PODCAST · health
Píeta kastið
by Píeta Samtökin
Hlaðvarp Píeta samtakanna. Fjallað verður um ýmsar hliðar sjálfsvíga og sjálfsvígsforvarna. Umsjónarmaður dr. Tómas Kristjánsson, sálfræðingur.
-
5
Þáttur 5 - Áhættuþættir og hættumerki
Í þættinum fjalla Dr. Tómas og Gunnhildur Ólafsdóttir, sálfræðingur og fagstjóri Píeta samtakanna um áhættuþætti og hættumerki tengd sjálfsvígum. Fara þau yfir þætti í sögu einstaklinga, í umhverfi þeirra, í hegðun, hugsun og/eða tilfinningum sem geta verið áhættuþættir eða hættumerki. Við þurfum ekki að takast á við vanlíðan ein, ef þú eða einhver nákominn þér er í sjálfsvígshættu, ekki hika við að hafa samband við Píeta símann, 552-2218. Hann er opinn allan sólarhringinn, allan ársins hring. Upphafs og lokastef: Running Wild - Vök. Notað með góðfúslegu leyfi þeirra.
-
4
Þáttur 4 - Umfang vandans
Í þættinum fjalla Tómas og Sigurður um sjálfsvígsvandann á heimsvísu, skoða þróun yfir tíma, kynja og aldursmun. Þá bera þeir saman stöðuna á Íslandi við stöðuna erlendis og reyna að svara tveimur spurningum. Fer sjálfsvígum á Íslandi fjölgandi? Hvernig stendur Ísland í samanburði við önnur lönd? Umsjónarmaður: dr. Tómas Kristjánsson Gestur: Sigurður Viðar Upphafs og lokastef: Running wild - Vök
-
3
Þáttur 3 - Kostnaður sjálfsvíga
Þriðji þáttur Píeta kastsins. Umsjónarmaður: dr. Tómas Kristjánsson, gestur: Kristín Ólafsdóttir. Í þættinum fara Tómas og Kristín yfir kostnað sjálfsvíga fyrir ríkið og samfélagið. Einni fara þau í fjármögnun sjálfsvígsforvarna. Við minnum hlustendur á Píeta símann sem er opinn allan sólarhringinn 552-2218. Minnum einnig á hjálparsíma Rauða krossins 1717 og neyðarnúmerið 112. Upphafs og lokastef: Running wild - Vök.
-
2
Þáttur 2 - Reynsla aðstandanda
Í þessum þætti talar dr. Tómas Kristjánsson við Kristján Hafþórsson (Krissa Haff). Krissi missti föður sinn í sjálfsvígi þegar hann var 15 ára gamall. Tómas og Krissi spjalla um ýmislegt en með áherslu á hvernig þessi reynsla hefur mótað Krissa og lífsýn hans.
-
1
Þáttur 1 - Mýtur um sjálfsvíg
Fyrsti þáttur Píeta kastsins. Umsjónarmaður: dr. Tómas Kristjánsson, gestur: Sturla Brynjólfsson. Í þættinum fara Tómas og Sturla yfir nokkrar lífseigar mýtur um sjálfsvíg. Við minnum hlustendur á Píeta símann sem er opinn allan sólarhringinn 552-2218. Minnum einnig á hjálparsíma Rauða krossins 1717 og neyðarnúmerið 112. Upphafs og lokastef: Running wild - Vök. Notað með leyfi Vakarmeðlima.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...