Sætisfélaginn

PODCAST · leisure

Sætisfélaginn

Sætisfélaginn er skemmti- og fræðsluþáttur stýrður af Gunnari Ara Kristjánssyni. Helstu umræðuefni þáttarins verða afþreying, íþróttir, hreyfing og ferðalög. Margt mun verða rætt á skemmtilegu nótunum. Allskonar þemu, leikir, niðurraðanir o.fl. kemur fyrir sem er í takt við TikTok reikninginn "Sir Ulrich von Liechtenstein"

  1. 23

    Topp 10: Bestu Fótboltamenn Allra Tíma

    Hver er besti fótboltamaður allra tíma? Það er spurningin endalausa sem heldur lífinu oft gangandi út um allan heim. Listi sem var erfiður að gera en það hafðist! Ótrúlega gaman að spá í boltanum.Með mér eru:PfaffÓJK-ÍSAMBæjarbakaríEmmessís

  2. 22

    Topp 10: Fallegustu fjöll Íslands

    Það elska allir falleg fjöll. Hvað þá ef þau eru falleg OG íslensk! Mismunandi og magnþrungin geta þau verið. Mikil stemning sem það væri að geta klifið öll þessi fjöll.Með mér í dag eru:PfaffÓJK-ÍSAMBæjarbakaríEmmessís

  3. 21

    Topp 10: Besta nammi Íslands

    Íslendingar eru sælkærar og nautnaseggir miklir. Viljum eiga gott möns. Þessi listi er einmitt fyrir fólk með "sæta tönn". Gott fyrir ferðalagið, bíómyndina, veislur og alls konar.Með okkur í dag eru:PfaffÓJK - ÍSAMBæjarbakaríEmmessís

  4. 20

    Topp 10: Fallegustu Bæjarstæði Íslands

    Í þetta skiptið eru það fallegustu bæjarstæðin á Íslandi. Þau eru svakalega mörg falleg, enda fallegasta land í heimi. Stundum verður maður samt að vera harður og cutta eitthvað út. Með mér eru:PfaffBæjarbakaríÓJ&K-ÍSAMEmmessís

  5. 19

    Topp 10: Skyndibitar Íslands

    Í dag eru það bestu skyndibitar Íslands. Skemmtilegur listi að gera en erfiðurMeð mér í dag eru:PfaffBæjarbakaríEmmessísÓJ&K-ÍSAM

  6. 18

    Topp 10: Erkifjendur í íþróttum

    Solo-episode í dag. Aftur í TikTok ræturnar þar sem ég geri topplista. Í dag eru það mestu erkifjendur sögunnar í íþróttum. Það sem drífur íþróttirnar áfram er sigurtilfinningin, sérstaklega þegar helsti "óvinurinn" er sigraður!Með mér í anda eru:Sennheiser og PfaffEmmessísÓJK-ÍSAMBæjarbakaríArtasan

  7. 17

    Jon Snow var Man Utd. megin í lífinu en Daenerys mikill Liverpool aðdáandi

    Allir ferskir, enn og aftur, í Stúdíó Bæjarbakarí. Tindur Orri Ásbjörnsson mætir og það þýðir bara eitt: það er stiklað á stóru um næstum allt. Íþróttir, afþreying, pólítík og samfélagsmál, þættir og matargerð. Njótið með eina kleinu í vinstri og ostaslaufu í hægri.

  8. 16

    Borgarnes: Íris Líf í íslenski bær dagsins

    Íris Líf kom í Stúdíó Bæjarbakarí og spjallaði um árin sín í Borgarnesi. Fyrir utan það að vera Borgarnesbúi, þá hefur hún byggt upp farsælan feril þrátt fyrir ungan aldur. Rekur sitt eigið bókhaldsfyrirtæki sem heitir Accounta og er með vinsæla TikTok rás með 15.000 fylgjendur! Hún talar einnig um árin sín í Suður - Ameríku. Frábært að tala við hana. Er Borgarnesi og Borgarbyggð til sóma!

  9. 15

    Kópavogur: Höskuldur Gunnlaugsson í íslenski bær dagsins

    Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirmynd og fyrirliði Breiðabliks í Bestu Deild Karla kom í heimsókn. Ræddum aðeins um tímabilið sem er að hefjast, mataræði ásamt fleiru. Svo fórum við út í allt sem tengist Kópavogi. Frábært spjall.

  10. 14

    Íslenski bær dagsins: Garðabær með CrossFit kóngi Höfuðborgarsvæðisins

    Garðbæingurinn og Crossfit höfinginn Haraldur Holgersson er gestur dagsins. Heilsuhraustasti maður sem ég þekki og setur sér há markmið. Stendur alltaf við þau líka. Mikil fyrirmynd og hann sér um að halda CrossFit stöðinni í Sporthúsinu gangandi eins og smurðri vélHann byrjar seríuna um íslensku bæina. Þetta tengist TikTok reikningnum "Sir Ulrich von Liechtenstein" sem hefur sama lið þar. Þetta öðlaðist vinsælda þar og því vildi ég koma með það hingað. Svo eru að sjálfsögðu sveitastjórnarkosningar að byrja, þannig það passar vel við. Í dag er það Garðabær.

  11. 13

    Hvað eru skemmtilegustu pub quizin? Með 'Ullari' pup quiz kóngum Íslands

    Íslendingar elska gott pub quiz meira en allt. Fæ til mín stofnanda 'Ullari' hann Úlfar Konráð Svansson. Það sem 'Ullari' sérhæfir sig í er að útvega spurningakeppnir um allt milli himins og jarðar. Gott fyrir veislur, afmæli og alls konar uppákomur. Fjöllum um hvað Íslendingar elska spurningaspil og keppnir. Hvað eru bestu spurningaflokkarnir? Hvað er vinsælast? Margt annað rætt.

  12. 12

    Íþróttaspjallið mikla og velt stórum steinum

    Í dag var það enski boltinn, íslenska landsliðið í hand- og fótbolta Danir, HM í fótbolta, fótboltatreyjur, Super Bowl & Half Time Show, Game of Thrones, Hildur ásamt öðru skemmtilegu. Tindur Orri sem fyrr alltaf traustur gestur

  13. 11

    Spilar stjórnmálafólk FIFA?

    Það verður talað um handbolta, útlandaferðir, tölvuleiki, bæjarpólítík og alls konar hluti. Gestur þáttarins er Tindur Orri Ásbjörnsson.

  14. 10

    Topp 5 Bestu Sundlaugar Landsins með Kristínu Huldu og Tinnu Þorra

    Fæ til mín frænkur mínar og stórvinkonur. Flugfreyja okkar landsmanna hún Tinna Þorradóttir raðar niður 5 bestu sundlaugum landsins. Besti sálfræðingur landsins, Kristín Hulda Gísladóttir raðar sínum 5 bestu líka. Skrifið niður áhugaverða punkta ef eitthvað heillar ykkur. Svo förum við í ýmsa leiki eins og venjulega.

  15. 9

    Topp 5 Bæir Á Landsbyggðinni Til Að Búa

    Á nýju ári förum við yfir hvaða bæir eru mest aðlaðandi fyrir bæjarrottur eða ævintýrafólk. Fæ hann Tind Orra Ásbjörnsson með mér í þetta. Nú eru einmitt að koma sveitastjórnarkosningar og kannski heillast einhver að bæjarpólitíkinni á einhverjum stöðum úti á landi. Hafið það gott!

  16. 8

    Topp 5 Fyrirmyndir Gísla Þorgeirs

    Fæ til mín einn góðan í dag. Það er hinn frábæri og stórgóði vinur og bróðir, Gísli Þorgeir Kristjánsson. Flestir þekkja hann sem handknattleiksmann sem spilar með Magdeburg. Hvað gerði Gísla samt að því sem hann er í dag. Hann segir að það hafi verið fyrirmyndir sem hann átti í æsku. Allir ættu að eiga nokkrar fyrirmyndir. Svo er hann líka mikill ferðamaður og tískuáhugamaður, matreiðsluáhugamaður. Hann nýtir frítímann sinn vel í að sinna þessu. Njótið vel kæru hlustendur og gleðilegt nýtt ár!Hvað gerir Gísli Þorgeir um jólin?FyrirmyndirTopp 5 fyrirmyndirUppáhalds ferðalag hingað tilHvert langar Gísla mest að ferðast?Uppáhalds fatamerki?Smá "budget" ferðaleikurWinner StaysHM í fótbolta 2026?

  17. 7

    Svona hannar þú þína draumaferð

    Förum á troðnar og ótroðnar slóðir í heiminum í dag. Ég og okkar ástkæri Tindur Orri erum ferðaglaðir einstaklingar og vildum miðla okkar hugsunum og reynslu til ykkar. Eins og venjulega alls konar leikir og listar. Njótið í rólegheitunum á jólunum og hafið þau gleðileg!

  18. 6

    Besta jólamaraþonið um hátíðarnar

    Ég og okkar allra besti Tindur Orri Ásbjörnsson fjöllum um hvað sé best að horfa á yfir jólin. Taka bíómyndamaraþon eða þætti er eitthvað sem er nánast hluti af íslensku jólahefðinni. Förum yfir nokkra topplista tengt því ásamt ýmsum öðrum leikjum!

  19. 5

    Bestu máltíðarnar fyrir heimilið og veislur að mati Tinnu Þorra

    Hafnfirðingurinn, frænka mín og samfélagsmiðlastjarnan Tinna Þorradóttir mætir til mín í smá föstudagsspjall á Bókasafni Hafnarfjarðar. Spjöllum um hvernig hún byrjaði sinn feril í Make-Up bransanum árið 2015 og var algjör stjarna þar. Síðan förum við í hvernig hún færði hægt og rólega yfir í lífstílsmyndbönd á TikTok og Instagram. Svo er hún geggjuð í eldhúsinu og "rankar" bestu máltíðarnar sem hún gerir fyrir matarboð og venjuleg vikukvöld. Er þar með hátt upp í 14.000 fylgjendur. Frábært spjall. Létt og þægilegt eins og venjulega.

  20. 4

    Er Reykjavík hin raunverulega King's Landing?

    Stórgóður vinur þáttarins, Tindur Orri Ásbjörnsson mætir aftur til okkar og við förum út í hinn magnaða heim Game of Thrones. Þó sögusviðið sé skáldað þá er margt í henni sem svipast til raunveruleikans. Það er vel hægt að líkja saman landshlutum við héröð og konungsveldum sem eru í Game of Thrones. Eins og alltaf þá er þetta létt og skemmtilegt fyrir ykkur, kæra fólk.

  21. 3

    Mannfólkið elskar illmenni meira en hetjur

    Af hverju eru illmenni svona eftirminnileg? Það eru ótal margir sálrænir hlutir sem gera það að verkum. Darth Vader, Hannibal Lecter, Dracula, Voldemort, Hans Landa o.fl. Fæ til mín góðan gest alla leið frá Álftanesinu, Úlfar Konráð Svansson. Spjöllum á léttum nótum um illmenni í kvikmynda- og þáttaheiminum.

  22. 2

    Heima um jólin eða í Hogwarts?

    Þátturinn í dag er tileinkaður æsku minnar og gesti þáttarins. Tindur Orri Ásbjörnsson er mættur aftur enda eru fáir sem þekkja Harry Potter jafnvel og hann. Við veltum því fyrir okkur hvaða Harry Potter mynd er best. Ásamt því reynum við að finna rétt "Hogwarts House" fyrir menn eins og Chris Hemsworth og Gísla Martein. Svo fjöllum við um fleiri skemmtilega hluti.

  23. 1

    Bestu Sjónvarpspersónur Allra Tíma

    Rætt verður um hvernig sjónvarpsþættir eru að taka við af kvikmyndum sem aðalafþreyingarefnið í dag. Úrvalið er orðið svo geysilega mikið. Oft er erfitt að halda í við allt efnið sem er verið að gefa út. Hins vegar eru sumir þættir sem standa öðrum framar. Það verður rætt í þessum þætti á léttu nótunum. Gestur þáttarins er Hafnfirðingurinn og alfræðiritið sjálft, Tindur Orri Ásbjörnsson.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Sætisfélaginn er skemmti- og fræðsluþáttur stýrður af Gunnari Ara Kristjánssyni. Helstu umræðuefni þáttarins verða afþreying, íþróttir, hreyfing og ferðalög. Margt mun verða rætt á skemmtilegu nótunum. Allskonar þemu, leikir, niðurraðanir o.fl. kemur fyrir sem er í takt við TikTok reikninginn "Sir Ulrich von Liechtenstein"

HOSTED BY

gunnsari

CATEGORIES

URL copied to clipboard!