Vigdís bak við tjöldin podcast artwork

PODCAST · arts

Vigdís bak við tjöldin

Leikna sjónvarpsþáttaröðin um Vigdísi Finnbogadóttur hefur verið í þróun í yfir tíu ár enda vandasamt verk að koma uppvexti og mótunaröflum fyrsta þjóðkjörna kvenforseta heims í handritaform. Hvaða áskoranir fylgja því að túlka Vigdísi Finnbogadóttur, konuna sem braut blað í heimssögunni, og hvernig er hægt að endurskapa veröldina sem blasti við íslensku þjóðinni á fimmta til áttunda áratug síðustu aldar? Í þessum þáttum fáum við innsýn í handrita- og framleiðsluferli þáttanna. Leikstjórar, leikarar, leikmynda- og búningahönnuðir eru meðal þeirra sem sitja fyrir svörum og segja okkur sögurnar bakvið tjöldin.Umsjón: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  1. 4

    Fjórði þáttur

    Björg Magnúsdóttir og Ágústa Ólafsdóttir tóku að sér það vandasama verk að koma uppvexti og mótunaröflum fyrsta þjóðkjörna kvenforseta heims í handritaform. Í þessum þætti fáum við innsýn í handritagerð þáttanna auk þess sem leikstjórinn Tinna Hrafnsdóttir og leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir leiða okkur í gegnum vinnu sína og senurnar sem birtast okkur í lokaþættinum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  2. 3

    Þriðji þáttur

    Leikkonan Elín Hall og leikstjórinn Björn Hlynur Haraldsson segja hlustendum frá því hvernig þau nálguðust erfiðar og átakanlegar senur í leiknu þáttaröðinni Vigdís. Við fáum líka innsýn í búningahönnun þáttanna en búningahöfundurinn Helga I. Stefánsdóttir leiðir okkur í gegnum sína vinnu sem felur ekki einungis í sér að velja réttan klæðnað á Vigdísi og aðrar lykilpersónur heldur líka að skapa bakgrunn og sögu hundruð aukaleikara með réttum fatnaði. Leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir og leikstjórinn Tinna Hrafnsdóttir segja okkur líka frá sinni nálgun að verkefninu en Tinna leikstýrir Nínu Dögg Filippusdóttur í hlutverki sínu sem Vigdís Finnbogadóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  3. 2

    Annar þáttur

    Leikmyndahönnuðurinn Heimir Sverrisson hafði veg og vanda af því að búa til veröldina sem birtist okkur í leiknu sjónvarpsþáttaröðinni Vigdís. Í þessum þætti segir hann okkur frá því hvernig hann endurskapaði fimmta til áttunda áratug síðustu aldar. Við ræðum líka við Björn Hlyn Haraldsson, annan leikstjóra þáttanna, og leikkonuna Elínu Hall sem leikur Vigdísi unga að árum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  4. 1

    Fyrsti þáttur

    Rakel Garðarsdóttir er einn tveggja framleiðenda leiknu sjónvarpsþáttanna Vigdís. Í þessum þætti segir hún okkur frá því hvernig hugmyndin að þáttunum kviknaði og hvaða áskoranir fylgdu framleiðslunni. Við heyrum líka viðtal við leikkonuna Elínu Hall sem leikur Vigdísi frá menntaskólaárum að þrítugu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Leikna sjónvarpsþáttaröðin um Vigdísi Finnbogadóttur hefur verið í þróun í yfir tíu ár enda vandasamt verk að koma uppvexti og mótunaröflum fyrsta þjóðkjörna kvenforseta heims í handritaform. Hvaða áskoranir fylgja því að túlka Vigdísi Finnbogadóttur, konuna sem braut blað í heimssögunni, og hvernig er hægt að endurskapa veröldina sem blasti við íslensku þjóðinni á fimmta til áttunda áratug síðustu aldar? Í þessum þáttum fáum við innsýn í handrita- og framleiðsluferli þáttanna. Leikstjórar, leikarar, leikmynda- og búningahönnuðir eru meðal þeirra sem sitja fyrir svörum og segja okkur sögurnar bakvið tjöldin.Umsjón: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

HOSTED BY

RÚV Hlaðvörp

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Vigdís bak við tjöldin have?

Vigdís bak við tjöldin currently has 4 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Vigdís bak við tjöldin about?

Leikna sjónvarpsþáttaröðin um Vigdísi Finnbogadóttur hefur verið í þróun í yfir tíu ár enda vandasamt verk að koma uppvexti og mótunaröflum fyrsta þjóðkjörna kvenforseta heims í handritaform. Hvaða áskoranir fylgja því að túlka Vigdísi Finnbogadóttur, konuna sem braut blað í heimssögunni, og...

How often does Vigdís bak við tjöldin release new episodes?

Vigdís bak við tjöldin has 4 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Vigdís bak við tjöldin?

You can listen to Vigdís bak við tjöldin on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Vigdís bak við tjöldin?

Vigdís bak við tjöldin is created and hosted by RÚV Hlaðvörp.
URL copied to clipboard!