PODCAST · arts
Myndarsögur
by Myndarsögur
Hlaðvarp um Myndarfólk™ með Myndarsögur™ um Myndarmálefni™ komdu með okkur í ferðalag um líf og listir og leti og leiðina í gegnum þetta allt saman. Lærðu eitthvað, heyrðu eitthvað skrýtið og skoðum aðeins hvað það er sem við ætlum nú að gera
-
5
Björn Heimir Önundarson - Undirheimum ofar
Björn Heimir Önundarson er myndlistarmaður, tónlistarmaður, teiknari, málari, teiknimyndagerðamaður og meira. Þekktur m.a. sem Inferrno ostur og forsprakki hljómseitarinnar Captain Syrup en gefur út tónlist sem Bobby Sands þessa dagana. Lífstíll listamannsins veldur því að það þarf að fórna ýmsum þægindum úr praktískara lífi. Að læra að sleppa hlutum frá sér og komast að því hvaða miðill það er sem að hentar hverri hugmynd. Hér er hægt að hlusta á Bobby Sands í allri sinni dýrð. https://open.spotify.com/album/6ZhYBF7rdi3oruQUvaPvuI?si=KxH2foXzQw-tFXuVwWn02A Hér inni er hægt að lesa pdf útgáfur af öllum myndasögunum https://bjornheimir.com
-
4
Liam Cobb - Michelin maður og matur fyrir hugmyndir
Liam Cobb er teiknari sem kemur frá London. Hann hefur verið að fást við myndasöguútgáfu ( þegar hann hefur tíma til) eftir að hafa lært teikningu . Nú stendur hann fyrir upplestri 16.febrúar af myndasögu ásamt listahópi sem kemur honum til aðstoðar. Er framtíð myndasögunnar á sviði? Hér er vefsíðan hans https://liamcobb.com/ https://www.instagram.com/_liamcobb_/ https://www.breakdownpress.com/store/what-awaits-them-by-liam-cobb-2
-
3
Hlíf Una - Erótísk í eldhúsinu
Káputeikningar geta verið viðkvæmt umræðuefni, en við gerum okkur kápuna úr því klæðinu. Við snertum á málefnum líkt og því að vera sinn eigin kynningarfulltrúi. Skoðum launamál teiknara, virði, vinnuumhverfi, ánægjuna af því að teikna persónuleg lítil verkefni og nýútkomna ljóðabók unna í samstarfi við Melkorku Ólafsdóttur. Við ræðum hvernig það hefur verið að sitja í nefnd um erótískar bókmenntir og útskriftarverkefnið Erótísk í eldhúsinu og tölum um þroskann og mismunandi sýn á hvað þarf að sýna mikið til að lífið fái að njóta sín. Bókin Flagsól eftir Melkorku Ólafsdóttur og Hlíf Unu Bárudóttur
-
2
J.J. Mancho - Feministinn frá Tenerife
Að flytja frá Madrid til Tenerife voru ákveðin viðbrigði fyrir átta ára José, en að flytja núna fyrir rúmum tveimur árum á fullorðins aldri til Íslands, það held ég nú. Eitt af hans stærstu verkum kemur frá umfjöllun um feminíska karlmenn í gegnum söguna sem hann vann með rithöfundinum Alicia Parker. Sem svo leiddi til stórrar bókar um feminíska menn í dag. Við ræðum um áhrifin, hvernig það er að ráfa um lífið sem skapandi einstaklingur með engan skýran endapunkt og hvernig hrunið 2008 snerti líf heillar kynslóðar spænskra ungmenna sem þá voru að stíga sín fyrstu skref á atvinnumarkaðinn. Hérna er myndasagan sem við tölum um Femínískir menn - teiknað af J.J. Mancho Hér er kvikmyndin sem hann minnist á Zorba the Greek Hér eru spæjaramyndasögurnar sem hann las í æsku Mortadelo y Filemón -
-
1
Fannar Gilbertsson - Ofurhetja í myndasögum
Icecomics- Sonur, maður, hetja. Hann hefur nú gefið út núna sína fyrstu stóru myndasögu Gen -01 Í þessum þætti fjöllum við um ferlið að gefa út þetta verk sem tók 8 ár í framleiðslu. Í millitíðinni tóku Landverðirnir og lífið yfir, við fjöllum um framtíðina, verkefnin, kostnaðinn, erfiðleikana og hvað það þýðir að vera í myndasögum á Íslandi. Við ræðum um helstu áhrifavalda og hvernig það er að vera áhrifavaldur í teikningu í dag meðan listamenn glíma við ai algoritmann sem keppnisaðila. Kaupið alvöru myndasögur!
-
0
Þórey Mjallhvít og leyndarmálin
Þórey Mjallhvít er ekki stöng heldur myndhreyfill eða nei hvað kallast það. Hún er teiknari, teiknimyndagerari, rithöfundur, framleiðandi, leikstjóri og eiginlega bara allt sem þarf, sameinað í einn dúndurpakka. Hún er nú að vinna í ofurleynilegu verkefni sem ekkert má tala um. Svo við tölum ekkert um það og margt annað í þessum æsispennandi fyrsta þætti af Myndarsögum: Hlaðvarpinu Finnið sögu eftir hana í Myndarsögur: Annað blað Fáið eintak á Karolinafund núna! Aðeins nokkrir dagar til stefnu... https://www.karolinafund.com/project/view/6082 https://www.karolinafund.com/project/view/6082 https://www.karolinafund.com/project/view/6082 https://www.karolinafund.com/project/view/6082
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Hlaðvarp um Myndarfólk™ með Myndarsögur™ um Myndarmálefni™ komdu með okkur í ferðalag um líf og listir og leti og leiðina í gegnum þetta allt saman. Lærðu eitthvað, heyrðu eitthvað skrýtið og skoðum aðeins hvað það er sem við ætlum nú að gera
HOSTED BY
Myndarsögur
CATEGORIES
Loading similar podcasts...