PODCAST · arts
Labbitúr
by Halli
Labbitúr er podcast þar sem Halli fer í labbitúr með skapandi einstaklingum.
-
31
Labbitúr: Ragga Gísla
Ragga Gísla um feimnina, höggborinn, Grýlurnar og að setja mótlæti á færiband út í geiminnRagnhildur Gísladóttir hefur verið ein af skærustu stjörnum íslenskrar tónlistar í áratugi – bæði sem sólólistamaður og með hljómsveitum á borð við Brunaliðið, Grýlurnar og Stuðmenn. Hún hefur sungið þjóðhátíðarlög, samið tilraunakennd verk og lifað í takt við tónlistina nánast frá því hún man eftir sér. Í viðtali við Halla opnar hún sig um allt frá Bernskuminningum og ástinni á skrítnum hljóðum yfir í kennslu, þunglyndi – og mikilvægi þess að klippa á snúrur.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
30
Labbitúr: Ólafur Egilsson
Óli Egils um áfengi, Bubba, fjölskylduna og leikinn sem lögmálÓlafur Egill Egilsson hefur komið víða við – sem leikari, leikstjóri og handritshöfundur. Hann hefur leikið í klassískum kvikmyndum eins og Einkalífi, skrifað og leikstýrt á sviðum borgarinnar og nýlega snert hjörtu landsmanna með verkinu Níu líf Bubba, sem hann skrifaði og setti á svið í Þjóðleikhúsinu.Í viðtali við Halla fer hann yfir feril sinn og lífið sjálft með þeirri blöndu af dýpt, sjálfsgagni og hlýju sem einkennir Óla best.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
29
Labbitúr: Friðgeir Einarsson
Friðgeir Einarsson hefur komið víða við á íslenskum menningarpalli síðustu ár – sem leikari, leikstjóri, rithöfundur og skaupshöfundur. Í nýjasta þætti Labbitúrs ræðir hann við Halla um það að vilja stjórna öllu… en líka sleppa takinu. Og að skrifa sér hlutverk sem eru svolítið gremjuleg. Eins og hann segir sjálfur: „Ég er kannski bara í svona góðri æfingu að nota einhverja svona karakterbresti og pirring sem koma frá mér sjálfum.“Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
28
Labbitúr: Bragi Valdimar
Bragi Valdimar Skúlason hefur verið hluti af lífi þjóðarinnar í meira en tvo áratugi. Með skop, söng, framkomu á skjá og smekkleysu að eigin sögn. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hann um götur borgarinnar með Halla þar sem þeir ræða allt frá þungarokki og jólalögum yfir í íslenskuna og gervigreind.Það sem byrjaði sem tæknitilraun um aldamótin hefur á undarlegan hátt þróast í eitt vinsælasta jólaskrímsli landsins, Baggalút.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
27
Labbitúr: Sigtryggur Baldursson
Sigtryggur Baldursson hefur lifað tónlistarlífi sem fæstir geta státað af. Hann var einn af stofnmeðlimum Sykurmolana, sveit sem setti Ísland á heimskortið þegar hún hitaði meðal annars upp fyrir U2 á sínum tíma. Í dag sinnir hann starfi hjá Tónlistarmiðstöðinni, leiðir verkefni sem styðja íslenska tónlist um allan heim og segir tónlistarbransann bæði fallegan og óútreiknanlegan.Halli gekk með Sigtryggi í nýjasta þætti hlaðvarpsins Labbitúr, þar sem farið var yfir bæði fortíð og nútíð – frá pönki til styrkja, frá bátablæti til bjartsýniKomdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
26
Labbitúr: Edda Björgvinsdóttir
Edda Björgvinsdóttir, ein ástsælasta og áhrifamesta leikkona landsins, tók þátt í nýjasta þætti hlaðvarpsins Labbitúr þar sem hún gekk um götur Reykjavíkur með Halla. Þar ræðir hún opinskátt um leiklistina, sorgina, ástina, húmorinn – og að orkan sé loksins komin aftur.„Ef hláturinn er ekki í lífinu þá á að ná í hann.“Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
25
Labbitúr: Ingvar E. Sigurðsson
Ingvar E. Sigurðsson, einn virtasti leikari Íslandssögunnar, rölti nýverið með Halla meðfram sjónum. Þar deilir hann dýrmætum viskuperlum, myndrænum líkingum og persónulegum sögum af löndum og farsælum ferli á sviði, í þáttum og kvikmyndum.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
24
Labbitúr: Ásgeir Trausti
Ásgeir Trausti er einn af ástsælustu tónlistarmönnum Íslands, bæði heima og erlendis. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hann með Halla um götur Reykjavíkur og spjallar opinskátt um ferilinn, fjölskylduna, streaming-kerfið og draumana sem enn lifa.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
23
Labbitúr: Saga Garðarsdóttir
Saga Garðarsdóttir er ein ástsælasta leikkona og uppistandari þjóðarinnar. Hún hefur náð einstökum árangri í sviðslistum og grínheiminum með sinn persónulega, hráa og oft hjartnæma stíl. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hún með Halla um vesturbæinn og spjallar hispurslaust um fjölskyldulíf, frægð og sjálfstraustið sem fylgir sviðinu – og hvað það er erfitt að semja brandara.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
22
Labbitúr: Baltasar Kormákur
Baltasar Kormákur þarf vart að kynna. Hann er líklega þekktasti kvikmyndaleikstjóri Íslandssögunnar, með feril sem spannar íslenskar kvikmyndir, stórmyndir frá Hollywood og eigin kvikmyndaver – RVK Studios – sem hefur sett Ísland á heimskort kvikmyndagerðar. Í þessum þætti labbar hann með Halla um stúdíóið sem sem hann byggði og fer yfir ævi, áhrif og ólíka fasa í sínum stórbrotnu ferli.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
21
Labbitúr: Elísabet Ronaldsdóttir
Elísabet Ronaldsdóttir hefur unnið að sumum stærstu kvikmyndum síðari ára. Hún hefur klippt myndir á borð við John Wick, Atomic Blonde, Deadpool 2, Bullet Train og nýverið Fall Guy og Nobody 2. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hún um götur Reykjavíkur með Halla og ræðir um kvikmyndagerð, fjölskyldulíf og hvernig það er að standa bak við tjöldin í Hollywood.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
20
Labbitúr: Mugison
Í nýjasta þætti Labbitúrs rölta Halli og tónlistarmaðurinn Mugison saman um götur Reykjavíkur. Mugison, sem heitir réttu nafni Örn Elías Guðmundsson, segir frá óvenjulegum uppruna listamannsnafnsins síns, fyrstu skrefum í tónlist og hvernig lífið hefur tekið stakkaskiptum í gegnum árin.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
19
Labbitúr: Benedikt Erlingsson
Benedikt Erlingsson, leikari, leikstjóri og rithöfundur, er nýjasti gesturinn í Labbitúr með Halla. Þeir félagar röltu saman um götur miðbæjarins, í samtali sem flæddi milli listrænnar sköpunar, fjölskyldusögu, gamansemi og tilverunnar sjálfrar – í anda þáttarins þar sem hugmyndir og orð fylgja gönguskrefum.Benedikt, sem hóf feril sinn í grínþáttunum Fóstbræður árið 1997 og hefur síðan þá vakið alþjóðlega athygli fyrir kvikmyndir á borð við Hross í oss og Kona fer í stríð, lýsir ástríðu sinni fyrir frásögn sem listrænni iðju. Hann ber hana saman við tónverk þar sem allt snýst um að halda áheyrendum við efnið – með því að leika sér með væntingar og flæði.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
18
Labbitúr: Gerður Kristný
Í þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Halli til sín rithöfundinn Gerði Kristný. Gerður hefur verið einn afkastamesti og virtasti rithöfundur landsins undanfarin ár og gefið út ekki aðeins bækur heldur ljóð, leikrit og annað efni. Verk hennar eru kennd bæði í grunn- og framhaldsskólum og hefur hún hlotið ótal viðurkenningar innan sem utan landsteina, nú síðast Norsku Alfred Anderson-Ryssts bókmenntaverðlaunin.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
17
Labbitúr: Bubbi Morthens
Í þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Hallitil sín tónlistar- og alhliðalistamanninn Ásbjörn “Bubba” Morthens. Bubbi hefur verið einn fremsti tónlistarmaður þjóðarinnar alveg frá útgáfu sinnar fyrstu plötu, Ísbjarnarblús, árið 1980. Hann hefur ekkert gefið eftir á undanförnum 45 árum enda fáir sem jafnast á við útgefinn lagafjölda og segist Bubbi enn semja eitthvað á hverjum degi.Viðtalið býður einstaka sýn í æsku og sálarlíf Bubba þar sem þeir ganga um hans æskuslóðir og rifja upp mótandi minningar fyrir tónlistarmanninn sem úr honum varð. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
16
Labbitúr: Hafsteinn Gunnar Sigurðsson
Í þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Halli til sín leikstjórann og handritshöfundinn Hafstein Gunnar Sigurðsson. Hafsteinn hefur á undanförnum árum stimplað sig inn sem einn fremsti leikstjóri landsins með verk á borð við París Norðursins og Undir Trénu á ferilskránni ásamt því að vinna til 16 verðlauna. Samtal þeirra er mjög skemmtilegt og dregur fram krefjandi heim upprennandi kvikmyndargerðarfólks hér á landi. Eftir að ljúka námi í bókmenntafræði sótti Hafsteinn nám við Columbia í New York við kvikmyndagerð og lauk því árið 2008. Hann segir bókmenntafræðina hafa opnað á skemmtilegan heim og í raun verið góður grunnur fyrir komandi hluti.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
15
Labbitúr: Lóa Hjálmtýsdóttir
Í þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr Halli til sín listakonuna Lóu Hjálmtýsdóttur. Það er nánast ómögulegt að setja aðeins einn hatt á Lóu en hún er í tónlist, teiknar myndasögur, málar og margt fleira. Í þessum þætti eiga þessir vinir mjög skemmtilegt spjall sem fer um víðan völl um allt og ekkert. Þau ræða stofnun sundlaugagarða á Íslandi, breytingu á svartsýnu viðhorfi og hve lengi hún hefur verið í hljómsveitinni.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
14
Labbitúr: Erpur Eyvindarson
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Halli til sín tónlistarmanninn Erp Eyvindarson, betur þekktan sem BlazRoca. Í þessu einlæga og skemmtilega spjalli rifja þeir upp feril Erps, áhrif hans á íslensku rappsenuna, og hvernig ferðalög og dýralíf hafa mótað lífsviðhorf hans.Erpur byrjaði snemma að feta sig inn á brautina sem hefur gert hann að einum af mikilvægustu listamönnum Íslands. Hann rifjar upp stofnun Rímnaflæðis, fyrstu keppninnar í íslensku rappi, og hvernig það þróaðist yfir í hinn goðsagnakennda hóp XXX Rottweiler hundar. Hann lýsir þessum tíma sem hrárri sprengingu sköpunar þar sem stemningin var mikil og markaður fyrir íslenskt rapp lítt þróaður.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
13
Labbitúr: Andri Snær Magnason
Í nýjasta þætti Labbitúrs ræðir Halli við rithöfundinn Andra Snæ Magnason, sem hefur verið í fremstu röð íslenskra listamanna í yfir tvo áratugi. Í opinskáu samtali lýsir Andri Snær hvernig sköpunarferlið getur verið þunglamalegt, stundum nánast óbærilegt – en jafnframt gefandi og nauðsynlegt.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
12
Labbitúr: KK
Í nýjasta þætti Labbitúrs fær Halli til sín einn fremsta tónlistarmann þjóðarinnar, Kristján Kristjánsson sem er mun betur þekktur undir listanafni sínu KK. Hann hefur verið virkur tónlistarútgefandi frá árinu 1991 og unnið til tveggja verðlauna á íslensku tónlistarverðlaununum. Þessi jarðbundni listamaður lítur ekki stórt á sjálfan sig og gerir lítið úr afrekum sínum þó hann viðurkenni að njóta þess að hvíla röddina og láta áhlustendur syngja hástöfum með lögunum sem allir þekkja.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
11
Labbitúr: Halldóra Geirharðsdóttir
Í nýjasta þætti Labbitúrs fær Halli til sín einn ástsælasta leikara þjóðarinnar, Halldóru Geirharðsdóttur. Halldóra hefur um áratugaskeið verið stórt nafn í íslenskri leiklist og kvikmyndagerð – allt frá Englum alheimsins til Konu fer í stríð. Í viðtalinu fer hún yfir langan og litríkann feril, en einnig yfir persónuleg tímamót í lífi sínu og nýjar áherslur.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
10
Labbitúr: Ari Eldjárn
Ari Eldjárn einn vinsælasti grínisti Íslands fyrr og síðar er viðmælandi vikunnar í Labbitúr með Halla. Í þættinum fara þeir félagar hvernig hann slysaðist hálfpartinn í Uppistandið, þá sem hafa veitt Ara innblástur og hvernig lífið breyttist eftir útgáfu Pardon my Icelandic uppistandsins á Netflix.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
9
Labbitúr: Gunnar Hansson
Í nýjasta þætti Labbitúrs með Halla, ræðir leikarinn Gunnar Hansson um líf sitt og störf í leiklist, bæði á Íslandi og í samanburði við önnur lönd. Hann lýsir starfi leikarans hérlendis sem bæði krefjandi og einstaklega fjölbreyttu. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
8
Labbitúr: Auður Jónsdóttir
Í þætti vikunnar af Labbitúr í stjórn Haralds “Halla” Þorleifssonarer gesturinn Auður Jónsdóttir. Auður er metsölurithöfundur og blaðamaður sem hefur gefið út 15 skáldsögur, smásögur og barnabækur utan fjölda greina fyrir Heimildina. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bókina sína Fólkið í kjallaranum. Í þættinum fer Auður yfir æsku sína og leiðina sem leiddi til farsæls ferils sem rithöfundur.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
7
Labbitúr: Árni Rúnar
Í nýjasta þætti Labbitúrs ræðir Halli við tónlistarmanninn Árna Rúnar Hlöðversson, einn af stofnendum FM Belfast. Árni hefur verið lykilmaður í íslensku raftónlistarsenunni í rúm tuttugu ár, en FM Belfast vakti fyrst athygli á Iceland Airwaves árið 2006. Síðan þá hefur bandið verið þekkt fyrir orkuríka sviðsframkomu og einstakan stíl sem blandar saman rafpoppi, danstónlist og óbilandi gleði.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
6
Labbitúr: Dóra Jóhannsdóttir
Í þætti vikunnar af Labbitúr með Halla er gesturinn Dóra Jóhannsdóttir. Dóra hefur prýtt sjónvarpsviðtæki þjóðarinnar undanfarin ár sem leikari en færri kannski vita af hlutverkum hennar á bak við tjöldin sem handritshöfundur vinsælu seríunnar Húsó og einu besta áramótaskaupi síðustu ára (2022) ásamt því að leikstýra skaupinu.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
5
Labbitúr: Einar Örn Benediktsson
Tónlistarmaðurinn Einar Örn var einn af stofnendum hljómsveitarinnar Sykurmolar, eitt þekktasta og áhrifamesta bandið í íslenskri popptónlist á níundaáratugnum. Sykurmolarnir voru þekktir fyrir einstaka blöndu af poppi, rokki og nýbylgjutónlist.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
4
Labbitúr: Ólafur Arnalds
Í nýjasta þætti hlaðvarpsseríunnar Labbitúr í stjórn “Halla” Þorleifssonarer viðmælandinn Óli Arnalds. Óli hefur gefið út mörg verk undir eigin nafni á undanförnum árum og er í dag einn vinsælasti tónlistarmaður Íslands ef rýnt er í hlustendatölur á Spotify en 2,9 milljónir manna hlusta á hann í hverjum mánuði.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
3
Labbitúr: Lilja Birgisdóttir
Í þessum þætti fara þau yfir víðan völl og ræða meðal annars listina á bak við sköpun á einstökum ilm og hvernig hugmyndin af þessu öllu saman átti sér stað. Lilja ásamt systkinum sínum og mökum rekur fjölskyldufyrirtækið sem er ilmsmiðja á heimsmælikvarða og býður svo kallaðar ilmupplifanir í verslun þeirra við Fischersund 3 í miðbæ Reykjavíkur.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
2
Labbitúr: Unnur Ösp Stefánsdóttir
Í öðrum þætti af Labbitúr, er viðmælandinn Unnur Ösp Stefánsdóttir. Hana þarf vart að kynna fyrir landsmönnum en leikkonan, leikstjórinn, framleiðandinn og höfundurinn hefur unnið að ótal verkum í leikhúsi, kvikmyndum og þáttum.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
-
1
Labbitúr: Ragnar Kjartansson
Í fyrsta þættinum af Labbitúr er viðmælandinn Ragnar Kjartansson. Ragnar hefur gert garðinn frægan með list sinni um allan heim og í þættinum fara þeir meðal annars yfir upphaf ferilsins sem leidd tili útnefningar sem borgarlistarmaður Reykjavíkur árið 2016. Ragnar er myndlistarmaður en finnst gaman að lýsa sjálfum sér fremur sem gjörningarlistamanni. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Labbitúr er podcast þar sem Halli fer í labbitúr með skapandi einstaklingum.
HOSTED BY
Halli
CATEGORIES
Loading similar podcasts...