PODCAST · society
Kvíðakynslóðin hlaðvarp
by Anna Laufey Stefánsdóttir og Kristín Sævarsdóttir
Hlaðvarpið “Kvíðakynslóðin” mun beina sjónum sínum að tveimur meginþemum: áhrifum skjánotkunar á börn og unglinga, og mikilvægi hinna “þriðju staða” í samfélaginu. Þáttastjórnendur eru Anna Laufey tölvunarfræðingur og Kristín mannfræðingur og kynjafræðingur. Þær eru báðar mæður sem hafa fundið mikið fyrir áhrifum skjánotkunar og vöntun á sjálfstæði barna. Anna Laufey stofnaði vinsælu Facebook síðuna Kvíðakynslóðin - Stöndum saman og minnkum skjánotkun barna og fyrirtækið Stafræn velferð ehf.
-
16
#21 iPadar í skólum - Bergþóra Þórhallsdóttir
Í þessum þætti ræðum við við Bergþóru Þórhallsdóttur, verkefnastjóra hjá menntasviði Kópavogsbæjar.Við förum í gegnum innleiðingu spjaldtölva í grunnskólum, hvernig stafræn borgarvitund er kennd, gervigreind í námi og samvinnu heimilis og skóla.Þátturinn er í boði: Balance Phone - https://balancephone.is/Stafræn velferð - https://www.stafraenvelferd.is/JoyBox.is - https://joybox.is/
-
15
#20 Símabönn bara virka - Kristján Ketill Stefánsson
Nýtt nafn! Nýtt logo! Frábær gestur!Í þessum þætti fengum við til okkar Kristján Ketil - Dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hvað segja gögnin okkur um tengsl snjalltækja við líðan og námsárangur barna og ungmenna?Við tölum um spjaldtölvur í skólum, símabönn, gagnreyndar námsaðferðir og menntatækni.Þátturinn er í boði: Balance PhoneStafræn velferðJoyBox.is
-
14
#19 - Skemmtilegra að heimsækja skóla sem eru símalausir - Þorgrímur Þráinsson
Þorgrímur Þráinsson rithöfundur og fyrirlesari kom í þáttinn til að ræða unglinga, lestur og snjalltæki. Hann ferðast um landið og heldur fyrirlestra fyrir 10. bekkinga um það hvernig maður getur orðið ástfanginn af lífinu.
-
13
#18 Þurfa börn snjallsíma?!
Í þættinum fáum við til okkar engan annan en Gunnar Helgason rithöfund og ræðum það hvort börn og ungmenni þurfi í alvörunni snjallsíma?
-
12
#17 Endurkoman: Nýjustu fréttir í samfélaginu og í heiminum
Í þessum þætti fjöllum við um hvað hefur gerst í samfélaginu og í heiminum í þessum efnum síðan við byrjuðum með hlaðvarpið.
-
11
#16 - Tilfinningasnuðið. Ragga Nagli.
Í þessum þætti fáum við til okkar enga aðra en Röggu Nagla. Við spjöllum um vítahringinn sem rústar svefninum okkar, einmanaleikann, gervidópamínið og þau vellíðunarhormón sem við gætum verið að fara á mis við.
-
10
#15 Hvað geta foreldrar gert? - Kristín Ólöf Grétarsdóttir
Hvaða áhrif geta foreldrar haft á skólaumhverfi barna? Hvernig getum við gert alla skóla landsins snjallsímalausa? Kristín Ólöf Grétarsdóttir er foreldri tveggja drengja á grunnskólaaldri. Hún var formaður Foreldrafélags Áslandsskóla í sjö ár, situr í foreldraráði Hafnarfjarðar, er í stjórn Heimilis og skóla, og er menntaður kennari. Hún brennur fyrir að beina athygli að skjánotkun barna, því hún vill að skólar séu símalausir og hætti vanhugsaðri skjánotkun á skólatíma. Einnig situr hún í starfshóp á vegum menntamálaráðuneytisins um mótun leiðbeininga um viðeigandi og örugga farsímanotkun í grunnskólum
-
9
#14 Tengslarof vegna snjallsíma - Jón Pétur Zimsen
Jón Pétur Zimsen, þingmaður sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri, segir að snjallsímar hafi valdið tengslarofi hjá börnum og unglingum. Með 30 ára reynslu úr skólaumhverfinu hefur hann orðið var við miklar breytingar á börnum eftir að snjallsímar urðu algengir.
-
8
#13 Agaleysi í skólum - Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir
Sigrún Ólöf, skólastjóri Hörðuvalalskóla, kallaði nýlega eftir þjóðarátaki þar sem agaleysi í skólum er orðið óboðlegt. Hvar liggur rót þessa agaleysis? Hún var svo góð að koma í hljóðverið til okkar og ræða þessi málefni nánar við okkur.
-
7
#12 - Að alast upp undir allra augum
Deilum við of miklu um börnin okkar? Ef þú myndir líta til baka, værir þú ánægð/ur með að þessi upplýsingar væru til um þig frá þinni barnæsku? Í þessum þætti ræðum við hugtakið „sharenting“, sem er sambland af orðunum „sharing“ og „parenting“. Hvar liggja mörkin? Hvað geta óvinveittir aðilar gert við myndir og upplýsingar barna? Og hvað segja börnin þegar þau eldast og uppgötva allt sem hefur verið deilt um þau á netinu?
-
6
#11 Hvað eru önnur lönd að gera?
Í þessum þætti fer Kristín yfir sínar heimilisreglur um skjánotkun. Við ræðum einnig hvað önnur lönd eru að gera í tengslum við síma- og samfélagsmiðlabönn fyrir börn, og förum í gegnum það sem við höfum rætt í fyrri þáttum.
-
5
#10 Hér er ein pæling - Þórarinn Hjartarson
Af hverju eyðum við – og börnin okkar – svo miklum tíma fyrir framan skjái í leit að ódýru og skjótvirku dópamíni? Hvað gerðist? Í þessum þætti fáum við frábæran gest, hann Þórarinn Hjartarson þáttarstjórnanda vinsæla hlaðvarpsins Ein pæling. Við ræðum um hvar við erum stödd og Þórarinn varpar ljósi á sína sýn á stöðuna í dag.
-
4
#9 Símar í skólum - Davíð Már Sigurðsson
Hver eru helstu vandamál kennara þegar kemur að símanotkun barna? Gestur okkar í dag er Davíð Már Sigurðsson, sem er íþróttakennari og styrktarþjálfari með meistarapróf í íþróttaþjálfun, rannsóknum og kennarafræðum. Við ræðum um íþróttir barna og áhrif síma á skólaumhverfið. Eru spjaldtölvur og símar virkileg að hjálpa börnunum okkar í námi? Hvað þýðir að vera símalaus skóli? Lagar símabann öll okkar vandamál?
-
3
#8 Heimaró: frjáls leikur og flæði
Í þessum þætti kemur Gunnhildur Jóhannsdóttir sérkennari og þroskaþjálfi í heimsókn til okkar og varpar ljósi á álag barna, séð með augum kennara. Við tölum um mikilvægi róar og næðis heimafyrir, færni barna til að vera í frjálsum leik í heimi þar sem börnum er stýrt meir og meir og vanda kennara eins og hún orðaði það: ,,Það er erfitt fyrir stærðfræðikennara að toppa Fortnite"
-
2
#7 Raunveruleiki barna í heimi snjallsíma - Skúli Bragi kemur í heimsókn
Í þessum þætti fáum við Skúla Braga Geirdal í heimsókn til okkar. Hann er sérfræðingur á sviði upplýsinga- og miðlalæsis hjá fjölmiðlanefnd, heldur fyrirlestra og skrifar greinar til leiðbeiningar fyrir foreldra barna á tímum snjallsímavæðingar.
-
1
#6 Skjátími, heimilisreglur og rafíþróttir
Í þessum þætti ræðum við um ólíka skjánotkun og tilgang hennar. Við opinberum eigin skjátíma, hvernig Anna Laufey notar stundum appið "the balanced phone", hvað okkur öllum finnst endurnærandi að fá "like" á samfélagsmiðlum og hvað skjátími er mikill upplifanaþjófur.
-
0
#5 Leikur barna og fullorðinna
Hvernig brjótumst við út úr viðjum vanans og innleiðum meiri leik og útiveru í lífið okkar? Sabína Steinunn, íþrótta- og heilsufræðingur og áhugakona um hreyfifærni og þroska barna, kemur til okkar og eys úr viskubrunni sínum.
-
-1
#4 Þorpið & leitin að þriðja staðnum
Það segir að það taki heilt þorp að ala upp barn, en hvar er þorpið í dag? Og hvar eru svokallaðir „þriðju staðir“ – rými þar sem fólk kemur saman utan heimilis og vinnu? Anna og Kristín velta fyrir sér hlutverki þorpsins í nútímasamfélagi, þeim áskorunum sem fjölskyldur standa frammi fyrir í dag og mikilvægi þess að skapa staði þar sem einstaklingar geta hist, tengst og byggt upp samhug innan samfélagsins.
-
-2
#3 Samfélagsleg áhrif skjánotkunar
Í þessum þætti fáum við til okkar frábæran gest, hana Önnu Claessen. Anna er margreyndur markþjálfi, einkaþjálfari, fyrirlesari og skemmtikraftur, með sérþekkingu á viðfangsefnum eins og streitu, kulnun og sjálfsrækt. Við ræðum áhrif skjánotkunar á andlega og líkamlega heilsu, tengsl stafræns áreitis við streitu og kulnun, og hvernig við sem einstaklingar og samfélag getum tekist á við þessar áskoranir. Njótið!
-
-3
#2 Að alast upp á Mars
Anna og Kristín fara í saumana á fjórum lykilleiðum sem Jonathan Haidt leggur til til að takast á við skjánotkun barna og skoða hvernig við sem samfélag getum innleitt þær í framkvæmd. Þær ræða einnig hlutverk frjáls leiks í þroska barna, mikilvægi þess að efla ábyrgð þeirra og hvernig öryggi barna getur samræmst sjálfstæði þeirra í nútíma samfélagi.
-
-4
#1 Skjánotkun barna og unglinga
Anna og Kristín ræða stöðu foreldra og barna í tengslum við skjátíma barna og þau samfélagslegu áhrif sem honum fylgja. Þær fara yfir helstu áskoranirnar sem blasa við, hvernig við lentum í þessari stöðu og hvað hægt er að gera til að bæta ástandið.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Hlaðvarpið “Kvíðakynslóðin” mun beina sjónum sínum að tveimur meginþemum: áhrifum skjánotkunar á börn og unglinga, og mikilvægi hinna “þriðju staða” í samfélaginu. Þáttastjórnendur eru Anna Laufey tölvunarfræðingur og Kristín mannfræðingur og kynjafræðingur. Þær eru báðar mæður sem hafa fundið mikið fyrir áhrifum skjánotkunar og vöntun á sjálfstæði barna. Anna Laufey stofnaði vinsælu Facebook síðuna Kvíðakynslóðin - Stöndum saman og minnkum skjánotkun barna og fyrirtækið Stafræn velferð ehf.
HOSTED BY
Anna Laufey Stefánsdóttir og Kristín Sævarsdóttir
Loading similar podcasts...