PODCAST · kids
Undirmannaðar
by Undirmannaðar
Þrjár tvíburamæður með munnræpu. Deilum reynslu okkar á tvíburum ásamt því að fá til okkar frábæra viðmælendur sem allir eiga það sameiginlegt að vera foreldrar.
-
145
142. Undirmannaðar - Indíana Nanna
Viðmælandi vikunnar er Indíana Nanna, tveggja barna móðir, þjálfari og eigandi GoMove. Við áttum ótrúlega skemmtilegt og áhugavert spjall um meðgöngur, fæðingar, hreyfingu og samanburð hjá konum fyrir og eftir meðgöngu og líkamlegar breytingar. Þá ræddum við ævintýrið í kringum stofnun GoMove og hvernig er að reka fyrirtæki samhliða fjölskyldu og barneignum.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💫 Smáralind💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna💚 Lyfjaval🏦Landsbankinn🧡 Serrano💦Happy Hydrate🍕Flatey
-
144
141. Undirmannaðar - Jasmín Guðrún & Þórdís Ylfa
Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna💚 Lyfjaval🏦Landsbankinn🧡 Serrano💦Happy Hydrate🍕Flatey
-
143
140. Undirmannaðar - Ágústa Rós
Viðmælandi vikunnar er Ágústa Rós, þriggja barna móðir og fellow tvíburamamma. Í þættinum ræðum við uppvaxtarárin, meðgöngurnar og fæðingarnar og hvernig lífið er í dag með þrjá orkumikla stráka.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna💚 Lyfjaval🏦Landsbankinn🧡 Serrano💦Happy Hydrate🍕Flatey
-
142
139. Undirmannaðar - Hlín Magnúsdóttir
Viðmælandi vikunnar er Hlín Magnúsdóttir, þriggja barna móðir frá Hvolsvelli. Hlín hefur magnaða og krefjandi sögu að segja, hún og hennar fjölskylda gengu í gegnum stórt áfall þegar barnsfaðir hennar varð fyrir heilaskaða. Við fórum líka á léttu nóturnar, ræddum fæðingarnar, lífið í sveitinni og allt þar á milli. Ef einhver þarna úti er eða hefur verið í svipuðum sporum og langar að spjalla við einhvern sem skilur, þá má senda á Hlín hér á instagram eða senda henni tölvupóst [email protected]Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna💚 Lyfjaval🏦Landsbankinn🧡 Serrano💦Happy Hydrate🍕Flatey
-
141
138. Undirmannaðar - Sara Mildred
Viðmælandi vikunnar er Sara Mildred, tveggja barna móðir og verkefnastjóri. Sara byrjar á að segja okkur frá mjög skemmtilegum ferðalögum sem hún á undir beltinu og þeim ævintýrum sem hún hefur farið í ásamt að ræða fæðingar, fæðingarorlofið. Við fórum einnig inn á mjög mikilvæga umræðu varðandi það að mæta aftur til vinnu / á vinnumarkað eftir barneignir og hvað atvinnurekendur mættu gera betur.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna💚 Lyfjaval🏦Landsbankinn🧡 Serrano💦Happy Hydrate🍕Flatey
-
140
137. Undirmannaðar - Melkorka Mist
Viðmælandi vikunnar er Melkorka Mist, tveggja barna móðir, hundamamma, sérfræðingur í próteintækni og formaður UAK svo eitthvað sé nefnt! Melkorka er heldur betur orkumikil og var mjög gaman að spjalla við hana um lífið og tilveruna. Melkorka varð ung mamma og ræðir hvað það getur verið einmanalegt og krefjandi og hvernig fæðingarorlofin urðu því mjög mismunandi. En við fórum heldur betur um víðan völl, fengum gæsahúðarsögu og innblástur fyrir því að ryðja veginn sem konur í atvinnulífinu. Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna💚 Lyfjaval🏦Landsbankinn🧡 Serrano💦Happy Hydrate🍕Flatey
-
139
136. Undirmannaðar - Stefanía Rafnsdóttir
Viðmælandi vikunnar er Stefanía Rafnsdóttir, þriggja barna móðir.Stefanía og Brynjar byrjuðu ung saman og eignuðust sitt fyrsta barn stuttu síðar. Lífið tók óvænta stefnu og stóðu þau frammi fyrir stóru verkefni þegar Brynjar greindist með krabbamein og börðust þau saman fram á síðasta dag. Hún ræddi við okkur á einlægan hátt um baráttuna, barneignir, sorgina, að finna ástina aftur og lífinu í dag ❤️Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🏦Landsbankinn🧡 Serrano🍦Ísbúð Huppu💦Happy Hydrate🍫Smash!💥Fulltingi🍕Flatey
-
138
135. Undirmannaðar - Tanja Tómasdóttir
Viðmælandi vikunnar er Tanja Tómasdóttir, þriggja barna móðir og framkvæmdastjóri Breiðabliks. Í þættinum ræðir Tanja um uppvaxtarárin í Vestmannaeyjum, hvernig hún kynntist Magnúsi, manninum sínum, meðgöngurnar og fæðingarnar ásamt því hvernig hún varð framkvæmdastjóri Breiðabliks!Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🏦Landsbankinn🧡 Serrano🍦Ísbúð Huppu💦Happy Hydrate🍫Smash!💥Fulltingi🍕Flatey
-
137
134. Undirmannaðar - Hafdís Rós
Viðmælandi vikunnar er Hafdís Rós, móðir og sjúkraliði. Hafdís gekk í gegnum ýmsilegt á meðgöngunni sinni og deilir því með okkur þar sem ekki er mikið rætt um þennan meðgöngu kvilla, hyperemesis gravidarum.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🏦Landsbankinn🧡 Serrano🍦Ísbúð Huppu💦Happy Hydrate🍫Smash!💥Fulltingi🍕Flatey
-
136
133. Undirmannaðar - Andrea & Jónas Már
Viðmælendur vikunnar eru þriggja barna foreldrarnir, Andrea Gestsdóttir, læknir og Jónas Már Torfason, lögfræðingur. Jónas og Andrea eiga þrjár dætur. Í þættinum ræddum við fæðingu hjá tvíburunum Ölmu og Vigdísi, sem komu fyrir tímann og dvöldu á vökudeildinni í um 6 vikur. Fæðingu yngri dóttur þeirra, Svövu, sem fæddist í Kaupmannahöfn ásamt því að ræða lífið úti án baklands og þeirra ævintýri.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🏦Landsbankinn🧡 Serrano🍦Ísbúð Huppu💦Happy Hydrate🍫Smash!💥Fulltingi🍕Flatey
-
135
132. Undirmannaðar - Guðrún & Oddur
Viðmælendur vikunnar eru þau Guðrún og Oddur, fellow tvíbura foreldrar. Guðrún og Oddur eiga 3 stráka á 2 og hálfu ári. Þau segja okkur frá lífinu og tilverunni á skemmtilegan hátt, mikið um grín og glens ásamt því að fara yfir ólíkar meðgöngur og fæðingar.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🏦Landsbankinn🧡 Serrano🍦Ísbúð Huppu💦Happy Hydrate🍫Smash!💥Fulltingi🍕Flatey
-
134
131. Undirmannaðar - Hulda Viktorsdóttir
Viðmælandi vikunnar er Hulda Viktorsdóttir, tveggja barna móðir og ljósmóðir. Hulda segir okkur frá uppvaxtarárunum, meðgöngum og ólíkum fæðingum með strákana sína. Við ræddum hjúkrunar- og ljósmæðranámið og hvernig það er að starfa sem ljósmóðir.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🏦Landsbankinn🧡 Serrano🍦Ísbúð Huppu💦Happy Hydrate🍫Smash!💥Fulltingi🍕Flatey
-
133
130. Undirmannaðar - Lilja Eivor
Viðmælandi vikunnar er Lilja Eivor Gunnarsdóttir Cederborg, tveggja barna móðir og eiginkona. Lilja og Maggi eiga saman tvo drengi, Gunnar Unnstein og Pálmar Örn en Gunnar lést mjög skyndilega skömmu eftir 4 ára afmælisdaginn sinn. Lilja fer með okkur í gegnum meðgöngurnar, fæðingarnar, veikindin, andlátið og hvernig sl. 2 ár hafa verið ❤Mælum með að hlustendur kynni sér bókina Gunnar í vinalandi sem Lilja gaf út ásamt Indíönnu Björk.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🏦Landsbankinn🧡 Serrano🍦Ísbúð Huppu💦Happy Hydrate🍫Smash!💥Fulltingi🍕Flatey
-
132
129. Undirmannaðar - Greta Salóme
Viðmælandi vikunnar er Greta Salóme, tveggja barna móðir, fiðluleikari og söngvari með meiru. Í þættinum ræðum við uppvaxtarárin, tónlistarnámið, búsetu erlendis og ferðalög um heiminn, vinnuna hennar, hvernig hún og Elvar kynntust, meðgöngurnar og fæðingarnar en þar gekk ýmislegt á!Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🏦Landsbankinn🧡 Serrano🍦Ísbúð Huppu💦Happy Hydrate🍫Smash!💥Fulltingi
-
131
128. Undirmannaðar - Embla Jónsdóttir
Viðmælandi vikunnar er Embla Jónsdóttir, móðir, hjúkrunarfræðingur og fyrrum handboltakempa. Í þættinum ræðum við uppvaxtarárin, hvernig hún kynnist Janusi, flutninga erlendis og á milli landa og meðgöngu og fæðingu stelpunnar þeirra en hún gekk ekki áfallalaust fyrir sig.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🍦Ísbúð Huppu🏦Landsbankinn💦Happy Hydrate❤️ World Class🎉 Rent a Party🍫Smash!💥Fulltingi🧡 Serrano
-
130
127. Undirmannaðar - Konný Arna
Viðmælandi vikunnar er Konný Arna, þriggja barna móðir. Konný eignaðist þrjú börn á þremur árum. Við ræddum uppvaxtarárin, hvernig hún og maðurinn hennar kynnast, meðgöngurnar, fæðingarnar og hvernig hún byrjaði á TikTok.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🍦Ísbúð Huppu🏦Landsbankinn💦Happy Hydrate❤️ World Class🎉 Rent a Party🍫Smash!💥Fulltingi🧡 Serrano
-
129
126. Undirmannaðar - Hildur Björnsdóttir
Viðmælandi vikunnar er Hildur Björnsdóttir, fjögurra barna móðir, eiginkona og borgarfulltrúi í Reykjavík. Við förum um víðan völl í þættinum, ræðum uppvaxtarárin, að verða ung móðir, búsetu erlendis, baráttuna við krabbamein aðeins þrítug, áskoranir og hvernig það er að reka stóra fjölskyldu samhliða vinnu.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🍦Ísbúð Huppu🏦Landsbankinn💦Happy Hydrate❤️ World Class🎉 Rent a Party🍫Smash!💥Fulltingi🧡 Serrano
-
128
125. Undirmannaðar - Kristín Þóra
Fyrsti viðmælandi ársins er engin önnur en Kristín Þóra Haraldsdóttir, þriggja barna móðir, leikkona og mikil áhugakona um jákvæða sálfræði.Í þættinum ræðum við uppvaxtarárin, leiklistarnámið, fyrstu skrefin í leiklistinni, kulnun og sýninguna hennar "Á rauðu ljósi" sem er skylda að sjá að okkar mati.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🍦Ísbúð Huppu🏦Landsbankinn💦Happy Hydrate❤️ World Class🎉 Rent a Party🍫Smash!💥Fulltingi🧡 Serrano
-
127
124. Undirmannaðar - Ása Hrund
Viðmælandi vikunnar er Ása Hrund, þriggja barna móðir, flugfreyja en fyrst og fremst besta vinkona Andreu. Ása og Andrea segja okkur frá því hvernig þær kynntust fyrir ansi mörgum árum ásamt því að Ása fer með okkur yfir lífið og tilveruna. Ræddum meðgöngurnar, hraðar fæðingar, áföll og svo margt fleira. Jólaþáttur af lengri gerðinni elsku hlustendur <3Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🍦Ísbúð Huppu🏦Landsbankinn🦷 Colgate❤️ World Class🎉 MiniRent🍫Smash!✨Mist og co.🧡 Serrano
-
126
123. Undirmannaðar - Bjarnveig Birta
Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🍦Ísbúð Huppu🏦Landsbankinn🦷 Colgate❤️ World Class🎉 MiniRent🍫Smash!✨Mist og co.🧡 Serrano
-
125
122. Undirmannaðar - Ragnhildur Þóra
Viðmælandi vikunnar er Ragnhildur Þóra, þriggja barna móðir og starfsmaður hjá Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Í þættinum ræðum við hvernig hún og maðurinn hennar kynnast, meðgöngurnar þrjár og fæðingarnar en á þeirri síðustu greinist Ragnhildur með bráðahvítblæði. Okkur langar að vekja athygli á Krafti og hvetjum ykkur eindregið til að styðja við starfsemi þessa mikilvæga félags, t.a.m. með því að kaupa armbönd af þeim en nýtt armband fer í sölu í janúar. Þá verður hægt að leggja þeim lið þann 25. janúar í Hörpu og búa til armbönd sem síðan verða seld Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🍦Ísbúð Huppu🏦Landsbankinn🦷 Colgate❤️ World Class🎉 MiniRent🍫Smash!✨Mist og co.🧡 Serrano
-
124
121. Undirmannaðar - Kristjana Arnarsdóttir
Viðmælandi vikunnar er Kristjana Arnarsdóttir, fjölmiðlakona, íþróttaspekúlant og móðir.Eins og Kristjana orðaði það svo skemmtilega sjálf, þá er hún með níu líf líkt og kettir. Hún fer með okkur í gegnum ævintýri lífsins, skemmtilegan feril, meðgöngu og fæðingu dóttur sinnar og Haralds, ásamt því að ræða ADHD greiningu og það mikilvægasta í desember: Að sýna sér mildi!Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🍦Ísbúð Huppu🏦Landsbankinn🦷 Colgate❤️ World Class🎉 MiniRent🍫Smash!✨Mist og co.🧡 Serrano
-
123
120. Undirmannaðar - Ástrós Traustadóttir
Viðmælandi vikunnar er Ástrós Traustadóttir, móðir, áhrifavaldur, dansari og er með nokkra aðra skemmtilega hatta. Ástrós leyfði okkur að kíkja inn í dansheiminn og sagði okkur frá ævintýrum sínum þar ásamt því að fara yfir móðurhlutverkið, að setja sig í fyrsta sæti og svo margt annað skemmtilegt.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🍦Ísbúð Huppu💦 Happy Hydrate🦷 Colgate❤️ World Class🎉 MiniRent✨Mist og co.🧡 Serrano
-
122
119. Undirmannaðar - Sara Dögg & Haukur Helgi
Viðmælendur vikunnar eru þau Sara Dögg og Haukur Helgi, þriggja barna foreldrar. Sara er hjúkrunafræðingur og Haukur atvinnumaður í körfubolta. Þau kynntust ung og bjuggu saman í hinum ýmsu löndum og hafa flutt oftar en flestir!Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🍦Ísbúð Huppu💦 Happy Hydrate🦷 Colgate❤️ World Class🎉 Rent-A-Party✨Mist og co.🧡 Serrano
-
121
118. Undirmannaðar - Ágústa Íris
Viðmælandi vikunnar er Ágústa Íris, tveggja barna móðir. Í þættinum ræðum við hvernig hún kynnist manninum sínum, meðgöngurnar og fæðingarnar. Börnin hennar tvö eru með einhverfu og gefur hún okkur mikilvæga innsýn inn í raunveruleika foreldra og fjölskyldna í sömu stöðu. Okkur langar að þakka Ágústu innilega fyrir að opna á þessa mikilvægu umræðu.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🍦Ísbúð Huppu💦 Happy Hydrate🦷 Colgate❤️ World Class🎉 Rent-A-Party✨Mist og co.🧡 Serrano
-
120
117. Undirmannaðar - Gréta Rut
Viðmælandi vikunnar er Gréta Rut, fjögurra barna móðir, tannlæknir og hlaupari með meiru! Í þættinum ræðum við um hvernig áhuginn á tannlækninum kom til, hvernig þau Ragnar Bragi kynnast og lífið þeirra saman en þau misstu frumburðinn sinn, hann Hinrik Leó, eftir 28 vikna meðgöngu. Gréta fer yfir það á einlægan hátt hvernig missirinn hefur mótað líf þeirra. Fórum einnig yfir meðgöngur, fæðingar strákanna þeirra, hlaupin og svo margt fleira🤍Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá🍦Ísbúð Huppu💦 Happy Hydrate🦷 Colgate❤️ World Class🎉 Rent-A-Party✨Mist og co.🧡 Serrano
-
119
116. Undirmannaðar - Snædís Guðmundsdóttir
Viðmælandi vikunnar er Snædís Guðmundsdóttir, (fjölbura)móðir og sjúkraþjálfari. Snædís og Snorri eiga saman þrjú börn, Bjart, Birnu og Dag. Snædís sagði okkur frá skemmtilega sjokkinu þegar þau komast að því að eiga von á tvíburum, meðgöngunum og ólíkum fæðingum ásamt því að ræða búsetu og nám í Hollandi, lífið og tilveruna.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá💦 Happy Hydrate🦷 Colgate❤️ World Class🎉 Rent-A-Party🧻 Rúllupp✨Mist og co.🧡 Serrano
-
118
115. Undirmannaðar - Bryndís Ósk
Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá💦 Happy Hydrate🦷 Colgate❤️ World Class🎉 Rent-A-Party🧻 Rúllupp✨Mist og co.🧡 Serrano
-
117
114. Undirmannaðar - Jóhanna Helga
Viðmælandi vikunnar er Jóhanna Helga, tveggja barna móðir, áhrifavaldur og útvarpskona. Jóhanna og Geir eiga saman tvö börn, þau Tinnu Maríu 5 ára og Styrmi Óla 1 árs. Jóhanna fer með okkur í gegnum lífið í léttu og skemmtilegu spjalli um atvinnuferilinn, meðgöngurnar, fæðingar og allt þess á milli.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá💦 Happy Hydrate🦷 Colgate❤️ World Class🎉 Rent-A-Party🧻 Rúllupp✨Mist og co.🧡 Serrano
-
116
113. Undirmannaðar - Guðlaug Elísa
Viðmælandi vikunnar er Guðlaug Elísa, tveggja barna móðir. Hún er í fullu háskólanámi í viðskiptafræði samhliða vinnu og móðurhlutverkinu! Í þættinum ræðum við þegar hún flutti ung til Hollands, lífið í Hollandi og flutninga heim til Íslands, meðgöngurnar og fæðingarnar, Guðmundur Leó er fæddur í Hollandi en Maja Ósk heima á Íslandi. Við ræðum einnig BRCA genið og þau miklu áhrif sem það hefur haft á líf hennar og fjölskyldu hennar. Við minnum á Bleiku slaufuna og hvetjum ykkur til að styrkja þetta mikilvæga málefni sem snertir flest okkar! Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá💦 Happy Hydrate🦷 Colgate❤️ World Class🎉 Rent-A-Party🧻 Rúllupp✨Mist og co.🧡 Serrano
-
115
112. Undirmannaðar - Unnur & Óli
Viðmælendur vikunnar eru hjónin Unnur Ósk og Ólafur Fannar. Saman eiga þau tvö börn, Rúrik Fannar og Anítu Ósk. Í þættinum förum við um víðan völl, ræðum m.a. hvernig þau kynntust, meðgöngurnar og fæðingarnar en þær gengu ekki áfallalaust fyrir sig.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá💦 Happy Hydrate🦷 Colgate❤️ World Class🎉 Rent-A-Party🧻 Rúllupp✨Mist og co.🧡 Serrano
-
114
111. Undirmannaðar - Elísabet Green
Viðmælandi vikunnar er Elísabet Guðmunds, tvíburi, 3 barna móðir og hjúkrunarfræðinemi. Elísabet sagði okkur frá lífinu sem tvíburi, barneignarferlinu, meðgöngunum og ólíkum fæðingum. Sonur hennar, Huginn Ragnar greindist með sjaldgæft heilkenni aðeins nokkurra daga gamall. Hún segir okkur frá þeirra sögu og áskorunum sem þau hafa þurft að takast á við.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá💦 Happy Hydrate❤️ World Class🎉 Rent-A-Party🩵 Landsbankann✨Mist og co.🧡 Serrano🤝🏻 Giggó
-
113
110. Undirmannaðar - Jóndís Hinriksdóttir
Viðmælandi vikunnar er Jóndís Hinriksdóttir, tveggja barna móðir og ljósmyndari. Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá💦 Happy Hydrate❤️ World Class🎉 Rent-A-Party🩵 Landsbankann✨Mist og co.🧡 Serrano🤝🏻 Giggó
-
112
109. Undirmannaðar - Kolbrún Tómasdóttir
Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá💦 Happy Hydrate❤️ World Class🎉 Rent-A-Party🩵 Landsbankann✨Mist og co.🧡 Serrano🤝🏻 Giggó
-
111
108. Undirmannaðar - Gunnhildur Gunnarsdóttir
💛Gulur september er mánuður vitundarvakningar um geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir💛 Viðmælandi vikunnar er Gunnhildur Gunnarsdóttir, tvíburamamma. Í þættinum ræðum við óvænta tvíburameðgöngu eftir aðstoð hormónameðferðar, krefjandi fyrstu vikur meðgöngunnar, fæðingu tvíburanna og afar erfið og átakanleg andleg veikindi, skaðandi hugsanir og sjálfsvígshugsanir.Okkur langar að þakka Gunnhildi innilega fyrir að treysta okkur fyrir sögunni sinni og sömuleiðis hrósa henni fyrir hugrekkið og einlægnina. Við trúum því og vonum að efni þáttarins opni á mjög þarfa og mikilvæga umræðu og auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna. Finnir þú fyrir tilfinningalegum sársauka, ert með sjálfsvígshugsanir og/eða sjálfsskaða ráðleggjum við þér eindregið að snúa þér til Píeta samtakanna. Sömuleiðis ef þú ert aðstandandi einstaklings í tilfinningalegu ójafnvægi, með sjálfsvígshugsanir og/eða sjálfsskaða hugsanir.Píeta samtökin reka hjálparsíma allan sólarhringinn, alla daga ársins. Símanúmerið er 552-2218. Ráðgjafar veita öllum þeim sem hringja ráðgjöf, bóka í viðtal eða vísa í önnur úrræði, sé þess þörf. Píeta veitir meðferð fyrir þá sem eru í sjálfsvígshættu eða sjálfsskaða og stuðning við aðstandendur þeirra og aðstandendur sem hafa misst. Þjónustan er fyrir 18 ára og eldri og er gjaldfrjáls.Verum góð hvert við annað 💛Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá💦 Happy Hydrate❤️ World Class🎉 Rent-A-Party🩵 Landsbankann✨Mist og co.🧡 Serrano🤝🏻 Giggó
-
110
107. Undirmannaðar - Sara Dís
Þátturinn er í samstarfi við: 💙 Nettó & Änglamark 💦 Happy Hydrate ❤️ World Class 🎉 Rent-A-Party🩵 Landsbankann ✨Mist og co.🤝🏻 Giggó
-
109
106. Undirmannaðar - Birna Dís
Viðmælandi vikunnar er Birna Dís, þriggja barna móðir, eiginkona, mömmuþjálfari og fyrirtækja eigandi. Birna fór með okkur yfir mömmuþjálfunina, hvernig hún kynntist Jakobi, krefjandi fæðingar, veikindi dóttur sinnar, lífið og tilveruna.Þátturinn er í samstarfi við: 💙 Nettó & Änglamark 💦 Happy Hydrate ❤️ World Class 🎉 Rent-A-Party🩵 Landsbankann ✨Mist og co.🤝🏻 Giggó
-
108
105. Undirmannaðar - Heiða Mist
Viðmælandi vikunnar er Heiða Mist, einstök móðir og kraftlyftingarkona. Heiða var ansi ung að aldri þegar hún komst að því að hún myndi eiga í erfiðleikum með að eignast barn og að tímaramminn væri stuttur. Heiða ákvað því að taka málin í sínar hendur og taka þá stóru og yndislegu ákvörðun að verða einstök móðir. Hún segir okkur frá ferlinu, krefjandi fæðingu og fyrstu mánuðunum með dóttur sinni.Þátturinn er í samstarfi við: 💙 Nettó & Änglamark 💦 Happy Hydrate ❤️ World Class 🎉 Rent-A-Party🩵 Landsbankann 🤝🏻 Giggó
-
107
104. Undirmannaðar - Guðrún Sørtveit
Undirmannaðar 2 ára – AfmælispartýMiðasalan er hafin á Tix.is!Tvö ár, yfir hundrað þættir, mikið hlegið og eitt mjög verðskuldað afmælispartý! Komdu og fagnaðu með okkur í Sykursalnum með pomp og prakt 20. september!Viðmælandi vikunnar er Guðrún Sortveit, tveggja barna móðir og í fullu starfi á samfélagsmiðlum. Guðrún og Steinar byrjuðu saman á yngri árum og hafa því verið lengi saman. Þeirra fyrsta þungun var utanlegsfóstur sem endaði með aðgerð. Í kjölfarið eignuðust þau börnin sín, Áslaugu og Jökul með tæplega 3 ára millibili. Í þættinum ræðum við utanlegsfóstrið, aðgerðina, meðgöngurnar og fæðingarnar, erfiðar fyrstu vikurnar með börnin og þær tilfinningar sem fylgja ásamt því að ræða hvernig er að tvinna saman fjölskyldu og atvinnu. Við fórum um víðan völl og vonum innilega að umræður þáttarins hjálpi þeim sem upplifa eins tilfinningar Þátturinn er í samstarfi við: 💙 Nettó & Änglamark 💦 Happy Hydrate ❤️ World Class 🎉 Rent-A-Party🩵 Landsbankann 🤝🏻 Giggó
-
106
103. Undirmannaðar - Daniel Victor
Viðmælandi vikunnar er Daniel Victor, faðir og vélvirki. Daniel sagði okkur frá erfiðri reynslu á einlægan hátt en hann og Jónína gengu í gegnum erfiða reynslu þegar þau misstu barnið sitt á 20 viku meðgöngu. Daniel fór yfir allt ferlið, tilfinningarnar og hvað það er mikilvægt að ræða hlutina og vera opinn með eigin tilfinningar. Hvetur hann sérstaklega karlmenn til þess að vera það óhræddir að sýna eigin tilfinningar og tjá þær. Þátturinn er í samstarfi við:💙 Nettó & Änglamark💦 Happy Hydrate🌱 HIPP🩵 Landsbankann🎉 Rent-A-Party🤝🏻 Giggó💗 Bellissimo
-
105
102. Undirmannaðar - Katrín Edda
Þátturinn er í samstarfi við:💙 Nettó & Änglamark💦 Happy Hydrate🌱 HIPP🩵 Landsbankann🎉 Rent-A-Party🤝🏻 Giggó💗 Bellissimo
-
104
101. Undirmannaðar - Elísabet Gunnars og Gunnar Steinn
Þátturinn er í samstarfi við:💙 Nettó & Änglamark💦 Happy Hydrate🌱 HIPP🩵 Landsbankann🎉 Rent-A-Party🤝🏻 Giggó💗 Bellissimo
-
103
100. Undirmannaðar - Anetta Eik
HALLÓ HALLÓ ÞÁTTUR 100 🍸🪩💋Viðmælandi vikunnar er Anetta Eik, þreföld strákamamma, hársnyrtir & content creator.Við fórum um víðan völl en Anetta á að baki þrjár mjög ólíkar meðgöngur og fæðingar. Í þættinum segir hún okkur einnig frá lífinu sem foreldri barns með sykursýki en elsti sonur þeirra greindist með sykursýki 1, tæplega 2 ára, eftir erfið veikindi. Við lærðum ótrúlega mikið og vonum að sagan þeirra hjálpi einhverjum!Þátturinn er í samstarfi við:💙 Nettó & Änglamark💦 Happy Hydrate🌱 HIPP🩵 Landsbankann🎉 Rent-A-Party🤝🏻 Giggó💗 Bellissimo
-
102
99. Undirmannaðar - Sara Lind Teitsdóttir
Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Rentaparty.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
-
101
98. Undirmannaðar - Steinunn Camilla
Viðmælandi vikunnar er Steinunn Camilla, tveggja barna móðir, fyrirtækja eigandi og fyrrum söngkona í Nylon. Við ræddum allt milli himins og jarðar í þættinum, meðgöngur, fæðingar, lífið í LA, Nylon og hvað það er sem skiptir raunverulega máli í þessu lífi <3Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Rentaparty.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
-
100
97. Undirmannaðar - Þórdís Imsland
Viðmælandi vikunnar er Þórdís Imsland, tveggja barna móðir, söngvari, nuddari og starfar á tannlæknastofu í barnateymi. Þórdís og Sigurjón fóru aðeins út fyrir rammann þegar þau eignuðust börnin sín tvö. Hún segir okkur frá því hvernig er að eignast og ala upp börn með vini sínum og hvernig ferli þau ákváðu sjálf að fara í til að taka þessa stóru og aðdáunarverðu ákvörðun.Þau eru algjörlega til fyrirmyndar í þeirra samstarfi sem foreldrar og við mælum bara með að hækka í græjunum og njóta!Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Minirent.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
-
99
96. Undirmannaðar - Auður Finnboga
Viðmælandi vikunnar er Auður Finnbogadóttir, tveggja barna móðir, leikari, söngvari og fyrirtækja eigandi, svo eitthvað sé nefnt. Þátturinn er allur tilfinningaskalinn. Auður segir okkur frá því hvernig hún og Jonni kynnast, þegar hún flytur til LA í leiklistaskóla, flutningunum heim, barneignum, veikindum Ebbu Kristínar, fyrirhugaðri brúðkaupsveislu í sumar og lífinu sem leikari. Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkAbcskolavorur.is / afsláttarkóði: undirmannadarLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Minirent.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
-
98
95. Undirmannaðar - Ingibjörg Freyja
Viðmælandi vikunnar er Ingibjörg Freyja, þroskaþjálfi og tvíburamamma. Freyja og Sigurður þurftu aðstoð til þess að verða ólétt. Þau enda í smásjárfróvgun sem gekk vel og komast svo að því að þau eigi von á eineggja tvíburum. Lífið tók hins vegar snarpa u-beygju á meðgöngunni og þau stóðu frammi fyrir ákvörðun sem ekkert foreldri á að þurfa að taka. Við vekjum athygli á því að í þættinum ræðum við barnsmissi á meðgöngu. Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkAbcskolavorur.is / afsláttarkóði: undirmannadarLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadarMinirent.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
-
97
94. Undirmannaðar - Birta Líf
VIðmælandi vikunnar er Birta Líf, tveggja barna móðir, hlaðvarpsstjórnandi og markaðsfræðingur. Birta sagði okkur frá því þegar hún flutti erlendis í háskólanám, meðgöngum, fæðingum og foreldrahlutverkinu. Svo fengum við auðvitað sjóðandi heitt slúður!Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkAbcskolavorur.is / afsláttarkóði: undirmannadarLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadarMinirent.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
-
96
93. Undirmannaðar - Harpa Káradóttir
Viðmælandi vikunnar er Harpa Káradóttir, þriggja barna móðir, tvíburamamma og förðunarfræðingur. Harpa og Gummi komust að því á 7 viku að um eineggja tvíbura væri að ræða og því tók við mikið eftirlit. Við fórum yfir krefjandi tíma á meðgöngunni, lífið með tvíbura, svefnleysið, ástina og kaosið sem þessu hlutverki fylgir. Harpa sagði okkur einnig frá ferlinum sem förðunarfræðingur, fyrirtækjarekstri og skemmtilegum verkefnum sem hún hefur tekið að sér eða skipulagt.Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkAbcskolavorur.is / afsláttarkóði: undirmannadarLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadarMinirent.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...