Framvindan - Tæknihlaðvarp

PODCAST · technology

Framvindan - Tæknihlaðvarp

Framvindan er hlaðvarp um nýja tækni og gervigreind, þar sem flókin hugtök eru gerð aðgengileg og nýjar tæknilausnir eru skoðaðar og ræddar. Umsjón með þáttunum hafa hjónin Gunnur von Matern og Gunnlaugur Egilsson, sem bæði hafa unnið lengi í tæknigeiranum í Stokkhólmi.Í þáttunum deila þau innsýn sinni með hlustendum sem vilja skilja afleiðingar tækninnar í dag og hvað sé framundan.

  1. 6

    Myndahöfundar og nýir miðlar: Sköpun, tækni og eignarhald + Hvað er raunverulegt lengur? - Þáttur #005

    Gervigreind getur í dag búið til myndir, teikningar og myndskeið á sekúndum, oft í stíl sem tekur listamenn ár að móta. Hraðinn er nýr. Umfangið er nýtt og þróunin hröð.Svo af hverju er umræðan um höfundarétt, eignarhald og gildi listar enn svona óljós?Við ræðum regluverkið og hvaða breytingar eru fram undan. Myndhöfundurinn Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir kemur í þáttinn og við spjöllum um hvernig þessi þróun hefur áhrif á hennar vinnu. Við skoðum hvað gerist þegar myndir, teikningar og málverk færast inn í heim algríma og hvernig það umbreytir hlutverki höfundarins.Við förum yfir tækin og tólin sem eru að móta þessa þróun, hvað virkar í raun og hvar áskoranirnar liggja. Og við leikum okkur líka: sjálfsmyndabreytingar, dagatal búið til með AI, gamlar myndir gerðar lifandi og spurningin sem fylgir öllu þessu. Hvað er raunverulegt lengur?Í þessum þættiVið leikum okkur:AI myndalíkön og sjálfsmyndabreytingarDagatal búið til með AI-generaðar myndirGamlar myndir gerðar lifandiHárgreiðslu- og útlitsbreytingar í rauntímaHvað er AI dysmorphia og af hverju er það að verða vandamál?Við tölum um:Deepfakes: hvernig þær virka og hvar þær eru að koma uppAI Act: hvað Evrópulöggjöfin þýðir í framkvæmd fyrir myndir og myndböndHöfundaréttur og AI: má tækni læra af verkum listamanna án leyfis?Commercial notkun: hvað gerist þegar auglýsingabransinn og stórir framleiðendur skipta yfir í AI myndirRéttindi listamanna og hvað þeir geta gert í þessu umhverfiTæki og tól vikunnarWhispr Flow — raddgreining sem breytir tali í fullkláraðar setningar í hvaða app sem er. wisprflow.aiReplicate — keyra og fínstilla AI líkön í eigin verkefnum, án þess að nota kóða. replicate.comNano banana í Google Gemini myndir í spjallbottinum. Þú verður að prófa þetta sjálfur.Higgsfield — Plattformur fyrir AI mynda- og myndbandsgerð. Búðu til myndir, breyttu þér í ólíkar persónur, og gerðu myndbönd með tæknibrellum, allt með einum smelli. higgsfield.aiStructured — skipulagningsapp sem sameinar verkefnalista, dagatal og gamification á einni tímalínu. structured.appÞátturinn er tekinn upp í útibúi ⁠⁠⁠Klakinn Studíó⁠⁠⁠ í Stokkhólmi

  2. 5

    Menntun á krossgötum - Gervigreind í skólanum, heilinn sem vöðvi og framtíð náms - Þáttur #004

    Harvard prófessor lætur 180 nemendum prufa tvær aðferðir til að læra námsefnið. Fyrst fer hópurinn á fyrirlestur með kennara. Síðan fær hópurinn að læra heima með gervigreindarkennara. Eins próf í lokinn. Gervigreindin vann, og hópurinn lærði tvöfalt meira á færri mínútum.Svo af hverju breytist ekkert í menntakerfinu?Í þessum þætti förum við inn í þetta samtal með Birni Kristjánssyni kennara. Hann er hluti af opinberu tilraunaverkefni sem er að innleiða gervigreind í grunnskóla í Reykjavík akkúrat núna. Við heyrum hvað virkar í raun, hvað er erfitt og hvað kennararnir segja.Við ræðum Harvard rannsóknina sem fæstir tóku mark á, MIT gögnin um 47% samdrátt í taugatengingum, stýrandi notkun gegn verkfæranotkun og Gunnur kynnir þrjá persónulega Claude útsendara og ráðgjafa sem hún notar daglega: heilsuráðgjafann, fjárhagsráðgjafann og verkefnastjórann. Tæki og tól:Sora by OpenAI (myndgenerator): https://openai.com/index/sora-2/Claude (AI assistant og agents): claude.aiNotebookLM by Google: notebooklm.google.comFrekara lesefni:Harvard Gazette — Hvernig gervigreind gæti gjörbreytt skólum 2050: news.harvard.edu/gazette/story/2025/09/how-ai-could-radically-change-schools-by-2050/MIT — Your Brain on ChatGPT: news.mit.eduOECD Digital Education Outlook 2026: oecd.org/en/publications/oecd-digital-education-outlook-2026_062a7394-en.htmlHoward Gardner — Harvard Graduate School of Education: gse.harvard.edu/directory/faculty/howard-gardnerÞátturinn er tekinn upp í útibúi ⁠⁠Klakinn Studíó⁠⁠ í Stokkhólmi

  3. 4

    Hvað varð um metaverse? + VR, AI gleraugu og nýja internetið sem kom aldrei - Þáttur #003

    Í október 2021 breytti Mark Zuckerberg nafni Facebook í Meta. Hann lofaði okkur nýju interneti, heimsbyggð þar sem við myndum vinna, kynnast og lifa lífi okkar sem avatar í sýndarveruleika.Meta tapaði yfir 83 milljörðum króna á þessum draumi. Samt fór hlutabréfaverðið upp um 3,5% daginn sem fyrirtækið tilkynnti niðurskurð.Í nýjasta þætti af Framvindu skoðum við hvað gerðist í raun og hvert sýndarveruleikinn er að fara.Í þættinum:Af hverju féll metaverse? Og er þetta saga um tækni sem kom of snemma, eða tækni sem var aldrei ætluð venjulegu fólki?VR sem virkar: frá klínískri notkun til iðnaðar, og af hverju Quest 3 og Ray-Ban gleraugu segja okkur meira um framtíðina en nokkur avatar.Við tókum upp hluta af þættinum í Horizon worlds.Hlustaðu á þáttinn og sjáðu hvert þetta er allt að stefna.Tæki og tól:Perplexity, gervigreindarleitarvél og rannsóknatól: perplexity.aiNotebookLM frá Google, gervigreindarpodcast- og greiningartól: notebooklm.google.comÞátturinn er tekinn upp í útibúi Klakinn Studíó í Stokkhólmi.#Framvindan #VR #Tækni #AI #sýndarveruleiki #AIgleraugu

  4. 3

    Framtíð kvikmynda og auglýsinga á tímum gervigreindar + Látnir leikarar snúa aftur með hjálp gervigreindar - Þáttur #002

    Kvikmyndaiðnaðurinn er að breytast hratt. Og fólk vill upplifa eitthvað meira en hefðbundið bíó.Við erum ekki lengur sátt við að sitja kyrr og horfa á skjá. Við viljum upplifa og vera inni í sögunni.Í nýjasta þætti af Framvindu skoðum við hvernig tæknin er að umbreyta kvikmyndagerð:Gervigreind styður framleiðsluferla, flýtir vinnu og opnar nýja möguleika.Hún getur jafnvel fært látna leikara aftur inn í kvikmyndir. En hvað þýðingu hefur það fyrir skapandi fólk?Horfðu eða hlustaðu á þáttinn og sjáðu hvert þetta er allt að stefna.Tæki og tól: • Claude (AI assistant): claude.ai • Whisper by OpenAI): whisperai.com • Meshy (3D character creation from images and drawings): meshy.ai • Mixamo (3D character rigging and animation): mixamo.comÞátturinn er tekinn upp í útibúi ⁠Klakinn Studíó⁠ í Stokkhólmi#Framvindan #Kvikmyndir #Tækni #AI

  5. 2

    Eru íslensk fyrirtæki leiðandi í notkun gervigreindar eða bara einn maður með ChatGPT? + Gervigreindarkulnun + Uppáhalds AI tólin okkar - Þáttur #001

    Í fyrsta þætti Framvindu tökum við á stóru spurningunni: eru íslensk fyrirtæki virkilega leiðandi í notkun gervigreindar, eða er bara einn maður með ChatGPT á hverju skrifstofu? Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands nota 50% fyrirtækja einhvers konar gervigreindartækni, en aðeins 14% hafa mótað sér formlega stefnu. Við ræðum hvað þessar tölur þýða í raun, berum þær saman við Svíþjóð og Bandaríkin, og deilum tólunum sem eru að spara okkur mestan tíma núna.Tenglar og tól:Hagstofa Íslands — Upplýsingatækninotkun fyrirtækja 2024: hagstofa.isNotion – notion.comLM Studio (keyrir AI módel staðbundið á þinni eigin tölvu) – lmstudio.aiÞátturinn er tekinn upp í útibúi Klakinn Studíó í Stokkhólmi

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Framvindan er hlaðvarp um nýja tækni og gervigreind, þar sem flókin hugtök eru gerð aðgengileg og nýjar tæknilausnir eru skoðaðar og ræddar. Umsjón með þáttunum hafa hjónin Gunnur von Matern og Gunnlaugur Egilsson, sem bæði hafa unnið lengi í tæknigeiranum í Stokkhólmi.Í þáttunum deila þau innsýn sinni með hlustendum sem vilja skilja afleiðingar tækninnar í dag og hvað sé framundan.

HOSTED BY

Gunnur og Gunnlaugur

CATEGORIES

URL copied to clipboard!