Kynlífið

PODCAST · education

Kynlífið

Indíana Rós kynfræðingur og Aldís Þorbjörg sálfræðingur og kynlífsráðgjafi ræða kynlíf, kynheilbrigði og allt sem tengist því á einn eða annan hátt!Þetta hlaðvarp og umfjallanir tengdar því er miðað að fullorðnu fólki🥰❤️

  1. 37

    #37 Langvinnir verkir og kynlíf- Herdís Kjartans kvenheilsusjúkraþjálfari

    www.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguHerdís Kjartansdóttir kveinheilsusjúkraþjálfari kom og ræddi við Indíönu (því Aldís var veik) um langvinna verki og áhrif þess á kynlíf. Hægt er að finna Herdísi hér á instagram. Herdís starfar á Stíganda og má finna upplýsingar um hana hér, hægt er bóka tíma í sjúkraþjálfun hjá henni þar.. Hér má finna fleiri kvenheilsusjúkraþjálfara sem Indíana hefur áður tekið saman (vantar eflaust á listann, tek glöð við ábendingum)

  2. 36

    #36 Kynlífsmarkþjálfun & unaður kvenna - Kristín Þórs kynlífsmarkþjálfi

    www.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguKristín Þórs markþjálfi ræddi við okkur um hvað felst í kynlífsmarkþjálfun og námskeiði sem hún bíður upp á en svo fór samtalið á víðan völl um unað kvenna og hvernig má huga að unaði fyrir sjálfan sig.Þið getið fundið Kristínu á instagram hér!

  3. 35

    #35 Kynlíf og langtímasambönd. Part 2 - Tilfinningalegt rými kynlífs

    www.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguÍ þessum seinni þætti af tveimur um kynlíf og langtímasambönd förum við Aldís vel yfir tilfinningaleg rými okkar, og hvernig við komumst í rými kynlífs - og jú hvað kippir okkur úr því. Hér má finna teiknimynd sem lýsir þessu ágætlega sem við tölum um - bókin sem við vísum mikið í heitir Come Together: The Science (and Art!) of Creating Lasting Sexual Connections og er eftir Emily Nagoski. Njótið!

  4. 34

    #34 Kynlíf og langtímasambönd. Part 1 - Bensín og bremsur

    www.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguÍ þessum fyrra þætti af tveimur um kynlíf og langtímasambönd förum við Aldís vel yfir hvað kynlöngun er og hvernig hún virkar eiginlega!Hér má finna prófið sem við tölum um að hægt er að taka til að átta sig á hversu viðkvæm, eða ekki, bensíngjöfin ykkar eða bremsa er.Bókin sem við vísum mikið í heitir Come As You Are og er eftir Emily Nagoski.Njótið!

  5. 33

    #33 Skömmin og kynlíf - Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur

    www.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguGuðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur, höfundur bókarinnar Skömminn - úr vanmætti í sjálfsöryggi ræddi við okkur um skömmina. Mjög áhugavert samtal og að sjálfsögðu ræddum við hvernig það tengist kynverundinni okkar.

  6. 32

    #32 ADHD og áhrif þess á kynlíf

    www.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguÍ þessum þætti skoðum við hvernig ADHD getur haft áhrif á kynlíf, sambönd og nánd. Við ræðum um hvernig einkenni ADHD geta bæði skapað áskoranir kynlífi en líka góðu hliðar ADHD í sambandi og kynlíf. Blessuðu þáttastjórnendurnir eru sjálfar báðar með ADHD og deila því eigin reynslu og gefa praktísk ráð til að efla skilning fyrir ykkur sjálf, en líka ef þið eigið maka með ADHD og því hvernig þig getið bætt samskiptin og aukin skilning.

  7. 31

    #31 Framhjáhöld & nafnlaust viðtal

    www.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguVið ræddum núna framhjáhöld, afhverju fólk heldur framhjá, hvernig er hægt að vinna úr því og hver vinnan er fyrir bæði sá svikna og þann sem sveik. En svo fengum við líka frábæran viðmælanda sem ræddi reynslu sína á því að hafa haldið framhjá. Hann er nafnlaus í þættinum.

  8. 30

    #30 Fjölástir, er bara ein rétt leið?

    www.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguAldís Þorbjörg kynlífsráðgjafi og sálfræðingur hefur nú tekið fast sæti í stólnum hjá Kynlífinu og verðum við því héðan í frá alltaf tvær saman, vonandi einnig með aðra góða gesti. Í þætti dagsins ræðum við hvort það sé nú ein rétt leið fyrir fjölástir og opin sambönd, eða kannski, þarf bara ræða það eins og allt annað og finna út hvað hentar hverjum? Stóra spurningin sem við reynum að svara í þessum þætti!

  9. 29

    #29 Sjálfsfróun

    www.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Durex Smokkar - @artasanÍ þessum þætti ræði ég um allt sem viðkemur sjálfsfróun! Hversu margir stunda sjálfsfróun, hvernig, unaðstæki, sleipiefni og margt fleira!

  10. 28

    #28 Reynsla af brjóstpúðaveiki & leið að líkamssátt - Tinna Björk Kristinsdóttir

    www.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Durex Smokkar - @artasanTinna Björk Kristinsdóttir, atvinnugrínari og snillingur með meiru, ræddi við mig um reynslu sína af brjóstpúðaveiki, en hún fékk sér brjóstpúða árið 2016 sem hún lét svo fjarlæga eftir nokkur ár af óútskýrðum einkennum og veikindum. Einlægt og frábært spjall sem leiddist svo í fleiri umræður, til dæmis um leiðina að líkamssátt!

  11. 27

    #27 Þráhyggjur, áráttur og áhrif þeirra kynlíf og sambönd - Ásmundur Gunnarsson sálfræðingur

    www.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Durex Smokkar - @artasanÁsmundur Gunnarsson sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni kom til mín og ræddi áráttu og þráhyggjuröskun og líkamsskynjunarröskun (Body dysmorphic disorder) og áhrif þeirra á kynlíf og sambönd. Hægt er að bóka tíma hjá Ása eða öðrum í OCD teyminu hjá kms á [email protected]! Upplýsingarnar sem Ási bendir á má finna hér:Intrusivethoughts.orgÍ þessum hlekk Hér má sjá fjöggura daga meðferðina við OCDHér eru alþjóðleg OCD samtök með allskonar fræðsluefni : IOCDF.comBækur:When a loved one won't seek mental health treatment: How to promote recovery and reclaim your family's well-BeingBreak free from OCD: Overcoming Obsessive Compulsive Disorder with CBT

  12. 26

    #26 Ófrjósemi og áhrif á andlega líðan, kynlíf og sambandið Salka Sól Eyfeld

    www.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Durex Smokkar - @artasanSalka Sól Eyfeld, tónlistarkona og skemmtikraftur, móðir, eiginkona og vinkona kom til mín og ræddi reynslu sína af ófrjósemi og hvaða áhrif það ferli hafði á andlega líðan. Þá að sjálfsögðu ræddum við líka áhrif ófrjósemi á kynlífið og sambandið. Einlæg og falleg frásögn frá frábærri konu!

  13. 25

    #25 Swing og hópkynlíf - Sigga Dögg kynfræðingur

    www.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Durex Smokkar - @artasanSigga Dögg kynfræðingur kom til mín og við ræddum swing, eða svokallaðann ''lífstíl'', og einnig hópkynlíf. Fórum yfir góð ráð og hvað þarf að hafa í huga fyrir áhugasöm sem vilja fara leika.

  14. 24

    #24 Þunglyndi, kvíði, geðrof, lyfin og kynlíf - Tómas sérnámslæknir í geðlækningum

    www.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Durex Smokkar - @artasanTómas Ágústsson sérnámslæknir í geðlækningum kom til mín og ræddi við mig um þunglyndi, kvíða og geðrof og áhrif þessa geðsjúkdóma á kynlíf, þá ræddum við einnig hvernig lyf við þessum sjúkdómum geta haft áhrif á kynlíf og hvað er þá hægt að gera.Hér er hlekkur sem við ræddum í þættinum sem er svona ''á mannamáli''

  15. 23

    #23 Kynlíf eftir kynferðilegt ofbeldi og áföll - Aldís Þorbjörg sálfræðingur og kynlífsráðgjafi

    www.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Durex Smokkar - @artasanAldís Þorbjörg Kynlífsráðgjafi og sálfræðingur kom og ræddi við mig um allt milli himins og jarðar þegar kemur að kynlífi eftir áföll og kynferðislegt ofbeldi. Hvaða áhrif það hefur og veitti nokkur góð ráð. Hægt er að kynna sér Aldísi Þorbjörgu og kynlífsráðgjöf á heimasíðunni hennar ⁠Kynlifsradgjof.is

  16. 22

    #22 Mýtan um bleika skýið eftir fæðingu - Elín Ásbjarnardóttir heimspekingur

    www.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex Smokkar - @artasanElín Ásbjarnardóttir Strandberg er heimspekingur og jógakennari og hefur rannsakað endurmótun sjálfsins eftir fæðingu og meðgöngu, og við ræðum því allskonar tilfinningar og upplifanir eftir meðgöngu og fæðingu. Við erum saman hluti af teymi sem er með námskeiðið Móðir í Mótun; Endurheimt eftir meðgöngu og fæðingu sem haldið er á Fæðingarheimili Reykjavíkur. Þið getið kynnt ykkur niðurstöður rannsóknarinnar hennar hér á instagram.

  17. 21

    #21 Vandi með kynferðislega hegðun og hugsun - Jóhanna frá Taktu Skrefið

    www.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Jóhanna Dagbjartsdóttir er sálfræðingur á Taktu Skrefið. Taktu skrefið er úrræði fyrir fólk sem hefur áhyggjur af kynferðislegri hegðun sinni eða hefur beitt kynferðisofbeldi. Þar starfar hópur sálfræðinga með sérþekkingu á þessu sviði sem aðstoða ungmenni og fullorðna. Við ræðum algengar mýtur, hvernig þau vinna með fólki sem hefur áhyggjur af kynferðislegum hugsunum sínum eða hegðun og einnig einstaklinga með barnagirnd eða sem eru gerendur kynferðislegs ofbeldis. Hér má finna fræðsluefni sem hún vísar í, Stop It Now.

  18. 20

    #20 Áhrif krabbameins á sambandið og kynlífið - Egill Þór og Inga María

    www.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumEgill Þór greindist með krabbamein í Júní 2021. Þá áttu hann og Inga María eins og hálfs árs gamlann strák og áttu von á sínu öðru barni. Við tók meðferð og var hann talinn vera laus við krabbamein um mánuði fyrir settan dag hjá stelpunni þeirra - en um viku fyrir fæðingu hennar kom í ljós að krabbameinið var komið til baka. Við tók krefjandi barátta sem tók skiljanlega á alla þætti lífsins og er hann núna laus við krabbameinið þó hann sé enn að glíma við allskonar afleiðingar. Þau komu og ræddu við mig um áhrif krabbameinsins á sambandið og kynlífið á svo einlægan og fallegann máta. Það má greinilega heyra að þetta fallega par hefur lært ýmislegt á þessari reynslu sem hefur styrkt þeirra tengsl.

  19. 19

    #19 Reynslan mín sem trans kona á Íslandi - Bríet Blær Jóhannsdóttir

    www.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumBríet Blær er trans kona og talar við mig um reynslu sína á því að vera trans kona á íslandi. Hún fjallar um hvernig hún áttaði sig á því að hún væri trans og hvernig kerfin brugðust henni þegar hún var yngri. Þá ræðir hún sitt kynstaðfestandi ferli og biðina löngu eftir aðgerð. Þá gætu mörg kannast við hana frá Twitter en þar deildi hún reglulega frá raunum sínum að vera trans kona og öllu því sem fylgir því.

  20. 18

    #18 Áhrif tengslamynstra á sambönd, samskipti, ágreininga og kynlíf - Soffía Bæringsdóttir fjölskyldufræðingur

    Indíana Rós er á Facebook, Instagram og heimasíðan er hér!Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumSoffía Bæringsdóttir er með master í fjölskyldumeðferð, diplómu í handleiðslu og hefur starfað sem doula frá 2008. Hún sinnir pararáðgjöf og fjölskyldumeðferð með styrk og tengsl í huga. Hún ræddi við mig um mismunandi tengslamynstur, áhrif þess á sambönd, samskipti, ágreining og kynlíf. Hér má kynna sér betur Soffíu og þá er hægt að fylgja henni á Instagram hér.

  21. 17

    #17 Líkamsmynd, sjálfsmynd, átraskanir og kynlíf - Hrafnkatla Sálfræðingur

    Indíana Rós er á Facebook, Instagram og heimasíðan er hér!Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumHrafnkatla Agnarsdóttir er sálfræðingur á Sálfræðistofunni Höfðabakka og hefur hún sérhæft sig í átröskunum barna og ungmenna. Hún ræddi við mig um hvað líkamsmynd, sjálfsmynd og átraskanir eru og hvernig þau hafa áhrif á lífið, og sjálfsögðu ræddum við hvernig þessir þættir hafa áhrif á kynlíf fólks.

  22. 16

    #16 Kynlífshandritið og að vera góður í rúminu

    Indíana Rós er á Facebook, Instagram og heimasíðan er hér!Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumHefuru einhverntíman pælt í því afhverju kynlífið sem þú stundar er eins og það er? Hver kenndi þér eiginlega þetta ætti að vera svoleiðis? Hvernig verð ég góður í rúmminu? Indíana Rós svarar öllum þessum pælingum í þætti vikunnar!

  23. 15

    #15 Kynlífsvinna á Íslandi - Logn og Renata frá Rauðu Regnhlífinni

    Indíana Rós er á Facebook, Instagram og heimasíðan er hér!Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumLogn og Renata frá Rauðu Regnhlífinni, Samtök fólks í kynlífsvinnu á Íslandi. Þau ræddu um ýmislegt sem við kemur kynlífsvinnu og raunina á Íslandi. Þau ræddu um hvað Rauða Regnhlífin er og hvað þau gera, ræddu um reynslu sína af kynlífsvinnu. Hvað kynlífsvinna er, viðhorf almennings og lagaumhverfið á Íslandi og hvaða áhrif það hefur á kynlífsverkafólk! Það má finna Rauðu Regnhlífina á Instagram og Facebook!

  24. 14

    #14 Typpaheilsa og áhrif risvanda, verkja, Peyronies og krabbameins í blöðruhálskritli á kynlífið - Lalli frá Neðanbeltis karlheilsu

    Indíana Rós á Instagram @indianaros6 Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumLárus Jón, betur þekktur sem Lalli sjúkraþjálfari, , ræddi við mig um karlheilsu, eða typpaheilsu og sjúkraþjálfun tengda því. Hvað það er eiginlega og hvernig það fer fram. Við fórum um víðan völl og ræddum risvanda, Peyronie's, krabbamein í blöðruhálskirtli og grindarbotninn hjá typpaeigendum.Hægt er að fylgja Lalla á bæði Instagram á og Facebook undir Neðanbeltis Karlheilsa! Þá að sjálfsögðu er hægt að bóka tíma hjá honum hjá Táp Sjúkraþjálfun

  25. 13

    #13 Að eignast barn með kynfrumugjafa - Andrea Björt

    Indíana Rós á Instagram @indianaros6 Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Libresse túrvörur - Libresse á Instagram - Svansvottaðar og ilmefnalausar túrvörurDurex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumAndrea Björt er eiginkona, mamma, iðjuþjálfi og meira til! Hún kom til mín og ræddi ferlið hjá sér og eiginkonu sinni að eignast barn með kynfrumugjafa og sagði mér líka frá bókinni sem hún er að gefa út, Hvernig varð ég til? sem er tól í hendur foreldra til að auðvelda þeim að ræða við börnin sín hvernig þau urðu til, þá sér í lagi þau börn sem urðu til með aðstoð læknavísindanna á einn eða annan hátt!Þegar þessi þáttur er gefin út er söfnun í fullum gangi á Karolina Fund og hægt að tryggja sér eintak á íslensku eða ensku hér! 

  26. 12

    #12 Endó, áhrif á lífið og kynlíf - Eyrún Telma frá Endó samtökunum

    Indíana Rós á Instagram @indianaros6 Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Libresse túrvörur - Libresse á Instagram - Svansvottaðar og ilmefnalausar túrvörurDurex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumEyrún Telma, meðstjórnandi í Endó samtökunum, kom og ræddi við mig um Endó, eða endómetríósu, hvað það er, hver einkennin eru, hvaða áhrif það hefur á daglegt líf og deilir sinni persónulegu einlægu reynslu um hvernig þetta hefur haft áhrif á hana og hennar kynlíf. Hægt er að kynna sér samtökin á Endo.is og að sjálfsögðu fylgja þeim á Instagram hér!

  27. 11

    #11 Incel / Skírlífir gegn sínum vilja - Dr. Bjarki Þór Grönfeldt

    Indíana Rós á Instagram @indianaros6 Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumDr. Bjarki Þór Grönfeldt er doktor í stjórnmálasálfræði og hefur verið að vinna að verkefni sem snýr að forvörnum fyrir þau sem telja sig vera Incel, eða að lifa skírlífi gegn eigin vilja. Þeir, mest megnis karlmenn og strákar, telja sig eiga tilkall til kynlífs og eru gjarnan mjög félagslega einangraður hópur með flókinn vanda og má sjá mikla kvenfyrirlitningu og hatur á spjallrásum þeirra. Dr. Bjarki kafaði þá djúpt inn í kanínuholuna með mér og skoðuðum ýmsa vinkla varðandi Incels! Athugið að í þættinum er mikið rætt um ofbeldi.

  28. 10

    #10 Kvenheilsusjúkraþjálfun og verkir í kynlífi - Hildur Gríms sjúkraþjálfari

    Indíana Rós á Instagram @indianaros6 Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumHildur Grímsdóttir, kvenheilsusjúkraþjálfari með meiru, ræddi við mig um kvenheilsusjúkraþjálfun, hvað það er eiginlega og hvernig það fer fram og svo ræddum við verki í kynlífi. Veittum nokkur góð ráð við því líka! Hægt er að fylgja Hildi á instagram á @hildurgrims eða kíkja á hildurgrims.is

  29. 9

    #9 PCOS / Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni - Elísa, Varaformaður PCOS samtakanna

    Indíana Rós á Instagram @indianaros6 Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumElísa, varaformaður PCOS samtakanna, kom og ræddi við mig um PCOS, eða fjölblöðrueggjastokkaheilkenni, hvað það er, hver einkennin eru, hvaða áhrif það hefur á daglegt líf og að sjálfsögðu kynheilbrigði! Hægt er að kynna sér samtökin á pcos.is og að sjálfsögðu fylgja þeim á Instagram hér!

  30. 8

    #8 Kynjahlutverk, kynfæraskömm og áhrif þess á kynlíf og sambönd - Birna Gustafsson kyn- og lýðheilsufræðingur

    Indíana Rós á instagram @indianaros6 Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumBirna Gustafsson kyn-og lýðheilsufræðingur kom og ræddi við mig um kynfæraskömm, kynjahlutverk og hvernig þetta allt hefur áhrif á kynlífið og samböndin okkar.  Hægt er að kynna sér betur Birnu hér á instagram!

  31. 7

    #7 Vímuefnanotkun, Heimilisleysi og kynheilbrigði - Hafrún Elísa frá Frú Ragnheiði

    Indíana Rós á instagram @indianaros6 Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumHafrún Elísa teymisstýra í skaðaminnkun hjá Rauða Krossinum kom og kíkti við, ræddum vímuefnanotkun, heimilisleysi og kynheilbrigði. Hægt er að kynna sér Frú Ragnheiði hér.

  32. 6

    #6 Þriðja vaktin, sambandið og kynlífið - Hulda Tölgyes sálfræðingur

    Indíana Rós á instagram @indianaros6 Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumHulda Tölgyes sálfræðingur og rithöfundur kom og ræddi við mig um þriðju vaktina, áhrif þess á sambandið, fjölskylduna og að sjálfsögðu hvernig það tvinnast inn í kynlífið.  Hægt er að kynna sér betur bókina umtöluðu og Huldu á thridja.is og á instagram @hulda.tolgyes

  33. 5

    #5 Tíðahringurinn

    Indíana Rós Kynfræðingur á instagram.Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumÍ þetta sinn fræði ég ykkur um tíðahringinn! Smá svona tíðahringurinn 101. Förum líka inn í túrverki og hvað er eðlilegt þar, hreyfingu og líðan í tíðahringnum og hvernig hormónin tengd tíðahringnum hafa áhrif á orkuna okkar.

  34. 4

    #4 Kynfræðslan heima - Sjöfn Ingvarsdóttir

    Indíana Rós Kynfræðingur á instagram.Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumSjöfn vinkona mín og 5 barna móðir settist með mér til að ræða hvernig við tökum kynfræðsluna heima. Hún reynir að gera sitt besta, og gerir það reyndar nokkuð vel, og fer yfir hvernig hún gerir það, hvaða áhyggjur hún hefur og að sjálfsögðu fær hún ráð og gefur þá góð ráð líka!

  35. 3

    #3 Að vera hommi á Íslandi - Unnsteinn Jóhannsson

    Indíana Rós Kynfræðingur á instagram.Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumUnnsteinn Jóhansson, eiginmaður, faðir og hommi, kom til mín og við ræddum hvernig væri að vera hommi á Íslandi. Hann er menntaður Kaospilot, er með diplómu í kynfræði og var á tíma varaformaður Samtakanna 78. Þá ræddum við hvort og hvernig það hefur breyst að vera hommi á undanförnum árum hér á landi, algengar mýtur um kynlíf homma og margt fleira. Að sjálfsögðu þá gaf hann Unnsteinn okkur góð ráð og fræðslu!

  36. 2

    #2 Kynlíf og veikindi - Áslaug Kristjáns kynfræðingur og kynlífsráðgjafi

    Indíana Rós Kynfræðingur á instagram.Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumÁslaug Kristjáns kynfræðingur og kynlífsráðgjafi kom til mín í stúdíóið og við ræddum um kynlíf, sambönd og veikindi. Hvernig hafa veikindin áhrif á parasambandið, samskipti og kynlífið sjálft. Þá að sjálfsögðu gaf hún okkur nokkur góð ráð og mikla fræðslu. Hægt er að kynna sér Áslaugu betur á aslaugkristjans.is

  37. 1

    #1 Kynlífsráðgjöf og ósamræmi í kynlöngun - Aldís Þorbjörg kynlífsráðgjafi

    Indíana Rós Kynfræðingur á instagram.Þátturinn er í boði:Elko Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumAldís Þorbjörg sálfræðingur og kynlífsráðgjafi kom og ræddi við mig um allt sem viðkemur kynlífsráðgjöf. Hvenær fer maður, hvað gerist og hver eru algengustu ástæður að fólk fer til kynlífsráðgjafa. Þá köfuðum við aðeins ofan í ósamræmi í kynlöngun, en það er einmitt ein helsta ástæða þess að fólk leitar sér aðstoðar! Hvað er það, hvenær ætti fólk að leita sér aðstoðar fagaðila og hún gaf nokkur góð ráð til að byrja samtalið og tækla málið! Hægt er að kynna sér Aldísi Þorbjörgu og kynlífsráðgjöf á heimasíðunni hennar ⁠Kynlifsradgjof.is

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Indíana Rós kynfræðingur og Aldís Þorbjörg sálfræðingur og kynlífsráðgjafi ræða kynlíf, kynheilbrigði og allt sem tengist því á einn eða annan hátt!Þetta hlaðvarp og umfjallanir tengdar því er miðað að fullorðnu fólki🥰❤️

HOSTED BY

Indíana Rós Kynfræðingur og Aldís Þorbjörg kynlífsráðgjafi

Produced by Indíana Rós Kynfræðingur

CATEGORIES

URL copied to clipboard!