Sjókastið podcast artwork

PODCAST · society

Sjókastið

Sjókastið er hlaðvarp sem tengir sig við hafið með lifandi hætti, stýrt af Aríel Péturssyni, formanni Sjómannadagsráðs.

  1. 26

    #26 Jón Steinar Árnason - áhættusækni skipstjórinn og frumkvöðullinn

    Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Steinar – skipstjóra, útgerðarmann og frumkvöðul sem hefur tekið stóra slagi, unnið mikla sigra en jafnframt tekið dýfur og alltaf lent á fótunum aftur.Hann ólst upp á Seyðisfirði, fór ungur á sjó og mótaðist snemma af hörðum veruleika sjómennskunnar. Leiðin lá á Gullfoss, í stýrimannaskólann og áfram í skipstjórn þar sem ábyrgðin var algjör.En sagan stoppar ekki þar.Jón fór út í viðskipti af krafti, byggði upp eignir og rekstur – og lét ekki þar við sitja heldur stofnaði flutningaskipafélag í beinni samkeppni við stærstu aðila á markaðnum. Á leiðinni hefur hann upplifað það sem fæstir gera: orðið efnaður, tapað miklu, byggt sig upp aftur – og tekið áhættur sem hefðu getað farið verr.Hann segir frá skipi sem sökk undan honum og þeim augnablikum þegar allt hangir á bláþræði. Einnig fer hann yfir viðskiptaævintýri bæði hér heima og erlendis, þar sem reglurnar eru allt aðrar og leikurinn oft harðari.Þetta er saga manns sem hefur siglt í gegnum allar brælurnar sem lífið lífið hefur upp á að bjóða – og flýtur enn.Sjókastið – sögurnar af sjónum og fólkinu sem lifir þær.

  2. 25

    #25 Hörður Kjartansson – húsvörður á daginn, bjargvættur á kvöldin

    Hörður Kjartansson er einn af þessum mönnum sem halda samfélaginu gangandi án þess að berja sér á brjóstÍ áratugi starfaði hann sem húsvörður hjá Hrafnistu og Sjómannadagsráði – þar sem hann varð fljótt þekktur sem maðurinn sem vissi allt, gat lagað allt og sagði aldrei nei. Hann náði einstöku sambandi við íbúa hjúkrunarheimilisins og var hvers manns hugljúfi, en á bak við hlýjuna leyndist líka uppátækjasamur hrekkjalómur og ótal sögur sem lifa enn í veggjum staðarins.Samhliða þessu var Hörður í áratugi virkur í björgunarsveitastarfi, meðal annars sem skipstjóri á björgunarskipi. Þar hefur hann staðið í erfiðum aðgerðum, farið út í aðstæður sem flestir myndu forðast og tekið þátt í að bjarga mannslífum þegar mest á reynir.Í þættinum ræðum við lífið á hjúkrunarheimili, hvað það kennir manni að vinna með fólki á síðari stigum lífsins, menninguna og húmorinn sem heldur hlutunum gangandi – og svo hina hliðina: sjóbjörgun, hættuna, adrenalínið og ábyrgðina.Við förum líka inn í erfiðasta kafla lífs hans, þegar hann veiktist alvarlega og var kominn við dauðans dyr og hvernig hann náði sér aftur á strik.Þetta er þáttur um mann sem hefur bæði haldið utan um daglegt líf annarra og staðið í fremstu víglínu þegar á reynir.

  3. 24

    #24 Gaui „Smái“ Hafsteinn – stökk í ískaldan sjó til að bjarga flugmanni

    Í þessum þætti af Sjókastinu sest Aríel niður með sjómanninum Guðjóni Hafsteini Guðmundssyni, eða Gauja smáa, sem byrjaði aðeins 14 ára gamall til sjós og á að baki nær fjörutíu ára feril á íslenskum togurum.Guðjón segir frá fyrstu ferðinni sem messagutti á Gullfossi, lífinu á síðutogurunum, hvernig menn gátu farið þrisvar á kaf á einni vakt, og þeirri miklu byltingu sem varð þegar skuttogararnir komu til sögunnar.Í þættinum rifjar hann einnig upp magnað björgunarafrek á togaranum Vigra, þegar lítil flugvél hrapaði í sjóinn. Í þriggja stiga kulda batt hann kaðal um sig, stökk í sjóinn og synti að flugmanninum til að bjarga lífi hans.Við ræðum líka fjölskylduna, bakland sjómannsins, missi og nýtt lífsskeið, og hvað það er sem raunverulega gerir mann að góðum sjómanni.Þetta er saga um hugrekki, sjómennsku og líf sem mótaðist af hafinu.

  4. 23

    #23 Frosti Logason - alltaf á móti straumnum

    Í þessum þætti ræðir Aríel við Frosta Logason, rokkara, fjölmiðlamann og hlaðvarpsstjórnanda sem hefur orðið ein umdeildasta rödd íslenskrar samfélagsumræðu á síðustu árum.Farið er yfir lífshlaup Frosta; fjölmiðlaferil hans, trúleysið og síðar meir trúrækni, menningardeilur samtímans og sjómennskuna sem Frosti hellti sér út í og togar alltaf í hann.Þetta er opið, persónulegt og krefjandi samtal þar sem leitað er að því sem liggur undir yfirborðinu.

  5. 22

    #22 Sigurður Jökull - talsmaður skemmtiferðaskipa

    Skemmtiferðaskipin eru eitt umdeildasta mál íslenskrar ferðaþjónustu. Gullnáma eða ágangur?Í þessum þætti af Sjókastinu ræðum við við Sigurð Jökul, lobbyista skemmtiferðaskipabransans á Íslandi. Við förum yfir stærð greinarinnar, efnahagsleg áhrif, álag á hafnir og samfélög – og spyrjum stóru spurninganna um ábyrgð, umhverfi og siðferði.Hversu miklu skila skemmtiferðaskipin raunverulega til þjóðarinnar? Eru hafnir og innviðir að bera kostnaðinn? Hvað með kolefnisspor skipanna og loftgæði í höfnum?Beint samtal um hagsmuni, reglur, gagnrýni og framtíð skemmtiferðaskipa við Íslandsstrendur.Sjókastið – þar sem hafið og samfélagið mætast.

  6. 21

    #21 Kári Stefánsson - Óþægilega heiðarleigi vísindamaðurinn

    Kári Stefánsson í Sjókastinu – kjaftshögg, húmor og kaldur sannleikurÍ þessum þætti fáum við Kára Stefánsson í eitt beittasta og skemmtilegasta viðtal sem við höfum tekið í Sjókastinu. Við förum vítt og breitt og stingum á ýmis kýli  en alltaf með húmorinn og heiðarleikann í forgrunni.Við ræðum meðal annars:af hverju Kári „býður fólki reglulega upp á kjaftshögg“ í umræðunniskoðanir hans á sjávarútvegi og sjómönnumhvers vegna hann nennir ekki kurteisisleik þegar sannleikurinn er í húfiog hvernig hann sameinar skarpa greiningu, óbilandi réttlætiskennd og sprenghláturÞetta er þáttur fyrir þá sem þola ekki sykurhúðun – og kunna að meta hreina umræðu.

  7. 20

    #20 Reynir Traustason - umdeildi blaðamaðurinn af sjónum

    Krassandi viðtal við Reyni Traustason í Sjókastinu.Reynir er sjómaður að upplagi sem fór inn í blaðamennsku af fullum þunga og hefur lifað lífi sem minnir fremur á skáldsögu en ferilskrá.Í viðtalinu ræðum við meðal annars:þegar hann smyglaði amfetamíni frá Amsterdamhótanir og átök vegna blaðamennskureynslu hans af lífsbjörg á sjórithöfundastörf og lífsviðhorfhvernig sjómennska mótar karakter og dómgreindÓritskoðað, hreinskiptið og stundum óþægilegt – eins og góð viðtöl eiga að vera.

  8. 19

    #19 Hanna Katrín atvinnuvegaráðherra

    Í þessum þætti tekur Aríel á móti Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Við ræðum persónulega reynslu hennar og förum svo beint í stærstu hitamál sjávarútvegsins:• hækkun veiðigjalda og áhrif þeirra á smærri fyrirtæki• hvort auknar álögur dragi úr fullvinnslu og störfum á Íslandi• fiskeldi – þjóðhagslegur ávinningur strax eða í fjarlægri framtíð?Beinskeyttur og upplýsandi þáttur fyrir þá sem vilja kafa í raunveruleg áhrif stefnumótunar á sjávarútveg og samfélag.

  9. 18

    #18 Þór Sigfússon - Guðfaðir Sjávarklasans

    Þór Sigfússon hefur gegnt lykilhlutverkum í íslensku viðskiptalífi allt frá því að stýra Verzlunarráði og Sjóvá yfir í að stofna og leiða Íslenska sjávarklasann.Í þessum þætti ræðum við líf hans og leiðir, hugmyndina um „100% nýtingu“ sjávarauðlinda og hvernig samstarf, tengslanet og nýsköpun geta umbreytt heilli atvinnugrein.Við förum líka inn í manneskjuna sjálfa. Hvað drífur hann áfram og hvaða lærdóma hann hefur dregið frá árunum í viðskiptum og frumkvöðlastarfi.Hefur klasinn í raun skilað þeim árangri sem stefnt var að? Og hvað þarf að breytast til að sjávarútvegurinn verði fyrirmynd hringrásarhagkerfis framtíðarinnar?

  10. 17

    #17 Jón Frímann Eiríksson - skipstjórinn kornungi

    Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Frímann Eiríksson, skipstjóra sem hóf feril sinn ungur og hefur alla tíð lifað og andað fyrir sjómennsku. Jón Frímann segir frá fyrstu árum sínum á sjó, ábyrgðinni sem fylgir því að stýra skipi og þeirri sýn sem hann hefur mótað á lífið og tilveruna úti á hafi.Þeir ræða einnig um hvernig breyttir umhverfisþættir hafa áhrif á lífríki sjávar — og hvernig gervigreind og ný tækni gæti í framtíðinni orðið nytsamleg við fiskleit og ákvarðanir til hafs.

  11. 16

    #16 Vilhjálmur Birgisson - Baráttumaður af Skaganum

    Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel Pétursson við Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambands Íslands og Verkalýðsfélags Akraness.Vilhjálmur hefur lengi verið einn skýrasti og beinskeyttasti talsmaður launafólks á Íslandi — maður sem hikar ekki við að segja hlutina eins og þeir eru.Í þættinum fer Aríel með Vilhjálmi yfir lífshlaup hans, baráttu fyrir réttlæti á vinnumarkaði og hvernig uppeldi og reynsla úr sjávarplássi mótaði sýn hans á samfélagið.Þeir ræða stöðu sjómanna, kjarasamninga, launajafnrétti, verðbólgu og ábyrgð stjórnvalda — og spyrja hvort stéttabarátta dagsins í dag sé sú sama og áður.Beinskeyttur, persónulegur og á köflum hvass þáttur sem lætur engan ósnortinn.Hlustaðu á Sjókastið á Spotify og YouTube 

  12. 15

    #15 Pétur Jakob Pétursson - svissneski vasahnífur sjávarútvegsins

    Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Pétur Jakob Pétursson, fyrrum sjómann og margfróðan sjávarútvegsfræðing sem ólst upp í Grímsey og á að baki langa reynslu á sjó og í sjávarútvegi. Við förum yfir æskuárin á eyjunni, störf hans hjá Samherja og hvernig hann sér íslenskan sjávarútveg í samanburði við erlendan. Einnig ræðum við sóknarfæri í veiðum, vinnslu og tækni, viðkvæm mál eins og auðlindagjöld og samskipti við viðskiptaþjóðir – og ekki síst, hvort hann sakni þess að vera sjálfur úti á sjó.

  13. 14

    #14 Guðrún Hafsteinsdóttir - Formaður Sjálfstæðisflokksins

    Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, sest niður í Sjókastinu. Við ræðum persónulega hlið hennar sem sjómannsfrú, fjölskylduna, reynsluna úr atvinnulífinu og starfið í ráðherrastól. En við förum líka í stóru pólitísku málin: klofinn flokk, landamærin, veiðigjöldin, brennivín í búðir og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn getur endurheimt tiltrú almennings.Opinskátt og persónulegt spjall sem veitir innsýn í konuna sem leiðir XD – og framtíð stærsta flokks Íslands.

  14. 13

    #13 Guðmundur Helgi Þórarinsson - formaður VM

    Í þessum þætti af Sjókastinu sest Aríel niður með Guðmundi Helga Þórarinssyni, einum af röddum sjómanna á Íslandi undanfarna áratugi. Við ræðum æskuár hans og fyrstu skref á sjó, baráttuna í kjaramálum, gagnsæi í verðlagningu, auðlindarentumál og lífeyrisréttindi sjómanna.Guðmundur Helgi fer líka yfir helstu áfanga í félagsmálum, áskoranir sem sjómenn hafa staðið frammi fyrir, og framtíð íslensks sjávarútvegs – með beinskeyttum skoðunum og umbúðalausu samtali.Þetta er viðtal sem enginn sem hefur áhuga á sjómennsku, sjávarútvegi eða stéttabaráttu má láta fram hjá sér fara.

  15. 12

    #12 Valdimar Víðisson - sjómaður sem varð bæjarstjóri

    Í þessum þætti af Sjókastinu hittum við Valdimar Víðisson, bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Hann segir frá uppvexti sínum á Vestfjörðum, árum sínum á sjó og hvernig leiðin lá þaðan í kennslu, skólastjórn og pólitík. Við ræðum áherslur hans í bæjarstjórn, sýn hans á framtíð Hafnarfjarðar og gagnrýna umræðu um íslenska menntakerfið.Kynntu þér manninn á bak við titilinn – sjómaðurinn, skólastjórinn og bæjarstjórinn.

  16. 11

    #11 Kjartan Páll - strandveiðibaráttumaður og háskóladoktor

    Í þessum þætti hittum við Kjartan Pál Sveinsson, formann Félags strandveiðimanna, og föru yfir það hvað strandveiðar eru í raun: lífsviðurværi, táknræn barátta fyrir réttlátari dreifingu auðlindarinnar – eða kerfi óhagkvæm leið til að afla þjóðarbúinu tekna.Við kynnumst Kjartani sem er doktor í félagsfræði, flakkaði heimshorna á milli og lenti í fangelsi í Egyptalandi. Við skyggnumst í hugmyndafræðina á bak við strandveiðihreyfinguna, gagnrýni á kvótakerfið og spyrjum hvort þjóðin vilji mátulega hagkvæma aðferð við að veiða fisk – í nafni sjálfsímyndar og réttlætis.

  17. 10

    #10 Markús Alexandersson - níræður skipstjóri í fullu fjöri

    Markús Alexandersson hóf sjómannsferil sinn í Noregi aðeins 18 ára gamall og sigldi meðal annars á olíuskipum milli Asíu og Miðausturlanda á tímum Kóreustríðsins. Í þessum þætti segir hann frá ævintýrum sínum á úthöfunum, lífinu um borð og kraftmikilli ævi á sjó og landi. 

  18. 9

    #9 Georg Lárusson - forstjóri Landhelgisgæslunnar

    Í þessum þætti ræðum við við Georg Kr. Lárusson, forstjóra Landhelgisgæslunnar. Við kynnumst Georgi á persónulegu nótunum, ræðum við hann um hvort fókus Gæslunnar eigi að vera á leit og björgun eða þá varnarmál. Við heyrum um fjaðrafok í kringum hugmyndir um sölu á flugvél Gæslunnar, olíukaup skipanna í Færeyjum, samspil ríkis og varnarstefnu, gagnrýni á utanríkisstefnu Íslands og framtíð landsins sem herlaus þjóð. Við köfum í pólitíska ábyrgð, fjármögnun og öryggishugsun í breyttum heimi.Þátturinn opnar einnig á umræðu um hvort öryggismál séu í ólestri og hvort við séum að missa tökin á eigin landamærum.

  19. 8

    #8 Eiríkur Ingi Jóhannsson - sjómaðurinn sem fór í forsetaframboð

    Eiríkur lifði fjóra tíma í ísköldum sjó eftir að Hallgrímur SI-77 sökk undan ströndum Noregs þar sem þrír fórust. Hann hjólaði einn fimm sinnum kringum Íslands og seinna meir hringinn um Írland – og bauð sig svo fram til forseta Íslands.Í þessum þætti af Sjókastinu sest Eiríkur Ingi Jóhannsson við borðið og segir frá ævintýrum sínum, lífsháska, þögninni eftir storminn og hvers vegna hann ákvað að gefa kost á sér í æðsta embætti þjóðarinnar – og fékk fæst atkvæði í sögunni.Við ræðum:Slysið sem breytti ölluHvernig hann lifði afÞrautsegjuna sem kom honum gegnum hjólreiðakeppnirHugsjónir um lýðræði og forsetaembættiðÞetta er opinská og einlæg frásögn manns sem þorir að fara eigin leiðir – og segir hlutina beint út.

  20. 7

    #7 Jón Bjarnason - Ráðherrann sem forðaði Íslandi frá inngöngu í ESB?

    Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra – og manninn sem að eigin sögn, og að mati margra, forðaði Íslandi frá því að ganga í Evrópusambandið.Jón rifjar upp hvernig hann leiddi baráttuna fyrir yfirráðum Íslendinga yfir makríl í eigin lögsögu og segir frá því hvernig þessi ákvörðun, ásamt hans eigin röggsemi, hafi orðið vendipunktur – bæði í utanríkisstefnu þjóðarinnar og í endurreisn íslensks efnahags eftir hrun.Við förum yfir feril hans, átökin innan ríkisstjórnar og klofningana innan ríkisstjórnar eftirhrunsáranna – og veltum því fyrir okkur hvort þjóðin hafi verðlaunað hann eða refsað fyrir það að fylgja eigin sannfæringu.Þetta er þáttur um óvinsælar ákvarðanir, þjóðhagslegan þrekleik og þann kostnað sem fylgir því að segja „nei“.

  21. 6

    #6 Guðmundur Kristjánsson í Brimi - útgerðarmaðurinn sem syndir á móti straumnum

    Í þessum þætti af Sjókastinu hittum við Guðmund Kristjánsson, útgerðarmann og forstjóra Brims. Guðmundur ræðir æskuárin á Rifi, hvernig hann fetaði sín fyrstu skref í íslenskum sjávarútvegi og hvernig hann byggði upp eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins.Við komumst að því hvernig ungi og hlýðni drengurinn frá Rifi breyttist í stórútgerðarmann með sterkar skoðanir og skarpa sýn á framtíð greinarinnar. Guðmundur fer óhræddur í afstöðu sína gagnvart stjórnvöldum og þekkingarskort þeirra á sjávarútvegi og fiskveiðum og segir sína skoðun hispurslaust.Þátturinn er opinská og kraftmikil umræða um sjávarútveginn og þar duga engin vettlingatök. Guðmundur talar tæpitungulaust um áskoranir greinarinnar og hvernig hann sér framtíð útgerðarinnar þróast.Hlustaðu á þáttinn og kynnstu Guðmundi Kristjánssyni frá nýju sjónarhorni – bæði sem einstaklingi og stórútgerðarmanni.

  22. 5

    #5 Haukur Hólm - Fréttamaðurinn sem hefur migið í saltan sjó

    Í þessum þætti af Sjókastinu hittum við Hauk Hólm, fréttamann sem á ævintýralegt lífshlaup að baki. Haukur hefur lengi verið þekktur fyrir beinskeyttan fréttaflutning og skarpa sýn á íslenskt samfélag en í dag skyggnumst við inn í persónulegri hliðar hans.Við ræðum um líf hans á sjó, bæði í æsku þegar hann réri sem unglingspiltur og síðar þegar hann sigldi skútum á fullorðinsárum. Haukur deilir með okkur sögum frá sjómennskuárum sínum, hvað leiddi hann á braut fréttamennsku og hvernig tengingin við sjóinn hefur mótað hann sem persónu.Þetta er viðtal fullt af innsýn, hugleiðingum og hlýlegum sögum af lífsreynslu Hauks. 

  23. 4

    #4 Ágúst Halldórsson - kolólöglegt kajakævintýri óheflaða Eyjamannsins

    Í þessum hressilega "skemmtiþætti" ræðir Aríel við Ágúst Halldórsson vélstjóra, fjölskyldumann og hrekkjalóm úr Vestmannaeyjum. Við förum yfir lífið og tilveruna í Eyjum, uppátækin sem Ágúst hefur dundað sér við í gegnum tíðina og ævintýri sem margir myndu hugsa sig tvisvar um áður en þeir létu verða af – eins og þegar hann reri algjörlega óvart á kajak út í Surtsey. Það var mikið hlegið í þessum þætti og það er líklega erfitt að hlusta án þess að glotta.

  24. 3

    #3 Árni Sverrisson - Óhræddur forystumaður sjómanna

    Í þessum þætti af Sjókastinu ræðum við við Árna Sverrisson, formann Félags skipstjórnarmanna.Við förum yfir:Baráttu sjómanna fyrir betri kjörumMuninn á lífinu á nýjustu togurum og skipum fortíðarHlutverk hvalveiða í íslenskum sjávarútvegiKosti og galla fiskveiðistjórnunarkerfisinsLifandi, opinskátt og fræðandi samtal um fortíð, nútíð og framtíð sjómennsku á Íslandi.Njótið og gerist áskrifendur til að missa ekki af fleiri þáttum!

  25. 2

    #2 Svandís Svavarsdóttir - Kvenskörungur með stórt hjarta

    Í þessum einlæga og opinskáa þætti af Sjókasti ræðir Aríel við Svandísi Svavarsdóttur, fyrrverandi matvælaráðherra með meiru. Hún segir okkur frá sínu lífshlaupi – allt frá uppvexti og mótandi æskuárum til baráttu við persónuleg áföll og álagsmikil ár í pólitík.Við ræðum pólitíska ólgusjóinn, ákvarðanir sem kosta og reynsluna af því að vera í eldlínunni. Sjávarútvegurinn, umhverfismál, heilbrigðiskerfið og gildin sem drífa hana áfram fá einnig sitt pláss í þessu áhrifaríka viðtali.Svandís opnar sig um sársauka og styrk, sorg og von – og sýnir okkur að baki stjórnmálakonunni býr kona með hjarta, húmor og óbilandi eldmóð.Framleiðsla, klipping, hljóð og ljós: Arnar Steinn Einarsson

  26. 1

    #1 Kristján Loftsson - Umdeildur, einbeittur en mannlegur?

    Í þessum þætti af Sjókasti ræðir Aríel við Kristján Loftsson, forstjóra Hvals hf., um ævi hans og störf, hvalveiðar, togstreitu við stjórnvöld og fjölmiðla, framtíð sjávarútvegsins og hvað knýr hann áfram eftir áratugi í eldlínunni. Hver er maðurinn á bak við fyrirsagnirnar?

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Sjókastið er hlaðvarp sem tengir sig við hafið með lifandi hætti, stýrt af Aríel Péturssyni, formanni Sjómannadagsráðs.

HOSTED BY

Aríel Pétursson

Frequently Asked Questions

How many episodes does Sjókastið have?

Sjókastið currently has 26 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Sjókastið about?

Sjókastið er hlaðvarp sem tengir sig við hafið með lifandi hætti, stýrt af Aríel Péturssyni, formanni Sjómannadagsráðs.

How often does Sjókastið release new episodes?

Sjókastið has 26 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Sjókastið?

You can listen to Sjókastið on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Sjókastið?

Sjókastið is created and hosted by Aríel Pétursson.
URL copied to clipboard!