Grísirnir þrír

PODCAST · comedy

Grísirnir þrír

Grísirnir þrír er grínpodcast þar sem spunaleikararnir og vinirnir Gummi Fel, Geinar og Pálmi ræða allt milli himins og jarðar. Óskrifaðar reglur, eftirhermur, spurningakeppnir og framtíðin eru meðal efnis. Þeir eru allir með bakgrunn í spuna með Improv Ísland auk þess að vera meðlimir í sketsahópnum Kanarí.

  1. 59

    #59 - FINALE

    Jæja kæru vinir, þá er komið að því. Lokaþátturinn. Við lítum yfir farinn veg og förum í fallegan en óþægilegan hróshring. Ný útgáfa af fimmunni lítur dagsins ljós og splunkunýtt þemalag fyrir lið sem Geinar undirbjó ekki. Allt eins og það á að vera.  Við viljum þakka öllum gríslingum kærlega fyrir samfylgdina og hlustunina, fyrir spurningarnar og peppið! Við munum snúa aftur einhvern daginn. Einhvernveginn.  Bæjó!

  2. 58

    #58 - The nitty gritty

    Geinar stal hjólinu sínu og 200 manns horfðu. Strákarnir ræða mjög fullorðinslega hluti eins og skírnarveislur og leigutryggingu. Ótrúlegir hlutir gerast í fimmunni og hvort myndirðu frekar er á sínum stað!  Fylgdu okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  3. 57

    #57 - Hvar er Gummi?

    Hvaða nafn skal nota í útlöndum? Eru rennilásar inni í typpum? Er eðlilegt að mæta skyndilega með kanínu á heimilið? Þessum spurningum og mörgum fleiri svara grísirnir í þætti þar sem Gummi kemur seint og Gummi fer snemma.    Ps. búið ykkur undir STÓR TILKYNNINGU!

  4. 56

    #56 - 10 km keppni??

    Gummi er byrjaður að skokka og Geinar vill alls ekki taka þátt í 10 km hlaupinu af ótta við að vera með lélegri tíma en Gummi. Pálmi gerir fráááábæra Trump eftirhermu.  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  5. 55

    #55 - Gummi Fel og Mamma Fel

    Mamma hans Gumma, Ásdís Malmquist Ingþórsdóttir er gestur vikunnar! Afhverju er Gummi eins og hann er? Er eðlilegt að hugsa sturtuferðina til enda áður en þú ferð í sturtu? Gera það allir? Erum við skrítin? Hver veit! Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  6. 54

    #54 - Þú kaupir barn og fylgjan fylgir með!

    Gummi hatar lélegt skipulag á röðum. Er lægri þröskuldur til að knúsa fólk í jarðarför? Strákarnir fara í keppni um hluti sem ALLAR konur vita (nema Blær og örugglega margar fleiri) og Geinar leikur fyndinn karakter þangað til karakterinn er allt í einu mannlegur harmleikur. Og ekki missa af RISA tilkynningunni í lokin!!!  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  7. 53

    #53 - Stefnumótaforrit fyrir vini

    Geinar hefur áhyggjur af því að við kennum börnunum okkar að dýr spili á hljóðfæri. Pálmi er ekki kominn yfir mómentið sem gerðist fyrir mánuði þegar hann hitti frægan leikstjóra. Og er ekki kominn tími á stefnumótaforrit fyrir vini?? Eða væri það bara mjög skrítið?  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  8. 52

    #52 - Blær með fleiri klósettpælingar (pt. 2)

    Já, Blær er ennþá gestur og hún er með fleiri klósettpælingar. Krakkarnir fara í æsispennandi keppni um hver er mest miðaldra og við heyrum splunkunýtt lag um átakafælni eftir Salsakommúnuna!  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir 

  9. 51

    #51 - Blær klósettgrís (pt. 1)

    Blær er gestagrís vikunnar! Og við töluðum svo mikið að við þurftum að MAKE IT A TWO PARTER! Ókunnugur maður á háalofti, íbúðir í Prag eru scam, húðrútina er scam, konur kúka saman á djamminu og margt fleira! Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  10. 50

    #50 - The live show!

    Það var stór stund þegar fyrsta live upptaka Grísanna þriggja fór fram. Grísirnir eru meyrir yfir viðtökunum og þakklátir yfir samfélagi gríslinganna sem eru BESTU AÐDÁENDUR Í HEIMI!   Grísirnir tækluðu erfiðar aðstæður (með slæmum árangri), tókust hart á um óskrifaðar reglur í bíó og tóku eftirhermukeppni fyrir aldirnar.

  11. 49

    #49 - Svínabónda-gítarsóló

    Síðasti þáttur fyrir Live-þáttinn sem verður á litla sviðinu í Tjarnarbíó 26. júní! Ef þú hefur ekki núþegar tryggt þér miða þá muntu ekki geta staðist freistinguna þegar þú heyrir auglýsingarnar í þessum þætti! Fimman er á sínum stað og loksins raða strákarnir í top fimm lista yfir kolvetni. Númer 5 mun koma þér á óvart!  Fylgdu okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  12. 48

    #48 - Stóri tilkynningaþátturinn

    Það verður stór tilkynning í lok þáttar! Ekki gleyma að hlusta á stóru tilkyninnguna sem er í lok þáttarins! Annars gerðist líka alls konar skemmtilegt í þessum þætti. Spurningar frá hlustendum og ég veit ekki hvað og hvað! Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  13. 47

    #47 - Spegill í hnakka og málið er dautt

    Erfiðar aðstæður í þætti dagsins. Hvað gerum við þegar við missum af glugganum til að segja sögu? Eða hittum leiðinlegan leikhúsgest eða ef ókunnug manneskja vill halda á barninu okkar? Hvað ef maður vill alltaf láta klippa meira af hárinu sínu?  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  14. 46

    #46 - Með ís í golfi

    Jájájá 20 mínútna samtal um golf frá þremur mönnum sem kunna ekki golf. IKEA er í ruglinu og of fjölmennir messenger þræðir eru óþolandi. Pálmi er búinn að eignast óvin og Geinar er alltaf bara sami gamli Geinar :)  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  15. 45

    #45 - Muna að kaupa bíl með dekk

    Leiðinlegi þátturinn part 2 - umræður um steyputappa, Bykoferðir, bílakaup og allskonar leiðinlegt. Hvar er sumarið?? Tuð tuð tuð og stuð stuð stuð! Fylgið okkur á instagram! @grisirnirthrir

  16. 44

    #44 - Óskýrmæltur leigubílstjóri

    Pálmi hlustar á podcöst á 60% hraða til að sofna, Geinar leikur óskýrmæltan leigubílstjóra og flestir sem hlusta á fyrirlestra skilja þá ekki. Fullt af erfiðum aðstæðum og leikþáttum í þætti dagsins! Endilega hlustið á 60% hraða ef þið viljið sofna! Fylgið okkur á Instagram og sendið spurningar eða erfiðar aðstæður! @grisirnirthrir

  17. 43

    #43 - Leiðinlegi þátturinn

    Jæja gott fólk, það hlaut að koma að því. Við gerðum leiðinlegan þátt. Mikið talað um neglur, gardínur og ryksugur. Í þættinum má líka heyra laaaangt rifrildi um hegðun fólks í strætóskýlum. Góða skemmtun! Fylgið okkur á Instagram @grisirnirthrir

  18. 42

    #42 - Hússtjórnarskólinn er að hlusta

    Pálmi er byrjaður að ganga með buddu og Gummi er byrjaður að gera vont content á Tiktok. Við svörum spurningum gríslinga og gerum senur sem tengjast kúk.  Fylgið okkur á Insta! @grisirnirthrir

  19. 41

    #41- Ef opinn er hann, þá niður fer hann

    Strákarnir fara yfir víðan völl og ræða mataræði, snakkvenjur og fleira og fleira.

  20. 40

    #40 - THE PIGS ARE BACK BABY

    Við erum komnir aftur!!!!

  21. 39

    #39 - Hjólreiðaspecial (ásamt Búa)

    Það er mashup þáttur þessa vikuna því Búi Bjarmar, stjórnandi Hjólavarpsins, kíkir í heimsókn. Eða erum við að kíkja í heimsókn til hans? Það er ekki alveg skýrt hvort podcastið er gestur í hinu podcastinu en hey strákarnir eru svo miklir fagmenn að þið takið örugglega ekkert eftir þeim ágreiningi í þættinum. Óskrifuð regla á hjóli, erfiðar aðstæður á hjóli og eftirherma af hjóli. Hjól hjól hjól.  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir Og tékkið á podcastinu hans Búa! 

  22. 38

    #38 Var Ginny Weasley rétta stelpan fyrir Harry Potter (sóló þáttur)

    Pálmi er aftur einn. Einn í Afríku að taka upp þátt. Hann veltir fyrir sér spurningum lífsins og hvort Ginny hafi virkilega verið stelpan fyrir Harry?

  23. 37

    #37-Hafnað af góðgerðarsamtökum

    Grísirnir tengja sig saman frá Evrópu og Afríku til þess að ræða málin. Guð sé lof fyrir nútímatækni til þess að getað farið í hreimakeppni milli heimsálfna og rætt hvernig barninu manns gengur að kúka.  

  24. 36

    #36 - B.A. ritgerð um okkur???

    Pálmi og Gummi fara yfir vægast sagt magnað rit: Heila B.A. ritgerð sem var skrifuð um Grísina þrjá!! Eða reyndar bara hvernig við (og fleiri) segjum “ha?” en samt alveg magnað. Pálmi segir frá því þegar hann var í fangelsi sem hann ákvað sjálfur að fara í og hugmyndin um Grísahugleiðslubúðir kviknar. Tékkið á B.A. ritgerðinni “Ha? - Um breytingar í tónfalli í barnaefni og hlaðvörpum” eftir Kolbrúnu Maríu Másdóttur. Hún droppar á Skemmunni 24. feb! Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  25. 35

    #35 Menningarsjokk í Laugar Spa

    Strákarnir hittast loksins hver í sínu horni og fara yfir óskrifaðar reglur í ræktinni, kynferðislegt menningarsjokk í Laugar spa, hvor sé líklegri til þess að stofna snorturt kaffihús í framtíiðinni og margt fleira.

  26. 34

    #34 Grísir um víða veröld

    Fyrsti þáttur 2024 og fyrsti fjarþátturinn. Mikilvæg málefni rædd eins og Borgartún, nærbuxur og barnabílstólar. Hvað gera grísir á nýju ári.  

  27. 33

    #33 - Ekki treystandi fyrir framan míkrófón (ásamt Steiney)

    Gestagrís vikunnar er hin óviðjafnanlega Steiney Skúladóttir. Við biðjumst velvirðingar á lélegum hljóðgæðum í þættinum, við kunnum ekki að stilla græjurnar á RÚV rétt. Steiney fer á trúnó með strákunum og sýnir í eitt skipti fyrir öll hvað hún er fáránlega góð eftirherma! Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  28. 32

    #32 - Áramótaspecial (ásamt Arnaldi Snæ, 3 ára)

    Lokaþáttur ársins og gestur vikunnar er enginn annar en Arnaldur sonur Gumma! Hvað er betra en að fá gest í podcastið sem er þriggja ára, hefur ekki áhuga á að taka þátt í samræðunum, leiðist mjög mikið og gerir óþarfa læti í stúdíóinu? Fókusleysið er allsráðandi en Grísirnir reyna að komast yfir spurningar og svo er eftirhermukeppni. Og að sjálfsögðu tveir brandarar frá Arnaldi! Hefðum við getað klippt þennan þátt meira? Sennilega. Nenntum við því? Nei :)  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  29. 31

    #31 - Jólaspecial

    Gleðilega hátíð kæru grísir! Í jólagjöf fáið þið return of the king. Já, Geinar er kominn aftur og það er fantagír í honum þrátt fyrir vandræðalegt bílamóment fyrir nokkrum vikum. Við ræðum óskrifaðar reglur á jólunum, fegurðina í ljótleika ógeðslegra jólasería og tökum spurningar frá hlustendum á hundavaði. Æsispennandi spurningakeppni grallaranna með jólaþema, og í takt við anda jólanna þá bætti Pálmi auðvitað við twisti við keppnina þar sem við þurfum að ljúga.  Fylgið okkur á instagram! @grisirnirthrir

  30. 30

    #30 - Óskrifaðar reglur í ræktinni

    Það eru bara tveir grisir í grísabæ þessa vikuna. En strákarnir fá hjálp frá hlustendum og búa til óskrifaðar reglur i ræktinni. En fara svo í erfiðasta leik í heimi. Að herma eftir dýrum á eins sannfærandi hátt og hægt er. Fylgdu okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  31. 29

    #29 - Stór bragðarefur í hádeginu

    Grisirnir eru ennþá vængbrotnir þar sem Geinar er ennþá fjarri góðu gamni. En gestagrís þáttarins er Stefán Ingvar uppistandari úr uppistandshópnum VHS. Strákarnir fara yfir borðspilsreglur og fullt af öðru gerist líka sko. Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  32. 28

    #28 - Pálmi fær gjöf

    Komdu með okkur í gauralegasta podcastið hingað til. Stefán Gunnlaugur úr Improv Ísland er gestagrís vikunnar og þátturinn er svo sannarlega all over the place. Skemmtilegar spurningar frá hlustendum, nýtt stef og jólakraftaverk! Umræður um TED fyrirlestra, holur í garðinum og hvað við öfundum fíla því þeir þurfa ekki að small-talka. Gaurar elska að lyfta og hlusta á power ballöður. Gaurar elska að grafa holur. Gaurar elska að mála herbergið sitt appelsínugult. Já, já, já já já. Fylgdu okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  33. 27

    #27 - Einn einmana grís

    Pálmi þarf að gera þátt einn. Hvernig fer það?

  34. 26

    #26 - Sósu- og kynlífsstellingajóladagatal

    Grísirnir fara um víðan völl í þætti dagsins. Pálmi montar sig af djúpum eyrum og kærustu sem er eins og klunnalegur hundur. Strákarnir eru orðnir galmir og irrelevant og þessvegna vilja þeir bara jóladagatal með mismunandi tei.  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  35. 25

    #25 - He he he...

    Gestagrísinn Hákon Örn Helgason mætir í heimsókn. Hann er spunaleikari, Pabbastrákur og körfuboltakvikmyndaáhugamaður. Strákarnir ræða Hrekkjavökuna, Vídeólegur og venjur í tölvupóstsamskiptum. Hver er munurinn á haha, hahah og hahaha? Hvað gerir maður þegar maður sónar út í samtali og þarf að láta eins og ekkert hafi í skorist? He he he… Fylgdu okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  36. 24

    #24 - Improv Grísland

    Grísirnir Þrír og Hlaðvarp Improv Íslands sameina krafta sína í dag til að skapa þennan einstaka mashup þátt. Rebekka Magnúsdóttir og Stefán Gunnlaugur Jónsson spunaleikarar slást í för með Geinari og Gumma og saman tæklar fjóreykið erfiðar aðstæður tengdar afmælisdögum, apótekum og njálg. Við endum að sjálfsögðu þáttinn á hinum geysivinsæla en smá óbærilega leik Gestastælar.  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  37. 23

    #23 - Stóra hatta- og kotasælumálið

    Tveir af grisunum eru alltaf með höfuðföt, en geta þeir verið með hatta? Er eðlilegt að borða eintóma kotasælu? Er það jafnvel siðlaust? Stórt er spurt og mikið um svör. Sérfræðingur þáttarins í iðnaðarmönnum (aka iðnaðarmaður) ræðir félagslegar aðstæður frá stjónarhorni iðnaðarmanna. Misheppnaður liður með frábæru þemalagi, fimma, spurningakeppni og fleira og fleira.

  38. 22

    #22 - Sendum mömmu á keramiknámskeið

    Grísirnir fara í hinn sívinsæla Tiktok-leik sem er fullkominn leikur til að spila á hljóðrænum miðli. Auðveldasta leiðin til að smyrja brauð með köldu smjöri er að senda mömmu sína á keramiknámskeið. Vandræðalegar minningar rifjaðar upp og æsispennandi keppni af Educated guess - world record edition! Erfiðar aðstæður eru á sínum stað og líklega þær óþægilegustu hingað til. Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  39. 21

    #21 - Tipp topp smalltalk

    Grísirnir þrír eru loksins sameinaðir á ný eftir back to back tveggja grísa þætti. Er besta lausnin á öllum félagslegum klemmum bara að ljúga? Strákarnir reyna að leika erfiðar aðstæður en eru bara óvart of góðir í að gera grínraddir. Fimman og Spurningakeppni Grallaranna eru á sínum stað og alls konar skemmtilegt grín og gaman flipp. Gleðilegan hrekkjavökumánuð! 

  40. 20

    #20 - Snudduálfurinn

    Gummi fór í zipline og Pálmi er byrjaður á Tiktok. Pálmi kennir okkur memory palace aðferðina. Þurfa hestar að nota snuddur? Hvaða landvættur myndi vinna í slag? Hvað eru landvættirnir eiginlega stórir? Mikið spjall um landvætti og líka óþarflega mikið spjall um hegðun í umferðinni. Þátturinn er í boði Caves of Hella! Skemtilegasta afþreyingin á suðurlandi! Ef þið kíkið þangað endilega heilsið upp á hestana Mola og Ágúst.   Fylgið okkur á Instagram: grisirnirthrir

  41. 19

    #19 - Foreldrafrí

    Pabbi grísanna, Gummi Fel, komst ekki í þáttinn í dag svo litlu grísirnir tveir taka bara algjöran flippþátt. Remix af þemalaginu, spurningar frá hlustendum, tik tok & fleira.

  42. 18

    #18 - Stóra showið

    Grísirnir ráðleggja gríslingunum hvað skal gera ef maður móðgar óvart gym kennarann sinn eða ef maður hættir við að kaupa hlut eftir að fá mikla þjónustu. Auk þess fer fram ein epískasta eftirhermukeppnin til þessa.   Grísirnir ræða líka um sýningu Kanarí hópsins í Tjarnarbíó sem beðið er með mikilli eftirvæntingu.

  43. 17

    #17 - Grísalestin

    Hvernig bjargar maður vini sínum úr samtali? Elvis var með skothelt plan fyrir slíkar aðstæður. Góðvinur þáttarins, Hröðvar, kíkir í heimsókn og grísirnir ræða kúr fyrir svefn, óskrifaðar reglur í framsæti og hvernig þeir myndu spjara sig í fortíðinni. Gætu grísirnir þrír búið til vindmyllu árið 5000 fyrir krist? Nei. En gætu þeir útskýrt hvernig vindmylla virkar? Nei.   Fylgið okkur á Instagram og sendið spurningar, óskrifaðar reglur eða erfiðar aðstæður! @grisirnirthrir

  44. 16

    #16 - Flubberheimer

    Grísirnir ræða hvað Flubber væri skemmtileg viðbót við allar bíómyndir sem gerðar hafa verið. Hlustendur sem hafa ekki séð Flubber eru vinsamlegast beðnir um að horfa á hana strax. Eftirhermukeppnin er á sínum stað og inniheldur meðal annars óbærilegt samtal milli Mikka mús og Mikka mús. Geta karlmenn feikað fullnægingar? Afhverju var grísinn Baddi ekki með typpi? Og þarf suðurríkja-Geinar kannski að fara á spítala? Flubber. Fylgdu okkur á Instagram! @grisirnirthrir

  45. 15

    #15 - Roast samlokan

    Master of social skills snýr aftur og fer yfir óskrifaðar reglur í giftingum. Mega allir biðja DJinn um óskalag? Hvað gerir maður ef maður er of fínn? Og síðast en ekki síst hvað eru margar fimm mínútur í einni veislu? Gríslingarnir hafa verið gríðarlega duglegir að senda inn spurningar og meðal umræðuefna eru landvættirnir, Disney prinsessur, Bítlarnir og afhverju Geinar er svona huggulegur. Hann gjörsamlega elskaði að svara þeirri spurningu! 

  46. 14

    #14 - Lubbi Morthens

    Grísirnir ræða hræðslu sína við unglinga og setja sjálfa sig í erfiðar aðstæður, ímynda sér að gera podcast í kjarnorkubyrgi í 10 ár og að sjálfsögðu mæta hinir góðkunnu Lubbi Morthens og Adolf Bitler í heimsókn.

  47. 13

    #13-Three proper pigs

    Strákarnir bjóða frægum í matarboð, tala ensku sannfærandi og reyna að skilja hvað má og hvað má ekki í flugvélum.

  48. 12

    #12 - Stóri Collab hrekkurinn

    Fyrir þáttinn laumast strákarnir til að hella collab úr dósinni hans Gumma og fylla hana svo af sódavatni. Glöggir hlustendur heyra þegar Gummi uppgötvar hrekkinn Í BEINNI ÚTSENDINGU! Grísirnir svara svo spurningum um feimnar blöðrur, gömul deit og brutal frænkur í matarboðum. Þeir deila líka erfiðri reynslu af sveittum knúsum og blautum handaböndum og Gummi Fel á stefnumót við sjálfan sig úr fyrra lífi.

  49. 11

    #11 - Barbenheimer special

    Það eru allir að tala um Barbenheimer og grísirnir eru engin undantekning.

  50. 10

    #10 - Kurteisisleg bílflauta

    Hann er kominn! Þáttur númer 10! Sem við héldum reyndar að væri þáttur númer 8. En hvað um það. Óskrifaðar reglur í umferðinni, spurningar frá hlustendum og ótrúlega spennandi eftirhermukeppni! Ef þú hefur heyrt um óskrifuðu regluna að blikka hazard-ljósunum til að segja takk í umferðinni, endilega sendu okkur línu á Instagram, @grisirnirthrir 

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Grísirnir þrír er grínpodcast þar sem spunaleikararnir og vinirnir Gummi Fel, Geinar og Pálmi ræða allt milli himins og jarðar. Óskrifaðar reglur, eftirhermur, spurningakeppnir og framtíðin eru meðal efnis. Þeir eru allir með bakgrunn í spuna með Improv Ísland auk þess að vera meðlimir í sketsahópnum Kanarí.

HOSTED BY

grisirnirthrir

CATEGORIES

URL copied to clipboard!