Fotbolti.net

PODCAST · sports

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

  1. 1000

    Útvarpsþátturinn - Bikarskellir og Ágúst Orri

    Elvar Geir, Tómas Þór og Kári Snorra í hljóðveri. Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir bikarvikuna, næstu umferð í Bestu, fréttir vikunnar og fleira. Ágúst Orri Þorsteinsson, leikmaður Breiðabliks, er gestur í seinni hálfleiknum.

  2. 999

    Fótbolta nördinn: Úrslit - Fótbolti.net vs Draumaliðið

    Úrslitaþáttur Fótbolta nördans, en þátturinn var upphaflega í beinni útsendingu þann 12. maí. Í þættinum eigast við Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fyrir Fótbolti.net. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.

  3. 998

    Harkið - Haukavélin byrjuð að malla

    Harkið fór yfir stærstu atvikin í 2 umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir helstu félagaskiptin, bestu stuðningsmannalögin og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum. - 3. deild: 5 mín - 2. deild: 33 mín Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

  4. 997

    Hugarburðarbolti GW 36 VAR tæknin fær tvö rauð spjöld!

    Arsenal í dauðafæri á fyrsta Englandsmeistaratitlinum í 22 ár eftir leiki helgarinnar. Fórum vel yfir stóru málin og GW36. Sigurvegarinn kemur inn á FB síðu Hugarburðarbolta.

  5. 996

    Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Heimir mætir FH og Jökull á síðasta séns?

    16-liða úrslit Mjólkurbikarsins fara fram á miðvikudag og fimmtudag. Kári Snorrason og Almarr Ormarsson hituðu upp fyrir leikina átta. Rýnt var í hvern leik fyrir sig og spáð í spilin.

  6. 995

    Enski boltinn - Augnablikið sem allir munu tala um

    Arsenal er með pálmann í höndunum þegar liðið á tvo leiki eftir í ensku úrvalsdeildinni. Núna þarf bara eitthvað ótrúlegt að gerast svo þeir verði ekki meistarar. Arsenal vann 0-1 sigur á West Ham um helgina þar sem einn stærsti VAR-dómur sögunnar leit dagsins ljós. Mikið var rætt um þetta í Enski boltinn hlaðvarpinu sem og um aðra leiki helgarinnar en það er barátta á flestöllum vígstöðum þegar lítið er eftir af deildinni. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum og gestir eru ÍR-ingarnir Ágúst Unnar Kristinsson og Sölvi Haraldsson.

  7. 994

    Uppbótartíminn - Grátlegt fyrir Val og slakir sóknarmenn

    Fjórðu umferð Bestu deildar kvenna er lokið og þá er kominn tími á nýjan Uppbótartíma til að fara yfir allt það helsta. Grátleg niðurstaða fyrir Val á Kópavogsvelli þar sem tvö mörk voru skoruð í uppbótartíma, frábærir nýliðar, slakir sóknarmenn og margt fleira til umræðu. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum og með honum eru Magnús Haukur Harðarson og Snæbjört Pálsdóttir. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

  8. 993

    Útvarpsþátturinn - Úrslitaleikur um starfið

    Sjötta umferðin í Bestu deildinni er aðalmálið í þessum þætti. Elvar Geir, Tómas Þór, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke gera upp leikina fimm í Bestu deildinni sem fóru fram á föstudagskvöld. Lengjudeildin fær einnig sitt pláss, Mjólkurbikarinn er framundan og í lok þáttar kíkjum við út fyrir landsteinana.

  9. 992

    Besta spjallið - KR fer með himinskautum og martraðabyrjun FH

    Ragnar Bragi Sveinsson og Arnór Gauti Ragnarsson voru gestir í Besta spjallinu að þessu sinni. Í þættinum var farið yfir fyrsta mánuðinn í Bestu deildinni, staða liðanna rædd og helstu sögulínur teknar fyrir.

  10. 991

    Uppbótartíminn - Geta Vestmannaeyingar leyft sér að dreyma?

    Þriðja umferðin í Bestu deild kvenna kláraðist í kvöld og þá er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Nýliðar ÍBV fóru á Hlíðarenda fóru á Hlíðarenda og tóku þar sigur, eru með fullt hús stiga og spurning hvort Vestmannaeyingar geti leyft sér að dreyma um toppbaráttu í sumar. Breiðablik er einnig með fullt hús stiga eftir sigur í Víkinni. Stjarnan missti sigurinn úr höndum sér á Akureyri, FH tók sinn fyrsta sigur og Þróttur átti góða ferð í Úlfarsárdalinn. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Snæbjört Pálsdóttir voru yfir allt það helsta. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

  11. 990

    Fótbolta nördinn: Undanúrslit - Njarðvík vs Fótbolti.net

    Seinni undanúrslitaþáttur Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fyrir Fótbolti.net. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni

  12. 989

    Enski boltinn - Kobbie, Chelsea lúserar og Coventry fær sviðsljós

    Kobbie Mainoo var hetja Manchester United gegn Liverpool, Chelsea lét varalið Nottingham Forest flengja sig og Arsenal gerði afar vel í titilbaráttunni. Þá var Coventry sérstaklega mikið sviðsljós þennan þáttinn þar sem liðið er komið upp í ensku úrvalsdeildina eftir meira en 20 ár í burtu. Arnar Sæberg, Hemúllinn, er gestur í þættinum en hann er mikill Coventry stuðningsmaður. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum en Sölvi Haraldsson er einnig gestur. Þess má geta að þátturinn var tekinn upp á meðan leikur Everton og Man City var í gangi en hann endaði 3-3.

  13. 988

    Harkið - Draugamark á Dalvík

    Harkið fór yfir stærstu atvikin í fyrstu umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir helstu félagaskiptin og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum. - Yfirferð yfir 3. deild 3:30 - Yfirferð yfir 2. deild 31:30 - Spá fyrir næstu umferð 01:22 Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

  14. 987

    Innkastið - Hemmi svarar og Stjörnuhrap

    Innkastið eftir 5. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Almarr Ormarsson. Tveir rosalegir grannaslagir á laugardegi, Blikar fóru með þrjú stig heim með þyrlunni, ótrúlegur leikur í Kaplakrika, ÍA vann Stjörnuna og Víkingur vann Keflavík. Hermann Hreiðarsson tjáir sig um lætin í göngunum og Tryggvi Guðmundsson er í beinni frá Eyjum.

  15. 986

    Útvarpsþátturinn - Maður mánaðarins og gluggadómar

    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Umferðin framundan í Bestu deildinni er skoðuð og sérstaklega hitað upp fyrir toppslag Vals og KR. Rætt er við Aron Sigurðarson, leikmann KR, sem hefur verið valinn leikmaður mánaðarins fyrir aprílmánuð. Glugganum hefur verið lokað og stærstu kaupin eru skoðuð og dæmd. Lengjudeildin og Meistaradeildin koma einnig við sögu.

  16. 985

    Uppbótartíminn - Sögulegur sigur og viðvörunarbjöllur hringja í Hafnarfirði

    Önnur umferð Bestu deildar kvenna er að baki og þá er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Það eru tvö lið með fullt hús stiga, Grindavík/Njarðvík vann heldur betur sögulegan sigur en í Hafnarfirðinum eru viðvörunarbjöllur farnar að hringja. Magnús Haukur Harðarson og Arnar Páll Garðarsson fóru yfir allt það helsta. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

  17. 984

    Hugarburðarbolti GW 34 Var Egypski kóngurinn að spila sinn síðasta leik?

    Rosaleg spenna á toppi sem botni úrvalsdeildarinnar. Fórum yfir alla umferðina. Top 3 og Rauða spjaldið á sínum stað.

  18. 983

    Harkið - Maraþon upphitun fyrir 2. og 3. deild

    Harkið er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar um 2. og 3. deild karla. Þátturinn kemur út vikulega þar sem farið verður yfir úrslit og hápunkta eftir hverja umferð. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. Í þessum fyrsta þætti er hitað rækilega upp fyrir 2. og 3. deild karla. Farið var yfir hvert lið fyrir sig og spáð í spilin. - Byrjað var á upphitun fyrir 3. deild - 2. deild upphitun: 1 klst. og 7 mínútur - Spá fyrir fyrstu umferð: 2 klst. og 26 mínútur.

  19. 982

    Uppbótartíminn - Féllu á eigið sverð og umræðu svarað

    Besta deild kvenna er farin af stað og var mikið að ræða eftir fyrstu umferðina. Nýliðar í Grindavík/Njarðvík voru betri aðilinn gegn Val á Hlíðarenda en fóru tómhentar heim, leikmenn svöruðu umræðu úr upphitunarþættinum, Breiðablik með meistarasigur, nöfnurnar byrjuðu vel í ÍBV og jafntefli var niðurstaðan fyrir norðan. Þá mættu Magnús Haukur Harðarson og Arnar Páll Garðarsson með áhugaverða heimavinnu í lok þáttar. Guðmundur Aðalsteinn stýrir umræðunni.

  20. 981

    Enski boltinn - Hvað er hægt að segja um Liam Rosenior?

    Liam Rosenior er búinn að kveðja Chelsea eftir stuttan en eftirminnilegan tíma hjá félaginu. Hvað næst hjá Lundúnafélaginu? Hvað næst hjá Rosenior? Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Haraldi Erni Haraldssyni og fór yfir það, ásamt öllu því helsta sem hefur gerst í enska boltanum upp á síðkastið.

  21. 980

    Útvarpsþátturinn - Öflugri en nokkru sinni fyrr

    Lengjudeildin er öflugri en nokkru sinni fyrr og hún fær stóra sviðið í útvarpsþættinum þessa vikuna. Deildin er farin af stað; farið er yfir spá þjálfara og fyrirliða og rýnt í vonir og væntingar. Í þættinum er einnig hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Benedikt Bóas í hljóðveri.

  22. 979

    Niðurtalningin - Þriðja árið í röð?

    Því er spáð að Breiðabliki verði Íslandsmeistari þriðja árið. Þær eru að koma inn í nýtt tímabil sem tvöfaldir meistarar en þó hafa orðið miklar breytingar á hópnum og teyminu í kringum liðið. Agla María Albertsdóttir og Kristín Dís Árnadóttir, leikmenn liðsins, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir allt það helsta tengt Blikaliðinu.

  23. 978

    Niðurtalningin - Síðasta skrefið í tröppunum

    Það er komið að því, Besta deild kvenna fer af stað í kvöld. FH er spáð öðru sæti deildarinnar. Guðni Eiríksson, þjálfari liðsins, og Katla María Þórðardóttir, fyrirliði, komu í spjall á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu um ýmislegt tengt liðinu.

  24. 977

    Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin

    Besta deild kvenna fer af stað í kvöld með látum. Til þess að hita upp þá gerði Fótbolti.net stóran upphitunarþátt með góðum gestum. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrði umræðunni en sérfræðingar með honum voru Snæbjört Pálsdóttir, Arnar Páll Garðarsson og Magnús Haukur Harðarson.

  25. 976

    Innkastið - Mega skammast sín og gera það

    Innkastið eftir 3. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Víkingur vann stórleikinn, Valsmenn sannfærandi, baráttusigur Þórs, KR rúllaði yfir ÍBV, ÍA og KA er enn án sigurs og bitlausir Blikar gerðu markalaust jafntefli gegn Keflavík.

  26. 975

    Niðurtalningin - Langar að upplifa það aftur í Víkinni

    Það er komið að liðinu sem spáð er þriðja sæti í Bestu deild kvenna sumar, Víkingur Reykjavík. Einar Guðnason, þjálfari Víkinga, og Emma Steinsen, leikmaður liðsins, komu við á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu um sumarið sem er framundan.

  27. 974

    Fótbolta nördinn: Undanúrslit - Draumaliðið vs 433

    Fyrri undanúrslitaþáttur Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og Helgi Fannar Sigurðsson fyrir 433. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni

  28. 973

    Hugarburðarbolti GW 33 Er eitt ríkasta félagslið í heimi að falla?

    Fórum yfir 33 umferð deildarinnar þrátt fyrir 3 óspilaða leiki. Stórleikur umferðarinnar Man City gegn Arsenal stóðst allar væntingar og meira til.

  29. 972

    Niðurtalningin - Mun Stjarnan skína bjart í sumar?

    Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Veislan fer af stað á föstudag. Núna er komið að liðinu sem er spáð fjórða sæti. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, og Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir, lykilkona liðsins, mættu í hljóðver og fóru yfir stöðuna.

  30. 971

    Niðurtalningin - Þróttur horfir í Meistaradeildina

    Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna sem fer af stað á föstudaginn. Þrótturum er spáð fimmta sæti deildarinnar en markmiðin eru sett hærra en það í Laugardalnum. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, mætti ásamt Jóhann Kristinni Gunnarssyni, nýjum þjálfara liðsins, í hljóðver og fór yfir stöðu mála.

  31. 970

    Enski boltinn - Guð blessi Norður-London

    Enski boltinn á mánudegi eftir stærsta leik tímabilsins til þessa. Manchester City hafði betur gegn Arsenal í svakalegum fótboltaleik í gær. Ef bæði þessi lið vinna rest þá ræðst deildin á markatölu. Hvaða lið verður eiginlega meistari? Manchester United fór langt með að tryggja sér Meistaradeildarsæti, Chelsea er í dimmum dal en ekki dimmari dal en Tottenham. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Kári Snorrason fóru yfir allt það helsta.

  32. 969

    Útvarpsþátturinn - Kallaðir þú mig fokking tussu?

    Innkastið í beinni á X977. Önnur umferð Bestu deildarinnar er gerð upp. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars í fiskabúrinu á Suðurlandsbraut. Mönnum var heitt í hamsi og dómararnir í sviðsljósinu. KR og Stjarnan eru með fullt hús en Keflavík og KA hafa ekki náð að koma sér á blað. Farið er yfir alla leikina og hitað upp fyrir næstu umferð sem verður spiluð á miðvikudag og fimmtudag.

  33. 968

    Niðurtalningin - Hver er pælingin hjá Val?

    Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna, Valskonum er spáð sjötta sætinu. Það eru breyttir tímar á Hlíðarenda og verið að móta nýja stefnu. Við ræddum við Matthías Guðmundsson, þjálfara liðsins, og Málfríði Önnu Eiríksdóttur, leikmann liðsins, um stefnuna og komandi tímabil.

  34. 967

    Niðurtalningin – Húsvíkingurinn í brúnni á Akureyri

    Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er það Þór/KA sem er spáð sjöunda sæti deildarinnar. Við hringdum til Akureyrar og ræddum við Aðalstein Jóhann Friðriksson, þjálfara Þórs/KA, um komandi tímabil. Alli Jói tók við liðinu í vetur og er spenntur fyrir sumrinu.

  35. 966

    Niðurtalningin - Himnasending sem kom til Eyja í fyrra

    Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er komið að liðinu sem er spáð áttunda sæti, ÍBV. Við hringdum til Vestmannaeyja og ræddum við Jón Óla Daníelsson, þjálfara ÍBV, og Avery Mae Vanderven, fyrirliða liðsins. Viðtalið fer því fram á bæði íslensku og ensku.

  36. 965

    Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta

    Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er komið að liðinu sem er spáð níunda sæti, Grindavík/Njarðvík. Natasha Anasi, leikmaður liðsins, og Gylfi Tryggvason, þjálfari liðsins, komu í hljóðver og fóru yfir allt það helsta hjá þessu áhugaverða liði.

  37. 964

    Fótbolta nördinn - Njarðvík vs Grindavík

    Fjórði þátturinn í 8-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík og Damir Muminovic fyrir Grindavík. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni

  38. 963

    Hugarburðarbolti GW 32 Rosaleg spenna!

    Við Össi Árnason fórum vel og vandlega yfir 32. umferð í enska. Arsenal tapaði á heimavelli og Man City er á hælum þeirra með 0-3 sigri á Chelsea. Þetta og allt hitt í þætti dagsins.

  39. 962

    Niðurtalningin - Nýir vindar blása um í dal draumanna

    Það styttist núna heldur betur í Bestu deild kvenna en hún fer af stað eftir tæpar tvær vikur. Við á Fótbolta.net spáum í spilin fyrir mótið en Fram er spáð tíunda sæti. Við hringdum til Tenerife þar sem Framarar voru í æfingaferð og ræddum við Anton Inga Rúnarsson, þjálfara liðsins, og Hildi Maríu Jónasdóttur, fyrirliða liðsins, um komandi tímabil. Það hafa orðið talsverðar breytingar frá síðustu leiktíð.

  40. 961

    Enski boltinn - Stressið tekur öll völd

    Það er svakaleg helgi að baki í ensku úrvalsdeildinni en hún kláraðist í kvöld með óvæntum sigri Leeds á Manchester United á Old Trafford. Fjölmargir íslenskir stuðningsmenn Leeds gerðu sér ferð á leikinn í Manchester og skemmtu sér væntanlega konunglega. Stuðningsmenn Arsenal og Tottenham skemmtu sér ekki eins vel um helgina, en það fór allt úrskeiðis hjá þessum liðum. Guðmundur Aðalsteinn, Guðmundur Magnússon og Magnús Haukur Harðarson gerðu upp þetta helsta á mánudagskvöldi.

  41. 960

    Innkastið - Ferskir nýliðar og vandræðagangur hjá Val

    Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke gera upp sunnudagsleikina í Bestu deildinni. Fyrstu umferð er lokið. Þórsarar byrja á sigri á Hlíðarenda, KR náði að landa dramatískum sigri gegn nýliðum Keflavíkur og Stjarnan gerði góða ferð til Akureyrar. Jafntefli í Eyjum og í Úlfarsárdal.

  42. 959

    Útvarpsþátturinn - Óheppileg mistök og vítakall

    Veislan er byrjuð! Besta deildin er farin af stað. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke eru í hljóðveri. Fjallað er um stórmeistarajafntefli Víkings og Breiðabliks, hitað upp fyrir leiki sunnudagsins og farið yfir helstu fréttir og tíðindi.

  43. 958

    Enski boltinn - Sjokkerandi lélegt hjá Liverpool

    Lokaspretturinn er framundan í ensku úrvalsdeildinni. Hvaða lið verður meistari? Hvaða lið komast í Meistaradeildina? Hvaða lið fellur með Burnley og Wolves? Guðmundur Aðalsteinn fór yfir það helsta sem hefur gerst að undanförnu og helstu sögulínur með þeim Magnúsi Hauki Harðarsyni og Kára Snorrasyni. Farið var yfir úrslit í enska bikarnum og Meistaradeildinni ásamt því sem er framundan í ensku úrvalsdeildinni.

  44. 957

    Útvarpsþátturinn - Stóri upphitunarþátturinn fyrir Bestu

    Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, er sérstakur álitsgjafi en hitað er rækilega upp fyrir Bestu deildina. Elvar Geir og Tómas Þór stýra þættinum og fara yfir spá Bestu deildarinnar með Halldór sem sérfræðing. Í seinni hluta þáttarins er svo Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gestur.

  45. 956

    Niðurtalningin - Skjöldurinn verður loksins kyrr

    Ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings er spáð toppsætinu í spánni hér á Fótbolta.net. Skyldi spáin rætast yrði Víkingur fyrsta liðið til að verja Bestu deildar skjöldinn. Víkingarnir tveir, Tómas Guðmundsson og Ásgeir Frank Ásgeirsson, gerðu sér ferð á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag og ræddu um komandi tímabil í Víkinni

  46. 955

    Hugarburðarbolti - Extra Fantasy fráhvörf

    Jón Pétur Rúnarsson kom í þennan aukaþátt og við fórum yfir sviðið þegar 7.umferðir eru eftir af tímabilinu með fantasy augunum og bara almenn yfirferð. Lofuðum og löstuðum. Hverjir hafa skarað framúr? Mestu vonbrigðin? Hverjir hafa komið mest á óvart? Bestur það sem af er tímabils? Og auðvitað lið tímabilsins hingað til? Drógum að sjálfssögðu út sigurvegara í þættinum.

  47. 954

    Besta spjallið: Damir, Jón Þór og Gummi Ben rýna í liðin

    Besta spjallið er nýr þáttur þar sem Kári Snorrason fær til sín góða gesti í settið og fer yfir stærstu málin er varða Bestu deildina. Í þetta sinn komu Jón Þór Hauksson, Damir Muminovic og Guðmundur Benediktsson, og fóru yfir spá okkar fyrir deildina.

  48. 953

    Niðurtalningin - Tímabilið í fyrra stórslys í Kópavoginum

    Breiðabliki er spáð öðru sæti í spá Fótbolta.net fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni. Við fengum Blikana Guðjón Má Sveinsson og Kristján Óla Sigurðsson í hljóðver til að fara yfir málin hjá sínum mönnum fyrir sumarið.

  49. 952

    Niðurtalningin - Pressan í Garðabænum meiri en áður

    Stjörnunni er spáð þriðja sæti í spánni hér á Fótbolta.net, liðið endaði einnig í þriðja sæti á síðasta tímabili en stefnir nú hærra. Stjörnumennirnir tveir, Kristján Másson og Halldór Orri Björnsson, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu komandi sumar í Garðabænum.

  50. 951

    Fótbolta nördinn - SÝN vs Fótbolti.net

    Þriðji þátturinn í 8-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Ágúst Orri Arnarsson fyrir SÝN og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fyrir Fótbolti.net. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

TOPICS IN THIS SHOW

Click any topic to search every transcript on PodParley for moments someone mentioned it.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Podcastþættir Fótbolta.net

HOSTED BY

Fotbolti.net

Produced by Hafliði Breiðfjörð

CATEGORIES

URL copied to clipboard!