PODCAST · history
Tilraun sem stóð í þúsund ár
by RÚV Hlaðvörp
Hvað fékk íbúa Flateyjar á Skjálfanda til að taka sig saman um að yfirgefa heimili sín, alla sem einn? Árið var 1967 og nokkru áður höfðu allir ábúendur flutt úr afskekktum byggðum Flateyjarskaga — landsvæði sem hafði framfleytt fjölda fólks en líka kostað fjölda mannslífa. Þarna voru mannabyggðir á ystu þröm og gerðar tilraunir með þanþol fólks. Tilraun sem stóð í þúsund ár. Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir. Ritstjórn og samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
6
6. þáttur: Farfuglar koma og fara
Farfuglarnir koma og fara til Flateyjar á Skjálfanda og það gerir líka skipstjóri sem býr á Nýja-Sjálandi en er í Flatey yfir sumartímann. Kirkjan í Flatey hefur líka farið á milli lands og eyju og það sama á við um kirkjumuni. Viðmælendur í lokaþættinum eru: Gísli Jónatansson, Guðmundur Aðalbjörn Hólmgeirsson, Sigurgeir Pétursson og Tómas J. Knútsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
5
5. þáttur: Vísindi á miðöldum, nasistar og hreppstjórinn
Eitt merkasta framlag Íslendinga til raunvísinda á miðöldum voru rannsóknir Stjörnu-Odda. Þær vöktu heimsathygli og nutu hylli stjörnufræðinga sem voru í miklum metum hjá háttsettum mönnum innan þýska nasistaflokksins. Viðmælendur í þættinum, sem er sá næstsíðasti í þáttaröðinni eru: Baldvin Bjarnason og Þorsteinn Vilhjálmsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
4
4. þáttur: Hafið gefur og hafið tekur
Fullvíst má telja að ef höfn hefði komið fyrr í Flatey hefði verið hægt að koma í veg fyrir mannskaða í aftakaveðrum. Því enga alvöru höfn var að finna allt frá Grenivík í Eyjafirði til Húsavíkur. Og þarna getur veðrið breyst á örskotsstundu eins og sagan sýnir okkur. Viðmælendur í fjórða þættinum af sex eru: Elsa Heiðdís og Guðmundur Aðalbjörn Hólmgeirsbörn, Guðrún Kristín Jóhannsdóttir, Hallur Jóhannesson og Stefán Guðmundsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
3
3. þáttur: Alræmt taugaveikisbæli
Taugaveiki herjaði á íbúa Flateyjar á Skjálfanda á fjórða áratug síðustu aldar og var faraldurinn svo skæður að fólk forðaðist eyjuna. Í þriðja þætti er fjallað um veikindin og afleiðingar þeirra. Alls eru þættirnir sex í þáttaröðinni Tilraun sem stóð í þúsund ár. Viðmælendur í þættinum eru: smitsjúkdómalæknarnir Bryndís Sigurðardóttir og Sigurður Guðmundsson og Guðrún Sigurpálsdóttir frá Baldurshaga í Flatey. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
2
2. þáttur: Samofin saga lands og eyju
Mikil tengsl voru á milli Flateyjar og Flateyjardals en dalurinn fór í eyði nokkru áður, eins og fleiri afskekktar byggðir á norðausturhluta landsins. Saga eyjunnar og dalsins er samofin á svo margan hátt, hjónabönd urðu til, fólk fluttist búferlum á milli og jafnvel kirkjan var flutt á milli lands og eyju. Viðmælendur í þættinum, sem er annar þátturinn af sex í þáttaröðinni, eru: Guðmundur A. Hólmgeirsson, Hallur Jóhannesson og Jóhannes Jónsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
1
1. þáttur: Þegar byggðin hvarf
Nokkrir tugir bjuggu í Flatey á Skjálfanda 1967 og um sumarið og haustið fækkaði þeim jafnt og þétt, svona eins og farfuglunum sem héldu á hlýrri slóðir. Viðmælendur í þættinum eru Helga Ragnarsdóttir, Jóhannes Jónsson, Ólöf Garðarsdóttir og Þóroddur Bjarnason. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Hvað fékk íbúa Flateyjar á Skjálfanda til að taka sig saman um að yfirgefa heimili sín, alla sem einn? Árið var 1967 og nokkru áður höfðu allir ábúendur flutt úr afskekktum byggðum Flateyjarskaga — landsvæði sem hafði framfleytt fjölda fólks en líka kostað fjölda mannslífa. Þarna voru mannabyggðir á ystu þröm og gerðar tilraunir með þanþol fólks. Tilraun sem stóð í þúsund ár. Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir. Ritstjórn og samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
HOSTED BY
RÚV Hlaðvörp
CATEGORIES
Loading similar podcasts...