Hugarburðarbolti

PODCAST · sports

Hugarburðarbolti

22.000 manns á Íslandi spila fantasy leikinn í enska fótboltanum. Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp sem alla fantasy spilara þyrstir í. Vignir Már Eiðsson og Gunnar Georgsson sjá um þáttinn.Gunnar Georgsson er einn allra sterkasti fantasy spilari landsins. Hann er í 10 sæti yfir allt Ísland og er efstur í mörgum öðrum deildum. Hann veit allt um fantasy. Vignir Már Eiðsson er annar stjórnandi Ofurdeildarinnar og einn allra sterkasti draft spilari landsins. Við förum yfir hverja umferð. Allt rætt fram og aftur. Verðum með deildina Hugarburðarbolti og sigurvegari fær verðlaun.

  1. 75

    Hugarburðarbolti GW 34

    Þvílík spenna

  2. 74

    Hugarburðarbolti GW 33

    Fórum yfir 33 umferð deildarinnar þrátt fyrir 3 óspilaða leiki. Stórleikur umferðarinnar Man City gegn Arsenal stóðst allar væntingar og meira til.

  3. 73

    Hugarburðarbolti GW 32

    Við Össi Árnason fórum vel og vandlega yfir 32. umferð í enska. Arsenal tapaði á heimavelli og Man City er á hælum þeirra með 0-3 sigri á Chelsea. Þetta og allt hitt í þætti dagsins.

  4. 72

    Hugarburðarbolti Extra

    Jón Pétur Rúnarsson kom í þennan aukaþátt og við fórum yfir sviðið þegar 7.umferðir eru eftir af tímabilinu með fantasy augunum og bara almenn yfirferð.Lofuðum og löstuðum. Hverjir hafa skarað framúr? Mestu vonbrigðin? Hverjir hafa komið mest á óvart? Bestur það sem af er tímabils? Og auðvitað lið tímabilsins hingað til? Drógum að sjálfssögðu út sigurvegara í þættinum.

  5. 71

    Hugarburðarbolti GW 31,1

    Beto og Danny Welbeck voru á eldi um helgina. Liverpool, Chelsea og Newcastle töpuðu öll sínum leikjum um helgina. Blóðug fallbarátta framundan þar sem Notthingham Forest skelltu Tottenham í London 0-3. Aston Villa vöknuðu af Þyrnirósarsvefninum og Bournemouth og Man Utd gerðu 2-2 jafntefli á suðurströndinni.

  6. 70

    Hugarburðarbolti GW 31

    Styrktaraðilar okkar eru TA Sport Travel , Bílaréttingar Sævars , Bílakompaní , Potturinn og Pannan og Dúos. Arsenal eru komnir með 9 stiga forystu eftir leiki helgarinnar. Förum yfir umferðina og allt það helsta. Top 3 og rauða spjaldið á sínum stað.

  7. 69

    Hugarburðarbolti GW 29

    Arsenal eru komnir með 7 stiga forskot í deildinni eftir sigur á Brighton á Amex 0-1. Man City missteig sig í 2-2 jafntefli gegn Nottingham Forest á Etihad. Man Utd og Liverpool lutu bæði í gras gegn andstæðingum sínum og Tottenham er einungis 1 stigi fyrir ofan fallsæti eftir tap í Lundúnaslag gegn Crystal Palace á heimavelli.

  8. 68

    Hugarburðarbolti

    Arsenal eru áfram með 5 stiga forskot á toppi deildarinnar. Það var markasúpa í leikjum helgarinnar. Liverpool vann West Ham 5-2 á Anfield. Burnley tapaði 3-4 gegn Brentford eftir hetjulega baráttu. Man City unnu sterkan 0-1 sigur gegn góðum Leedsurum og Newcastle tapaði 2-3 heima gegn Everton. Þetta og allt hitt í þættinum.

  9. 67

    Hugarburðarbolti GW 27

    Arsenal eru með montréttinn í Norður London eftir helgina. Liverpool fóru eins og Hrói Höttur um Nottingham borg og stálu 0-1 sigri gegn Forest. Man City sigraði Newcastle 2-1. Man Utd gerðu góða ferð til Liverpool borgar og unnu Everton 0-1. Fulham og Brighton með flotta útisigra um helgina og James Milner er orðinn leikjahæsti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar þegar hann lék sinn 654. leik.

  10. 66

    Hugarburðarbolti GW 26

    Man City saxar á forskot Arsenal. Var þetta stærsta klúður tímabilsins? Liverpool fyrstir til að sigra Sunderland á Leikvangi Ljóssins. Thomas Frank og Sean Dyche eru orðnir atvinnulausir í bili. Sesko bjargaði Man Utd í London gegn West Ham. Mávarnir í frjálsu falli og Jörgen Strand Larsen byrjar vel í fyrsta heimaleik sínum en ævintýrið endaði ekki vel.

  11. 65

    Hugarburðarbolti GW 25

    Man City sigraði Liverpool á Anfield og loksins skoraði Erling Braut Haaland. Arsenal vann Sunderland fagmannlega á Emirates. Man Utd með þægilegan 2-0 sigur á Tottenham á Old Trafford. West Ham náðu í 3 stig á Turf Moor. Brentford gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Newcastle 2-3 í norðrinu. Cole Palmer þakkaði fyrirliða traustið með því að henda í þrennu á 38 mínútum!

  12. 64

    Hugarburðarbolti GW 24

    Arsenal eru með 6 stiga forskot eftir leiki helgarinnar. Tottenham og Man City gerðu 2-2 jafntefli í Norður London. Liverpool sigruðu Newcastle 4-1 á Anfield Road. Man Utd með 3-2 sigur á Fulham í spennu trylli. Aston Villa þurftu að lúta í gras á heimavelli gegn góðu Brentford liði 0-1. Þetta og allt hitt í GW24.

  13. 63

    Hugarburðarbolti GW 23

    Man Utd skellti toppliði Arsenal á Emirates vellinum 2-3. Chelsea og Man Utd komust upp fyrir Liverpool með tapi þeirra síðast nefndu gegn Bournemouth 3-2 á suðurströndinni. Crystal Palace tapaði 1-3 gegn Chelsea í Lundúna slag. West Ham unnu annan leik sinn í röð. Newcastle tapaði gegn Aston Villa á sínum heimavelli 0-2 um helgina og Everton og Leeds skildu jöfn.

  14. 62

    Hugarburðarbolti GW 22

    Man Utd sýndu gamla góða takta í 2-0 sigri á Man City á Old Trafford. Arsenal breikkaði bilið á toppnum í 7 stig þrátt fyrir 0-0 jafntefli gegn Notthingham Forest í Skýriskógi. Liverpool missteig sig gegn nýliðum Burnley 1-1 á Anfield. Það gengur ekkert upp hjá Tottenham í deildinni. Sunderland halda áfram að vera í Evrópubaráttu. Aston Villa tapaði heimaleik eftir svakalega sigurgöngu.

  15. 61

    Hugarburðarbolti GW 21

    Stórmeistara jafntefli 0-0 á Emirates hjá Arsenal og Liverpool í mígandi rigningu. Igor Thiago er ekkert að grínast með formið á sér. Fulham skellti Chelsea í kotinu. Man City og Aston Villa náðu ekki sigrum í sínum leikjum. Svakalegur leikur á St.James's Park þegar Newcastle lagði Leeds 4-3. Antoine Semenyo átti fallega kveðjustund fyrir Kirsuberin í 3-2 sigri gegn Tottenham. Degi seinna keypti Man City hann. Man Utd voru að spila gegn Burnley úti eftir að Ruben Amorim var rekinn.

  16. 60

    Hugarburðarbolti GW 19

    Arsenal á toppnum þegar árið 2026 er gengið í garð. Unnu Aston Villa 4-1 í toppslag umferðarinnar. Enso Maresca er hættur með Chelsea. Var þetta planað hjá honum? Liverpool kraftlitlir á nýársdag heima gegn Leeds í 0-0 jafntefli. Man City náði ekki að vinna á leikvangi ljóssins en munu engu að síður vera í toppbaráttunni.

  17. 59

    Hugarburðarbolti GW 17

    Fórum yfir GW17 í aðdraganda jóla og spáðum í leikina sem fóru fram. Í fyrsta skipti í sögu Hugarburðarbolta krýndum við Drottningu umferðarinnar. Gleðileg jól!

  18. 58

    Hugarburðarbolti GW 16

    Fengum góða gesti í stúdíóið til að fara yfir leiki umferðarinnar.Úlfarnir skoruðu öll þrjú mörk leiksins á Emirates en töpuðu samt gegn Arsenal. Man City eru komnir í gang og setja pressu á Arsenal með 0-3 sigri á Crystal Palace. Liverpool sigraði Brighton 2-0 þar sem Mo Salah kom inn á strax í fyrri hálfleik við mikinn fögnuð stuðningsmanna. Aston Villa heldur áfram frábæru gengi og unnu glæstan 2-3 útisigur á West Ham. Chelsea unnu og Cole Palmer er mættur. Notthingham Forest vann Tottenham frekar þægilega 3-0 og Man Utd og Bournemouth gerðu 4-4 jafntefli í trylli á Old Trafford.

  19. 57

    Hugarburðarbolti GW 15

    Fórum yfir 15 umferð deildarinnar og byrjuðum á að skauta yfir þá fjórtándu. Það var af nógu að taka þegar jólamánuðurinn er genginn í garð. Annar þáttastjórnenda fór og skellti sér á Emirates og sá sigurleik undir ljósunum 2-0 sigur Arsenal gegn Brentford.

  20. 56

    Hugarburðarbolti GW 13

    Hreimur Örn tónlistarmaður og harður Liverpool stuðningsmaður hefur ennþá trú á sínum mönnum. Við ræddum allt um GW13 í enska boltanum og það var jólastemmning í stúdíó 1.

  21. 55

    Hugarburðarbolti GW 12

    Arsenal valtaði yfir Tottenham 4-1 í Norður Lundúna slagnum. Liverpool steinlá á heimavelli gegn Nottingham Forest 0-3. Newcastle vann Man City 2-1 í frábærum leik á St.James's Park. Chelsea sigraði Burnley 0-2 á útivelli. Brighton vann endurkomusigur gegn Brentford. Crystal Palace lagði Úlfana sannfærandi á útivelli og Everton lagði Man Utd 0-1 á Old Trafford.

  22. 54

    Hugarburðarbolti GW 11

    Man City kjöldrógu Liverpool í risaslag helgarinnar.Svörtu kettirnir náðu í stig gegn toppliði Arsenal. Tottenham og Man Utd gerðu 2-2 jafntefli í London. Er orðið heitt undir Eddie Howe eftir 3-1 tap gegn Brentford? Aston Villa komust aftur á sigurbraut um helgina. Everton unnu sterkan heimasigur gegn Fulham. West Ham unnu lífsnauðsynlegan 3-2 sigur gegn Burnley og leikur Crystal Palace og Brighton stóð ekki alveg undir væntingum.

  23. 53

    Hugarburðarbolti Þáttur 10

    Arsenal með 6 stiga forskot á Man City á toppnum eftir 0-2 sigur gegn nýliðum Burnley. Loksins vann Liverpool sigur þegar Aston Villa kom í heimsókn. Chelsea lagði Tottenham á útivelli þar sem að Joaõ Pedro skoraði sigurmarkið. West Ham með langþráðan sigur á Newcastle. Man Utd tókst ekki að halda sigurgöngu sinni áfram í Skírisskógi. Brighton og Crystal Palace með góða sigra og Erling Haaland heldur áfram að vera heitur þegar City lögðu Bournemouth.

  24. 52

    Hugarburðarbolti Þáttur 9

    Englandsmeistararnir töpuðu sínum fjórða leik í röð í deildinni. Arsenal með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar. Man City og Chelsea töpuðu bæði sínum leikjum um helgina. Man Utd spiluðu sinn besta leik á tímabilinu. Nýliðarnir unnu sína leiki og Bournemouth eru í 2.sæti deildarinnar eftir 9.umferðir.

  25. 51

    Hugarburðarbolti GW 8

    Man Utd lagði Liverpool á Anfield 1-2 í hörkuleik. Arsenal lagði Fulham í kotinu 0-1 á lau kvöldið. Aston Villa sigraði Tottenham á Tottenham Hotspur Stadium 1-2. Sunderland halda áfram að gera góða hluti. Brighton lagði Newcastle á Amex og Erling Haaland er áfram á eldi hjá ljósblá liðum Man City.

  26. 50

    Hugarburðarbolti GW 7

    Arsenal komnir á toppinn í deildinni eftir helgina. Semenyo áfram á eldi. Chelsea vann Liverpool á Brúnni. Manchester liðin unnu bæði sína leiki um helgina. Everton með rosalegan endurkomusigur gegn Crystal Palace. Nottingham Forest í brasi eftir enn eitt tapið og núna gegn Newcastle í norðrinu.

  27. 49

    Hugarburðarbolti GW 6

    Crystal Palace eina ósigraða liðið í deildinni gerðu sér lítið fyrir og skelltu meisturum Liverpool 2-1 á Selhurst Park. Arsenal með svakalegan endurkomusigur gegn sterku Newcastle liði á St.James's Park. Brentford vann Man Utd 3-1. Aston Villa vann loks sigur 3-1 gegn Fulham. Sunderland ævintýrið heldur bara áfram. Úlfarnir komust loksins á blað og Brighton skelltu Chelsea á Brúnni 1-3.

  28. 48

    Hugarburðarbolti GW 5

    Liverpool eru með 5 stiga forskot í deildinni eftir 2-1 sigur í Bítlaborgarslagnum gegn Everton. Arsenal og Man City gerðu 1-1 jafntefli á Emirates. Man Utd unnu mikilvægan sigur á Chelsea 2-1 á Old Trafford. Allir nýliðarnir náðu í stig um helgina. Brighton og Tottenham gerðu 2-2 jafntefli á Amex og Bournemouth og Newcastle skildu markalaus 0-0 á suðurströndinni.

  29. 47

    Hugarburðarbolti Þáttur 4

    Man City sigraði Man Utd í slagnum um Manchester borg. Tottenham og Arsenal sigruðu bæði sína andstæðinga með sömu markatölunni. Bournemouth skelltu Brighton á Suðurströndinni. Nokkrir 0-0 leikir og Brentford og Chelsea gerðu 2-2 jafntefli á G-Tech vellinum í London.

  30. 46

    Hugarburðarbolti EXTRA

    Villi Neto kíkti til okkar í Hugarburðarbolta Extra og við fórum yfir það helsta. Völdum topp 5 bestu fantasy pikkin það sem af er tímabili. Kaup og sölur liðanna voru rædd og við rýndum í framhaldið eftir þetta landsleikjahlé. Fórum yfir liðin okkar og hverjar fyrirætlanir okkar eru í næstu umferðum.

  31. 45

    Hugarburðarbolti GW 3

    Draumamark Dominiks Szobozlai skildi lið Liverpool og Arsenal að um helgina. Man Utd kreisti fram sigur á elleftu stundu. Brighton skellti Man City. West Ham létti pressunni af stjóra sínum með 0-3 sigri í Notthingham. Chelsea sigraði Fulham 2-0 í Lundúna slag á Brúnni og Tottenham lá á heimavelli 0-1 gegn spræku liði Bournemouth.

  32. 44

    Hugarburðarbolti þáttur 3 GW3

    Tottenham lögðu Man City á Etihad sannfærandi. Arsenal löbbuðu yfir Leeds á heimavelli. Brentford sigraði Aston Villa 1-0. Everton með glæstan heimasigur í fyrsta leiknum á nýja stórglæsilega Hill Dickenson stadium. Chelsea kjöldrógu West Ham 1-5 á Ólympíu leikvanginum í London. Man Utd náðu í sterkt stig gegn Fulham í London. Hjálmar Örn skemmtikraftur og Spursari var gestur þáttarins og við fórum yfir umferðina.

  33. 43

    Hugarburðarbolti þáttur 1 GW1

    Fyrsta umferðin fór af stað með látum á föstudagskvöld með Liverpool sigri á Bournemouth. Við Hreimur Örn Heimisson sem var gestur þáttarins fórum yfir þann leik ásamt öllu öðru sem gerðist í þessari fyrstu umferð tímabilsins 2025/26. Top 3 á sínum stað ásamt rauða spjaldinu og svo er það nýr liður sem er fantasy pick umferðarinnar.

  34. 42

    Hugarburðarbolti Upphitun

    Hugarburðarbolti fór aftur af stað. Fengum góða gesti en þeir Villi Neto og Hreimur Örn komu til okkar og ræddu við okkur allt sem þú þarft að vita um enska boltann og fantasy leikinn.

  35. 41

    Hugarburðarbolti Uppgjörið í Enska!

    Það komu frábærir gestir í uppgjörs þátt Hugarburðarbolta. Villi Neto og Davíð Guðbrands gerðu upp tímabilið með okkur og vinningshafar voru krýndir. Þökkum kærlega fyrir tímabilið og heyrumst á því næsta.

  36. 40

    Hugarburðarbolti GW 38

    Newcastle, Aston Villa og Nottingham Forest töpuðu öll sínum leikjum í baráttunni um meistaradeildarsætin. Evrópudeildarmeistarar Tottenham steinlágu á heimavelli gegn Brighton 1-4Man Utd kvöddu stuðningsmenn sína með sigri og á Anfield fór Englandsbikarinn á loft.

  37. 39

    Hugarburðarbolti GW 37

    Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn! Nottingham Forest eru ennþá í möguleika á meistaradeildar sæti. Brighton lögðu meistara Liverpool. Aston Villa með lífsnauðsynlegan sigur á Tottenham. Fulham með flottan útisigur á Brentford.Og Jaime Vardy kvaddi King Power með stæl! Declan Rice tryggði Arsenal í meistaradeildina með 1-0 sigri gegn Newcastle.

  38. 38

    Hugarburðarbolti GW 36

    Liverpool og Arsenal gerðu 2-2 jafntefli á Anfield í stórleik helgarinnar. Newcastle upp í 3 sætið eftir sterkan sigur gegn Chelsea. Man City misstigu sig á suðurströndinni gegn Southampton. Ollie Watkins með sigurmark á útivelli gegn Bournemouth. Nottingham Forest gerði einungis jafntefli 2-2 gegn föllnum Leicester liðum. Kevin Schade heldur áfram að spila vel og Eze var kóngurinn á Tottenham Hotspur stadium.

  39. 37

    Hugarburðarbolti GW35A

    Cole Palmer vaknaði loksins eftir 110 daga.Liverpool og Arsenal töpuðu bæði sínum leikjum. Aston Villa ætla sér meistaradeildar sæti. Nottingham Forest sitja í sjötta sætinu og Brighton og Newcastle gerðu 1-1 jafntefli á Amex. Baráttan um meistaradeildar sætin verður rosaleg!

  40. 36

    Hugarburðarbolti GW 35

    Cole Palmer vaknaði loksins eftir 110 daga.Liverpool og Arsenal töpuðu bæði sínum leikjum. Aston Villa ætla sér meistaradeildar sæti. Nottingham Forest sitja í sjötta sætinu og Brighton og Newcastle gerðu 1-1 jafntefli á Amex. Baráttan um meistaradeildar sætin verður rosaleg!

  41. 35

    Hugarburðarbolti GW 34

    Liverpool Englandsmeistari! Pökkuðu Tottenham saman á Anfield. Baráttan um meistaradeildarsætin 3-5 sætið heldur áfram. Newcastle fór upp í 3.sætið með þægilegum sigri á Ipswich. Matheus Chuna er listamaður Úlfanna. Chelsea sigraði Everton á Brúnni. Man City og Crystal Palace sem spiluðu ekki í umferðinni mætast í úrslitum FA bikarsins.

  42. 34

    Hugarrburðarbolti GW33

    Liverpool aðeins einum sigri frá því að verða meistarar. Trent með góða kveðjugjöf eða hvað? Aston Villa burstaði Newcastle en tapaði svo gegn Man City. Nottingham Forest með mikilvægan útisigur á Tottenham á annan í páskum. Spennan verður svakaleg um þetta 3-5 sæti sem gefur meistaradeildarsæti. Svo óskum við Leeds og Burnley stuðningsmönnum til hamingju með úrvalsdeildarsætið.

  43. 33

    Hugarburðarbolti GW 32

    Liverpool eru með 9 fingur á Englandsbikarnum. Newcastle á fullri ferð inn í meistaradeildina í 3.sætinu. Notthingham Forest og Arsenal töpuðu bæði stigum í umferðinni. Aaron Ramsdale markvörður Southampton gerði sér lítið fyrir og varði 2 vítaspyrnur gegn Aston Villa.Svarthvíta hetjan Harvey Barnes var frábær í þessum tveimur leikjum hjá Newcastle.

  44. 32

    Hugarburðarbolti GW 31

    Fulham skellti toppliði Liverpool 3-2 á Craven Cottage. Man Utd og Man City skildu jöfn í borgarslagnum. Arsenal missteig sig í Guttagarði. West Ham og Bournemouth skildu jöfn 2-2 í skemmtilegum leik. Aston Villa skellti sterkum Notthingham Forest piltum á Villa Park og Jacob Murphy svarthvíta hetja Newcastle gegn Leicester.

  45. 31

    Hugarburðarbolti GW 30

    Liverpool vann borgarslaginn. Notthingham Forest skelltu Man Utd.Newcastle á góðri siglingu. Ipswich lagði Bournemouth á útivelli. Saka stimplaði sig strax inn eftir meiðsli hjá Arsenal. Aston Villa með gæðasigur á Brighton og Dýrlingarnir náðu í stig gegn Palace.

  46. 30

    Hugarburðarbolti þáttur 29 GW 29

    Liðin í öðru og þriðja sætinu í deildinni , Arsenal og Nottingham Forest unnu sína leiki. Man City og Brighton gerðu 2-2 jafntefli í fjörugum leik. Brentford skellti Bournemouth á útivelli og þetta var fimmti útisigur þeirra í röð. Úlfarnir lögðu Southampton á St.Mary's 1-2 og iðnaðar jafntefli 1-1 varð niðurstaðan á Goodison Park á milli Everton og West Ham og Bruno Fernandes kóngurinn á King Power.

  47. 29

    Hugarburðarbolti þáttur 28 GW 28

    Nottingham Forest skelltu Man City í Skíriskógi! Liverpool breikkar bilið. Bruno G hetja Newcastle á Ólympíuleikvangnum í London. Botnliðin halda áfram að ströggla.Tottenham og Bournemouth skildu jöfn 2-2 í skemmtilegum leik og stórleikur Man Utd og Arsenal var spennandi!

  48. 28

    Hugarburðarbolti Þáttur 28 GW 28

    Liverpool bera af í deildinni og eru að stinga af. Liðin í öðru og þriðja sæti gerðu markalaust jafntefli í Nottingham. Ismaïla Sarr og Mateta í stuði gegn Aston Villa á Selhurst Park. Rauða spjald Patrick Dorgu kom ekki að sök á Old Trafford. Rodrigo Muniz með sigurmarkið gegn Úlfunum á útivelli. Danny Welbeck hetja Brighton gegn Bournemouth. Lánleysi Cole Palmer heldur áfram en Chelsea liðið sigraði Southampton þægilega á brúnni.

  49. 27

    Hugarburðarbolti þáttur 26 GW 26

    Liverpool er í frábærri stöðu í deildinni!West Ham skellti Arsenal á Emirates annað tímabilið í röð! Markaveisla á St.James Park. Tottenham með þrjá sigra í röð. Sterkir útisigrar hjá Crystal Palace , Wolves og Brentford. Marco Asensio hetja Aston Villa í endurkomu sigri gegn Chelsea.

  50. 26

    Hugarburðarbolti Þáttur 25 GW 25

    Omar Marmoush fór hamförum gegn Newcastle og setti þrennu! Liverpool tóku sigur gegn Wolves en með herkjum þó. Mikel Merino kom af bekknum og reyndist hetja Arsenal á King Power. Tottenham sigraði Man Utd. Brighton lagði Chelsea á Amex. Fulham, Brentford og Everton einnig með sterka sigra. Allt þetta í GW25!

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

22.000 manns á Íslandi spila fantasy leikinn í enska fótboltanum. Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp sem alla fantasy spilara þyrstir í. Vignir Már Eiðsson og Gunnar Georgsson sjá um þáttinn.Gunnar Georgsson er einn allra sterkasti fantasy spilari landsins. Hann er í 10 sæti yfir allt Ísland og er efstur í mörgum öðrum deildum. Hann veit allt um fantasy. Vignir Már Eiðsson er annar stjórnandi Ofurdeildarinnar og einn allra sterkasti draft spilari landsins. Við förum yfir hverja umferð. Allt rætt fram og aftur. Verðum með deildina Hugarburðarbolti og sigurvegari fær verðlaun.

HOSTED BY

Gunnar Georgsson

CATEGORIES

URL copied to clipboard!