PODCAST · kids
Nærbuxurnar í Hamraborg
by RÚV
Sumarfríið er alveg að byrja og sumarhátíð skólans á næsta leiti. Vinirnir Úlla og Mási spá ekki mikið í það, þau hafa mikilvægari hnöppum að hneppa. Þau ætla að sinna mikilvægu og háleynilegu verkefni sem amma Úllu hefur lagt fyrir þau. Nærbuxurnar í Hamraborg er framhaldsleikrit í fimm hlutum fyrir börn eftir Viktoríu Blöndal.Persónur og leikendur: Úlla: Kría Valgerður VignisdóttirMási: Róbert Ómar ÞorsteinssonMagnea: Guðný ÞórarinsdóttirSæbjörn: Kári Páll ThorlaciusTeitur: Baldur DavíðssonUnglingur: Ragnar Eldur JörundssonAmma: Steinunn Ólína ÞorsteinsdóttirSkarphéðinn: Hákon JóhannessonVaka Líf : Álfrún ÖrnólfsdóttirAfi: Þröstur Leó GunnarssonForsetinn: Hjörtur Jóhann JónssonOlga: Þórdís Björk ÞorfinnsdóttirDiddý: Maríanna Clara LúthersdóttirAron: Ágúst Örn WigumFréttamaður: Starkaður PéturssonTónlist: Úlfur ÚlfurHljóðvinnsla: Hrafnkell Sigurð
-
5
5. þáttur
Þessi síðasti þáttur hefst í miðjum eltingaleik og allt í einu eru allir á leiðinni á Ægissíðu, meira að segja amman sem fer aldrei út úr húsi. Flækjan virðist óleysanleg. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
4
4. þáttur
Eins og fram kom í síðasta þætti gleymdist pakkinn góði í strætóskýlinu á Ægissíðunni. Nú eru góð ráð dýr. Það kemur svo í ljós að pakkinn er langt frá því að vera óhultur, hann kemst í hendurnar á manneskju sem reynist áður en yfir lýkur vera flagð undir fögru skinni. Amma sér í sjónaukanum sínum að áætlunin er öll úr skorðum og því þarf hún að taka erfiða ákvörðun. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
3
3. þáttur
Úlla og Mási eru komin í strætó þar sem þau hitta Aron sem segist vera strætóbílstjóri. Þau hafa ekki fyrr jafnað sig á sprengingunni sem heyrðist í lok síðasta þáttar þegar þau uppgötva að þau hafa misstigið sig, planið hennar ömmu er úr skorðum gengið og þau þurfa að bjarga málunum. Skarphéðinn kennari uppgötvar loksins að Úlla og Mási eru horfin á braut og það verður uppi fótur og fit í skólanum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
2
2. þáttur
Ferðalagið með pakkann leiðir Úllu og Mása í strætóskýli á Ægissíðu þar sem þau hitta afar sérstaka konu. Amma er hins vegar heima eins og reyndar alltaf, hún fer nefnilega aldrei út. Hún er alltaf mikið í símanum og í þessum þætti fær hún dularfull símtöl úr ýmsum áttum. Mási og Úlla komast að lokum í strætó. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
1
1. þáttur
Skarphéðinn kennari er spenntur fyrir keppni í pylsuáti sem er hápunktur sumarhátíðar skólans en vinirnir Úlla og Mási láta sér fátt um finnast, þau eru með hugann við verkefnið sem amma Úllu hefur fengið þeim. Þau eiga að koma pakka til skila en vandamálið er að þau hafa ekki hugmynd um hvert ferðinni er heitið, þau vita ekki einu sinni hvað er í pakkanum. En þau halda nú samt af stað. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Sumarfríið er alveg að byrja og sumarhátíð skólans á næsta leiti. Vinirnir Úlla og Mási spá ekki mikið í það, þau hafa mikilvægari hnöppum að hneppa. Þau ætla að sinna mikilvægu og háleynilegu verkefni sem amma Úllu hefur lagt fyrir þau. Nærbuxurnar í Hamraborg er framhaldsleikrit í fimm hlutum fyrir börn eftir Viktoríu Blöndal.Persónur og leikendur: Úlla: Kría Valgerður VignisdóttirMási: Róbert Ómar ÞorsteinssonMagnea: Guðný ÞórarinsdóttirSæbjörn: Kári Páll ThorlaciusTeitur: Baldur DavíðssonUnglingur: Ragnar Eldur JörundssonAmma: Steinunn Ólína ÞorsteinsdóttirSkarphéðinn: Hákon JóhannessonVaka Líf : Álfrún ÖrnólfsdóttirAfi: Þröstur Leó GunnarssonForsetinn: Hjörtur Jóhann JónssonOlga: Þórdís Björk ÞorfinnsdóttirDiddý: Maríanna Clara LúthersdóttirAron: Ágúst Örn WigumFréttamaður: Starkaður PéturssonTónlist: Úlfur ÚlfurHljóðvinnsla: Hrafnkell Sigurð
HOSTED BY
RÚV
Loading similar podcasts...