PODCAST · society
Tveir kallar
by Tveir kallar
Tveir kallar með podcast. tveirkallar.is @tveirkallar á Instagram
-
48
46: Skammarþríhyrningurinn
Tveir kallar fara í leikhús, hringja í kerlingu og læra ekki nafnið á neinum sem þeir hitta. Þeir bjóða í matarboð en muna ekki alveg hvernig bróðir þeirra lítur út.
-
47
45: Þetta verður allt í lagi
Skilaboð berast frá Hollandi og trufla tvo kalla við að rifja upp menntaskólaárin þegar annar þeirra var fótboltasjomli og hinn dauðarokkari. Þeir snúa bökum saman og reyna að róa fíl í postulínsbúð, fá hataða hópa til að hata minna og svara að lokum spurningu áður en hún berst.
-
46
44: Ótrúlega óheppnir karlar
Nokkrir alveg ótrúlega óheppnir karlar fara saman í ferðalag, halda þriðja í páskum heilagan, gefa gjafir, fara í golf og hafa gaman en brjóta engin lög (svo sannað sé). Síðan fá þeir ofnæmi fyrir heiminum, stíga til hliðar og hefja störf við umönnun.
-
45
43: Núna má allt
Tveir kallar eiga við ýmis heilsufarsvandamál að etja svo þeir fara í rannsóknir og tala um rannsóknir og láta stinga sig til blóðs. Í sjúkrarúmunum horfa þeir á heimildarmyndina Inside the manosphere og ræða hana. Sverrir Bergmann kemur ekki í heimsókn á sjúkrahúsið. Þeir hrósa hver öðrum enn einu sinni (er ekki komið nóg af þessari vitleysu?), drulla á sig og sýna af sér hvatvísi í hvívetna en hverjum er ekki drullusama – kallar mega allt.
-
44
42: Margar pælingar
Tveir kallar ropa án þess að segja afsakið, eru eitthvað pirraðir og reka hlaðvörp í umvörpum. Tveir kallar kalla kallakalla kallakalla en vita ekki alveg hvað þeir eiga að kalla kallakallapælingar dagsins svo þeir ákveða að njóta lista, lesa skáldskap og hringja í gamla vini sem þeir gleymdu.
-
43
41: Bein pæling
Tveir kallar taka hlaðvarp í beinni útsendingu, hlustendum dagsins rignir inn í símtölum og báðir fara á trúnó. Ekkert eitthvað. Ging gang gúllí gúllí.
-
42
40: Ekki er allt sem sýnist
Tveir kallar tala um þumalputtablöðrur (ekki spyrja) og ógleymanlegar tölur, horfa á fræga kvikmynd sem fjallar ekki um það sem við héldum og ákveða síðan að gerast eltihrellar konu sem er ekki til. Síðan finna þeir sér sálfræðing. Ekki veitir af.
-
41
39: Dauðinn
Tveir kallar deyja ungir og hefja eftirlífið þar sem þeir ræða óhjákvæmilega um trú og tilfinningar. Þeir verða vegan en eru svo umkringdir af konum yfir fimmtugt. Þá teleporta þeir sig í burtu. Minnum á umræðuhópinn okkar á Facebook, Instagrammið okkar og upptökur af þáttunum á tveirkallar.is
-
40
38: Pillur
Tveir kallar mislesa aðstæður og mistekst að halda uppi kurteislegum samræðum svo þeir flýja land og skoða sig um í Japan. Þeir finna pillur og gamlar glósubækur og nagandi ótti um óuppgerð mál grípur um sig. Finnið okkur á Instagram, tveirkallar.is og svo er umræðuhópur á Facebook.
-
39
37: Vítahringur fordóma
Tveir kallar mæta í skítakulda í fordómabygginguna, segja „sæll, vinur“ og gefast upp á kennslu. Þeir velta fyrir sér hvort það sé í raun og veru hægt að taka samtalið við kollega og svo mála þeir sig.
-
38
36: Útkall – Gísli Björgvin
Útkall, útkall! Annar kallinn er vant við látinn svo hinn kallinn kallar út enn annan kall, svokallaðan útkall, sem svarar kallinu. Þessir tveir kallar lenda í myglu svo þeir setja ilmefnafrítt rúðupiss á bílinn og bruna í barnaafmæli, gefa léleg ráð og ýta á vitlausa takka.
-
37
35: Viðkvæmir karlar
Tveir kallar gera samfélagsmiðlatilraunir í fortíð og nútíð og eflaust framtíð líka, skoða karla og umhverfi þeirra og neita að fara að sofa. Svo flytja börnin þeirra að heiman.
-
36
34: Aukakall – Jólasveinninn
Í sérstökum jólaþætti fá tveir kallar óvænta heimsókn frá Gáttaþefi og spyrja hann út í heimilisstörf í hellum, goðsögnina um barnaát, jólalagatexta sem eru bara eitthvert bull, kartöflurækt á fjöllum og af hverju sum fá lengur eða meira í skóinn en önnur. Athugið að þátturinn ER við hæfi barna. Gleðileg jól og verið góð hvert við annað.
-
35
33: Upp og niður
Tveir kallar festast í lyftu og bíða þess aldrei bætur, týna frisbígolfdisk og furða sig á verkalýðsleiðtoga. Síðan segja þeir siðspilltum stórfyrirtækjum stríð á hendur. Instagram @tveirkallar tveirkallar.is
-
34
32: Á bak við tjöldin
Tveir kallar fá flugfreyju og sjómann til að hjálpa sér, verða grasekklar, pakka í spítalatöskuna, eru gerðir útlægir, leiðrétta málfræði hvor annars (nei ok, bara á annan veginn) og hringja í flugmann á Tenerif. E.
-
33
31: Ströggl og stolt
Tveir kallar leita bæði þriggja fyrrverandi fylgjenda og sökudólgsins sem ber ábyrgð á lækkaðri fæðingartíðni og Valgeir Dór kemur úr felum en lýsir skömmustulegur ströggli við atvinnuleit og krefst svara fyrir hönd reiðra karla. Brjálað að gera.
-
32
30: Eldurinn kæfður
Tveir kallar eru boðnir í partí og mæta ekki því þeir vilja frekar horfa á sjónvarpið. Mesti rasisti og mesta karlremba landsins hafa samband en verra er að Tveir kallar lenda í small talki úti í búð. Síðan þarf að kjósa hver verður rekinn úr samfélaginu. Horfðu á tveirkallar.is
-
31
29: Grái fiðringurinn
Tveir kallar kaupa sér sportbíl og bruna af stað. Á leiðinni fara þeir í „hvort myndirðu frekar“, greiða úr flækjum, gubba, fara í kulnun, læra að smíða, finna gömlu vopnin sín og þrífa stór heimilistæki eins og
-
30
28: Költ fyrir karla
Tveir kallar ætla að ganga í leynireglu fyrir karla en mega ekki vera memm svo þeir fara óboðnir í afmæli í staðinn. Óvænt símtal á sér stað og þeir gerast bæði leiðtogar í költi og ráðherrar. Tveirkallar.is Tveir kallar á Instagram
-
29
27: Aukakall – Páll Óskar
Þátturinn ætti náttúrulega að heita Aðalkall því þetta er Páll Óskar. Þetta er ekki viðtalsþáttur heldur tekur Palli þátt í hefðbundnum dagskrárliðum með Tveimur köllum. Saman ræða þeir að sjálfsögðu um fótbolta (ha?), bakslagið, framlengingarsnúrur, kyndilbera minnihlutahópa, ókynslóðabundna tónlist og veiðileyfi á trans fólk. „Við getum víst lifað saman undir sama þaki, í sama herbergi. Við getum víst verið saman í sömu skólastofu. Við getum víst verið saman í sama skólanum. Við getum víst farið saman á sama skólaballið.“ Horfðu á tveirkallar.is Vertu með á Instagram
-
28
26: Þegar karlar verða feður
Tveir kallar eignast fyrsta barnið sitt og lífið tekur stakkaskiptum – sem endar með skilnaði og ósköpum. Þeir ranka við sér í aftursætinu hjá mömmu að borða normalbrauð og leita sér að fyrirmyndum því þegar allt kemur til alls eru þeir bara litlar karlrembur að reyna að skilja heiminn og finna tóninn sinn. Horfðu tveirkallar.is Fylgstu með á Instagram
-
27
25: Þriðja kryddið
Tveir kallar lenda í þýskum heimildarþætti svo þeir raka sig og halda afmæli, stilla upp air fryer og nota nóg af MSG. Trúnó dagsins er svo nokkuð sem hlustendur hafa beðið eftir frá fyrsta þætti Tveggja kalla. Horfðu á tveirkallar.is Fylgstu með á Instagram
-
26
24: Konur manosphere-karlanna
Tveir kallar skamma hvor annan, komast að því að náinn vinur hefur stundað hatursorðræðu, tala um konur karlanna sem sogast inn í manosphere-ið og í Hlustanda dagsins er alveg bannað að snúa út úr sem minnir mig á frænda minn sem fékk einu sinni bronkítis á siglingu inn í Svartahafið. Horfðu tveirkallar.is
-
25
23: Skjátími fullorðinna
Tveir kallar fá hótun frá nágranna, lenda í fábreytnibyltingunni, gleyma sér í símanum og ættleiða barn. tveirkallar.is
-
24
22: Fjölgun örvhentra
Tveir kallar skoða gröf og greiningar, trans og tölfræði, fylgni og fjöldatölur. Fyrst tala þeir þó að sjálfsögðu um dauðann. Eftir að þeir hafa velt fyrir sér hvers vegna örvhentu fólki hefur farið fjölgandi svarar annar þeirra kollega sem hefur farið með fleipur um hann. Í lokin keyra þeir hringveginn og deila uppskriftum með hlustendum. Eðlilega. Tveir kallar á Instagram Horfðu á tveirkallar.is
-
23
21: Þar liggur hundurinn grafinn
Tveir kallar fara til tannlæknis og dýralæknis en þegar það á að fara að draga þá til sálfræðings líka þykir þeim nóg komið og fara að horfa á sjónvarpið. Síðan grafa þeir hund. Tveir kallar á Instagram tveirkallar.is
-
22
20: Aukakall – Björgvin Franz
Tveir kallar fá Björgvin Franz Gíslason til liðs við sig til að svara því hvort það megi ekkert grínast lengur. Þeir leggja leið sína í piparsveinsíbúð í miðbænum þar sem Björgvin trúir þeim fyrir nokkru sem hann hefur nánast engum sagt áður og fara svo á sportbar þar sem þeim berst óvænt ástarjátning.
-
21
19: Skoðanir eru ekki staðreyndir
Tveir kallar læra um muninn á staðreyndum og skoðunum, fara í fýlu í mörg mörg ár og ætla sko aldrei aftur að tala við vin sinn en fá síðan óvænta gjöf sem þeir þola ekki. Þökkum áheyrnina og þiggjum endurgjöf hér eða á Instagram. @tveirkallar og tveirkallar.is
-
20
18: Verndarar götunnar
Tveir kallar fara víða í þessum þætti, kíkja meðal annars á djammið, taka þátt í eftirlitsferð óbreyttra borgara og fara svo beint á AA-fund.
-
19
17: Kynin hafa aldrei verið bara tvö
Tveir kallar telja tröppur og tala um trans fólk en fara svo að pissa og hitta einhvern sem heilsar þeim innilega en þeim finnst þeir aldrei nokkurn tíma hafa séð hann áður.
-
18
16: Þungir karlar
Tveir kallar bregða sér á leik í amerískum fótbolta í Fíladelfíu og yfir löðrandi (vegan) cheesesteak í hálfleik fara þeir á trúnó um þunglyndi sem lét lítið á sér kræla en hafði ógnvekjandi áhrif þegar til kastanna kom. Þátturinn er ekki í boði Sertral.
-
17
15: Andlega ruslatunnan
Tveir kallar fara á ströndina með börnin, velta fyrir sér hvort þeir noti konuna sína sem andlega ruslatunnu og fela sig svo inni á klósetti til að hlaða félagslega batteríið. Tveir kallar á YouTube Tveir kallar á Instagram tveirkallar.is
-
16
14: Aukið ofbeldi í samfélaginu
Tveir kallar fara á miðilsfund, velta fyrir sér hvort ofbeldi sé að aukast í samfélaginu og redda í algjöru stressi afmælisgjöf fyrir 11 ára frænku.
-
15
13: Hvað er karlmennska?
Tveir kallar eru á leiðinni til Hollywood, fara á trúnó um heimilisstörfin og skilgreina það sem kollegar hafa þráspurt um: Hvað er karlmennska?
-
14
12: Óvænt pub quiz
Öðrum kallinum er komið á óvart með snúnum barsvarsspurningum, stressaður fyrirlesari opnar sig og Tveir kallar segja frá því hvað varð til þess að þeir urðu femínistar.
-
13
11: Heimgreiðslur til mæðra
Tveir kallar eru á leiðinni til læknis þegar það springur dekk. Þeir fara létt með að skipta og ræða á meðan um heimgreiðslur til mæðra.
-
12
10: Manosphere
Tveir kallar detta of snemma og of djúpt í trúnó, kíkja inn í mannhvelið (e. manosphere) og velta fyrir sér muninum á uppeldi drengja þá og nú.
-
11
9: Gagnræðunámskeið
Tveir kallar skorast ekki undan áskorunum og fóru því á námskeið um fyrirbæri sem heitir gagnræða. Í þættinum setja þeir frá því og fara svo að þrífa símann hans Steina með sterkum hreinsiefnum á meðan þeir reyna að svara áleitinni spurningu sem sótt hefur á karla frá aldaöðli: Má ekkert lengur?
-
10
8: Þungarokkarinn
Tveir kallar fara í gönguferð um landið og hlusta á róandi árniðinn og harðasta þungarokk sem Steini hefur heyrt. Síðan ákveða þeir að það þurfi að breyta lógóinu þeirra.
-
9
7: Uppeldi stráka
Tveir kallar ræða um uppeldi stráka, rifja upp vandræðalegt blogg og játa svo óheppilegan atburð að þeir hreinlega meika ekki að taka fyrir hlustanda dagsins. Sjáumst á Instagraminu Tveir kallar. Þar geturðu sent okkur áskorun fyrir hlustanda dagsins og séð á bakvið tjöldin. Þú getur líka horft á þennan þátt á tveirkallar.is
-
8
6: Truflun
Þessi þáttur er um … við munum það eiginlega ekki alveg því það ruddist einhver kall inn í stúdíóið og sló okkur alveg út af laginu. En það var eitthvað þarna um stráka og hægrið, mann í netrifrildameðferð og hrútskýringar.
-
7
5: Bílslys
Tveir kallar prófa að manifesta, tala um nafnlausa netkalla og lenda í bílslysi. Instagram: Tveirkallar Horfðu: Tveirkallar.is
-
6
4: Heilsa karla
Í þættinum velta Tveir kallar fyrir sér af hverju annar þeirra sé svona asnalega smámunasamur, skoða tölfræði um heilsu karla og pakka ofan í leikskólatösku. Horfðu á tveirkallar.is eða skoðaðu meira á Instagram-inu @tveirkallar.
-
5
3: Fyrirvinnan
Í þættinum bregða Tveir kallar sér til Danmerkur, ræða um fyrirvinnu heimilisins og hvað fari í taugarnar á þeim í fari hins kallsins. Horfðu á þáttinn á tveirkallar.is
-
4
2: Afsökunarbeiðni
Tveir kallar tala um getnaðarvarnir, biðja þjóðþekktan femínista afsökunar í gufubaði og setja upp Barnaloppubás. Horfðu: http://www.tveirkallar.is/
-
3
1: Vinasambönd karla
Tveir kallar með podcast (þetta hefur aldrei verið gert áður). Í fyrsta þætti ræðum við vinasambönd karla, förum í bátsferð og gefum út yfirlýsingu. Umsjón: Haukur Bragason og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Pétur Jónsson Instagram: @tveirkallar Heimasíða: tveirkallar.is [í vinnslu]
-
2
0: Intro
Viku á undan áætlun erum við mættir, tveir kallar, til að gera podcast. Hvað eru tveir kallar að pæla, hvað er planið og hvaða intro-lag verður fyrir laginu?
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...