PODCAST · arts
Fatlist
by Jóhannes Ólafsson
Þáttaröð í fjórum hlutum sem fjalla um birtingarmyndir fötlunar í menningu og listum. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir leiða hlustendur í gegnum sögu fötlunar, skilgreiningar hennar og hvaða mynd listin dregur upp af fötluðu fólki. Þær ræða við fræða- og listafólk, höfunda, fatlað fólk og aðgerðasinna sem sér efnið út frá ýmsum sjónarhornum. Umsjón: Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir.Ritstjórn og samsetning: Jóhannes Ólafsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
4
4. þáttur
Geðheilbrigði og list á jaðrinum verður aðalefni þáttarins. Rætt er við Héðinn Unnsteinsson sem hefur verið framarlega í réttindabaráttu í þágu geðheilbrigðis og farið verður í heimsókn í Listvinnsluna og í danstíma í Kúnstpásu.Viðmælendur: Héðinn Unnsteinsson rithöfundur, Íris Stefanía Skúladóttir dansari og kennari, Þórir Gunnarsson listamaður, Elín Sigríður María Ólafsdóttir listamaður, Eiríkur Karl Ólafsson Smith frá Rannsóknarsetri í fötlunarfræðum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
3
3. þáttur
Í þessum þætti verður kveikt á sjónvarpinu og farið í bíó. Birtingarmyndir fötlunar í kvikmyndum og sjónvarpi hefur tekið breytingum í gegnum árin, þar eru fatlaðar persónur oft annað hvort hetjan eða skúrkurinn og í gegnum söguna hafa ófatlaðir leikarar sem leika fatlaða persónu gjarnan verið tilnefndir til verðlauna, og unnið. Og myndlistin verður líka skoðuð og hvernig fötlun birtist í listinni og hver tækifæri fatlaðra listamanna eru.Viðmælendur þáttarins: Kristín Björnsdóttir prófessor í fötlunarfræði menntunar við Háskóla Íslands, Kjartan Þór Ingason verkefnastjóri hjá ÖBÍ, Helga Rakel Rafnsdóttir kvikmyndagerðarkona, Margrét Norðdahl myndlistarmanneskja og framkvæmdastýra Listvinnslunnar, Inga Björk Margrétar- Bjarnadóttir listfræðingur og doktorsnemi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
2
2. þáttur
Í þessum þætti er fjallað um birtingarmynd fötlunar í bókum og leikhúsi. Fatlaðar persónur eða fötlun er stundum notuð sem vending í söguframvindu eða nýtt sem tákn eða táknræn framsetning. En mega þá ófatlaðir ekki skrifa fatlaðar sögupersónur? Á leiksviðinusviði hafa ófatlaðir leikarar í gegnum tíðina farið með hlutverk fatlaðra en það er að breytast. Og þegar kemur að aðgengismálum er frekar gert ráð fyrir fötluðum sem þiggjendum menningar, ekki gerendum.Viðmælendur þáttarins: Gunnar Helgason rithöfundur, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Sjón rithöfundur, Karl Ágúst Þorbergsson sviðshöfundur, Embla Guðrúnar Ágústsdóttir félagsfræðingur og listamaður og Bjarni Snæbjörnsson leikari. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
1
1. þáttur
Í fyrsta þætti er farið yfir skilgreiningar og nokkur algeng sjónarhorn á fötlun sem hafa breyst í gegnum söguna. Með tilkomu fötlunarfræð á háskólastigi upp úr aldamótum jókst skilningur og sýnileiki fötlunar til muna.Viðmælendur þáttarins: Kristín Björnsdóttir prófessor í fötlunarfræði menntunar við Háskóla Íslands, Eiríkur Karl Ólafsson Smith frá Rannsóknarsetri í fötlunarfræðum og Hanna Björg Sigurjónsdóttir prófessor í fötlunarfræði við Háskóla Íslands. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Þáttaröð í fjórum hlutum sem fjalla um birtingarmyndir fötlunar í menningu og listum. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir leiða hlustendur í gegnum sögu fötlunar, skilgreiningar hennar og hvaða mynd listin dregur upp af fötluðu fólki. Þær ræða við fræða- og listafólk, höfunda, fatlað fólk og aðgerðasinna sem sér efnið út frá ýmsum sjónarhornum. Umsjón: Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir.Ritstjórn og samsetning: Jóhannes Ólafsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
HOSTED BY
Jóhannes Ólafsson
Loading similar podcasts...