Hvað ertu að lesa? podcast artwork

PODCAST · kids

Hvað ertu að lesa?

Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum. Umsjón: Embla Bachmann Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  1. 95

    Kötturinn Emil sem allir vildu eiga

    Kötturinn Emil var týndur í sjö ár en rataði svo aftur til eiganda síns!Í bókinni Kötturinn Emil sem allir vildu eiga segir Helga Ólafs sögu kattarins og Gerður Steinars teiknar fallegar og skemmtilegar myndir sem prýða blaðsíðurnar. Þær segja frá ferlinu við gerð bókarinnar og segja okkur frá Emil.Bókaormurinn Davíð segir hvað honum finnst um bókina og tekur þátt í leiknum Hitt eða þetta þar sem hann velur besta kattanafnið að hans mati. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  2. 94

    Hvað þýðir að vera VIÐ?

    Hvað þýðir að vera VIРog hvernig getum VIРorðið betri?Helen og Fanny segja frá bókinni VIÐ. Þær lýsa því hvernig er að flytja til Íslands frá öðru landi og hvernig við getum tekið vel á móti nýju fólki.Bókaormurinn Tara segir frá bókinni og raðar atriðum í rétta tímaröð. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  3. 93

    Silfurgengið hennar Brynhildar

    Hvað gerist þegar Sirrýlei fer að grafa upp sögur um fjölskylduna sína? Hver er uppruni silfurnælunnar og af hverju heita svona margar sögupersónur Sigríður?Brynhildur Þórarinsdóttir uppljóstrar alls kyns leyndarmálum um gerð unglingabókarinnar Silfurgengið og bókaormurinn Kristín gefur bókinni góða dóma. Auk þess spreytir hún sig í leiknum Hver sagði hvað? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  4. 92

    Sokkalabbarnir og heimsókn í Seljaskóla

    Þáttur dagsins er stútfullur af snillingum!Fyrst segir bókaormurinn Allan Magnús frá Sokkalöbbunum. Svo heimsækjum við Seljaskóla. Þar heyrum við í bókasafnsfræðingnum Dröfn segja frá dularfullri rannsókn á öskudaginn og lestrarátaki fyrir páskana. Að lokum keppa sex bókaormar úr skólanum í spurningaleikjum um barnabækur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  5. 91

    Risaland, furðulegur fjársjóður og að teygja sig í klósettpappírinn

    Hverjir eru þessir risar? Hvað er Risaland? Af hverju eru hlutir svona hátt uppi eða langt í burtu?Birna Daníelsdóttir segir frá bókinni Ég bý í Risalandi sem byrjaði sem lokaverkefni í Myndlistarskólanum. Hún lærði líffræði en tók u-beygju og starfar sem listakona í dag.Bókaormurinn Gabríela Rós rýnir í bókina, boðskapinn og rúllar upp Tímaröðinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  6. 90

    Kötturinn og ég: myndasaga um hugarheim katta og samband þeirra við eiganda sinn

    Hvað gerist þegar stelpa kemur með kött heim til sín? Geta manneskja og köttur orðið bestu vinir? Hvernig á að kveðja besta vin sinn?Brynhildur Jenný segir frá myndasögunni Kötturinn og ég. Hún uppljóstrar hvernig hún skipalagði söguna,. hvað henni fannst erfiðast að teikna og hvaða verkefni eru framundan.Bókaormurinn Sindri rýnir í söguna og spreytir sig í leiknum Hitt eða þetta þar sem hann velur sitt drauma gæludýr. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  7. 89

    Flóttinn á norðurhjarann

    Hvað eru móðuharðindin? Af hverju þurfti fólk á Íslandi að flýja? Hvernig bregst 12 ára stelpa við í þessum aðstæðum?Nanna Rögnvaldardóttir segir frá bókinni sinni, Flóttinn á norðurhjarann. Hún lýsir móðuharðindunum, köldum vetrum og erfiðri lífsbaráttu fullorðins fólks og krakka.Bókaormurinn Hildur Sif segir hvað henni fannst um bókina og hvort hún haldi að hún hefði hagað sér eins og aðalpersónan í þessum aðstæðum en þær eru einmitt jafn gamlar. Í lok þáttar reynir hún að raða atburðum úr sögunni í rétta röð í Tímaröðinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  8. 88

    Velkomin í Voðagerði! Hér er allt að óttast ...

    Af hverju heitir bærinn Voðagerði? Hvað er Lilja með inn í sér? Kemur önnur bók um bæinn?Höfundarnir Hilmar Örn og Blær svara þessum spurningum og fleirum ásamt því að segja frá því hvert þau sóttu innblástur og hvernig samstarfinu var háttað.Bókaormurinn Aría Valdís greinir bókina og spreytir sig í leiknum Hitt eða þetta þar sem hún endar á að velja voðalegasta hlutinn í bókinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  9. 87

    Sólgos: hvað gerist þegar rafmagnið fer af?

    Sólgos er ungmennabók sem segir frá því þegar rafmagnið fer af. Aðalpersóna bókarinnar er unglingsstelpan Unnur sem þarf að takast á við breyttar aðstæður og vona að mamma sín komist heim frá útlöndum einn daginn.Arndís Þórarinsdóttir segir okkur hvernig hún fékk hugmyndina að bókinni og hvað kom henni á óvart við rannsóknarvinnuna. Bókaormarnir Edda Björk og Bjartur rýna í bókina. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  10. 86

    Fellihýsageymslan, pissandi eðlur og bréf frá forseta Íslands

    Af hverju ákvað Marta Magnúsdóttir að skrifa um fellihýsageymslu? Af hverju koma eðlur við sögu og hvernig gekk henni að skrifa bréf frá Guðna Th. til aðalpersónanna í bókinni?Í þessum þætti fáum við svör við öllum þessum spurningum og fleirum. Bókaormurinn Friðmey Ósk rýnir í bókinni og spreytir sig í Tímaröðinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  11. 85

    Drottningin af Galapagos og fleira um Freyju og Frikka

    Felix Bergsson segir frá ævintýrunum um Freyju og Frikka og þá aðallega bókinni Drottningin af Galapagos, sem kom út á prenti fyrir jól. Auk þess sviptir hann hulunni af næstu bók um tvíburana.Bókaormurinn Kristín María rýnir í Drottninguna af Galapagos og spreytir sig í leiknum Hver sagði hvað? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  12. 84

    Brandarabíllinn og fleiri ævintýri í Bjarkarey

    Hvað gerist þegar Matti prófar bíl sem keyrir af stað þegar einhver segir brandara? Nær hann að stoppa með því að lesa fréttir um efnahagsmál?Sváfnir segir okkur frá bókinni sinni, Brandarabíllinn. Hann segir hvernig hugmyndin kviknaði út frá bílnum Chitty Chitty Bang Bang og hvernig honum gekk að myndlýsa bók í fyrsta skipti.Bókaormurinn Markús segir okkur frá bókinni og spreytir sig í leik sem gengur út á að raða atburðum úr bókinni í tímaröð. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  13. 83

    Listinn hennar Skjóðu og kettlingar jólakattarins

    Fyrsta bókin um Skjóðu segir frá því þegar hún reynir að undirbúa komu jólanna á einni nóttu. Höfundar bókarinnar, Anna Bergljót og Andrea Ösp, segja okkur hvernig bókin varð til og hverju við eigum von á frá Skjóðu á næstunni. Bókaormurinn Högni segir frá bókinni og reynir að raða atburðum í rétta tímaröð. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  14. 82

    Bækur og bókasafnsviðburðir ársins

    Í þessum þætti gerum við upp bókaárið með hjálp Hugrúnar, frá bókasafni Hafnarfjarðar, og bókaormanna Hrannars og Róberts Mána.Hvaða bækur voru vinsælar á árinu? En viðburðir? Hverju má búast við í bókaútgáfu á næsta ári? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  15. 81

    Jólapakkið og fleiri jólabókadagatöl

    Vissuð þið að það eru ekki bara til dagatöl með súkkulaði? Það eru líka til bókadagatöl!Í þætti dagsins kynnumst við einu slíku, Jólapakkinu. Höfundarnir Helga og Kristín segja frá sögunni sem skiptist í 24. kafla, einn fyrir hvern dag fram að jólum. Bókaormurinn Katrín Sólveig segir frá bókaflokkunum Handbók fyrir ofurhetjur, Lára og Ljónsi og Þín eigin saga. Auk þess uppljóstrar hún hvaða jólasögu hana langar að lesa og hvað henni finnst mega bæta við Bókatíðindi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  16. 80

    Galdrakarl, snúðar og töfraheimurinn Oz

    Galdrakarlinn í Oz er sígild saga sem verður sett upp í Borgarleikhúsinu í janúar. Við rýnum í söguna og persónurnar með hjálp leikstjórans Þórunnar Örnu og leikaranna Einars Jósefs og Þórunnar Emblu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  17. 79

    Benjamín dúfa: 30 ár frá bíómyndinni

    Benjamín dúfa er falleg saga um vináttu og ævintýri í hversdagsleikanum. Friðrik Erlingsson, höfundur bókarinnar, heimsækir okkur í þessum þætti og segir frá bókinni og bíómyndinni upp úr henni. Bókaormurinn Haraldur Orri segir til dæmis frá dagbókum Kidda klaufa og bókaflokknum Bekkurinn minn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  18. 78

    Einar Áskell: bækurnar og leikritið

    Hver er Einar Áskell? Hvað gerir hann einstakan og af hverju lifa bækurnar um hann enn góðu lífi?Sigþrúður svarar þessum spurningum en hún er mikill aðdáandi bókanna og vann lengi við barnabókaútgáfu. Við heyrum líka í leikurunum Elísabetu og Vilhjálmi sem leika í leiksýningu um Einar Áskel í Hörpu. Við endum svo þáttinn á að heyra í Krumma bókaormi sem er að lesa ýmislegt skemmtilegt eins og Skólastjórann eftir Ævar Þór og Harry Potter bókaflokkinn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  19. 77

    Manga bækur og Anime teiknimyndir

    Hvað eru manga bækur? Hvaðan koma þær? Hvernig teiknum við manga persónu?Guðbrandur svarar öllum þessum spurningum og fleirum. Bókaormar þáttarins eru Leó og Kaj sem eru í Anime klúbbi Borgarbókasafnsins og segja frá manga bókum eins og One Piece og Dragonball. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  20. 76

    Bold fjölskyldan og barnabókmenntahátíðin Mýrin

    Gunnar Theodór segir frá Mýrinni sem er alþjóðleg barnabókmenntahátíð haldin hérlendis. Við heyrum í bresku höfundunum Julian Clary og David Roberts sem eru á landinu vegna Mýrarinnar. Þeir gera bækurnar um Bold fjölskylduna og ætla að segja okkur frá sköpunarferlinu. Bókaormurinn Liljar Páll segir okkur frá bókum eins og Dularfulla hjólahvarfið, Afmælisráðgátan, Harry Potter og Hundmann. Auk þess fjallar hann um höfundana Sigrúnu Eldjárn og Bergrúnu Írisi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  21. 75

    Nornir, valkyrjur og hrekkjavakan

    Gleðilega hrekkjavöku! Rit- og myndhöfundurinn Kristín Ragna segir okkur frá bókunum sínum um nornir og valkyrjur. Bókaormurinn Viktoría Dís segir frá sínum uppáhalds bókum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  22. 74

    Fimmtíu ár frá kvennafrídeginum

    Í ár eru liðin fimmtíu ár frá kvennafrídeginum sem átti sér stað þann 24. október 1975. Linda Ólafsdóttir segir okkur frá bókinni sinni Ég þori! Ég get! Ég vil! og sýningunni í Borgarbókasafninu með myndum úr bókinni. Bókaormarnir Steinunn Birna og Sandra segja okkur hvað þær eru að lesa og hverjar þeirra uppáhalds kvensöguhetjur eru. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  23. 73

    Andrésblöð, Syrpur og Disney bækur

    Hvaða Disney-bækur eru vinsælar um þessar mundir? Hver er munurinn á Andrésblöðum og Syrpum? Er erfitt að finna íslensk nöfn á erlendar sögupersónur?Svala, útgáfustjóri bókaútgáfunnar Eddu, svarar þessum spurningum og fleirum. Hún fræðir okkur um Disney- og Marvel-bækur og útskýrir útgáfuferlið á Andrésblöðum og Syrpum. Bókaormurinn Tómas Ingi segir frá bókunum Heyrðu Jónsi! og Star Wars tilraunir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  24. 72

    IBBY á Íslandi og barnabókaspurningakeppni

    Kristín Björg, formaður IBBY á Íslandi, kynnir störf félagsins sem hefur það markmið að styðja við barnamenningu. Embla kannar vitneskju hennar um íslenskar barnabækur með spurningakeppni þar sem höfundar eins og Gunni Helga, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn koma við sögu. Auk þess mælir hún með barna- og unglingabókum fyrir haustið. Bókaormurinn Lorenzo segir meðal annars frá fuglinum Dúbba og dýrunum í Hálsaskógi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  25. 71

    Svakalega lestrarkeppnin og Málæði

    Blær og Eva Rún segja frá Svakalegu lestrarkeppninni fyrir 1.-7. bekk og Harpa Rut kynnir verkefnið Málæði fyrir 8.-10. bekk. Bókaormurinn Steinar Áki segir frá sínum uppáhalds bókum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  26. 70

    Að bjarga gömlum bókum

    Hvað eru handrit? Hvaðan koma þau? Hafa bækur breyst mikið frá því í gamla daga?Í þessum þætti segir Eyþór frá handritunum sem hann safnar og hvernig hann bjargar gömlum bókum. Hann segir okkur líka frá fyrstu íslensku barnabókinni sem er talsvert frábrugðin barnabókum nútímans. Bókaormurinn Óttar Benedikt segir frá Artewis Fowl, Gretti og Syrpum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  27. 69

    Afmælisveisla: Múmínálfarnir 80 ára

    Múmínálfarnir eiga 80 ára afmæli í ár! Við höldum upp á það með því að fræðast um söguheiminn, persónurnar og höfundinn, Tove Jansson. Svo spjöllum við við múmínsérfræðingana Elínborgu Unu og Vilhjálm Snæ. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  28. 68

    Afmælisveisla: Lína Langsokkur 80 ára

    Lína Langsokkur á 80 ára afmæli í ár og í tilefni þess sýnir Þjóðleikhúsið samnefnda sýningu í haust. Í þættinum heyrum við í leikstjóra sýningarinnar, Agnesi Wild, leikurunum Heiðu og Sindra og leikkonunni Birtu sem leikur sjálfa Línu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  29. 67

    Hollráð og meðmæli Lestrarklefans

    Hvernig á að gagnrýna bók? Hvað er gott að hafa í huga við lesturinn?Rebekka Sif og Díana Sjöfn frá Lestrarklefanum segja okkur frá því hvernig þær skrifa um bækur og hvaða barna- og unglingabókum þær mæla með. Bókaormurinn Egill segir okkur frá bókunum Víti í Vestmannaeyjum, Bekkurinn minn: Varúlfurinn og Geimurinn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  30. 66

    Hvernig á að skrifa glæpasögu?

    Rithöfundurinn Ragnheiður Gestsdóttir segir okkur hvernig hún skrifar glæpasögur en hún hefur líka skrifað barna- og unglingabækur á borð við 40 vikur og Leikur á borði. Vinkonurnar Oddný og Alba segja frá því sem þær lærðu í sumarsmiðju Ragnheiðar: Búum til glæpasögur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  31. 65

    Sumarbækur og spá fyrir haustið

    Hvað voru krakkar að lesa í sumar? Hvaða viðburði buðu bókasöfn upp á? Hvað er fram undan í haust?Í þessum fyrsta þætti vetrarins svörum við þessum spurningum og fleirum með hjálp Heiðrúnar Dóru, bókasafnsfræðings, og Ágústs Arnar, bókaorms. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  32. 64

    Nýjustu verkefni Láru, Ljónsa og Atla

    Birgitta Haukdal segir frá nýjustu verkefnum Láru, Ljónsa og Atla sem eru meðal annars uppskriftabók og tónlist. Bókaormurinn Sigurður Þór rýnir í bókina Lára fer á fótboltamót og nefnir líka bækurnar Orri óstöðvandi: heimsfrægur á Íslandi og Vinkonur 1: Bekkjardrottningin. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  33. 63

    Blaéyg

    Rósa Ólöf Ólafíudóttir segir okkur frá bókinni Bláeyg og bókaormurinn Helga Arya rýnir í hana auk þess að segja frá fleiri bókum sem hún hefur lesið undanfarið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  34. 62

    Baukað og brallað í Skollavík

    Guðlaug Jónsdóttir segir okkur frá bókunum sínum: Baukað og brallað í Skollavík og Í huganum heim. Hún segir frá því hvers vegna hún fór að skrifa sögur fyrir krakka og lýsir hinni ímynduðu Skollavík. Bókaormurinn Ásthildur segir frá seinni bók Guðlaugar og öðrum bókum með hún hefur lesið nýlega. Anna Frank og Frida Kahlo koma meðal annars við sögu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  35. 61

    Tónlistarævintýrið Tumi fer til tunglsins

    Í þessum þætti fáum við til okkar Jóhann G. Jóhannsson sem skrifaði bókina Tumi fer til tunglsins og samdi tónlistarævintýri upp úr sögunni. Við spjöllum líka við Lilju Cardew sem myndlýsti bókina og svo rýnir Una Margrét bókaormur í bæði bókina og tónlistina. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  36. 60

    Skrímsli og samstarf höfunda frá mismunandi löndum

    Áslaug segir frá því hvernig skrímslin urðu til og hvernig hún skrifar sögurnar um þau ásamt tveimur öðrum höfundum. Bókaormurinn Hólmar Dagur segir okkur hvað nýjasta bókin um skrímslin kennir okkur og af hverju honum finnst gaman að lesa. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  37. 59

    Gling Gló og hjátrúafulla amman

    Hrafnhildur Hreinsdóttir skrifar bækurnar um Gling Gló sem eru orðnar fjórar talsins. Í hverri bók er tekin fyrir hjátrú sem Gling Gló kynnir sér ásamt vini sínum, Óbó, og ömmu sinni. Hrafnhildur segir okkur hvaða hjátrú er áhugaverðust og hvað er það eina leiðinlega við að gefa út bók, að hennar mati. Bókaormurinn Ísold talar meðal annars um nýjustu bókina um Gling Gló, Huldu Völu dýravin og bækur um krúttleg dýr. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  38. 58

    Jólasveinn sem fer í sumarfrí, leysir ráðgátu og bjargar lambi

    Hvað gerir jólasveinn þegar ekki eru jól? Eva Rún segir frá hvernig jólaplata varð innblástur fyrir bókaflokkinn um Stúf og hvernig hún fær hugmyndir að sögum. Bókaormurinn Loki rýnir í bókina Stúfur og björgunarleiðangurinn og útskýrir af hverju hann elskar Andrésblöð, en þau Eva Rún deila þeim áhuga. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  39. 57

    Einar, Anna og safnið sem var bannað börnum

    Hver eru Einar og Anna og af hverju var safnið þeirra bannað börnum? Margrét Tryggvadóttir svarar þessum spurningum með því að segja okkur frá bókinni Einar, Anna og safnið sem var bannað börnum. Bókaormurinn Katla rýnir í bókina og segir okkur hvað hún hefur verið að lesa. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  40. 56

    Byggingarnar okkar

    Alma rithöfundur og Alma bókaormur fjalla um bókina Byggingarnar okkar. Alma rithöfundur segir okkur hvað felst í því að vera sérfræðingur í varðveislu bygginga og hverju krakkar hafa áhuga á í tengslum við byggingarlist. Alma bókaormur segir okkur frá sínum uppáhaldsbyggingum og af hverju hana dreymir um að verða arkitekt. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  41. 55

    Bekkurinn minn bækurnar

    Yrsa Þöll og Iðunn Arna segja okkur frá bókaflokknum Bekkurinn minn þar sem fjallað er um nýja aðalpersónu í hverri bók. Þær uppljóstra hvernig þær velja næstu aðalpersónu og skipta á milli sín verkum í ferlinu. Bókaormurinn Elísa Ósk segir frá nýjustu bók seríunnar og sinni uppáhalds. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  42. 54

    Álfheimar Ármanns Jakobssonar

    Ármann Jakobsson skrifar allt frá fræðibókum fyrir fullorðna yfir í ævintýri fyrir krakka. Í þessum þætti segir hann okkur hvað honum finnst skemmtilegast við barna- og unglingabækur og af hverju hann skrifaði bókaflokkinn um Álfheima. Bókaormurinn Arnþór Ísar segir okkur svo frá síðustu bók seríunnar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  43. 53

    Textar og teikningar Ránar Flygenring

    Í þessum þætti fjöllum við um bækurnar Vigdís, Eldgos og Tjörnin sem eru skrifaðar og teiknaðar af Rán Flygenring. Rán deilir með okkur hvað henni finnst erfiðast að teikna og hvort teikningar hennar hafi breyst mikið frá fyrstu bókinni sem hún myndlýsti. Bókaormurinn Birgitta segir okkur frá Tjörninni sem er nýjasta bók Ránar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  44. 52

    Bókaútgáfa í Bandaríkjunum og ungmennabækur Hildar Knúts

    Hildur Knútsdóttir segir frá reynslu sinni af bókaútgáfu í Bandaríkjunum og útskýrir hver munurinn á ungmenna- og fullorðinsbókum er, að hennar mati. Hún segir líka frá bókinni Kasia og Magdalena sem bókaormurinn Arnþór Rúnar kafar dýpra í. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  45. 51

    Saga Fíusólar og uppátæki Obbuló í Kósímó

    Hvernig persóna er Fíasól og í hverju lendir hún í nýjustu bókinni? Þessum spurningum ætla rithöfundurinn Kristín Helga Gunnarsdóttir og bókaormurinn Aníta Tryggvadóttir að svara. Kristín Helga segir okkur líka hvernig Fíasól fékk nafnið sitt og af hverju þau Halldór Baldursson byrjuðu að skrifa bækur um leikskólabarnið Oddnýju Lóu. Bókaormurinn Aníta telur upp hvaða bækur hún hefur verið að lesa og hvaða bók er hennar uppáhalds. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  46. 50

    Stórkostlega sumarnámskeiðið

    Í þessum þætti rýnum við í bókina Stórkostlega sumarnámskeiðið. Sólrún Ylfa, myndhöfundur bókarinnar, segir okkur frá því hvernig myndirnar færast af blaði í bók og hvaða myndir henni fannst skemmtilegast að teikna. Tómas Zoëga, textahöfundur bókarinnar, les upp einn kafla í bókinni og bókaormurinn Davíð segir okkur hvað honum finnst um bókina. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  47. 49

    Bækur Sigrúnar Eldjárn um safnið og mýrina

    Sigrún Eldjárn segir frá bókunum Sigrún í safninu og Fjársjóður í mýrinni. Hún lýsir því hvernig var að búa á Þjóðminjasafninu og af hverju hún teiknar persónur gjarnan í strigaskóm. Bókaormurinn Kristján Breki rýnir í þriðju bókina um krakkana í Mýrarsveit, Fjársjóður í mýrinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  48. 48

    Bækur, lag, leikrit og þættir um Orra óstöðvandi

    Hvernig varð Orri óstöðvandi til? Hvaðan fékk hann nafnið sitt? Hvað heitir næsta bók um Orra? Bjarni Fritzson svarar öllum þessum spurningum og fleirum! Bókaormurinn María Mist hefur lesið allar bækurnar um Orra og rýnir í nýjustu bókina, Orri óstöðvandi: heimsfrægur á Íslandi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  49. 47

    Gleðilegan Öskurdag!

    Framundan er öskudagur og í tilefni þess ætlar Ævar Þór að segja frá Skólaslit 3: Öskurdagur. Hann segir líka frá fleiri bókum sem hann hefur skrifað og við komumst að því hvað heillar hann við hrollvekjur. Bókaormurinn Benjamín rýnir í Öskurdag og segir frá bókum sem foreldrar hans lásu þegar þau voru yngri. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  50. 46

    Draugagangur og derby

    Ásrún hefur skrifað bækur um hin ýmsu dýr. Hins vegar inniheldur nýjasta bók hennar engin dýr heldur drauga! Ásrún talar um áhuga sinn á skrifum og hvernig hún fékk hugmyndina að skrifa bók um roller derby. Álfrún bókaormur rýnir í Draugagang og derby auk þess sem hún segir frá öðrum bókum sem hún hefur verið að lesa. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum. Umsjón: Embla Bachmann Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

HOSTED BY

RÚV Hlaðvörp

Frequently Asked Questions

How many episodes does Hvað ertu að lesa? have?

Hvað ertu að lesa? currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Hvað ertu að lesa? about?

Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum. Umsjón: Embla Bachmann Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

How often does Hvað ertu að lesa? release new episodes?

Hvað ertu að lesa? has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Hvað ertu að lesa??

You can listen to Hvað ertu að lesa? on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Hvað ertu að lesa??

Hvað ertu að lesa? is created and hosted by RÚV Hlaðvörp.
URL copied to clipboard!