Viðburðavarpið podcast artwork

PODCAST · education

Viðburðavarpið

Hlaðvarp um viðburði og viðburðastjórnun. Umsjónarmenn eru Áskell Heiðar Ásgeirsson lektor við Háskólann á Hólum og Jakob Frímann Þorsteinsson lektor við Háskóla Íslands.

  1. 5

    Friðrik Ómar - óvenjuleg blanda af viðburðastjóra og poppstjörnu

    Söngvarann og tónleikahaldarann Friðrik Ómar Hjörleifsson þarf ekki að kynna fyrir Íslendingum.  Hann hefur um árabil verið í hópi okkar ástsælustu poppsöngvara, en hann hefur ekki síður haslað sér völl sem einn af okkar fremstu viðburðastjórnendum.  Tónleikasýningar hans í Hörpu, Hofi og víðar hafa slegið í gegn og nýjasta verkefni hans og félaga hans, Vitringarnir 3 slógu öll met fyrir jólin 2025.   Friðrik Ómar kíkti við í Viðburðavarpinu og sagði okkur sína sögu og spjallaði um það sem er mikilvægt þegar gera á góðan viðburð.  Úr varð líflegt og skemmtilegt spjall.

  2. 4

    María Bóel - Neistaflug - bæjarhátíð sem blómstrar

    Neistaflug er ein lífseigasta „bæjarhátíð“ landsins, haldin í Neskaupsstað um Verslunarmannahelgina ár hvert.  Hátíðin var fyrst haldin sumarið 1993. Viðmælandi Viðburðavarpsins í þetta skiptið er María Bóel Guðmundsdóttir sem þrátt fyrir ungan aldur hefur mikla reynslu í viðburðastjórnun og starfar nú sem framkvæmdastjóri Neistaflugs í Neskaupsstað.  Segja má að hún hafi fengið viðburðastjórnun í vöggugjöf, en Neistaflug hefur fylgt henni og hennar fjölskyldu frá upphafi.  María kom og spjallaði við okkur um bæjarhátíðir, mikilvægi menntunar í viðburðastjórnun og margt fleira skemmtilegt.  

  3. 3

    Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri "þjóðarfélagsheimilisins" Hörpu

    Tónlistar- og ráðstefnuhúsið okkar allra Harpa var byggt á erfiðum tíma í sögu okkar þjóðar.  Framkvæmdir hófust árið 2007 og húsið opnaði formlega árið 2011.  Segja má að fyrstu árin hafa Harpa tekið í að finna sér pláss í samfélaginu, húsið er bæði aðdráttarafl í sjálfu sér, viðkomustaður ferðafólks en auðvitað fyrst og fremst viðburðahús, félagsheimili okkar allra.  Harpa hefur smá saman unnið sér sess í hjörtum landsmanna og nú er svo komið að um 70% landsmanna segjast mjög eða frekar jákvæð í garð hennar í skoðanakönnunum.  Á síðasta ári voru viðburðir í Hörpu yfir 1.400 og þar af um 900 tónlistarviðburðir.  Það er mikið verk og vandasamt að stýra svona stóru viðburðahúsi.  Frá árinu 2017 hefur Svanhildur Konráðsdóttir staðið í stafni sem forstjóri Hörpu.  Svanhildur kom þar inn eftir að hafa stýrt menningar- og ferðamálum hjá Reykjavíkurborg um árabil, en þar áður kynntumst við henni í fjölmiðlum, lengst af hjá Ríkissjónvarpinu. Svanhildur kíkti við í Viðburðavarpinu og sagði Heiðari sína sögu auk þess sem þau fóru vítt og breytt í spjalli um viðburði og menningarmál.

  4. 2

    Óskar Örn Guðbrandsson hjá KSÍ - skipulag knattspyrnulandsleikja og fleira skemmtilegt

    Stórir íþróttaviðburðir krefjast gríðarlegs skipulags og þar er í mörg horn að líta.  Mikilvægast eins og á öllum viðburðum er auðvitað að veita góða þjónustu og gæta að öryggi gesta.  Hjá Knattspyrnusambandi Íslands starfar Óskar Örn Guðbrandsson og meðan margra hlutverka hans þar er að huga að skipulagi knattspyrnulandsleikja á Laugardalsvelli.  Hann hefur einnig fylgt landsliðum okkar um allan heim og upplifað risa íþróttaviðburði frá öðru sjónarhorni en við flest.  Óskar kíkti í Viðburðavarpið og sagði okkur sína sögu sem er fjölbreytt og skemmtileg.

  5. 1

    Kristján Freyr - Aldrei fór ég suður

    Aldrei fór ég suður – Rokkhátíð alþýðunnar er haldin á Ísafirði um páska ár hvert og hefur nú gengið í rúm 20 ár.  Sérstaða hátíðarinnar, auk staðsetningar, er sú hugmyndafræði að frítt sé inn á hátíðina, opið aðgengi að hágæða tónlist fyrir alla! Kristján Freyr er „rokkstjóri“ AFS, trommuleikari, útvarpsmaður, viðburðastjórnandi, fyrrverandi bóksali og margt fleira settist niður með Heiðari og saman ræddu þeir sameiginlega reynslu af því að halda tónlistarhátíðir úti á landi og margt fleira skemmtilegt.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Hlaðvarp um viðburði og viðburðastjórnun. Umsjónarmenn eru Áskell Heiðar Ásgeirsson lektor við Háskólann á Hólum og Jakob Frímann Þorsteinsson lektor við Háskóla Íslands.

HOSTED BY

Askell Heidar Asgeirsson

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Viðburðavarpið have?

Viðburðavarpið currently has 5 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Viðburðavarpið about?

Hlaðvarp um viðburði og viðburðastjórnun. Umsjónarmenn eru Áskell Heiðar Ásgeirsson lektor við Háskólann á Hólum og Jakob Frímann Þorsteinsson lektor við Háskóla Íslands.

How often does Viðburðavarpið release new episodes?

Viðburðavarpið has 5 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Viðburðavarpið?

You can listen to Viðburðavarpið on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Viðburðavarpið?

Viðburðavarpið is created and hosted by Askell Heidar Asgeirsson.
URL copied to clipboard!