PODCAST · news
Hið yfirnáttúrulega
by Ghost Network®
Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega.Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum.Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls.Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.
-
98
96. Vadíkanið
Vatíkanið hefur lengi verið eitt dularfyllsta og áhrifamesta ríki heims, bæði vegna trúarlegs valds og sögulegrar arfleifðar. Sem miðstöð Rómversk-kaþólska kirkjan gegnir það lykilhlutverki í lífi milljóna manna, en jafnframt hefur það verið uppspretta fjölmargra samsæriskenninga og sögusagna í gegnum tíðina.Ein þekktasta kenningin snýr að leyniskjölum sem eiga að vera geymd í Vatíkanleyndarsafnið. Þar er talið að finna skjöl sem kirkjan vill ekki að almenningur sjái, til dæmis um raunverulegan uppruna kristni, mögulegar tengingar við utanjarðarlíf eða jafnvel sönnunargögn sem gætu kollvarpað hefðbundnum trúarkenningum. Þó safnið sé raunverulega til og innihaldi mikilvæg söguleg gögn, er aðgangur mjög takmarkaður, sem hefur ýtt undir vangaveltur og grunsemdir.Sumir halda því fram að Vatíkanið búi yfir leyndum þekkingum eða gripum sem tengjast yfirnáttúrulegum fyrirbærum. Þar má nefna sögur um „tímavél“ sem kallast Chronovisor, tæki sem á að geta sýnt atburði úr fortíðinni.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskriftwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskrift
-
97
95. Innsæið
Innsæi er oft eitthvað sem við upplifum sem svona „innri tilfinningu“ eins og lítil rödd eða gut feeling sem segir okkur hvað sé rétt eða rangt, jafnvel áður en við höfum hugsað málið almennilega í gegn. Sumir líta á innsæi sem eins konar tengingu við eitthvað meira en bara okkur sjálf eins og við séum að „túna okkur inn“ á stærri orku eða vitund. Þá getur innsæið birst sem sterk tilfinning, hugboð eða jafnvel tilfinning fyrir því að vita eitthvað án þess að geta útskýrt af hverju.Fólk sem vill styrkja innsæið sitt reynir oft að hægja á sér, vera meira í núinu og hlusta betur inn á við, til dæmis með kyrrð eða hugleiðslu. Þá verður auðveldara að greina á milli þess hvað er bara hávaði og hvað er þessi rólega, innri tilfinning.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
96
94. Arthur Findlay collage - okkar reynsla
Við erum komnar heim frá Arthur Findlay og erum ekekrt smá ánægðar með þessa geggjuðu ferð! Við lærðum svo mikið og höfum tekið rosalegan vaxtarkipp í andlega heiminum. Þetta var ótrúlega skemmtilegt en á sama tíma mjög krefjandi og lærdómsríkt.Við förum aðeins yfir þetta í þessum þætti, hvað við lærðum og hvernig okkur fannst skólinn og námið. Við vorum að læra trans heilun í 7 daga í geggjuðu umhverfi með yndislegu fólki. Við mælum með að kíkja á þennan skóla!!! Við eigum pott þétt eftir að fara aftur mjög fljótlega enda verður fólk háð því að fara þangað, við vorum með þeim örfáu sem voru að fara í fyrsta skiptið.p.s. Þetta er alls ekki dýrt, 7 dagar í gistingu, námið og fullt fæði á um 140þús á mann (fyrir utan flug) https://www.arthurfindlaycollege.org/Komdu og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkarwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
95
93. Samsæriskenningar um Tunglið
Samsæriskenningar um tunglið eru ansi margar. Sumir halda að tunglið sé ekki náttúrulegt heldur gervihnöttur eða jafnvel geimstöð sem fylgist með jörðinni og jafnvel stýri henni að hluta til. Aðrar kenningar eins og það að tunglið sé mögulega holt að innan eða innihaldi mannvirki sem hafi áhrif á jörðina og mannkynið og að leyndarmál séu falin á tunglinu eins og byggingar eða geimverur.Ein frægasta samsæriskenningin um Tunglið er að lendingin í Apollo 11 Moon Landing hafi verið sviðsett og að tunglferðir manna hafi aldrei átt sér stað og þessar ferðir hafa allar verið sviðsettar. Talsmenn þessarar kenningar benda á meintar „ósamræmi“ í myndum og myndböndum.Okkur finnst mjög skemmtilegt að velta þessum kenningum fyrir okkur og leifa ýmyndunaraflinu að taka okkur; "út fyrir endamörk alheimsins"!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
94
92. Geimfréttir með Gunnari Dan
Við fengum að vita það allra nýjasta og heitasta slúðrið úr geimfréttum með Gunnari Dan. Það er svo mikið að gerast í þessum málaflokk að það er eiginlega bara vandræðanlegt!En við ræddum m.a. um dularfullu morðin og mannshvörfin á vísindamönnunum sem flestir hafa tekið eftir í fjölmiðlum síðustu vikur og mánuði. Við snertum aðeins á samsæriskenningum um Epstein skjölin og Covid sem komið er á yfirborðið og margt margt fleira.Það er alltaf gaman að hitta Gunnar og fræðast um geimfréttir!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
93
91. Heilun - Trans heilun
Heilun snýst um að endurheimta þetta jafnvægi. Með því að vinna með orku og ásetning er markmiðið að styðja við náttúrulega getu líkamans til að stilla sig af. Aðferðir eins og Reiki, Englareiki, kristallaheilun og transheilun nálgast þetta á mismunandi hátt, en eiga það sameiginlegt að leitast við að róa taugakerfið, hreinsa orkuflæði og efla innri frið. Heilun þykir okkur magnað tól sem hjálpar okkur að ná ró og létta á orkulíkamanum, losa um orkustíflur og bæta flæðið og þá líður okkur betur.Í transheilun er lögð áhersla á að fara í djúpt meðvitundarástand þar sem heilari stillir sig á tíðni og verður jarðsamband fyrir ljósverur og "lækna að handan". Unnið er með skýrum ásetningi um að fá heilun sem hentar fyrir þyggjandann á þessum tímapunkti og ávallt er unnið með orku eða ljósverum sem eru tengdar hæðstu tíðni, hinum æðsta kærleika og vinnum með ljósinu.Sá sem er að heila er ekki heilarinn, heldur einungis millistykkið. Við tengjum okkur eins og útvarpsrás á ákveðna tíðni og gefum ljósverum aðgang að því að nota okkar líkama og orku til að koma heilun í gegn á þann sem á að taka við heiluninni. Þetta hljómar skrítið, en flestir hafa eflaust heyrt um "læknamiðla" en þetta er það sama nema við köllum þetta trans heilun, við ábyrgjumst aldrei lækningu og hvetjum fólk að leita til alvöru læknis ef það er eitthvað vandamál, en trans heilunin og þeir læknar að handan sem koma að heiluninni geta gert ansi mikið og margt, stundum kraftaverki líkast, en allt er orka, þeir jafna út orku og vinna með orkuflæði líkamans og oft á tíðum ef það hefur fest mikil neikvæð orka inn í líkamanum okkar þá getur það valdið sjúkdómum. Orkuvinna er því mjög mikilvæg til að halda öllu kerfinu í jafnvægi.Markmiðið er ekki að „laga“ eitthvað, heldur að styðja líkamann og orkukerfið við að finna sitt eigið náttúrulega jafnvægi.Taka skal fram að ALLIR hafa þennan hæfileika að geta heilað, þú getur heilað sjálfan þig. Það er ekkert eitt rétt og rangt í þessu, allt snýst þetta um ásetning, kraft og mátt hugans og orkuflæðið í líkamanum. Við getum læknað ansi margt í líkamanum okkar einungis með því að breyta hugsunum! Pælum aðeins í því!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
92
90. Búálfar
Búálfar eru ekki aðeins hluti af íslenskri þjóðtrú, heldur finnast svipaðar verur í sögum og menningu víða um heim. Þó að nöfnin og smáatriðin breytist milli landa, eiga þessar verur oft margt sameiginlegt.Á Norðurlöndum eru álfar og huldufólk talin búa í steinum, hólum og fjöllum. Þeir eru oft líkir mönnum í útliti en lifa aðskildu lífi og fylgja eigin reglum. Í keltneskri þjóðtrú, til dæmis á Írlandi og í Skotlandi, finnast verur sem kallast „fairies“.Í Þýskalandi og öðrum hlutum Mið-Evrópu eru til sögur af smáum verum sem líkjast búálfum og búa á heimilum fólks. Þær hjálpa stundum til við heimilisstörf á nóttunni, en aðeins ef þeim er sýnd virðing. Ef þær eru móðgaðar geta þær hins vegar valdið usla. Svipaðar hugmyndir má finna á fleiri stöðum út um allan heim, þar sem „domovoi“ eru heimilisandar sem vernda hús og fjölskyldur.Þessar sögur sýna að hugmyndin um hulduverur er nær alþjóðleg. Búálfar og skyldar verur endurspegla oft tengsl mannsins við náttúruna, óttann við hið óþekkta og löngunina til að útskýra það sem ekki er auðvelt að skilja. Hvort sem fólk trúir á þær eða ekki, lifa þessar verur áfram í menningu, sögum og ímyndunarafli fólks um allan heim.Komdu í áskrift á:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
91
89. Appalachia fjöllin
Appalachia fjöllin eru ein af elstu fjallakeðjum heims og hafa ríka sögu bæði jarðfræðilega og menningarlega. Fjöllin eru þekkt fyrir fallegt landslag, stóra skóga og fjölbreytt lífríki sem hefur varðveist í þúsundir ára.Hið dularfulla við Appalachia er margþætt. Fyrst ber að nefna náttúruna sjálfa. Þykku skógarnir, dimma dali sem skapa ævintýralega stemningu. Þar hafa fundist margir fornir hellar, falin vötn og ósnortin svæði sem minna á að menn eru aðeins gestir í þessari miklu náttúru. Þessar afskekktu byggðir hafa oft verið staðir goðsagna, þar sem sögur af huldufólki og fleiri dularfullum verum hafa lifað frá kynslóð til kynslóðar.En Appalachia er einnig staður þar sem yfirnáttúrulegir hlutir eiga sér stað. Þarna hafa orðið endalaus dularfull mannshvörf, skinwalkers, big foot, geimverur, mannætur, draugar, portals og í raun og veru allt sem þú getur ýmyndað þér er á þessu svæði!Þetta hefur gefið svæðinu orðspor sem eitt af „yfirnáttúrulegastu fjallasvæðum“ Bandaríkjanna.Mentioned in this episode:Komdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
90
88. Dark web
The dark web er hluti af internetinu sem er ekki aðgengilegur með hefðbundnum vöfrum eins og Chrome eða Safari. Til að komast inn á það þarf sérstakan hugbúnað, til dæmis Tor, sem felur auðkenni notenda og gerir þeim kleift að vafra um nafnlaust.Dark web er þekkt fyrir ólöglega starfsemi. Þar má finna markaði fyrir fíkniefni, stolnar upplýsingar, fölsuð skilríki, morð, mannakjöt og allskonar ólöglega þjónustu. Vegna nafnleyndarinnar er erfitt fyrir yfirvöld að rekja notendur, sem gerir svæðið aðlaðandi fyrir glæpastarfsemi.Fólk fer á dark web af mjög mismunandi ástæðum og það er mikilvægt að skilja að ekki allir sem nota dark web hafa slæman ásetning. Fyrir suma snýst þetta um nafnleynd og frelsi eins og í löndum þar sem tjáningarfrelsi er takmarkað þá getur dark web verið eina leiðin til að nálgast upplýsingar, tala frjálst eða hafa samband við umheiminn án eftirlits. Blaðamenn og uppljóstrarar nota það stundum til að vernda heimildir sínar og sjálfa sig.Vertu hluti af yfirnttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
89
87. Fyrrilífs dáleiðsla - upplifun!
Eftir að við tókum viðtalið við hina mögnuðu Vigdísi þá fór Selma í fyrrilífs dáleiðslu til hennar um daginn og auðvitað kom Dagný með og fylgdist með.Þetta var vægast sagt MÖGNUÐ upplifun! Við förum yfir þetta allt í þessum þætti og Selma fer á persónulegu nóturnar og opnar sig upp á gátt. Þessi upplifun var svo áhrifarík og blandar Vigdís öflugri heilun saman við fyrrilífs dáleiðsluna og vinnur þannig með líkamanum, losar og heilar.
-
88
86. Mandela effect
Mandela Effect er eitt af þessum fyrirbærum sem fær mann til að efast um sjálfa raunveruleikann. Hugtakið er kennt við Nelson Mandela, því margir muna eftir því að hann hafi dáið í fangelsi á níunda áratugnum, þó að hann hafi í raun lifað lengi eftir það. Þetta er ekki bara einföld minnisvilla hjá einum einstaklingi, heldur eitthvað sem virðist tengja saman heila hópa fólks sem deila sömu „röngu“ minningunni.En hvað ef þetta er ekki bara mistök í heilanum? Hvað ef þetta er eitthvað meira?Í yfirnáttúrulegri umræðu er Mandela Effect oft túlkað sem merki um að raunveruleikinn sé ekki eins stöðugur og við höldum. Sumir telja að við séum að upplifa skörun á milli mismunandi tímalína eða jafnvel parallel heima. Í slíkri hugmynd gæti eitthvað hafa breyst, lítil smáatriði eins og nöfn, setningar eða útlit hluta og við sem höfum einhvern veginn „minningar“ úr annarri útgáfu af veruleikanum tökum eftir því.Mentioned in this episode:Komdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
87
85. Arthur Findlay "nornaskóli"
Við erum svo spenntar að segja ykkur frá því að núna 10. apríl erum við á leiðinni til Arthur Findlay collage að læra trans heilun!Í þessum þætti ræðum við um þennan spiritual skóla og söguna á bak við hann. Við komum svo fullar af fróðleik tilbaka og hlökkum til að segja ykkur allt af létta frá okkar upplifunum, hvað við lærðum og hvernig var í þessum magnaða skóla.komud í áskriftwww.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
86
84. Mount Shasta - Yfirnáttúrulegt fjall
Mount Shasta er fjall í norðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum sem hefur lengi verið talið eitt af dularfyllstu og andlegu stöðum heims. Fyrir marga er það ekki aðeins náttúruundur heldur einnig orkustaður þar sem tenging við andlega heima er sterkari en annars staðar. Fjallið hefur laðað að sér leitendur, hugleiðendur og andlega kennara sem telja að þar sé að finna sérstaka tíðni eða vitund sem hægt er að tengjast.Í kringum Mount Shasta hafa myndast margar sögur og trúarhugmyndir, og ein sú þekktasta tengist Lemúríu. Lemúría er talin vera fornt og háþróað samfélag eða heimsálfa sem átti að hafa sokkið í hafið fyrir þúsundum ára. Nú er sagt að Lemúríu búar hafi byggt sér neðanjarðar borg undir Mount Sjasta og búa saman í djúpri sátt við náttúruna og höfðu þróað með sér mikla andlega visku og hæfileika sem nútímamaðurinn hefur að mestu gleymt.Sagan segir að hluti af íbúum Lemúríu hafi sloppið undan eyðingu heimsálfunnar og fundið sér skjól undir Mount Shasta. Þar eigi þeir að hafa byggt upp falda borg, oft kölluð Telos, þar sem þeir lifa enn í dag á hærra meðvitundarstigi. Þeir eru sagðir vera friðsælir, upplýstir og vinna að því að hjálpa mannkyninu að þróast andlega, þó þeir birtist sjaldan beint.Fyrir þá sem trúa á þessar hugmyndir er Mount Shasta eins konar hlið milli heima staður þar sem efnislegi og andlegi veruleikinn mætast. Margir sem heimsækja fjallið segja frá sterkum upplifunum, eins og auknu innsæi, djúpri ró eða tilfinningu fyrir tengingu við eitthvað stærra en sjálfa sig. Aðrir líta á þetta sem táknrænar sögur sem endurspegla þrá mannsins eftir uppruna, tilgangi og andlegri vakningu.Hvort sem litið er á Lemúríu sem sögulega staðreynd, goðsögn eða andlega myndlíkingu, þá hefur þessi saga haft djúp áhrif á nútíma andlega menningu. Hún minnir á möguleikann á öðrum leiðum til að lifa í meiri samhljómi við náttúruna, hvort annað og eigin innri visku.Þetta magnaða fjall er einnig einn helsti UFO hot spot í Bandaríkjunum. Geimskip hafa sést koma inn og út úr fjallinu.Komdu í áskrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
85
83. Vigdís Steinþórsdóttir - seinni hluti (fyrrilífs dáleiðsla)
Við höldum áfram að ræða við hana mögnuðu Vigdísi um fyrrilífs dáleiðslur og hvernir karma og fyrrilífin hafa áhrif á okkur í þessu lífi.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskriftwww.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
84
82. Vigdís Steinþórsdóttir - Fyrrilífs dáleiðari, heilari og hjúkrunarfræðingur.
Gestur dagsins er engin önnur en Vigdís Steinþórsdóttir. En þessi magnaða kona er hjúkrunarfræðingur, heilari, fyrralífs dáleiðari og hreint út sagt alveg mögnuð kona.Vigdís er hokin af reynslu, alger norn af náttúrunnar hendi, ótrúlega næm og mikil ljósvera.Hún heldur kærleiksdaga út um allt land sem er nærandi samvera fyrir líkama og sál.Einnig er hún með Heimsljós messuna og Heilunar guðþjónustur.Þetta er fyrrihlutinn af tveimur þáttur með henni Vigdísi.Mentioned in this episode:Komdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
83
81. Drekar
Drekar hafa um aldir verið meðal dularfyllstu og kraftmestu veranna í goðsögnum og trúarhefðum heimsins. Þeir birtast í ólíkum myndum eftir menningarheimum.Margir í dag upplifa sterka tengingu við svokallaða drekaorku og líta á hana sem hluta af eigin andlegu ferðalagi. Fyrir þeim er þetta ekki bókstafleg trú á líkamlega dreka, heldur tilfinning fyrir ákveðinni orku eða meðvitund sem tengist styrk, vernd og umbreytingu. Drekaorkan er oft lýst sem kraftmikil, djúp og stundum eldfim orka sem getur bæði byggt upp og brotið niður, eftir því hvernig henni er beint.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
82
80. Samskiptaleiðir framliðna
Margar frásagnir víðs vegar um heiminn benda til þess að framliðnir geti, með ýmsum hætti reynt að senda skilaboð til okkar.Ein algengasta leiðin er í gegnum drauma. Fólk lýsir því oft að hafa séð látna ástvini í draumi sem virðast óvenju raunverulegir, næstum eins og heimsókn frekar en ímyndun. Í slíkum draumum koma oft framliðnir með skilaboð til dreymanda.Önnur algeng leið er svona rafræn truflun þar sem framliðnir geta haft áhrif á rafmagnstæki, látið ljós blikka eða hljóð sem birtast upp úr engu.Einnig eru til sögur af því að framliðnir noti umhverfið til að vekja athygli, hlutir sem hreyfast, hurðir sem opnast eða lokast og jafnvel skyndileg breyting á hitastigi í herbergi. Fyrir þá sem upplifa slíkt getur það verið bæði ógnvekjandi og heillandi á sama tíma.En hvernig eigum við að skynja slík samskipti? Sumir telja að lykillinn liggi í næmni okkar sjálfra. Fólk talar um innsæi sem getur hjálpað okkur að taka eftir því sem annars fer framhjá okkur. Þetta getur birst sem sterk tilfinning um nærveru, kuldahrollur án augljósrar ástæðu eða skyndileg tilfinning um að vera ekki einn.Komdu í áskrift áwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
81
79. Andaglas, Pendúll og Rods prik - samskiptatæki við framliðna.
Í gegnum aldir hafa fólk notað ýmis verkfæri til að reyna að fá svör við spurningum eða jafnvel hafa samband við andaheiminn. Við skoðum þrjú samskiptartæki við hina látnu, andaglas, pendúl og rods prikin.Andaglas er borð sem yfirleitt er merkt með stöfum, tölum og orðunum „já“ og „nei“. Þegar það er notað setja þátttakendur fingurna létt á lítið glas eða planchette sem er sett á borðið. Síðan eru spurningar spurðar og glerið virðist hreyfast yfir stafi til að mynda orð eða svör.Pendúl er annað tæki sem oft er notað í svipuðum tilgangi. Pendúl er einfaldlega lítill hlutur, til dæmis kristall eða hringur, sem hangir í keðju eða snúru. Sá sem notar pendúlinn heldur honum kyrrum yfir höndinni eða yfir ákveðnu svæði og spyr spurninga. Hreyfingar pendúlsins eru síðan túlkaðar sem svör. Til dæmis getur hreyfing fram og til baka táknað „já“, en hreyfing frá hlið til hliðar „nei“. Sumir nota pendúl til að reyna að finna hluti, fá svör við spurningum eða skynja orku.Rods eru tvö L-laga málmprik sem haldin eru í höndum. Prikin skynja orku og hreyfst í kross eða til hliðar. Í gegnum söguna hafa sumir notað þessi prik til að reyna að finna vatn undir jörðu, málma eða aðrar falnar auðlindir. Í paranormal samhengi telja sumir að prikin geti líka brugðist við orku eða jafnvel nærveru anda.Við erum á persónulegu nótunum þegar við ræðum um Rods prikin þar sem við upplifðum svo magnaða hluti saman í gegnum prikin að við urðum eiginlega orðlausar yfir því sem kom í gegn og við urðum að deila því með ykkur!Komdu í áskrift áwww.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
80
78. Klón
Klónun er ekki vísindaskáldskapur, Klón er tækni sem notuð í heiminum í dag!Frá því að sauðkindin Dolly var klónuð árið 1996 breyttist allt. Vísindamenn sýndu að hægt væri að endurskapa líf úr einni frumu. En spurningin er ekki bara hvernig er klónað heldur afhverju er verið að klóna?Hver var raunverulegur tilgangur klónunar? Er það til þess að bjarga dýrategundum, eða til þess að þróa lækningar, Eða eitthvað miklu dularfyllra en það.....?Sumir velta því fyrir sér hvort klón þekkingin hafi komið hraðar en hún ætti að gera og mögulega tæknileg viska frá ójarðnenskum verum.Í þessum þætti skoðum við staðreyndirnar um klónun, tilgang hennar og þær dularfullu spurningar sem fylgja henni. Við köfum í samsæriskenningar um klónin í Hollywood og hverjir eru taldir vera klónaðir, eru þeir sem eru á bak við klónun á fólki mögulega Iluminati?Stundum er raunveruleikinn bara miklu ótrúlegri en skáldskapurinn.Mentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
79
77. Sálarskipti
Hvað ef sálin er ekki bundin líkamanum?Hvað ef „þú“ ert ekki líkaminn þinn heldur eitthvað sem hægt er að færa?Sálarskipti, eða soul swapping, er hugmynd sem hefur birst í fornum trúarhugmyndum, dulfræðum kenningum og nútíma samsærisumræðu. Sumir trúa því að meðvitund sé orka sem hægt sé að flytja á milli líkama. og að það sé til tækni sem getur tekið persónuleika, minningar, taugakerfið ofl. og fært það allt saman yfir í annan líkama og halda áfram að lifa í þeim líkama!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift áwww.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
78
76. Ýmsar yfirnáttúrulegar verur
Í dag ætlum við að kafa inn í heim yfirnáttúrulegra vera, furðulegra, dularfullra og stundum ógnvekjandi fyrirbæra sem hafa fylgt mannkyninu í gegnum aldirnar.Við kynnumst m.a. verum sem kallast Selkies úr Íslenskum þjóðsögum, en þetta eru selir sem geta farið úr ham sínum og breyst í menn.Fresno Nightkrawler er undarleg vera sem er eiginlega bara hægt að lýsa sem krúttlegir hvítir fætur og án frekari útlima. Árið 2007 náði öryggismyndavél í borginni Fresno undarlegu fyrirbæri á filmu sem síðar fékk nafnið Fresno Nightcrawler.Kentár er hálfur hestur og hálfur maður, þessi vera kemur úr grískri goðafræði. Kentárar bjuggu í fjöllum og skógum og voru oft taldir villtir, drykkfelldir og óstýrilátir. Þeir tákna oft frumkraft, dýrslegt eðli og togstreitu milli siðmenningar og eðlishvatar.Við kynnumst einnig Fönix fuglinn sem rís úr öskunni, djöfullegri veru sem kallast Keres.Mentioned in this episode:Komdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
77
75. Geimfréttir með Gunnari Dan - seinni hluti
Við höldum áfram þar sem við hættum með honum Gunnari Dan geimveru sérfræðing.Bókin Ufo 101 er að finna á flestum stöðum þar sem þú getur keypt bækur! Þetta er svo falleg og vegleg bók sem enginn áhugamaður um ójarðnensk öfl og verur ætti að láta fram hjá sér fara!Ufo 101:Við erum ekki ein! Jörðina heimsækja reglulega gestir utan úr geimnum sem búa yfir langtum þróaðri tækni en við mannfólkið. Þessar heimsóknir skilja eftir sig spor. Fjöldi fólks hefur sagt frá samskiptum við aðkomnar verur. Enn fleiri eru til vitnis um geimverur hér á jörð en óttast að stíga fram og segja frá reynslu sinni.En nú hefur hulunni verið svipt af sannleikanum og frekari upplýsingar eru að koma í ljós. Vitnaleiðslur fyrir Bandaríkjaþingi sýna hvernig djúpríki og leyniþjónustur rannsaka geimverur og tækni þeirra en halda vitneskju jafnframt frá almenningi.Gunnar Dan fjallar hér með lifandi og grípandi hætti um geimverur, fljúgandi furðuhluti og sögu samskipta mannkyns við ójarðneskar verur.
-
76
74. Geimfréttir með Gunnari Dan - fyrsti hluti
Í þessum þætti förum við um víðan völl og fáum að vita allt það heitasta og nýjasta í geimfréttum. Það er ekkert skemmtilegra en að kíkja í kaffi til Gunnars og heyra æsifréttirnar í ufo og geimveru heiminum!Gunnar er okkar helsti geimveru sérfræðingur og var hann að gefa út bókina Ufo 101 og er önnur bók í smíðum og kemur út í haust.Bókin Ufo 101 er að finna á flestum stöðum sem selja bækur! Við mælum svo sannarlega með að þið tryggið ykkur eintak eða leigið á bókasafni og kíkið á þessa mögnuðu bók!Ufo 101:Við erum ekki ein! Jörðina heimsækja reglulega gestir utan úr geimnum sem búa yfir langtum þróaðri tækni en við mannfólkið. Þessar heimsóknir skilja eftir sig spor. Fjöldi fólks hefur sagt frá samskiptum við aðkomnar verur. Enn fleiri eru til vitnis um geimverur hér á jörð en óttast að stíga fram og segja frá reynslu sinni.En nú hefur hulunni verið svipt af sannleikanum og frekari upplýsingar eru að koma í ljós. Vitnaleiðslur fyrir Bandaríkjaþingi sýna hvernig djúpríki og leyniþjónustur rannsaka geimverur og tækni þeirra en halda vitneskju jafnframt frá almenningi.Gunnar Dan fjallar hér með lifandi og grípandi hætti um geimverur, fljúgandi furðuhluti og sögu samskipta mannkyns við ójarðneskar verur.Mentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskrift
-
75
73. Brottnáms upplifanir eða hvað?
Í þættinum í dag köfum við ofan í bresku heimildarmyndina Confessions of an Alien Abductee, þar sem fylgst var með fólki sem taldi sig hafa verið brottnumið ítrekað yfir ævina.Í þáttunum eru m.a. lýsingar frá manni sem heldur því fram að hann eigi móður sem er geimvera og einnig að hann hafi átt í nánu og kynferðislegu sambandi við veru utan úr geimnum, samband sem hann lýsir sem bæði líkamlegu og tilfinningalegu.Við kynnumst einnig einstaklingum sem lýsa endurteknum heimsóknum og æknisfræðilegum „aðgerðum“ um borð í óþekktum farartækjum.Sumir viðmælendurnir líta á þessar upplifanir sem köllun eða sérstakt hlutverk í stærra kosmísku samhengi. Aðrir lýsa djúpum ótta, skömm og einangrun og baráttu við að fá einhvern til að trúa sér.Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu í áskrift inn á www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
74
72. Svefnrofalömun eða sleep paralysis
Svefnlömun er ástand þar sem heilinn er vakandi en líkaminn er enn í djúpsvefni og þú getur ekki hreyft líkamann. Þetta gerist vegna þess að í REM-svefni slakar líkaminn á vöðvum til að koma í veg fyrir að við framkvæmum draumana okkar. Stundum vaknar meðvitundin áður en þessi vöðvalömun hverfur og þá upplifir einstaklingurinn að hann sé vakandi en fastur í eigin líkama.Margir sem upplifa svefnlömun segja að hún geti verið mjög ógnvekjandi. Algengt er að finna fyrir þrýstingi á brjósti, erfiðleikum við að anda og sterkri tilfinningu um ótta. Sumir upplifa einnig ofskynjanir, það er að sjá, heyra eða skynja hluti sem eru ekki raunverulega til staðar.Fólk sem hefur upplifað svefnrofalömun lýsa flest svipuðum hræðilegum verum sem þau sjá í þessu ástandi, þar má nefna: skuggaveru sem stendur í horni herbergisins eða við rúmið, púka eða djöfullegar verur, gamla konu sem er hræðileg, geimverur og allskonar hræðilegar verur.Önnur algeng lýsing er vera sem situr á brjósti viðkomandi. Fólk finnur þá fyrir miklum þrýstingi á bringunni og á erfitt með að anda.Sumir upplifa að veran hvísli, gefi frá sér hljóð eða reyni jafnvel að snerta þá. Í nútímanum tengja sumir slíkar upplifanir við geimverur eða svokallaðar „alien abductions“ þar sem fólk upplifir að vera rannsakað eða numið brott.Svefnlömun er í sjálfu sér ekki hættuleg, en hún getur verið mjög raunveruleg og skelfileg fyrir þann sem upplifir hana.Mentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskrift
-
73
71. The Glimmer man
Í dag ætlum við að fjalla um dularfullt fyrirbæri sem kallast The Glimmer Man. Við viljum taka fram að það var mikill galsi og gleði í þessari upptöku! En okkur þykir bara svoooooo gaman að taka svona undarleg mál fyrir og erfitt að vera ekki í smá hláturskassti á meðan...ENThe Glimmer man er heiti sem sumir nota yfir yfirnáttúrulega veru eða skugga sem fólk segist hafa séð, en sem er ekki alveg sýnilegur. Fólk sem lýsir The Glimmer Man segir oft að fyrirbærið líti út eins og mannslaga skuggi sem er gegnsær en með glóandi augu.Það eru margar kenningar um hvað þetta gæti verið. Sumir halda að þetta séu andar eða aðrar yfirnáttúrulegar verur. Aðrir telja að um geti verið að ræða geimverur með háþróaða tækni sem gerir þær ósýnilegar. Enn aðrir nefna möguleikann á verum úr annarri vídd. Hins vegar eru engar vísindalegar sannanir sem styðja þessar hugmyndir.
-
72
70. Remote viewing
Remote viewing er lýst sem aðferð þar sem einstaklingur reynir að fá upplýsingar um fjarlægan stað, hlut eða atburð án þess að vera líkamlega til staðar, og án þess að nota hefðbundin skynfæri.Hugmyndin byggir á því að vitundin sé ekki bundin við tíma og rúm, heldur geti hún ferðast, skynjað og upplifað veruleika sem liggur utan hefðbundinna skynfæra. Margir sem hafa stundað remote viewing lýsa upplifunum sem minna á djúpa hugleiðslu, innsæi eða meðvitaða tengingu við stærra svið upplýsinga.Sumir tala um upplifanir þar sem vitundin hefur ferðast til tunglsins, þar sem þeir lýsa landslagi, mannvirkjum eða tilfinningu fyrir nærveru sem þeir telja ekki vera tilviljun. Aðrir segja frá sýnum tengdum svæðum eins og Area 51, þar sem þeir upplifa aðgang að upplýsingum sem eru faldar almenningi, hvort sem það er í formi tákna, mynda eða tilfinninga sem koma fram í djúpu einbeitingarástandi.Mentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
71
69. Fake miðlar
Í dag ætlum við að ræða andlega miðla og spámiðla nánar tiltekið þá sem eru ekki að starfa af heiðarleika. Margir leita í andlega þjónustu á erfiðum tímum í lífinu: í sorg, óvissu eða þegar fólk er að leita að svörum en þar liggur líka hættan.Því miður eru til einstaklingar sem nýta sér trú, vonir og viðkvæma stöðu fólks í eigin þágu. Þeir geta notað almenn orð, sálfræðileg brögð og óljósar spár sem hljóma persónulegar án þess að hafa raunverulega innsýn eða getu.Markmið þessa þáttar er ekki að gera lítið úr trú fólks eða andlegri leit, heldur að:Vekja athygli á því að ekki eru allir með góðan ásetning og sækjast í peninga og misnota vald sitt.Við tölum um rauðu flöggin sem birtast hjá fake miðlum.Lang flestir þarna úti eru heiðarlegir og með hjartað á réttum stað, en því miður er fólk að lenda í svikaprettum á viðkvæmum tímum og við viljum vekja athygli á því í þessum þætti.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
70
68. Man in black
Ef þú skyldir sjá fljúgandi furðuhlut eða eitthvað yfirnáttúrulegt sem er ekki á þessari jarðvist og segir frá því, þá gætu komið dularfullir menn í heimsókn til þín. Þetta eru mennirnir í svörtu jakkafötunum með svarta hatta og sólgleraugu þekktir sem Man in black og er kvikmyndin Man in black byggð á þessum mönnum.Það veit enginn fyrir hverja þeir starfa en eitt er víst að þeir eru mjög dularfullir og geta verið ógnvekjandi með þann ásetning að fjarlægja sönnunargögn eða fá þig til að tala ekki um það sem þú sást opinberlega. Fólk sem hefur fengið heimsókn frá þessum mönnum hafa lýst þeim sem mjög hávöxnum og sviplausum, það undarlega er að þeir vita allt um þig og fjölskylduna þína.Komdu í áskrift áwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
69
67. Dularfullar kenningar um sjóinn
Sjórinn er eitt mesta ráðgátaumhverfi Jarðar. Þrátt fyrir að hann þeki meirihluta yfirborðs plánetunnar höfum við aðeins rannsakað lítið brot af djúpinu. Þetta óþekkta rými hefur í gegnum aldirnar alið af sér fjölda samsæriskenninga.Ein sú elsta snýst um glataðar neðansjávarsiðmenningar, líkt og Atlantis, og möguleg manngerð mannvirki sem sumir telja hafa fundist á hafsbotni. Aðrir beina athyglinni að óþekktum lífverum í djúpinu, risavaxnum skrímslum úr sögum sjómanna sem fá nýtt líf í ljósi þess að nýjar og framandi sjávartegundir finnast enn í dag.Einnig hafa komið fram kenningar um leynilegar herstöðvar stórvelda á hafsbotni, sérstaklega í tengslum við kalda stríðið, sem og fræga goðsögn um Bermúdaþríhyrninginn þar sem skip og flugvélar eiga að hverfa með óútskýrðum hætti. Á síðari árum hafa svo sögur um óþekkt fyrirbæri sem fara inn og út úr sjónum ýtt undir hugmyndir um tengsl hafsins við geimverur.
-
68
66. Skinwalkers og Mimics
Þetta eru verur sem eiga rætur í þjóðtrú og geta tekið á sig mynd dýra… eða jafnvel manna.Þessar óhugnanlegu verur þær fylgjast með, læra og herma.Á afskekktum búgarði í Utah betur þekktur sem Skinwalker Ranch. Þar hefur fólk í áratugi greint frá óútskýranlegum atburðum eins oghræðilegar verur á reiki, dýr eru drepin á hrottalegan hátt og svo sjást þessar ógeðslegu verur á kreiki sem vilja ekkert nema nærast á óttanum.
-
67
65. Risar
Risar hafa fylgt okkur í gegnum mannkynnsöguna og birtast þeir í fornum goðsögnum, í biblíunni, í þjóðsögum og jafnvel í landslagi jarðarinnar sjálfrar. En hvað ef þessar sögur eru ekki bara táknrænar? Hvað ef þær lýsa raunverulegum verum og atburðum sem hafa verið fjarlægðir úr sögunum til að fela eitthvað?Í þessum þætti skoðum við sögur af risum í Biblíunni, eins og Nefílím og köfum í samsæriskenningar sem halda því fram að ummerki um risa hafi verið markvisst þögguð niður. Þar á meðal eru furðuleg fjöll og landslagsmyndir sem sumir telja vera risavaxna trjástubba en eru mögulega leifar af risavöxnum trjám sem eitt sinn gætu hafa þakið jörðina.Komdu í áskrift og hlustaðu á þáttinn í fullri lengd á www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
66
64. Gateway experience
Við ætlum að kafa í Monroe Institute og Gateway hugleiðslurnar, kerfi sem var ekki aðeins þróað fyrir andlega leitendur, heldur einnig rannsakað og notað af CIA.Monroe Institute er skóli og rannsóknarsetur sem hefur í áratugi kennt fólki að kanna meðvitund sína með kerfisbundnum aðferðum.Gateway hugleiðslurnar eiga að geta opnað aðgang að breytt meðvitundarástandi þannig þú getur þjálfað þig upp í m.a. remote viewing og astral traveling. Þetta er ekki alveg hefðbundin hugleiðsla, heldur þjálfun sem byggir á nákvæmlega hönnuðum og vísindalega hönnuðum hljóðupptökum til að hjálpa þér að ná ákveðnum ásetningi.Komdu í áskrift inn á www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
65
63. Óútskýrðu ljósin í Hessdalen
Hessdalen er pínu lítill dalur í Noregi. Þar hafa óútskýrð ljós birst á himninum í marga áratugi, ljós sem svífa hljóðlaust, þau breyta um lit og lögun, og skjótast fram og hverfa án skýringa. Ljósin hafa verið séð af heimamönnum, ferðamönnum og eru mæld með vísindatækjum og hafa verið rannsökuð í meira en 40 ár!Hessdalen er talinn einn helsti UFO-hot spot í Evrópu. Þar hafa sést óvenju mörg óútskýrðir fljúgandi furðuhlutir. Í þessum þætti skoðum við Hessdalen ljósin, mögulegar náttúrulegar skýringar, UFO-kenningar og hvers vegna þessi litli dalur heldur áfram að draga að sér bæði vísindamenn og áhugafólk um hið óþekkta.Vertu hluti áf yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
64
62. Gate program
The GATE Program for the gifted and talented.Opinberlega átti þetta að vera prógramm fyrir hæfileikaríkt fólk. En samkvæmt frásögnum þeirra sem fóru í gegnum það, var GATE program svo miklu meira og dularfyllra en það.Börn voru tekin í fram í greindarpróf og allskonar sálfræðilegar greiningar, viðbragðspróf, blóðprufur og heyrnamælingar sem áttu að greina hvernig fólk skynjaði tíðnir, boð og áreiti. Allt endaði þetta með munnskoli í lokinn.Sumir segja að markmiðið hafi verið að finna einstaklinga sem hugsuðu öðruvísi, börn sem voru extra næm og jafnvel skyggn sem gætu þá unnið verkefni fyrir cia....
-
63
61. Mall world - draumaheimur
The Mall World er dularfullur og endurtekinn draumaheimur sem margir lýsa að heimsækja aftur og aftur í draumum sínum. Hann birtist oft sem risastór innanhússheimur sem sameinar verslunarmiðstöðvar, hótel, flugvelli, skóla, sundlaugar og óendanlega ganga sem virðast tengjast á óskiljanlegan hátt. Þrátt fyrir að um draum sé að ræða, upplifa margir staðinn sem óvenju raunverulegan og það skrítan er að fólk sem dreymir sig inni í Mall world lýsa umhverfinu alveg eins. Það er nánast eins og margar sálir séu farnar í þennan heim á næturna, en bara þessar völdu sálir. Afhverju dreyma þetta bara sumir en ekki allir? Það höfum við ekki hugmynd um!Sumir telja að heimurinn endurspegli undirmeðvitundina, félagslegt álag eða flótta frá raunveruleikanum, á meðan aðrir líta á hann sem sameiginlegt draumarými sem margir tengjast. Aðrir segja að þetta tengist The Gate program eða jafnvel geimverum!Allavega þetta er stórundarlegur heimur sem frú Dagný hefur oft og mörgum sinnum heimsótt, hvað þetta er í alvörunni vitum við ekki, en við erum sammála um það að þetta er frekar dularfullt, jafnvel smá óhugnanlegt.
-
62
60. Bermuda þríhyrningurinn
Í dag ætlum við að tala um einn dularfyllsta stað jarðar, Bermuda-þríhyrninginn.Bermuda-þríhyrningurinn er svæði í Norður-Atlantshafi, afmarkað lauslega af Flórída, Bermúdaeyjum og Púertó Ríkó. Í áratugi hafa sögur gengið um óútskýrð hvarf skipa og flugvéla á þessu svæði. Sumir kenna um óvenjuleg segulsvið, aðrir tala um tímagáttir, geimverur eða jafnvel týnda heimsálfu Atlantíku.Er Bermuda-þríhyrningurinn raunverulegt fyrirbæri sem vísindin ná ekki utan um, eða er þetta einfaldlega samansafn ýktra sagna, rangra skýrslna og mannlegra mistaka?Í þessum þætti ætlum við að kafa ofan í söguna, frægustu hvörfin og vísindalegu skýringarnar á bak við þennan umdeilda stað og reyna að svara spurningunni:Er Bermuda-þríhyrningurinn raunverulega jafn hættulegur og orðspor hans segir til um?Mentioned in this episode:Komdu í áskrift
-
61
59. Fyrri líf
Fyrrilífs upplifanir
-
60
58. Áramóta þáttur
Gleðilegt nýtt ár kæru hlustendur.Mentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
59
57. The Goatman
Í þessum þætti ætlum við að ræða The Goatman Bridge, eina alræmdustu og óhugnanlegustu þjóðsögu Bandaríkjanna. Brúin, sem stendur í Texas, hefur um árabil verið tengd sögum af dularfullri veru, óútskýrðum hljóðum og hræðileg atvik hafa átt sér stað á þessari brú.
-
58
56. Jólaþáttur
Hér kemur einn jólaþáttur með yfirnáttúrulegum brag! Við vonum að þið séuð að njóta hátíðarinnar og umvefja ykkur af öllu því sem þið elskið. Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.Yfirnáttúrulegar jólakveðjur frá okkurSelma og DagnýMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
57
55. skyggnigáfur
Í þessum þætti ætlum við að tala um hinar ýmsu tegundir af skyggnigáfum og dulrænni skynjun.Mentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxÞú getur nálgast galdraboxin okkar með því að senda okkur skilaboð eða kíkja í Mistur Stórhöfða 33.
-
56
54. Námskeið trans heilun og þjálfun miðilshæfileika
Í þessum þætti ætlum við að segja ykkur frá upplifun okkar á námskeiðum sem við fórum á hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands. Við fórum á tvö námskeið saman: Þjálfun miðilshæfileika og Transheilun hjá Ásthildi Sumarliðadóttur sem er alveg dásamlegur kennari! Dagný fór einnig á námskeið hjá Ásthildi þar sem var blandað saman miðilshæfileikum og listræn sköpun og segir frá því námskeiði í stuttu máli.Við lærðum svo rosalega mikið á þessum námskeiðum og það sem kom okkur svo skemmtilega á óvart er að það geta ALLIR þjálfað upp sína miðils- og heilunarmátt.Næsta námskeið hjá Ásthildi í Sálarransóknarfélagi Íslands: Þjálfun Miðilshæfileikans verður haldið helgina 10. og 11. janúar og hér er hlekkur inn á Facebook viðburðinn: https://fb.me/e/7bXrsid5gHér er svo hlekkur inn á heimasíðu Sálarransóknarfélagi Íslands: https://www.srfi.is/ Mentioned in this episode:GaldraboxÞú getur nálgast galdraboxin okkar með því að senda okkur skilaboð eða kíkja í Mistur Stórhöfða 33.Komdu í áskriftd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
55
53. Verndarar og leiðbeinendur, Áskriftarþáttur
Í þessum þætti ætlum við að ræða saman um verndara og leiðbeinendur. Eru allir með verndara og leiðbeinendur? Erum við með marga í kringum okkur? Hvernig getum við styrkt samband okkar við verndara okkar og leiðbeinendur?Við veltum þessum spurningum fyrir okkur, ræðum okkar upplifanir og hvernig við tengjum okkur við okkar verndara.
-
54
52. Árur
Í þesusm þætti tölum við um árur. Hvað er ára? Ára er orkulegur ljómi eða svið sem umlykur manneskju. Sumir sjá eða skynja árur sem liti, á meðan aðrir upplifa þær frekar sem tilfinningu í kringum fólk.Litirnir eru sagðir endurspegla mismunandi orkuleg ástand, til dæmis ró, spennu, sjálfstraust eða sköpun. Sérð þú árur?Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:Komdu í áskrift
-
53
51. Dolores Cannon
Í dag ætlum við að kafa inn í líf og kenningar konu sem hefur haft gríðarleg áhrif á andleg fræði, dáleiðslu og andleg málefni. Dolores Cannon var bandarískur rithöfundur, fyrirlesari og dáleiðslusérfræðingur sem starfaði í meira en fjóra áratugi og þróaði aðferð sem margir telja hafa opnað nýjar dyr inn í undirmeðvitundina, aðferð sem hún kallaði Quantum Healing Hypnosis Technique, eða QHHT.Ferill Doloresar byrjaði á sjöunda áratugnum þegar hún og eiginmaður hennar unnu saman að hefðbundinni dáleiðslu. En fljótlega fór hún að verða vitni að frásögnum skjólstæðinga sem virtust koma frá öðrum stöðum, öðrum tímum og jafnvel öðrum lífum. Þessar reynslur vöktu forvitni hennar og hún ákvað að rannsaka þær nánar.Cannon skrifaði yfir tuttugu bækur þar sem hún setti fram niðurstöður úr samtölum með þúsundum skjólstæðinga. Í þessum þætti ætlum við að skoða nánar hver Dolores Cannon var, hvað hún kenndi, og hvers vegna hún varð svo áhrifamikil persóna innan andlegra fræða. Hvernig virkar QHHT í raun? Hvað sögðu skjólstæðingar hennar? Og hvað er það við hugmyndir hennar sem heldur áfram að heilla fólk enn þann dag í dag?Mentioned in this episode:Komdu í áskrift
-
52
50. Draumar
Í þessum þætti förum við í spennandi og dularfullt ferðalag inn í draumaheim, þar sem rökhugsun víkur fyrir tilfinningum og djúpum boðum úr undirmeðvitundinni.Geta draumar verið yfirnáttúrulegir?Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:Komdu í áskriftd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
51
49. Tímaflakk
Í þessum þætti köfum í eitt mest heillandi fyrirbæri vísindanna, tímaflakk. Í aldaraðir hefur mannkynið spurt sig hvort hægt sé að ferðast fram eða aftur í tímann.Ætli það sé mögulegt að ferðast um tíma?Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift á www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
50
48. Bashar
Í þessum þætti ræðum við um Bashar, en það er andleg vera sem hann Darryl Anka segist miðla í gegnum sig í djúpu transi.Darryl Anka byrjaði feril sinn sem kvikmyndagerðarmaður og tæknimaður í Hollywood, en á níunda áratugnum tók líf hans óvænta stefnu þegar hann kynntist hugmyndum um utanjarðarlíf og transmiðlun. Með tímanum þróaði hann aðferð þar sem hann fer í djúpt trans, segir að hann “tengist” og tali fyrir geimveruna Bashar.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
49
47. Guðrún Bergmann framhald. Áskriftarþáttur
Seinni hlutinn af viðtalinu við Guðrúnu Bergmann þar sem við höldum áfram samtalinu um hið yfirnáttúrulega. Hægt er að hlusta á allan þáttinn með því að gerast áskrifandi inná patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:Komdu í áskrift
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega.Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum.Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls.Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.
HOSTED BY
Ghost Network®
CATEGORIES
Loading similar podcasts...