PODCAST · sports
Gullkastið
by Kop.is
Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.
-
394
Gullkastið – Erfiður Heimavöllur?
Anfield Road í vetur hefur verið völlurinn þar sem lið í frjálsu falli geta mætt og fengið sjálfstraust á ný. Amorim vann sem stjóri United, Totenham og Chelsea voru búin að tapa sex leikjum í röð áður en þau mættu á Anfield, Sean Dyche náði í 3-0 sigur áður en hann var rekinn og ekkert af nýliðunum hefur tapað á Anfield. Frammistaðan og leikurnn gegn Chelsea var alveg á pari við þessa verslu leiki og stuðningsmenn á Anfield orðnir það langþreyttir að baulað var hraustlega á liðið, það er ekki eðlilegt ástand á Anfield. Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er ekki staðfest ennþá en Liverpool fær gott tækifæri á Villa Park á föstudaginn. Sigurvegari í þeim leik verður í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Staða Arne Slot hefur töluvert mikið verið til umræðu þessa vikuna Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Óli Haukur Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
-
393
Gullkastið – Stórleikur um helgina
Liverpool fer næst á Old Trafford og getur með sigri náð djöflunum að stigum sem væri hressandi eftir allt sem á undan er gengið í vetur. Risaslagur að vanda en Meistaradeildarsætið að ári er orðið ansi líklegt eftir annan góðan sigur í deildinni gegn Crystal Palace. Drógum svo m.a. tvo heppna í Bræðsluleiknum okkar en þeir fá sitthvora tvo miðana á Bræðsluna á Borgarfirði Eystri í sumar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...