Sjö mínútur með fréttastofu RÚV podcast artwork

PODCAST · news

Sjö mínútur með fréttastofu RÚV

Fréttastofa RÚV kryfur augnablikið á 7 mínútum alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.Umsjón: Freyr Gígja Gunnarsson.

  1. 64

    Hvað er málið með Tiktok og bandaríska þingið?

    Bandaríska fulltrúadeildin samþykkti í vikunni frumvarp sem gæti orðið til þess að Tiktok verði bannað vestanhafs. Við hvað eru bandarískir þingmenn hræddir? Safnar Tiktokt eitthvað meiri upplýsingum um okkur en Facebook og Twitter? Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Hallgrímur Indriðason svara því. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  2. 63

    Konungsfjölskyldan sem ekkert hefur lært

    Katrín prinsessa af Wales fór í aðgerð um miðjan janúar og síðan þá hefur netið logað af samsæriskenningum um hvar hún sé og hvernig hún líti út. Breytt mynd sem hún birti á mánudag hefur gert lítið til að lægja þær öldur. Anna Lilja Þórisdóttir veit meira um málið. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson

  3. 62

    Pútín gegn Biden eða Trump

    Um helgina ganga Rússar að kjörborðinu og kjósa Pútín áfram sem leiðtoga sinn. Vestanhafs er öllu meiri spenna þar sem Trump og Biden reyna að vinna kjósendur á sitt band. Skipta þessar kosningar okkur hin einhverju máli? Hallgrímur Indriðason reynir að svara þeirri spurningu. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  4. 61

    Hulunni svipt af huldumanninum Davíð

    Frá áramótum hefur Urður Örlygsdóttir aðeins hugsað um eitt; athafnamanninn Quang Lé sem er ættaður frá Víetnam og vill láta kalla sig Davíð Viðarsson. Hann er einn þeirra sex sem úrskurðuð voru í gæsluvarðhald eftir umfangsmiklar aðgerðir lögreglu sem beindust að viðskiptaveldi Quang. Urður segir frá Kveiksþættinum og vinnunni á bakvið hann. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  5. 60

    Þarf Sjálfstæðisflokkurinn ekki á VG að halda í útlendingafrumvarpinu?

    Þingflokksformaður VG upplýsti í ræðu á Alþingi að flokkurinn setti ákveðna fyrirvara við útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Þetta kom stjórnarandstöðunni á óvart. Af hverju gerði VG þessa fyrirvara og skipta þeir einhverju máli? Höskuldur Kári Schram fer yfir stöðuna. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  6. 59

    Bíddu - átti ekki að koma gos?

    Það héldu allir að það væri að fara að gjósa á laugardag. En svo gerðist ekki neitt. Þýðir það að það er stutt í næsta gos? Benedikt Sigurðsson fylgdist með jarðhræringunum á laugardag og segir frá skemmtilegri uppákomu á Veðurstofunni og túristum sem vildu sjá gos. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  7. 58

    Nærri búinn að kaupa samningajakka þegar allt fór í háaloft

    Samningamaður í kjaraviðræðum breiðfylkingar stéttarfélaganna og Samtaka atvinnulífsins væri nærri búinn að kaupa jakka sem hann ætlaði klæðast við undirritun kjarasamninga þegar allt fór í háaloft. Boðað hefur verið til fundar í dag en er líklegt að deiluaðilar nái saman um helgina? Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir spáir í spilin. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  8. 57

    Hver er sannleikurinn um blóðmerahald?

    Kveikur fjallaði í gær um blóðmerahald og hver staðan er í þessari umdeildu atvinnugrein tæpum þremur árum eftir að svissneskir dýraverndunarsinnar birtu myndskeið frá hestahaldi sem fáir vissu af. María Sigrún Hilmarsdóttir segir frá tilraunum Kveiks til að fá að mynda blóðmerahald og ræða við forsvarsmenn Ísteka, eina fyrirtækið sem kaupir blóðið. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  9. 56

    Staða Alberts eftir ákvörðun héraðssaksóknara og vopnahlésvon á Gaza

    Héraðssaksóknari felldi á fimmtudag niður mál Alberts Guðmundssonar. Þýðir það að hann komi til greina í landsliðshóp Íslands fyrir umspilsleikinn gegn Ísrael? Það hefur kviknað von um að hægt sé að koma á vopnahléi á Gaza? Hvernig yrði það? Magnús Geir Eyjólfsson og Ólöf Ragnarsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  10. 55

    Flóknar umræður framundan um útlendingamálin á Alþingi

    Ríkisstjórnin segist hafa náð samstöðu um aðgerðir í útlendingamálum en framundan eru flóknar umræður um málaflokkinn. Hverjum finnst hvað og hvers vegna? Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir reynir að svara þessum spurningum. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  11. 54

    Læknirinn sem segist vera að bjarga fíklum

    Árni Tómas Ragnarsson segist vera læknir af gamla skólanum. Hann hefur verið sviptur starfsleyfi sínu að hluta eftir að hafa ávísað morfinlyf til hóps fíkla. Í dag er væntanleg ný þáttaröð Péturs Magnússonar um Árna Tómas, skaðaminnkunarúrræði og af hverju landlæknir svipti hann starfsleyfinu sínu að hluta. Pétur segir frá en umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  12. 53

    Fyrrverandi formenn verja Kristrúnu og sárir Grindvíkingar í röð

    Kristrún Frostadóttir fór í viðtal við hlaðvarpsþátt og upplýsti hver stefna flokksins væri í útlendingamálum. Tveir formenn Samfylkingarinnar sáu ástæðu til að koma henni til varnar. Af hverju? Grindvíkingar eru sárir og spyrja; hvers vegna fær Bláa lónið að hafa opið en ekki önnur fyrirtæki? Magnús Geir Eyjólfsson og Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  13. 52

    Leitin að Jóni Þresti og ofbeldi danskra barna

    Í fimm ár hefur fjölskylda Jóns Þrastar Jónssonar barist fyrir því að halda máli hans opnu eftir að hann hvarf í Dyflinni. Til tíðinda dró fyrir viku þegar greint var frá tveimur nafnlausum bréfum og í vikunni var svæði girt af í almenningsgarði. En hvað gerist í dag? Ein af mest lesnu fréttunum á ruv.is í vikunni var frá Danmörku þar sem greint var frá ofbeldi barna í garð annarra barna í grunnskóla. Viðbrögð skólastjórnenda hafa verið harðlega gagnrýnd. Bjarni Pétur Jónsson og Róbert Jóhannsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson

  14. 51

    Fjölskyldusameining sem reyndi á þolrif ríkisstjórnarflokkanna

    Þrír starfsmenn á vegum utanríkisráðuneytisins eru komnir til Kaíró til að reyna greiða leið þeirra Palestínumanna á Gaza sem eiga rétt á dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Utanríkisráðherra segist trúa því að ferðin skili einhverjum árangri. Málið hefur samt reynt á þolrif ríkisstjórnarflokkanna. Höskuldur Kári Schram segir frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  15. 50

    Farið að bera á gremju á Suðurnesjum vegna heitavatnsleysis

    Íbúar Suðurnesja hafa mátt búa við heitavatnsleysi og skert rafmagn eftir að stutt en afdrifaríkt eldgos skemmdi Njarðvíkurlögnina og ekki tókst að tengja hjáveitulögnina. Unnið er á vöktum við að búa til nýja heitavatnslögn en Suðurnesjamenn vilja vita; hverjum er þetta að kenna? Linda Blöndal segir frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  16. 49

    Eldgos sem ógnaði heitu vatni og Ofurskál í uppbótartíma

    Ofurskálin í bandarísku NFL-deildinni átti að vera ein í aðalhlutverki en svo byrjaði að gjósa og glóandi hraunbreiða ógnaði heita vatninu á Suðurnesjum. Því var gripið til uppbótartíma sem þau Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir, Andri Ólafsson og Fanney Birna Jónsdóttir nýttu til fulls. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  17. 48

    Hryðjuverkamálið fyrir dóm: Var Sindra Snæ og Ísídór fúlasta alvara?

    Á morgun hefjast réttarhöld í einu sérkennilegasta sakamáli seinni ára; hryðjuverkamálinu. 504 dögum eftir að ríkislögreglustjóri hélt blaðamannafund og sagði íslenskt samfélag vera öruggara eftir handtöku tveggja manna koma þeir fyrir fjölskipaðan Héraðsdóm Reykjavíkur og reyna að sannfæra dóminn um að þeir séu meinleysisgrey. Ákæran er ítarleg og þar er ýmislegt sem vekur upp spurningar. Stígur Helgason segir frá en umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  18. 47

    Eru ekki allir spenntir fyrir næstu stýrivaxtaákvörðun?

    Á miðvikudag kynnir peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands stýrivaxtaákvörðun sína. Af hverju skiptir það þig máli og hvaða áhrif hafa hlutir eins og kjaraviðræður og Grindavík? Magnús Geir Eyjólfsson útskýrir þetta . Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  19. 46

    Engin vöffluilmur í Karphúsinu en kannski gos á næstu dögum og tvenn Grammy

    Það er komið fjölmiðlabann í Karphúsinu og það er yfirleitt vísbending um að staðan sé viðkvæm og kjaraviðræður séu að þokast áfram. Það hefur ekkert bann verið sett á eldgos á Reykjanesskaga; það er ekki spurning hvort heldur hvenær það sjötta kemur. Og svo eru það Grammy-verðlaunin sem hvorki Haukur Holm né Ingunn Lára Kristjánsdóttir hafa unnið en Laufey og Ólafur Arnalds gætu gert það.

  20. 45

    Getur Eurovision orðið eitthvað annað en pólitík?

    Sænskir tónlistarmenn bættust í hóp þeirra sem hvetja forsvarsmenn Eurovision til að banna Ísrael frá keppni vegna stríðsreksturins á Gaza. Það flækir aðeins málið að Svíar halda keppnina í ár. Við sögu kemur líka framlag Lúxemborgar sem er ísraelsk söngkona og framlag Íra en hán vill ekki að Ísraelar fái að taka þátt. Birta Björnsdóttir segir frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  21. 44

    Ísland frystir neyðaraðstoð og flóknir búferlaflutningar

    Alþjóðadómstóllinn í Haag sagði að auðvelda yrði íbúum Gaza að fá neyðaraðstoð. Á sama tíma frystu nokkur ríki peninga sem áttu að renna til Palestínuaðstoðar Sameinuðu þjóðanna eftir að grunur vaknaði að nokkrir starfsmenn hennar hefðu aðstoðað við hryðjuverkaárás Hamas. Og einir flóknustu búferlaflutningar í sögu Íslands hefjast á morgun. Andri Yrkill Valsson og Brynjólfur Þór Guðmundsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  22. 43

    Jarðhræringar sem halda takti og íbúar sem bíða eftir lausn

    Ef ekkert breytist næstu daga gætu íbúar Grindavíkur fengið að vitja eigna sinna í fyrsta skipti síðan gossprunga opnaðist við bæjarmörkin og hraun rann inn í bæinn. En hvernig er staðan í bænum, sprungunum sem þar hafa myndast og landrisinu við Svartsengi? Benedikt Sigurðsson og Alma Ómarsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  23. 42

    Gaza og Söngvakeppnin og þau sem Óskarinn hunsaði

    Stríðsrekstur Ísraela heldur áfram á Gaza og hungursneyð vofir yfir hálfri milljón íbúa. RÚV hefur skipt um stefnu varðandi Eurovision og ætlar að leyfa sigurvegara Söngvakeppninnar að ráða. Og svo eru það Margot Robbie og Leonardo DiCaprio sem hafa leikið hjón og fengu hvorug tilnefningu til Óskarsverðlauna. Dagný Hulda Erlendsdóttir, Andri Yrkill Valsson og Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson. ATH: Næsti þáttur er á föstudag en ekki miðvikudag eins og umsjónamaður segir í afkynningu.

  24. 41

    Facebook-færsla Bjarna og vantrauststillaga Ingu Sæland

    Utanríkisráðherra skrifaði færslu á Facebook sem vakið hefur mikla athygli. Voru einhver dulin skilaboð í færslunni og hvað verður um vantrauststillögu Ingu Sæland? Alma Ómarsdóttir og Magnús Geir Eyjólfsson setja sig í stellingar fyrir þing sem gæti hafist með hvelli. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson

  25. 40

    Grindavík ekki afskrifuð og óhugnanlegt morðmál þingfest

    Grindavík er stærsta verkefni ríkisstjórnarinnar þessa dagana og fátt annað komist að hjá henni. Í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag verður þingfest óhugnanlegt morðmál. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Stígur Helgason segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  26. 39

    Grindavík illa leikin af náttúruöflunum

    Það er hætt að gjósa við Grindavík en það sér ekki fyrir endann á jarðhræringunum. Benedikt Sigurðsson fór til Grindavíkur þegar byrjaði að gjósa og segir frá upplifun sinni. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson

  27. 38

    Þegar ein versta sviðsmyndin rættist í Grindavík

    Í gær rættist ein versta sviðsmynd vísindamanna þegar gossprungur opnuðust nærri Grindavík. Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir segja frá sólarhring sem gleymist seint. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  28. 37

    Taugarnar þandar fyrir fyrsta leikinn á EM í handbolta

    Hvað fer í gegnum kollinn á leikmönnum fyrir fyrsta leik á stórmóti? Af hverju er leikur Íslands í dag einn sá erfiðasti í riðlinum? Ásgeir Örn Hallgrímsson og Kári Kristján Kristjánsson, sérfræðingar EM-stofunnar, fara yfir það sem er framundan á EM í handbolta. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  29. 36

    Fíflið, prinsinn og kóngurinn

    Kynnir Golden Globe skráði sig á spjöld sögunnar, Andrés prins fær líklega ekki að snúa heim en Friðrik heimsækir móður sína sem krónprins og gengur þaðan út sem kóngur. Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Birta Björnsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson

  30. 35

    Pattstaða forsætisráðherra

    Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu á föstudag um að matvælaráðherra hefði ekki farið að lögum þegar hún stöðvaði hvalveiðar. Hún ætlar ekki að segja af sér. Benedikt Sigurðsson, fréttamaður fer yfir stöðuna. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  31. 34

    11 milljarða króna brjálsemi sem gekk upp

    Fjórða þáttaröðin af True Detective hefur fengið lofsamlega dóma hjá þeim útvöldu gagnrýnendum sem hana hafa séð. Þættirnir verða frumsýndir um miðjan mánuðinn. Leifur Dagfinnsson, framleiðandi hjá True North, ræðir um 11 milljarða króna verkefnið og samstarfið við stórstjörnuna Jodie Foster.

  32. 33

    Hvernig er að vera í framboði til embættis forseta Íslands?

    Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tilkynnti óvænt á nýársdag að hann yrði ekki í framboði í næstu forsetakosningum sem fara fram í sumar. Leitin að næsta forseta er hafin. Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, segir frá þeirri reynslu sinni að bjóða sig fram í forsetakosningum. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  33. 32

    Besta upphitunin fyrir Skaupið? Annállinn

    Það er góð upphitun fyrir Skaupið á gamlársdag að horfa á annálin. Ólöf Ragnarsdóttir og Alma Ómarsdóttir hafa umsjón með honum í ár og þær reyna að fara yfir það helsta á sjö mínútum. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  34. 31

    Soðið, kjarnhitamælirinn og tíminn bestu vinirnir

    Þótt byrjað sé að gjósa þarf samt að hugsa um jólamatinn. Þar eru soðið, kjarnhitamælirinn og tíminn bestu vinir kokksins. Ægir Friðriksson, deildarstjóri matreiðslu við MK, fer yfir bestu trixin í bókinni. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  35. 30

    Það er byrjað að gjósa

    Eldgos hófst á Reykjanesskaga klukkan 22:17 í gærkvöld. Heiðar Örn Sigurfinnsson, Ingunn Lára Kristjánsdóttir, Birgir Þór Harðarson og Hallgrímur Indriðason segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  36. 29

    "Það gengur allt af göflunum," þegar jólabókaflóðið brestur á

    Eru ekki allir að hugsa um bækur á þessum árstíma? En hvernig er að fjalla um bækur og rithöfunda í jólabókaflóðinu? Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður á Vísi, og Sunna Dís Másdóttir, gagnrýnandi í Kiljunni, segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  37. 28

    Ímyndarkrísa hjá lögreglunni eftir fréttir af strippurum og áreitni?

    Er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á leiðinni í ímyndarkrísu eftir fréttir af strippurum og áreitni háttsettra yfirmanna? Kolbeinn Tumi Daðason, fréttastjóri Vísis, og Sigríður Dögg Auðunsdóttir, velta þessu fyrir sér. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  38. 27

    Það sem heimsbyggðin var að google en líka Svíar og Norðmenn

    Heimsbyggðin hafði áhuga á stríðinu á Gaza, Oppenheimer og Barbie en líka Jeremy Renner. Norðmenn veltu fyrir sér hvað væri Woke, Hamas og gjörunnin matvæli. Svíar vildu vita hvað þeir fengju í orkustyrk og Bretar hvenær næsti Love Island yrði sýndur. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  39. 26

    Réttað í morðmáli og P Diddy í vandræðum

    Í dag hefjast réttarhöld í sérstöku morðmáli sem kom upp á Ólafsfirði fyrir meira en ári síðan. Og fjórar konur hafa sakað Sean Combs, betur þekktan sem P Diddy, um gróf kynferðisbrot. Ólöf Erlendsdóttir og Atli Már Steinarsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  40. 25

    Laufeyjar-fyrirbærið og Litla Hraun

    Hvernig varð Laufey að þessari stjörnu sem hún er orðin? Hversu slæmur staður er Litla Hraun? Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Sveinn Andri Sveinsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  41. 24

    Jólin "koma" hjá þingmönnum og sjötta útgáfan af GTA

    Hvernig vita þingmenn að jólin eru að koma? Hvað er svona merkilegt við stiklu úr sjöttu útgáfunni af GTA? Höskuldur Kári Schram og Ólafur Þór Jóelsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  42. 23

    Varahéraðssaksóknari flytur til Haag

    Kolbrún Benediktsdóttir hefur verið varahéraðssaksóknari í átta ár. Á næsta ári flytur hún hins vegar til Haag og verður saksóknari hjá Eurojust næstu þrjú árin, eitthvað sem hún telur að eigi eftir að breyta miklu í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  43. 22

    Loftslagsráðstefna númer 28 og skemmda vatnslögnin til Eyja

    Hvað vill Ísland gera á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna? Hvernig líður Eyjamönnum með skemmdu vatnslögnina? Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Linda Blöndal segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  44. 21

    Tvær yfirlýsingar um næturbrölt og gengi Íslands á HM

    Af hverju þurfti þingmaður Pírata að senda frá sér tvær yfirlýsingar um eigið næturbrölt? Og hvernig á íslenska kvennalandsliðinu í handbolta eftir að ganga á HM? Höskuldur Kári Schram og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  45. 20

    Hussein einn eftir á Íslandi og bjartara yfir Grindavík

    Af hverju fær Hussein Hussein að vera á Íslandi en ekki fjölskyldan hans? Eru Grindvíkingar farnir að eygja von um endurkomu? Haukur Holm og Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  46. 19

    Bankar sjá að sér og Katar í lykilhlutverki

    Af hverju skiptu bankarnir um kúrs gagnvart Grindavík? Hvers vegna er Katar að semja við Hamas um lausn gísla? Höskuldur Kári Schram og Bjarni Pétur Jónsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  47. 18

    Dómur í Bankastræti Club-máli og allt á suðupunkti hjá OpenAI

    Hversu lengi verður dómari að lesa upp dómsorðið í Bankastræti Club-málinu? Af hverju er það stórfrétt að Sam Altman hafi verið rekinn? Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir og Þorgils Jónsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

  48. 17

    Jarðhræringar og stýrivextir og nýtt landris við Svartsengi

    Hafa jarðhræringarnar í Grindavík áhrif á hvort stýrivextir hækki eða lækka? Og hvað þýðir nýtt landris við Svartsengi? Magnús Geir Eyjólfsson og Ragnhildur Thorlacius segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson

  49. 16

    Stríð tengt ákveðinni nýlendustefnu og afskiptasemi alþjóðastofnana

    ?Þetta er nútímalegt stríð sem byggir á ákveðnum atburðum 20. aldar og tengjast hugmyndum um þjóðerni og sjálfsmynd, ákveðinni nýlendustefnu og afskiptasemi alþjóðastofnana,? segir Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sögu Mið-Austurlanda. Hann ræðir við fréttastofu í hlaðvarpsþættinum Sjö mínútur með fréttastofu RÚV. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson

  50. 15

    Falsfréttir á tímum jarðhræringa og Grindavíkurbær rýmdur í skyndi

    Hvaða falsfréttir komust á kreik þegar Grindvíkingar þurftu að yfirgefa bæinn sinn? Og af hverju þurfti að rýma bæinn í skyndi í gær? Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Ragnhildur Thorlacius segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Fréttastofa RÚV kryfur augnablikið á 7 mínútum alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.Umsjón: Freyr Gígja Gunnarsson.

HOSTED BY

RÚV

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Sjö mínútur með fréttastofu RÚV have?

Sjö mínútur með fréttastofu RÚV currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Sjö mínútur með fréttastofu RÚV about?

Fréttastofa RÚV kryfur augnablikið á 7 mínútum alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.Umsjón: Freyr Gígja Gunnarsson.

How often does Sjö mínútur með fréttastofu RÚV release new episodes?

Sjö mínútur með fréttastofu RÚV has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Sjö mínútur með fréttastofu RÚV?

You can listen to Sjö mínútur með fréttastofu RÚV on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Sjö mínútur með fréttastofu RÚV?

Sjö mínútur með fréttastofu RÚV is created and hosted by RÚV.
URL copied to clipboard!