Iðjuleysinginn

PODCAST · society

Iðjuleysinginn

Iðjuleysinginn gefur sér tíma til að rýna í málefni stór og smá. Fréttir dynja á okkur alla daga — hér gefum við okkur andrými til að skilja heiminn, frekar en að taka við tilbúnum túlkunum annarra.

  1. 12

    #12 Kúba og erlend afskipti

    Send us Fan MailKúba er fallegt land með iðandi mannlífi og ríka menningu. Dansandi fólk á strætum undir lifandi tónlist þar sem öldungar púa vindla er sjón sem maður sér fyrir sér þegar hugurinn reikar til Kúbu. Hins vegar hefur erlend íhlutun verið fyrirferðarmikil í sögu Kúbu, þar sem stórveldi hafa ráðið miklu um örlög landsins.Iðjuleysinginn veltir fyrir sér hvernig lítil eyja í Karíbahafinu varð að brennidepli kalda stríðsins og hvað örlög bíða íbúa þessarar fögru eyju.

  2. 11

    #11 Þrautarganga Gyðinga og raunir þeirra

    Send us Fan MailSaga Gyðinga er sorgarsaga. Ekki er til nein þjóð né trúarbrögð sem hafa mætt slíkum ofsóknum eins og Gyðingar hafa mætt. Í gegnum aldirnar, og jafnvel árþúsundir, hafa þeir verið landlausir, búið við skert réttindi og á sumum tímabilum hreinlega reynt að útrýma þeim.Iðjuleysinginn fer yfir sögu Gyðinga og þeirra raunir og gerir tilraun til að setja áskoranir við botni Miðjarðarhafs í samhengi við sögu þjóðar sem hefur þurft að búa við mismunum svo langt sem sögur ná.

  3. 10

    #10 Angela Merkel og Evrópa samtímans

    Send us Fan MailÞað má færa rök fyrir því að Angela Merkel sé sá stjórnmálamaður sem hefur haft ein mest áhrif á stjórn Evrópu. Hún leiddi álfuna í mörgum málefnum, sem hefur bæði leitt af sér velsæld en einnig áskoranir sem Evrópa stendur frammi fyrir í dag.Iðjuleysinginn fer yfir sögu Angelu Merkel frá barnsæsku til kansara Þýskalands og setur það í samhengi við málefni álfunnar.

  4. 9

    #9 Uppgangur Pútíns og Rússland dregið á lappir

    Send us Fan MailEftir þá niðurlægingu sem fylgdi hruni Sovétríkjanna hefur Vladimír Pútín náð sífellt sterkari tökum á rússnesku samfélagi og stjórnmálum. Í kjölfar óreiðuáranna undir stjórn Borís Jeltsíns var leitað til tiltölulega lítt þekkts embættismanns sem fáir hefðu þá getað ímyndað sér að myndi þróast í það vald sem hann er í dag. Rússland nútímans er að mörgu leyti orðið að Rússlandi Pútíns.Iðjuleysinginn fjallar um uppgang Pútíns innan valdakerfis Rússlands, sem og þá sögulegu þróun og sjálfsmynd sem hefur mótað stöðu landsins á síðustu áratugum.

  5. 8

    #8 Íran í farvegi átaka

    Send us Fan MailBandaríkin og Ísrael hafa hafið stórfelda loftárás á Íran. Fólk óttast um stigmögnum átaka og óljóst hver þróun á Írönsku samfélagi verða.Iðjuleysinginn fer yfir sögu Írans frá 1900 og til dagsins í dag og varpar ljósi á farvegi sem klerkastjórnin komst til valda. Iðjuleysinginn veltir líka fyrir sér hver eru markmið innárásarinnar og hvaða þýðingu hafa átökin á heimsmálin.

  6. 7

    #7 Umhverfismál taka í veskið og sálina

    Send us Fan MailUmhverfisváin, ógnunin, kvíðinn, afneitunin og allt þar á milli berst í brjósti okkar flestra. Nú erum við einnig farinn að finna fyrir skuldbindingum ríkisins á buddunni okkar og þá fer nú sársaukin upp í nýjar hæðir.Iðjuleysinginn spyr sig, er hlýnun jarðar af mannavöldum raunveruleg eða er þetta bara eitthvað samsæri sprottið af vísindamönnum og embættismönnum sem eru að maka sinn eigin krók. 

  7. 6

    #6 Hvað er voke og er hægt að skilja það

    Send us Fan MailSvo virðist að hugtakið voke hefur tekið á sig neikvæða merkingu en hvað þýðir hugtakið og fyrir hvað stendur það. Hugtakið stóð eitt sinn fyrir vitund og réttlætisbaráttu en nú veltir Iðjuleysinginn því fyrir sér af hverju hefur meining orðsins breyst og af hverju er það orðið svo umdeilt að sumir fá ofnæmis viðbrögð við það eitt að heyra á það minnst.

  8. 5

    #5 Jeffrey Epstein - hvernig varð hann ofurríkur

    Send us Fan MailJeffrey Epstein er á allra manns vörum og ekki af ástæðulausu. Iðjuleysinginn gerir tilraun til að svara því hvernig Epstein varð einn af auðustu og áhrifamestu mönnum í New York. Maður án háskólagráðu potaði sig inn í kennara starf í skóla ríka fólksins. Varð meðeigandi fjárfestingabanka og hvernig hann tengdist eiganda einna stærstu smásölusamsteypu Bandaríkjanna.

  9. 4

    #4 Trump og heimurinn - Seinni þáttur

    Send us Fan MailSeinni hluti umfjöllunar um Trump fer í að ræða utanríkismál fyrir, á meðan og eftir að valdatíð hans.Má bara segja hvað sem er ?

  10. 3

    #3 Smá pælingar um brúnkusprey og Trump - Fyrri þáttur

    Send us Fan MailBrúnkusprey og hárblásarar hljóta að fara að detta í tísku aftur. Í það minnsta er valdamesti maður heims stórnotandi.Reynum að sjá Donald Trump frá sjónarhorni stuðningsmanna hans í Bandaríkjunum.

  11. 2

    #2 Matur nær og fjær

    Send us Fan MailAllir sem eiga frystikistu eða frystiskáp þekkja það að taka mat út og afþíða daginn áður og ekkert fer til spillis, eða hvað ??En hvernig spilar matarmenning í heimsvæðingu nútímans.

  12. 1

    #1 Tilurð ESB

    Send us Fan MailNóg getur fólk rifist um ESB með réttu eða röngu, en til hvers var það eiginlega stofnað. Við gerum tilraun til að svara því !

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Iðjuleysinginn gefur sér tíma til að rýna í málefni stór og smá. Fréttir dynja á okkur alla daga — hér gefum við okkur andrými til að skilja heiminn, frekar en að taka við tilbúnum túlkunum annarra.

HOSTED BY

Leon og Maggi í Lennahelli

URL copied to clipboard!