PODCAST · comedy
Lof mér að tala
by Hanna og Kristín
Lof mér að tala eru þættir í boði Hönnu Birgisdóttur og Kristínar Sigrúnar.Þær eru málglaðar vinkonur sem eiga það sameiginlegt að þrífast á athygli annara. Sumir myndu segja að Lof mér að tala fjalli fyrst og fremst um menningu, með sérstaka áherslu á lágmenningu. Hanna og Kristín kryfja fréttir og atburði vikunnar af einstakri nákvæmni og spila jafnvel skemmtileg hljóðbrot með. Aðrir eru hógværari og lýsa Lof mér að tala með þremur en um leið áhrifaríkum orðum: Fresh! Happy! Mex! Instagram: @lofmeradtalaTiktok: @lofmeradtala
-
43
Lof mér að tala: 42. Risa tilkynning
það er RISA TILKYNNING í þessum þætti sem þú vilt ekki missa af! #spennandiStelpurnar fóru um víðan völl. Einstakt ástarævintýri Kristínar í Amsterdam (not), Rosalía, leiðinlegar sveitastjórnarkosningar og vafasamir leiðtogar. Svo eitthvað sé nefnt. Hvort sem að þú ert lengst uppi eða lengst niðri þá er þessi þáttur Lof mér að tala eitthvað fyrir þig!
-
42
Lof mér að tala: 41. Ljóð frá ástkonu
Sólin skein í Reykjavík og hér er mikið um að vera. Týpurnar á Bastard, efnahagsvandamál Færeyinga, hvað er með óléttar konur og Vesturbæjarlaug? Stelpurnar leituðu til hlustenda og lesa upp það sem liggur þeim á hjarta. Kristín liggur ekki á skoðunum sínum um trúbadora og þá sérstaklega einn ákveðinn - en hún er svo sem ekki vön því að liggja á skoðunum sínum. Hanna les upp lista sem lítið vit er í og vitleysan nær ákveðnu hámarki hér í 41. þætti Lof mér að tala!
-
41
Lof mér að tala: 40. Dánartilkynning á Coachella
Við erum #beliebers Stelpurnar eru flippkisar í dag, enda voru þær í galsa á meðan upptöku stóð. Hiti á Coachella, Justin Bieber að fara á kostum, falsaðar dánartilkynningar og lágflug yfir Vestmanneyjum eru meðal viðfangsefna þáttarins. Okkur finnst Ari Edwald taka furðulegar ákvarðanir og Hönnu finnst fólk sem veltir fyrir sér bílastæðum í borginni leiðinlegt. Kristín lenti í fyrirferðamiklum júllum á tónleikum og vill ræða það. Lets talk about it.
-
40
Lof mér að tala: 39. Krossfestu mig á Smitten
Þögn er betri en þarflaus ræða. Brandarahorn Hönnu lítur dagsins ljós. Krossfestingar, víkingaþrep með Gumma Emil á hálendinu, trúboðar á Pride, að sprauta sig með HGH efni, Smitten að vera með óþarfa upplýsingar um fólk og leitin að sumarvinnu sem ætlar engan enda að taka. Jú og Kristín stofnaði nýjan sértrúnaðarsöfnuð, Náttúrubörn. Endilega tjékkið á því. Ert þú náttúrubarn og góður leiðtogi? Ert þú góð fyrirmynd? Þá færð þú sumarvinnu hjá Lof mér að tala ehf. Fyrsta verkefnið: hlusta á nýjasta þáttinn.
-
39
Lof mér að tala: 38. Páskaunginn les fan fiction (feat. Tinna Tynes)
Tinna Tynes, aka Penis, kom til okkar í stúdíóið. Penis er einstaklega glögg og hnyttin en hún er upprennandi sviðshöfundur. Misskemmtilegar grunnskólagöngur, Wattpad, Inga Sæland og verstu páskar frá upphafi eru meðal umræðuefna þáttarins. Vegna mikillar eftirspurnar tók Tinna það á sig að skrifa fan fiction um stelpurnar sem þið, kæru hlustendur, fáið að njóta góðs af. Kristín les upp óhuggulega kynlífsfantasíu sem tengist hryðjuverkum (þið lásuð rétt), á meðan Hanna lítur yfir farinn veg… #takkfans
-
38
Lof mér að tala: 37. Swing klúbbur á Nesinu
Seint koma sumir en koma þó. Ógöngur pars í barneignum, swing klúbbar á Seltjarnarnesi, Netflix þættirnir Inside the manosphere, afmælisgleði hjá Hönnu og ógeðsleg hostel eru meðal viðfangsefna þáttarins. Stelpurnar velta fyrir sér hvort það sé eðlilegt að sálfræðingurinn manns hætti með manni og fara yfir kostulegar ferðasögur sem tengjast öpum og geðveikum breskum konum. Jú, svo er nýtt hljóðbrot!
-
37
Lof mér að tala: 36. Jesúbull í Múlaþingi
Íslenski barinn, ástarsamband Kristínar og Marons Birnis, sumarbústaðir, Jésúbull í Múlaþingi og stúdentakosningar. En Kristín vill að fólk hlutgeri sig meira sem og bandarísku leikkonuna, Meryl Streep. Enda er hún einstaklega sexý. Stelpurnar svara spurningum hlustenda, sem voru jú margar en snerust líka margar hverjar að… samkynhneigð?Lífið er veisla og þið, kæru hlustendur, eruð veislugestir.
-
36
Lof mér að tala: 35. vbmm? (feat. Una Ragnars)
Una Ragnarsdóttir er komin aftur til okkar! Í þetta sinn til að ræða dægurmenningu og leiksýninguna Kabarett, sem hún mun frumsýna í næstu viku í Þjóðleikhúskjallaranum. Abudabí, Timothee Chalamet að vera hrokafullur (með eða á móti?), nýja platan hjá Harry Styles og Óskarsverðlaunin. Kristín segist hafa verið með vafasamar hugmyndir sem barn og Hanna er komin með nóg af tónlistinni á Röntgen! Takk Una fyrir komuna.
-
35
Lof mér að tala: 34. Suicide boys og kaþólska kirkjan
Kæru hlustendur, velkomin í 34. þátt Lof mér að tala. Stelpurnar eru eldhressar og eins og svo oft áður leyfa þær hlustendum að svamla um í viskubrunni sínum. Davíð Oddsson, Kaþólska kirkjan, 69, BBL, Jim Carrey, Laufey gerir collab, Bjarkar eftirherma og síðan er spurning hvort Erika Kirk sé orðin… lesbía? Kristín kemur með reynslusögu sem tengist slæmum tónlistarsmekk og Hanna fer á kostum.
-
34
Lof mér að tala: 33. Kjarnorka og Grafarvogur 18
Nýr þáttur! Stelpurnar ræddu um kjarnorkuvopn, konudaginn og Rússa á Ólympíuleikum. Óheppilegt atvik á verðlaunahátíð er rætt (úff) og Kristín segir frá ótrúlegum næturævintýrum sínum um helgina sem tengjast Grafarvogi 18. Jú og hvað gerði Bill Gates eiginlega af sér? Þátturinn er í samstarfi við Regn app!
-
33
Lof mér að tala: 32. Cancelled í leðuról
Það var mikið hlegið í þessum nýjasta þætti Lof mér að tala. Ætti að vera hægt að fara í þungunarrof í Bónus? Af hverju er ekki til nein íslensk bíómynd um BDSM? Kristín gefur einhleypum karlmönnum ráð fyrir konudaginn en Hanna segir frá traumatíserandi reynslu sem tengist klippingu. Framhjáhald, tær, bolludagurinn og Andrés (ekki öndin) voru meðal viðfangsefna þáttarins.Þátturinn er í samstarfi við Regn app
-
32
Lof mér að tala: 31. Maka- og markalausar á Valentínusardeginum
Stelpurnar gefa öllum ástföngnu hlustendum sínum ráð um hvað væri gaman að gera á Valentínusardeginum, sem er næstkomandi laugardag. Ofurskálin, fólk á tánum í ræktinni og andlega veikir unglingar eru meðal viðfangsefna þáttarins. Annars er bernskan krufinn en börn eru víst byrjuð að mynda tilfinningaleg tengsl við vélmenni á netinu. Við förum yfir stöðu snapchat kvennanna í samfélaginu í dag, enda þurfum við á þeim að halda. Þátturinn er í samstarfi við Regn app.
-
31
Lof mér að tala: 30. Guð er andlega veik kona
LOF MÉR AÐ TALA ER 30 ÁRA!Stelpurnar deila sögum úr lífi þeirra. Kristín les úr dagbókarfærslum frá skiptinámsdögunum sínum á Spáni en þar koma við sögu ástarjátning spænsks bekkjarbróðurs og graftarkýli, betur þekkt undir nafninu Tvíburabróðir. Grammy verðlaunin, fuglaflensan og dauðir smáhundar. Stelpurnar velta því fyrir sér af hverju allir og ömmur þeirra eru í Epstein skjölunum. Jú, svo tók önnur stelpnanna Hopphjól í jarðaför ömmu sinnar… tune in til að vita hvor þeirra framdi þann glæp
-
30
Lof mér að tala: 29. Alþjóðlegt kyntákn
Hæhæ stelpur, verið velkomnar í 29. þátt Lof mér að tala! Margt er rætt og völlurinn er víður, eins og svo oft áður. Prófkjör, kyntáknið Kristín, handbolti, Beckham drama, Hallmark myndir og komment hjá gaurum á instagram. Jú svo er Dónald víst pabbi Íslands…
-
29
Lof mér að tala: 28. Lesbíur í krísum
Þessi þáttur er ekki af verri endanum! Stelpurnar ræða til að mynda vændiskaup þingmanna og eitt ákveðið deyjandi listform. Þær fengu fagmann til að þýða internet slangur og veittu hlustendum ýmis ráð við vandamálum sem þeir sendu inn - margt var um lesbíur í krísum en sumt beintist að strætóskýlum. Vonandi nýtast ráðin sem flestum hlustendum! Þetta og margt fleira í þessum þætti af Lof mér að tala!
-
28
Lof mér að tala: 27. Háskólagellur
Gleðilegan nýjan þátt! Þessi er stuttur og laggóður… flugdólgar, Golden Globes, endurkoma Harry Styles, jamaíski hreimurinn, borgarpólitíkin og litlir kóngar (iykyk), enn og aftur, TAKK FYRIR AÐ HLUSTA!
-
27
Lof mér að tala: 26. Feitar, lágvaxnar og sköllóttar (feat. Hildur Halla Þorvaldsdóttir)
Fyrsti þátturinn á nýju ári! Stelpurnar eru einstaklega ferskar, enda komnar með góðan gest í hús… bjóðum Hildi Höllu Þorvaldsdóttir, fellow konu og micro áhrifavald velkomna. Trend, arabískar lýs, hvítt stolt, ferðasögur frá helvíti og Heated Rivalry. Jú svo má ekki gleyma nýja hljóðbrotinu frá Kristínu… ÞETTA ER VEISLA!
-
26
Lof mér að tala: 25. 2025 recap!
SÍÐASTI ÞÁTTURINN 2025! Elsku Hinrik er staddur á Kanarí þannig stelpurnar fengu til sín nýjan tímabundin hljóðmann, hana Þórhildi Þorsteinsdóttur. Bjóðum hana velkomna<3Stelpurnar fara yfir fréttir og viðburði ársins, segja frá markmiðum og áramótaheitunum sínum en Kristín spilar tvö ný hljóðbrot. Hanna spáir fyrir um hvað verði í tísku árið 2026. Þátturinn er kaotískur og viðburðaríkur, alveg eins og árið sjálft. GLEÐILEGT NÝTT ÁR ELSKURNAR OG TAKK FYRIR STUÐNINGINN Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA! #uppi
-
25
Lof mér að tala: 24. Jólageðveikin
GLEÐILEGA HÁTIÐ! Stelpurnar eru ferskar. Hinrik líka. Margt er rætt. Jólaboð, tónleikar, lélegar jólagjafir en Kristín segir frá einni slíkri (úff), grjót í möndlugraut og almenn vitleysa. Kristín er einstaklega greindarskert í þessum nýja þætti, bæði upp á orðalag og já almennri rökhugsun en hún Hanna er orðin smá þreytt á jólunum. Njótið hátíðarinnar og því sem eftir er af árinu! #uppi
-
24
Lof mér að tala: 23. „Ég er sjúklingur"
Endajaxlatökur, netflix, sjúklingar og jólasveinar. Hanna er bólgin og aum en Kristín er ósátt með það að vera komin á þann aldur að verða þunn eftir örfáa drykki (). Annars þá þylur Hanna upp hámhorf síðustu viku sem var vægast sagt sláandi. Stelpurnar svara örfáum spurningum hlustenda og ræða frétt vikunnar. Svo er fyrirsögn vikunnar ekki af verri endanum. LETS GO!
-
23
Lof mér að tala: 22. Q&A og 6-7 helgin
Stelpurnar áttu rosa menningarlega 6-7 helgi. Kristin fór í leikhús og í bíó á kvikmyndina Wicked: for good. Hanna djammaði til 5. Margt var rætt, þ.á.m sogtæki frá Temu, kókdrama í Garðabæ og jólalög en stelpurnar svöruðu misgáfulegum spurningum frá þeirra dyggu hlustendum. Jú svo fékk Kristín hrós frá engum öðrum en fyrrverandi menningarmálaráðherra… túnið inn og þér munið heyra.
-
22
Lof mér að tala: 21. The Joey Show (feat. Jóhann Kristófer)
KEMST HANN OFAR?!Við fengum engan annan en fjöllistamanninn Jóhann Kristófer í stúdíóið til okkar í dag. Jóhann eða Joey Christ, eins og hann er oft kallaður, hefur komið víða að. Hann stofnaði útvarpsstöð, leikstýrði raunveruleikaþáttunum Æði, hefur leikið í ýmsum leikverkum og gaf nýverið út plötuna Joey 3. Stelpurnar ræða aðeins við hann um ferilinn og upphafið en síðan er farið um víðan völl. Við ræðum m.a um ólæsi íslenskra drengja, jólatónlist, Roskilde útihátiðina og Joey segist ekki vilja hlaupa maraþon á tásunum… þetta og meira í #letmetalk.
-
21
Lof mér að tala: 20. Að klóna eða ekki klóna
VELKOMIN Í 20. ÞÁTT LOF MÉR AÐ TALA!Veikindi, rónar, Beggi Másson, raunveruleikaþættir, kynsjúkdómar og konseptið að eyða sex milljónum í að klóna dýr. Kristín segir frá ævintýrum sínum á Balí undir lok þáttar og Hanna grét úr hlátri, en Kristín grét úr sorg. Enda bjóðum við öllum tilfinningum velkomin hér í Lof mér að tala❤️.
-
20
Lof mér að tala: 19. Problematic á hrekkjavökunni
Wowowow velkomin í 19. þátt Lof mér að tala!Stelpurnar eru ferskar eftir mikla djamm helgi, enda var hrekkjavakan að ganga um bæ. Hanna segir okkur frá versta búningnum sem hún hefur farið í og Kristín segir frá problematic búningum. Röntgen, ný tónlist, Aron Kristinn og rasistar í miðflokknum. Það er sem sagt eitthvað fyrir alla í nýjasta þætti LMAT #takkfans.
-
19
Lof mér að tala: 18. Lélegir DJ-ar og feik meðganga
Verið hjartanlega velkomin í fyrsta þátt vetrarins!Kristín og Hanna byrja veturinn vel, þær eru þunnar en bera það með sóma, ekki skömm, enda kvenfyrirmyndir. Hér í 18. þætti er farið um víðan völl: Kvennaverkfall, hrekkjavökubúningar, lélegir DJ-ar og nýtt áhugavert par er kynnt til leiks. Annars liggur Hanna ekki á skoðunum sínum hvað varðar frægan Færeying. Þar sem langt er liðið frá síðasta þætti eru fréttir vikunnar þrjár - og ekki eru þær af verri endanum. Tune in on #letmetalk
-
18
Lof mér að tala: 17. Brostu, þú ert í Reykjavík
Jæja nýr þáttur!!!Stelpurnar ræða hin ýmsu mál, jafnt merkileg og ómerkileg. Missir maður sjónina við það að taka Ozempic? Fjölskylduboð og kvíðnar ömmur eru meðal viðfangsefna. Stelpurnar kynntu stefnuskrá nýs stjórnmálaflokks sem þær hafa sett á laggirnar fyrir komandi sveitastjórnarkosningar - Brosandi borg. Þær fara með skemmtilegar rangfærslur og velta sér upp úr heimspekilegum spurningum: Var Hitler gyðingur? Eru konurnar í Miðflokknum einungis tvær? Og af hverju var skatturinn að loka kaffihúsi í Smáralind? Eins og alltaf, lofum við veislu!
-
17
Lof mér að tala: 16. Ókristilegar
Velkomin í 16. þátt Lof mér að tala! Hér er ein risa stór tilkynning: LJÓÐIÐ ER KOMIÐ AFTUR og Hanna hefur lestur á ný! Stelpurnar eru í stuði og hafa frá mörgu að segja: Ókristilegir prestar, munnmök og lagatextar, tískustraumar, nýr íslenskur stjórnmálaflokkur lítur dagsins ljós og Taylor Swift gaf nýverið frá sér plötu sem allir… hata? This and more on #letthemtalk.
-
16
Lof mér að tala: 15. Ungfrú Ísland Teen er AI vélmenni
VIÐ ERUM KOMNAR AFTUR - did you miss us? Play er farið á hausinn, hvítasta Hollywood par allra tíma segir skilið við hvort annað, Hanna heldur því fram að Erika Kirk sé AI vélmenni og fyrirbærið Ungfrú Ísland Teen er sett á laggirnar. Jú, og Hanna og Kristín eiga báðar í ofbeldissambandi við prentara. Ekki missa af þessari veislu!
-
15
Lof mér að tala: 14. Lóan er komin (feat. Lóa Björk Björnsdóttir)
Stelpurnar fengu til sín útvarpskonuna og grínistann , Lóu Björk Björnsdóttur. Lóa hefur frá miklu að miðla en stelpurnar fengu að svamla smá í hennar viskubrunni, það mætti segja að lífsins alvara hafi tekið yfir hér hjá okkur í Lof mér að tala. Meðal viðfangsefna voru: hlutverk samfélagsmiðla í dag, útlitskröfurnar blessuðu, hugarfar og margt, margt fleira.
-
14
Lof mér að tala: 13. Veipum friðsamlega
Heil og sæl, land og þjóð og verið velkomin í þrettándann.Vá, mikið um að vera og mikið um að ræða! Stelpurnar kryfja Óktoberfest, velta hugtakinu “baddie” fyrir sér og Kristín gerir tilraun til þess að íslenska það. Umræðuefni á borð við bragð bann nikótínvara, fólk sem rekur við á tónleikum og sterk matarlykt koma við sögu. Hinrik og Kristín áttu hvor um sig móment með frægu fólki sem ber að nefna, frétt vikunnar er ekki af verri endanum og lögin sömuleiðis (eða hvað?) Þetta og meira í #letmetalk
-
13
Lof mér að tala: 12. Við og hin
12. ÞÁTTUR ER KOMINN Í HÚS OG LÝÐURINN TRYLLIST Stelpurnar hafa frá mörgu að segja eins og svo oft áður. Skemmtiferðaskip, tónleikar á háskólatorgi, tásublæti, möguleg Fifth Harmony endurkoma og Októberfest nálgast. Hinrik og Hanna smökkuðu gonster og segja okkur frá þeirri skemmtilegri reynslu. Kristín býður upp á nýtt tónverk og það má segja að allir verði að hlusta á þann unað. Þetta og meira í #letmetalk
-
12
Lof mér að tala: 11. Hin heilaga þrenning: Ástin, þágufallssýki og Gonster
Mætti bjóða yður Gonster?Hanna og Kristín ræða hin ýmsu mál, bæði stór og smá! Karlmenn í hælasokkum, blæti fyrir smökkun orkudrykkja og þemabrúðkaup eru meðal viðfangsefna þáttarins. Kristín skammast sín fyrir lag vikunnar, Hanna kynnir nýjan lið og fan vikunnar er ekki af verri endanum…Ástin er í loftinu eins og svo oft áður og stelpurnar ræða eina ákveðna trúlofun #ástin.
-
11
Lof mér að tala: 10. Ástandið
The one where Kristín og Hanna rífast um Iceguys… Velkomin í 10. þátt af lof mér að tala! Stelpurnar hafa aldrei tekið upp jafn kaótískan þátt og endurspegla viðfangsefni þáttarins það svo sannarlega: Októberfest, gymbros, conceptið að eggja fólk og hvernig týpur fara á Iceguys tónleika. Hanna og Kristín spyrja einnig þeirrar mikilvægu spurningu sem hljómar svona: Hvar…. Er…. Patrik Atlasson?
-
10
Lof mér að tala: 9. Vinnandi konum er best að lifa (feat. Gríma Valsdóttir)
OMG NÝR ÞÁTTUR OG FRÁBÆR GESTUR!!Hanna og Kristín fengu til sín Grímu Valsdóttur, vinkonu og snilling, til að ræða hinar ýmsu vinnur sem þær vinkonur hafa unnið í gegnum tíðina! Störfin eru eins mismunandi eins og þau eru mörg og stelpurnar tala misvel um reynsur sínar i störfunum….Verslunarmannahelgin var rýnd í þaula og stelpurnar segja frá misgáfulegum ákvörðunum sínum yfir helgina. Ljóð vikunnar er af betri kantinum og það mætti segja að enginn maður mætti missa af lestri þess…. Við lofum góðri skemmtun að vana, í þessum 9. þætti Lof mér að tala:))
-
9
Lof mér að tala: 8. Druslur í Texas
OMG NÝR ÞÁTTUR!! Í þessum 8. þætti af Lof mér að tala fara stelpurnar um víðan völl. Á meðal viðfangsefna eru mömmur á Facebook, furðuleg viðbrögð Íslendinga þegar þeir heyra í brunabjöllu, hinir ýmsu tónleikar og vægast sagt umdeild samtök….. Sumarbragur er yfir stelpunum og Hanna kemur með hugmyndir fyrir hlustendur um hvað sé hægt að gera um verslunarmannahelgina en Kristin um hvað henni… finnst aðlaðandi? Lofum veislu, eins og alltaf! :))
-
8
Lof mér að tala: 7. Son, wife and God
HVAÐ GERÐIST Á 7 DÖGUM? EKKERT. EN 7. ÞÁTTUR AF LOF MÉR AÐ TALA ER KOMINN ÚT… Því miður komst okkar elskulegi tæknimaður og vinkona, Hinrik, ekki þar sem hann er fyrir norðan að elta veðrið. Í hans stað kom hún Ingibjörg Fía, vinkona og hugsuður. Þátturinn var því ögn kaótískari en venjulega og við afsökum langa bið eftir nýjum þætti... ekki örvænta þó því við lofum veislu. Hver eru umræðuefnin? Jú þau eru alltaf jafn víðfemd: Nýtt JB albúm, hið endalausa eldgos, sundkennsla í grunnskólum og auðvitað kötturinn Diego, svo eitthvað sé nefnt.
-
7
Lof mér að tala: 6. Kyntröll í Flatey
WHATS POPPIN? BRAND NEW LOF MÉR AÐ TALA JUST HOPPED IN. Í 6. þætti ræða stelpurnar m.a. Bubba Morthens, kvennaboltann, íslensku sumarkonuna og hina klassísku íslensku útilegu en stelpurnar fóru í eina slíka í Flatey á dögunum. Hanna kynnir einnig inn nýjan lið… Þetta og fleira í #letmetalk
-
6
Lof mér að tala: 5. Tiktok frægðin og bjór í Kringlubíó
HÆHÆ ÞETTA ER SARA Í JÚNÍK, LOF MÉR AÐ TALA VAR AÐ DROPPA NÝJUM ÞÆTTI! Hanna og Kristín eru alltaf jafn málefnalegar. 10 ár síðan fyrsta serían af SKAM kom út, tónlistarkonan Lorde gaf út nýja plötu í vikunni, íslenska bíómenningin verður skoðuð og greind. Eins og svo oft áður kemur bærinn við sögu en Hanna liggur ekki á skoðunum sínum um American bar, ásamt öðrum menningarlegum stöðum í Reykjavík DownTown. Þetta og meira í #lofméraðtala
-
5
Lof mér að tala: 4. Hæ, hó, jibbí, jei
Another day, another Lof mér að tala. Kristín er þunglynd en Hanna er til í að ræða um hátíðardaga! Helstu viðfangsefni þáttarins eru eftirfarandi: 17. júní sem concept, barnamyndin ljóta litla lifran, Brynjar Níelsson og fallegar mjóar konur á tánum. Ásamt fleiru.
-
4
Lof mér að tala: 3. Barcelona debrief (feat. Una Ragnars)
Tell a friend to tell a friend, the bitch is back!Halló halló, við erum komnar aftur beinustu leið frá Barcelona (borið fram barþelona) og í þetta sinn erum við með gest. Já, hún Una Ragnarsdóttir er hérna með okkur og við förum um víðan völl: Primavera útihátíðin, ógeðsleg hostel á meginlandinu, flugferð frá helvíti og ástartjáning spænskra karlmanna. Vonandi höfum við verið aufúsugestir #takk.
-
3
Lof mér að tala: 2. Málefnalegar gellur með bílpróf
Í þætti vikunnar fögnum við vinkonurnar stórum áfanga í lífi Kristínar. Hin heila þrenning, FM95BLÖ, Taylor Swift og smørrebrød er meðal viðfangsefna þáttarins. Vikan er krufin og lög vikunnar fá að líta dagsins ljós
-
2
Lof mér að tala: 1. Lof mér að byrja
Hér í fyrsta þætti Lof mér að tala fara Hanna og Kristín um víðan völl. Við ræðum Justin Bieber, áfengisvanda ungmenna á Kirkjubæjarklaustri og hvað Hanna er með ömurlegan tónlistarsmekk. Við segjum orðið „ógeðslegt” rúmlega þrjátíu sinnum og tölum um tengingu okkar við Kaþólsku kirkjuna. Verið öll velkomin og megi Guð blessa ykkur og íslenska forystuféð. Amen.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Lof mér að tala eru þættir í boði Hönnu Birgisdóttur og Kristínar Sigrúnar.Þær eru málglaðar vinkonur sem eiga það sameiginlegt að þrífast á athygli annara. Sumir myndu segja að Lof mér að tala fjalli fyrst og fremst um menningu, með sérstaka áherslu á lágmenningu. Hanna og Kristín kryfja fréttir og atburði vikunnar af einstakri nákvæmni og spila jafnvel skemmtileg hljóðbrot með. Aðrir eru hógværari og lýsa Lof mér að tala með þremur en um leið áhrifaríkum orðum: Fresh! Happy! Mex! Instagram: @lofmeradtalaTiktok: @lofmeradtala
HOSTED BY
Hanna og Kristín
CATEGORIES
Loading similar podcasts...