Kvennakastið podcast artwork

PODCAST · sports

Kvennakastið

Handboltaumfjöllun um Olís- og Grilldeild kvenna.Handbolti

  1. 37

    Valur íslandsmeistari og slúðurpakki

    Sólveig Lára þjálfari ÍR var gestur hjá Sillu og Jóa í dag. Farið var yfir úrslitarimmuna þar sem að Valur varð íslandsmeistari. Þau ræddu helsta slúður fyrir næsta tímabil. Jói fór aðeins yfir hvaða verkefni yngri flokka landsliðin okkar eru að brasa í sumar.

  2. 36

    Valur með frumkvæðið og Gróttan uppí Olís !!

    Jóhann Ingi var með Árna Stefán og Silllu í þættinum og var farið vel yfir fyrsta leik Vals og Hauka í úrslitum. Einnig var oddaleikur Gróttu og Aftureldingar krufinn. Allt það helsta úr slúðurheiminum og Bónusbomban sprakk með látum.

  3. 35

    Valur og Haukar mætast í úrslitum

    Valur og Haukar mætast í úrslitum eftir að hafa sópað ÍBV og Fram út 3-0. Silla og Jói fóru yfir undanúrslitin og ræddu umspilið hjá UMFA og Gróttu. Jói kom með "risa skúbb" í þættinum.

  4. 34

    ÍBV og Haukar mæta á flugi inn í undanúrslitin ! Grótta eða UMFA í Olís !

    Jóhann Ingi og Silla fóru vel og vandlega yfir leikina í 6 liða úrslitum í Olísdeild kvenna. Einnig fóru þau yfir umspilið í Grill66 deildinni en þar er búið að stilla upp í úrslitaeinvígi milli UMFA og Gróttu. Einnig var dregið í búningaleik.

  5. 33

    Islenska landsliðið komið á EM 2024

    Þórey Anna Ásgeirsdóttir var gestur Sillu að þessu sinni. Farið var yfir frábært gengi íslenska landsliðið sem tryggði sig á EM 2024 með glæsilegum sigri á Færeyjum. Úrslitakeppnin er handan við hornið og fékk Silla Þóreyju til að spá aðeins í leikina sem framundan eru.

  6. 32

    Lið ársins í Olís og Grilli ! Spennandi úrslitakeppni framundan !

    Jóhann Ingi fékk til sín Árna Stefán Guðjónsson og fóru þeir yfir lokaumferðirnar í Olís og Grill66 deildunum. Lið ársins voru valin og spáð var í spilin fyrir umspil og úrslitakeppni. Leikmaður 21.umferðar var valin. Landsleikir frammundan ræddir.

  7. 31

    Mikilvægt að klára deildina á góðum leik segir Hrafnhildur Ósk Skúladóttir

    Hrafnhildur mætti í settið til Sillu og farið varið yfir 20.umferðina. Mikilvægt að spila vel í síðasta leiknum því það gefi grunninn að góðri úrslitakeppni eru skilaboðin frá Hröbbu til liðanna. Leikmaður umferðarinnar tilkynntur og farið var yfir handboltaferilinn hennar Hröbbu.

  8. 30

    Valur Powerade-bikarmeistari og hörku endasprettur frammundan í Olís og Grill66

    Jóhann Ingi fékk til sín markverði Vals Hafdísi Renötudóttur og Söru Sif Helgadóttur í Kvennakastið að þessu sinni. Það var því sannkallað markmannsþema í þættinum. Farið var yfir bikarvikuna og framhaldið i Olís og Grill66 deildum ásamt því að markverðirnir fóru yfir erfiðustu skotmenn deildarinnar.

  9. 29

    Stemming, leikgleði og samstaða er það sem þarf til að komast á stórmót

    Jóhanna Þóra Guðbjörnsdóttir íþróttafræðingur hefur mikinn áhuga á sögu íslenska kvenna landsliðsins. Hún skrifaði áhugaverða ritgerð í náminu um þessi mál. Silla fékk hana í spjall til að heyra aðeins út á hvað þetta gekk. Seinni parturinn af þættinum kom Kristín Þórðardóttir sem er formaður mótanefndar HSÍ og fóru þær yfir landsleikina á móti Svíþjóð og margt fleira.

  10. 28

    Valur deildarmeistari og Selfoss búnar að tryggja sig í Olís á næsta ári

    Anna Úrsula og Íris Björk voru gestir Sillu í dag. Valsara eru deildarmeistarar og Selfoss liðið er búið að tryggja sig í Olís á næsta ári. Anna og Íris fóru á persónulegu nóturnar þar sem að mikið var hlegið og ferilinn gerður upp.

  11. 27

    Valskonur með 9 fingur á titlinum og úrslitaleikur i Kórnum!

    Jens Gunnarsson þjálfari Berserkja í Grillinu kom í heimsókn til Jóhanns Inga. Rýndu þeir í undanúrslitaleikina í Poweradebikarnum, fóru yfir 18.umferðina í Olís og þá 16. í Grill 66 deildinni. Leikmaður umferðarinnar valin og persónulegu nóturnar að sjálfsögðu á sínum stað.

  12. 26

    Selfyssingar stórhuga í kvennaboltanum

    Eyþór Lárusson mætti í spjall til Jóa. Farið var yfir 8 liða úrslit í Poweradebikarnum og 17. umferðinni í Olís deildinni. Leikmaður umferðarinnar var valinn og farið yfir 15. umferð í Grillinu.

  13. 25

    Einar Jónsson gerði upp 16 umferðina ásamt því spá í spilin fyrir bikarkeppnina

    Stjarnan burstaði UMFA um helgina og meistararnir voru heppnir fyrir norðan. Einar Jónsson þjálfari Fram mætti í spjall til Sillu og þau gerðu upp 16.umferðina ásamt því að spá hvaða lið fara í höllina í bikarkeppninni.

  14. 24

    Hatrömm fallbarátta framundan í Olís!

    Í þessum 25.þætti Kvennakastsins fékk Jóhann Ingi til sín Jón Brynjar Björnsson þjálfara Víkings í Grillinu. Farið var var yfir leikina í 15.umferð Olísdeildar og leikmaður umferðarinnar valin í boði Vellir Sportbar. Einnig var farið yfir 13.umferðina í Grill 66 deildinni. Þá setti Jón Brynjar upp athyglisverðan 5.manna lista mikilvægustu leikmanna Olísdeildar.

  15. 23

    Mikill efniviður í kvennaboltanum. 5 manna listi Binga og draumalið Dags úr Grillinu.

    Þeir Dagur Snær Steingrímsson og Björn Ingi Jónsson kíktu á Jóhann Inga í þessum 23.þætti vetrarins. Fókusinn settur á Grillið og ungal leikmenn. Farið yfir 14.umferðina í Olísdeildinni og þá 12. í Grillinu. Leikmaður umferðarinnar valin. Draumalið Dags og 5 manna listi Binga.

  16. 22

    Ágúst og Stefán þjálfara mættu í spjall

    Ágúst Jóhannsson og Stefán Arnarson mættu í spjall eftir toppslaginní 13.umferðinni. Farið var risumferðina og leikmaður umferðarinnar útnefndur.

  17. 21

    IR - ingar ætla sér stóra hluti

    Karen Tinna og Sigrún Ása komu í heimsókn og fóru yfir 12. umferðina með Jóa. Það var einnig farið yfir Grillið og allt það helsta. Leikmaður 12. umferðarinnar valinn.

  18. 20

    Fram, ÍBV, Stjarna og Valur byrja árið vel

    Eva Björk Davíðsdóttir og Helena Rut Örvarsdóttir mættu í Kvennakastið og farið var yfir 11. umferðina. Eva og Helena hafa verið vinkonur í mörg ár og gaman að heyra hvernig þær enda saman í Stjörnunni.

  19. 19

    Hvað gerist á nýju ári í Olísdeildinni

    Olísdeildin: Nýtt ár, ný tækifæri. Jói og Silla fengu Guðmund Helga Pálsson þjálfara Aftureldingar til að spá í framhaldið í Olísdeildinni. Hvernig koma liðin stemmd fyrir seinni hlutann. Grill66 deildin hefst, hvaða lið eru að fara að berjast um sæti í Olísdeildinni ?

  20. 18

    Forsetabikarinn heim

    Rakel Dögg Bragadóttir mætti til Jóa og Sillu og leikur íslenska liðsins var krufinn til mergjar. Þau ræddu bæði Posten Cup, riðilinn og forsetabikarinn. Fóru yfir hvað var gott og hvað er hægt að vinna áfram með. Dregið var í búningaleik: Heppinn vinningshafi fékk búning frá Díönu Dögg Magnúsdóttir

  21. 17

    Lokaþáttur frá Stavanger og jafntefli í síðasta leik

    Jói og Silla fórum yfir riðilinn beint eftir lokaleikinn. Viðtöl við Elín Rósu og Díönu sem voru eðlilega mjög svekktar eftir jafntefli á móti Angólu. Ágúst Jóhannsson aðstoðar þjálfari fór yfir leikinn ásamt frammistöðuna í þessum riðli. Liðið er á leiðinni í Forseta bikarinn.

  22. 16

    Bónusþáttur: Bakvið tjöldin

    Sérsveitin, sjúkra- og styrktarþjálfarar koma í viðtal til Sillu og Jóa. Þau segja okkur frá ólíkum bakgrunni og nálgun en eiga það öll sameiginlegt að vilja gera allt fyrir íslenska kvennlandsliðið. Það eru fullt af allskonar vinnu í kringum landsliðið til að stelpurnar okkar geti einbeitt sér að ná hámarks árangri á vellinum.

  23. 15

    Elín Jóna frábær gegn sterkum Frökkum. Úrslitaleikur í riðli framundan

    Ásdís Þóra og Hrafnhildur Hanna komu í létt HM spjall í Kvennakstið. Farið var vel yfir sviðið og að sjálfsögðu farið á persónlegu nóturnar. Leikurinn gegn Frökkum skoðaður og spáð í spilinn fyrir úrslitaleikinn gegn Angóla í riðlinum Viðtöl við Berglindi, Söndru, Þóreyju Rósu og Hlyn markvarðaþjálfara.

  24. 14

    Perla spilaði sinn besta leik í fyrsta tapi á HM

    Gestir hjá Jóa og Sillu voru ekki verri kantinum en þau fengu eyjahjónin Erling Richardson og Vigdísi Sigurðardóttur. Þau eru foreldra landsliðkonunannar Söndru Erlingsdóttir. Farið var yfir fyrsta leik á Heimsmeistaramótinu sem var grátlegt tap á móti Slóveníu. Stiklað var á stóru yfir glæsileg handboltaferil þeirra hjóna. Viðtöl við landsliðkonurnar Elínu Jónu, Hildigunni, Katrínu Tinnu og Perlu.

  25. 13

    Kvennakastið: Þáttur 13- Elín Klara var gestur í þessum frábæra þætti rétt áður en heimsmeistaramótið byrjar

    Það vour blendnar tilfinningar þegar Elín Klara mætti sem gestur í Kvennakastið til Jóa og Sillu. Þau fóru yfir æfingamótið sem íslenska kvennalandsliðið var að klára, óvæntu meiðslin rétt fyrir brottför og reyndu að spá í spilin fyrir riðlakeppnina.

  26. 12

    Kvennakastið: Þáttur 12- Karen Knútsdóttir spáir í gengi landsliðsins á heimsmeistaramótinu

    Silla og Jói fengu KareniKnútsdóttur til að ræða gengi landsliðsins á heimsmeistaramótinu sem byrjar 30.nóvember nk. Karen hefur tekið þátt í öllum stórmótum landsliðsins sem fóru fram á árunum 2010,2011 og 2012.

  27. 11

    Kvennakastið: Þáttur 11- Síðasta Olísdeildar umræðan á þessu ári

    Síðasta umferðin í Olís deildinni var að klárast og fóru Jói, Silla og Árni Stefán vel yfir málin. Sérfræðingar voru allir sammála um að mikil spenna er fyrir landsliðsverkefninu sem er framundan.

  28. 10

    Kvennakastið: Þáttur 10- Elín Rósa og Thea komu í spjall

    Landsliðkonurnar Elín Rósa og Thea komu í spjall til Sillu. Þar var farið fyrir stóra ÍBV málið, Olís deildina, Grillið og auðvitað stóra landsliðsverkefnið sem er framundan

  29. 9

    Kvennakastið Þáttur 9. Jói, Gunni og Sonni fara yfir Olís- og Grill 66 deild kvenna. Topp 5 listi.

    Kvennakastið Þáttur 9. Gunnar Valur og Sigurjón fara yfir Olís- og Grill 66 deild kvenna. Topp 5 listi. Farið var yfir margt í þessum frábæra þætti af Kvennakastinu. Jói stýrði þættinum eins og honum er lagið. Ásamt honum voru þeir Sigurjón þjálfari Gróttu og Gunnar Valur þjálfari Fjölnis að fara með honum yfir Olís og Grill 66 deildina.Sonni var með frábæran topp 5 lista. Landsliðsval var rætt. Stóra ÍBV málið var á dagskrá.

  30. 8

    Kvennakastið Þáttur 8. Þær Perla Rut og Hulda Dís fara yfir Olís- og Grill 66 deildirnar.

    Frábær umræða hjá Sillu, Perlu og Huldu. Olís- og Grill 66 deildinn

  31. 7

    Kvennakastið - Þáttur 7: Lovísa og Sara Odden fara yfir Olís deildina

    6.umferð í Olís deild kvenna var spiluð í dag og farið yfir málin í þættinum með Sillu. Lovísa Thompsen og Sara Odden voru góðir gestir. Það var farið ýtarlega yfir Olís deildina, landsleikurinn við færeyja var ræddur og rennt yfir úrslitin í Grilldeildinni.

  32. 6

    Kvennakastið 6. þáttur. Skemmtispjall frá Færeyjum og Olís umræða.

    Landsliðiðsumræða. Kempunar Dagný Skúladóttir og Sigríður Unnur Jónsdóttir í skemmtilegu spjalli. Einnig var næsta umferð í Olís kvenna til umræðu.

  33. 5

    Kvennakastið þáttur 5: Landsleikur við Lúxemborg gerður upp

    Í þættinum í dag komu þjálfararnir Díana Guðjónsdóttir og Rakel Dögg Bragadóttir í spjall til Sillu. Landsleikurinn við Lúxemborg var gerður upp á samt því að ræða ýtarlega um landsliðið. Undir lok þáttar var rætt um síðustu umferð Grill deildarinnar

  34. 4

    Kvennakastið 4. þáttur. Jói, Gunni og Sonni fara yfir Olísdeildina og Nei eða Já .

    5.umferðin i Olís yfirferð. Leikmaður umferðarinnar valinn. Spjall við Sólveigu Láru þjálfara ÍR Kvennakastið mætti í Skógarselið Nýr liður kynntur til leiks Nei eða Já Toppslagur í Grillinu

  35. 3

    Kvennakastið 3. þáttur. Jói, Steinunn og Silla spá í spilin.

    Farið var yfir Olísdeildina og Grill 66 deildirnar. Elín á eldi, Valur heldur áfram, ÍBV að lenda í meiðslum. Allt að gerast.

  36. 2

    Kvennakastið 2.þáttur. Frábært Evrópukvöld í Valsheimilinu

    Valur með alvöru frammistöðu gegn stórliði frá Rúmeníu Toppslagir í sitthvorum enda töflunar í Olís og leikmaður umferðarinnar valin. Fyrsta umferð í Grill66 Landsliðshópur valin. Dregið í Poweradebikarnum.

  37. 1

    Kvennakastið þáttur 1.

    Þáttur 1. Olísdeild kvenna, Grill 66 deild kvenna.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Handboltaumfjöllun um Olís- og Grilldeild kvenna.Handbolti

HOSTED BY

Kvennakastið, handbolti, handball, Olísdeildin, Grill 66 deildin, kvenna, kast

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Kvennakastið have?

Kvennakastið currently has 37 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Kvennakastið about?

Handboltaumfjöllun um Olís- og Grilldeild kvenna.Handbolti

How often does Kvennakastið release new episodes?

Kvennakastið has 37 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Kvennakastið?

You can listen to Kvennakastið on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Kvennakastið?

Kvennakastið is created and hosted by Kvennakastið, handbolti, handball, Olísdeildin, Grill 66 deildin, kvenna, kast.
URL copied to clipboard!