PODCAST · society
Þetta Reddast
by Sonja og Svanhildur
Tvær bugaðar, þreyttar mæður á besta aldri sem ákváðu,í augnabliki af ofmati á eigin getu, að byrja podcast.Hugarfarið okkar hefur alltaf verið að þetta reddist… einhvern veginn. Og hingað erum við komnar, með kaffi í annarri og taugaáfall í hinni.Við getum ómögulega lofað neinu þema, enda er lífið sjálft nógu mikið rugl og við fylgjum bara straumnum (og stundum ekki einu sinni því). En eitt er víst: við hlæjum, kvörtum, deilum og lifum af – og vonandi hlæið þið með okkur… eða að okkur.
-
7
Andlit á glugga, félagar í skógi og murder mystery?
Smá rannsóknarvinna hjá okkur stöllum! Hvað í ósköpunum erum við að lesa og syngja fyrir börnin okkar? Við ritrýndum þekktar sögur og kvæði sem við höfum flest lesið og sungið. Eftir að hafa rýnt í textana þá ætlum við mögulega að endurskoða hvað verður framvegis fyrir valinu!
-
6
Málsháttamálið mikla, klikkhaus í pontu og klósettpappírsskortur!
Málsháttarmálinu miklu er nú formlega lokið. Að sjálfsögðu gekk það ekki alveg þrautarlaust fyrir sig. Við ræddum nokkrar fréttir úr liðinni viku og tímann sem klósettpappír var orðinn söluhæsta varan á Íslandi.
-
5
Hebreska og húllumhæ
Enn og aftur er lagt af stað með plan en eins og okkur er lagið þá fórum við lengri leiðina. Samtalið fór frá Jerúsalem yfir til Góu og enduðum á mannanafnanefnd.
-
4
Sjálfsmildi, páskaeggjaskandall og málshættir
Eins og vanalega þá fórum við um víðan völl. Byrjuðum á alvarlegri nótum sem endaði í skandal tengt páskunum og svo misstum við mögulega aðeins þráðinn!
-
3
Inga Sæland, Núvitund og Jarðafarasálmar
Inga Sæland, Núvitund og Jarðafarasálmar
-
2
Barnaland, Pamela Anderson og Gulli Helga.
Umræðuefni þáttarins fór um víðan völl. Við ræddum um Barnaland og samfélagsmiðla, misjafnan árangur okkar af googli og af hverju við ákváðum að byrja með podcast.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Tvær bugaðar, þreyttar mæður á besta aldri sem ákváðu,í augnabliki af ofmati á eigin getu, að byrja podcast.Hugarfarið okkar hefur alltaf verið að þetta reddist… einhvern veginn. Og hingað erum við komnar, með kaffi í annarri og taugaáfall í hinni.Við getum ómögulega lofað neinu þema, enda er lífið sjálft nógu mikið rugl og við fylgjum bara straumnum (og stundum ekki einu sinni því). En eitt er víst: við hlæjum, kvörtum, deilum og lifum af – og vonandi hlæið þið með okkur… eða að okkur.
HOSTED BY
Sonja og Svanhildur
Loading similar podcasts...