starfa fyrir skógræktarfélög eða við rannsóknir á skógarumhverfinu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
5
Sitkagreni, alaskaösp og keðjusögin
Í þættinum er rýnt í risaeðlurnar í umhverfi okkar – alaskaaspir og sitkagreni. Rætt er um fellingar á stórum trjám. Þátturinn hverfist þá einnig um keðjusögina og þá sem vinna með slíkt verkfæri. Viðmælendur eru Hallgrímur Jón Hallgrímsson, Steinar Björgvinsson og Guðrún Þóra Jóhannsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
4
Garðurinn og sígrænn gróður
Í þættinum er rýnt í garðinn sem vettvang garðyrkjumannsins. Rætt er um heilnæm áhrif garðyrkju. Sérstök áhersla er lögð á sígrænan garðagróður.Viðmælendur eru Steinunn Garðarsdóttir, Steinar Björgvinsson, Sigurður Þórðarson og Sigrún Andrésdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hverskyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði - og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
HOSTED BY
RÚV Hlaðvörp
Loading similar podcasts...